Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ÁKVÖRÐUN Seðlabankans um stýrivaxtalækkun uppskar harka- leg viðbrögð frá aðilum vinnumark- aðarins eins og við var að búast enda var lækkunin langt undir því sem vonast hafði verið eftir, aðeins um eitt prósentustig, og standa stýrivextir því nú í 12% til 2. júlí. „Það eru allar forsendur til þess að lækka vextina meira en gert var,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra. „Menn munu sjá það þegar kemur að næsta vaxtalækkunardegi að það mun standa sem við höfum sagt að því er varðar ríkisfjármálin og peningastefnunefndinni átti að vera kunnugt um að við myndum standa við það. Þess vegna veldur það mér vonbrigðum að hún skuli ekki hafa séð sér fært að lækka meira.“ Seðlabanki í fílabeinsturni Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, lýstu því báð- ir yfir í kjölfar vaxtalækkunarinnar að svo virtist sem Seðlabankinn kærði sig kollóttan um hvernig málin þróuðust á vinnumarkaði, en hefði einangrað sig í fílabeinsturni. „Þeir eru ekki viðtakendur, þeir setja sig í eitthvert dómarasæti og neita staðfastlega að vera þátttak- endur í að búa til atburðarás sem leiði til þess að við komumst út úr þessum ógöngum,“ segir Gylfi. Á fundi sem boðaður hefur verið um stöðugleikasáttmála kl. 10 í dag má búast við því að frekari við- ræðum verði slitið. Þetta þýðir að kjarasamningar verða ekki framlengdir í júnílok enda „ekkert vit í því að halda áfram“ nema vextir lækki niður fyrir 10% að mati Vilhjálms. Fyrir hinn almenna launamann þýðir þetta að sögn Gylfa „að hann fær í fyrsta lagi ekki launahækkun 1. júlí, að það eru lausir kjara- samningar og félagar okkar eru í áframhaldandi óvissu um stöðu sína“. Ekki má gleyma verðbólgunni Launaviðræður opinberra starfs- manna munu hins vegar halda áfram að sögn Árna Stefáns Jóns- sonar, starfandi formanns BSRB. „Við höfum ekki gert kjarasamn- inga og munum ekki láta þetta uppnám hafa áhrif á okkur heldur freista þess að ná samningum.“ Jóhanna Sigurðardóttir segir það sína einlægu von að vinna að stöðugleikasáttmála fari ekki í uppnám þrátt fyrir að brugðið geti til beggja vona í því vegna vaxta- ákvörðunarinnar. „Við megum ekki við því, við verðum að halda áfram að þeim markmiðum sem við höf- um sett okkur þrátt fyrir að þessu vaxtalækkunarferli vindi ekki eins hratt fram og vonast var til.“ Jóhanna leggur þó áherslu á mikilvægi þess fyrir atvinnulífið að farið verði eins hratt og mögulegt er í stýrivaxtalækkun á næstunni. Hins vegar verði líka að horfa til sjónarmiða peningastefnunefndar. „Þeir eru ekki að leika sér að því að halda stýrivöxtunum í þeirri stöðu sem þeir eru. Við verðum líka að horfa til lækkunar geng- isins og hvaða áhrif það hefur á verðbólguna, sem er mjög bagaleg fyrir heimilin og fyrirtækin ekki síður en háir vextir. Þetta verður allt að skoðast í samhengi.“ Megum ekki fyllast vonleysi Jóhanna ítrekar að allar for- sendur séu fyrir hendi til að tryggja frekari stýrivaxtalækkun. Ríkisfjármálin og þær leiðir sem fara þarf á næstu árum til að ná niður gríðarlegum halla verði lagð- ar fyrir þingið í þessum mánuði. Auk þess náist vonandi niðurstaða í lánasamninga við Norðurlöndin og Icesave-deiluna á næstunni. „Það er ekkert sem bendir til annars en að öll sú áætlun sem við höfum sett fram muni ganga eftir. Við megum ekki fyllast vonleysi, það eru engir aðrir kostir en að horfa fram á veginn og sjá ljósið í hinum enda ganganna.“ Vonbrigði með vextina  Allar forsendur til að lækka vexti meira segir forsætisráðherra  Seðlabankinn hefur einangrað sig að mati ASÍ og SA sem hyggjast slíta viðræðum Hæstiréttur hef- ur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að þrír karlmenn, sem réðust ásamt fleirum inn í hús í Keilufelli í Reykjavík fyrir rúmu ári og réð- ust þar á menn, sæti 2½ árs fang- elsi hver. Fjórði maðurinn, sem í héraði var dæmdur í 3½ árs fangelsi fyrir árásina, áfrýjaði ekki dómnum. Mennirnir sem dæmdir voru í Hæstarétti heita Marcin Labuhn, Robert Kulaga og Tomasz Roch Dambski. Þeir voru jafnframt dæmdir til að greiða sameiginlega miskabætur til brotaþola. Mennirnir fjórir voru ákærðir fyr- ir húsbrot og sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa ruðst í heimildarleysi inn í íbúðarhúsið við Keilufell og veist þar að sjö mönnum og slegið þá ítrekað í höfuð og víðs vegar um líkama með hættulegum vopnum og bareflum. Keilufells- dómur staðfestur Þrír karlmenn sæta 2½ árs fangelsi Húsið þar sem árásin átti sér stað. FORMAÐUR Sjálfstæðisflokks velti því fyrir sér í ræðustóli á Alþingi í gær hvort væri óþægilegra að vera þingmaður Sam- fylkingarinnar eða fréttamaður á Stöð 2 þegar svona rík fjárhagsleg tengsl væru gerð opinber á milli stjórn- málaflokksins og þeirrar fjölmiðla- samsteypu sem reki þá fréttastofu. Hann sagði framsetningu fyr- irspurnar Róberts Marshall, þing- manns Samfylkingarinnar og fyrrum fréttamanns Stöðvar 2, ósmekklega, en Róbert spurði hvort Sjálfstæðis- flokkurinn ætlaði sér að birta upplýs- ingar um fjármál undirfélaga flokks- ins og kjördæmaráða, eins og Sam- fylkingin hafi gert. Þá óskaði Róbert þess sama af öðrum flokkum. Bjarni benti á að Sjálfstæðisflokk- urinn hefði tilnefnt fulltrúa sinn í nefnd um þessi mál og ekki vekti fyrir honum annað en að ná saman um upplýsingagjöf um fjárhagsleg mál- efni flokka aftur í tímann. gag@mbl.is Róbert ósmekklegur? Bjarni Benediktsson VONBRIGÐI sögðu þingmennirnir Tryggvi Þór Her- bertsson og Pétur H. Blöndal Sjálfstæðisflokki, Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokki, Árni Þór Sigurðsson Vinstri-grænum og Helgi Hjörvar Samfylkingu á Alþingi í gær um þá ákvörðun Seðlabankans að lækka stýrivexti um eitt prósentustig, niður í tólf prósent. Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki sagði háu stýri- vextina gera íslensku atvinnulífi mun erfiðara fyrir en ella að komast aftur af stað og skapa verðmæti og um leið verða aftur að þeim skattstofni sem ríkissjóður þyrfti á að halda. Ástæða hárra stýrivaxta væri sú að enn skorti raunhæfar áætlanir í ríkisfjármálunum og þar sem rík- isstjórninni hefði ekki tekist að endurreisa bankakerfið. Birkir Jón Jónsson Framsókn tók undir orð Illuga og benti á að fjörutíu dagar væru frá kosningum og rík- isstjórnin orðin 120 daga gömul: „Staðreyndin er sú að við búum við verklausa ríkisstjórn.“ Helgi Hjörvar benti á að hér þyrfti að taka stærstu og erfiðustu ákvarðanir í lýðveldissögunni í ríkisfjármálum. Taka þyrfti ákvarðanir um aðgerðir að umfangi 170 millj- arðar; sem næmu nærri tveimur milljónum á hvert heim- ili. „Verkefnið er gríðarlega stórt, það er gríðarlega við- kvæmt og gríðarlega mikilvægt að til þeirra tillagna sé vandað.“ Betra sé að taka nokkrar vikur í ákvarðanirnar en að aðgerðirnar verði til að dýpka enn samdráttinn og auka á vanda þjóðarinnar. gag@mbl.is Þingmenn vonsviknir með stýrivaxtalækkun  Gagnrýndi verklausa ríkisstjórn á 120 daga valdatíð » Helgi Hjörvar: Gríðarlegur vandi » Pétur Blöndal: Harmi sleginn » Gunnar Bragi: Heimilum blæðir » Árni Þór: Afleiðing frjálshyggju » Björgvin G.: Brostnar væntingar „Okkur er umhugað um að heildarmarkmiðum sé náð, en ekki um smáatriði eins og hver vaxtaprósentan er, hversu mikið henni er breytt og hvenær. Slíkar ákvarðanir eru komnar undir Seðlabankanum sjálfum og peninga- stefnunefnd,“ segir Franek Rozwadowski, fastafulltrúi IMF á Íslandi. „Það má alltaf deila um smáatriðin; var rétt að hafa litla lækkun þennan mánuðinn eða hefði kannski ekki átt að lækka vextina neitt? Það skiptir okkur ekki öllu máli í raun, það sem skiptir máli er að vaxtastefnan í heild sé í samræmi við þörfina til að tryggja stöðugleika gengisins.“ Aðspurður hvort búast megi við róttækari hækkunum næstu mánuði segir Rozwadowski of snemmt að segja til um það. „Það er ástæða fyrir því að vextirnir eru settir frá mánuði til mánaðar og hún er sú að þeir þurfa að vera í samræmi við nýjustu upplýsingar hverju sinni. Það sem hefur áhrif á ákvarðanir næstu mánaða er þróun gengisins og verðbólgunnar og hvort skýr áætlun um stöðugleika í ríkisfjármálum sé fyrir hendi.“ Ekki undir AGS komið að ákveða vexti Sumarblómin eru komin í Blómavali Skútuvogi FIMMTÍU milljónum, sem Hrings- konur færðu Barna- og unglinga- geðdeild Landspítalans í gær, verð- ur varið til endurbóta á dag- og legudeild BUGL. Áætlað er að hefja framkvæmdir þegar í sumar. Í fyrra var nýtt göngudeildarhús tekið í notkun á deildinni. Næsti áfangi er að lagfæra það rými sem dagdeild barna og bráðamóttaka unglinga hafa yfir að ráða. Aukin áhersla á dagdeildarþjón- ustu BUGL endurspeglar þá sýn að sjúklingurinn sé hluti af sinni fjöl- skyldu. Meðal annars verður öll að- staða til sérhæfðrar meðferðar fyr- ir foreldra og fjölskyldu bætt og einnig aðstaða til afþreyingar fyrir börnin. Höfðingleg peningagjöf Hringsins Ljósmynd/Landspítalinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.