Embla - 01.01.1946, Side 88
slóðir. Þar hefur vatn brotið skarð í fjallið og myndað skriðu
endur fyrir löngu. Er þar einstigi niður.
Þar sem nú var orðið kvöldsett og áætlað var að komast að Nesi
um kvöldið, gátum við ekki komið að Herdísarvík án þess að
taka á okkur stóran krók, þar sem girðingin liggur langt fyrir
austan víkina. Var því haldið áfram. Nú voru greiðar götur til
bæja. Þarna er fallegur gróður, blóm og birki, móti sólu, í skjóli
fjallsins, mikil hvíld fyrir augað frá hraununum, sem við höfðum
gengið allan daginn.
Stakkavík er vestasti bær í Selvogi. Komum við þar og fengum
mjólk. Var fólkið þar hlýlegt og gott. I llíðarvatn liggur alveg að
Stakkavík að vestan, og var nú freistandi að fá bát yfir vatnið, sem
sparaði okkur 2—3 klst. göngu. Bóndinn átti trillubát, sem synir
hans voru að tjarga þá um morguninn. Var liann því ekki vel
þurr að innan, en velkominn okkur, ef við vildum þiggja liann í
slíku ástandi, sem við og gerðum. En botnóttar urðum við býsna
vel.
Þá vorum við komnar að Vogsósum. Þar er ljómandi fallegt, —
valllendisflatir, þegar túninu sleppir. Vatnið framan við bæinn
rennur þar til sjávar gegnum ósinn, sem bærinn dregur nafn af.
Nú var miðnætti. Engin hreyfing sást á bænum. Sjálfsagt allir
menn í fasta svefni. Svartbakur, ritur og kríur mynduðu livítar
breiður niðri á fjörunum. Endur syntu letilega með unga sína á
vatninu, sem var purpuralitað frá endurskini sólarlagsins. Við
gengum niður að sjónum. Það var fjara. Skerin, vafin sjávargróðri,
náðu langt út í sjó og mynduðu spegilslétt lón á milli sín. Þar var
æðarfuglinn og ú-aði hálfólundarlega yfir þessu ónæði svona um
hánóttina. Þá dró það ekki úr fegurðinni, að máninn, sem var
kominn nokkuð liátt á loft, speglaðist í lónunum. Allt var kyrrt.
Náttúran tók á sig náðir. I svona andrúmslofti gleymist stund og
staður. Maður samlagast náttúrunni, leggst endilangur á sjávar-
bakkann og teygar að sér ilminn úr jörðinni og seltuna frá sjón-
um, nýtur þess að vera til.
Við gengum í rólegheitum gegnum byggðina. Að Nesi, sem er
austasti bærinn, komum við á fimmta tímanum. Þar liugðumst
við að fá leigða liesta hjá Guðmundi bónda upp að Hveragerði.
86
EMBLA