Morgunblaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009
Nýir þingmenn Alþingis nálgastnýtt starf með misjöfnum
hætti, eins og gengur og gerist.
Sumir hafa vit á því að hafa hægt
um sig til að byrja með, fylgjast
með reyndari þingmönnum, læra
þingsköpin og undirbúa sig af kost-
gæfni fyrir raunverulega þátttöku í
þingstörfum.
Aðrir hafa lít-inn metnað í
þá veru og telja
sig líklega fulln-
uma í fræðunum.
Slíkur þingnýliði
er Robert Mars-
hall, sem með
lágkúrulegum
málflutningi sín-
um á Alþingi í
gærmorgun fór með störf þingsins
niður á óvenju lágt plan.
Hann spurði m.a.: „Ætlar formað-ur Sjálfstæðisflokksins ekki að
beita sér fyrir því að sjálfstæð-
isfélög Sjálfstæðisflokksins og kjör-
dæmisráð upplýsi nú um þá styrki
sem þau öfluðu án liðsinnis aðal-
skrifstofu flokksins, líkt og Sam-
fylkingin hefur nú gert?“
Bjarni Benediktsson, formaðurSjálfstæðisflokksins, veitti ný-
liðanum tiltal og spurði: „Hvort ætli
sé óþægilegra að vera þingmaður
Samfylkingarinnar eða fréttamað-
ur á Stöð 2 þegar svona rík fjár-
hagsleg tengsl eru gerð opinber á
milli stjórnmálaflokksins og þeirr-
ar fjölmiðlasamsteypu sem rekur
þá fréttastofu.“
Hér vísaði Bjarni til þess að Sam-fylkingin þáði 25 milljónir
króna í styrki frá Baugstengdum
fyrirtækjum á árinu 2006. Gunnar
Helgi Kristinsson nefndi mútur í
viðtali við RÚV fyrir nokkrum vik-
um í tengslum við styrki FL Group
og Landsbankans til Sjálfstæð-
isflokksins. Hvernig skilgreinir
Gunnar Helgi 25 milljóna króna
Baugsstyrkina til Samfylking-
arinnar?!
Róbert Marshall
Snaran og hús hengda mannsins
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 11 skýjað Lúxemborg 14 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað
Bolungarvík 10 alskýjað Brussel 14 skýjað Madríd 26 léttskýjað
Akureyri 9 léttskýjað Dublin 17 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað
Egilsstaðir 7 léttskýjað Glasgow 14 skýjað Mallorca 24 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað London 17 heiðskírt Róm 24 léttskýjað
Nuuk 8 heiðskírt París 19 heiðskírt Aþena 25 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað Amsterdam 10 skúrir Winnipeg 12 skúrir
Ósló 7 skúrir Hamborg 12 skýjað Montreal 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað Berlín 13 skýjað New York 16 skýjað
Stokkhólmur 7 skúrir Vín 17 skýjað Chicago 17 léttskýjað
Helsinki 7 skúrir Moskva 16 skýjað Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
5. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.38 3,2 10.50 0,8 17.09 3,6 23.24 0,8 3:12 23:41
ÍSAFJÖRÐUR 0.49 0,5 6.37 1,8 12.56 0,5 19.15 2,0 2:20 24:43
SIGLUFJÖRÐUR 2.32 0,2 9.07 1,0 14.58 0,3 21.06 1,2 1:59 24:30
DJÚPIVOGUR 1.45 1,8 7.46 0,6 14.18 2,1 20.36 0,6 2:31 23:22
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Hæg norðlæg eða breytileg átt,
skýjað og smávæta austantil en
annars úrkomulaust að kalla.
Hiti yfirleitt 8 til 16 stig, hlýjast
inn til landsins.
Á sunnudag (sjómannadag-
urinn) og mánudag
Hægviðri og skýjað að mestu,
en víða skúrir sunnantil á land-
inu. Hiti 7 til 15 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag
Fremur hæg norðlæg átt, skýj-
að og dálítil væta norðanlands
en annars skýjað með köflum.
Áfram milt í veðri. Hiti 6 til 13
stig.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðvestan 3-8 metrar á sek-
úndu, skýjað að mestu og smá-
væta í flestum landshlutum.
Hiti 7 til 16 stig að deginum,
hlýjast inn til landsins.
KAJAKRÆÐARINN Gísli H. Friðgeirsson hefur
nú lagt um 170 kílómetra að baki frá því hann lagði
upp í hringróður um Ísland á mánudag. Í gær-
kvöldi var Gísli kominn í Dritvík á Snæfellsnesi.
Takist Gísla ætlunarverk sitt verður hann fyrsti
Íslendingurinn til að róa á kajak umhverfis Ísland
en nokkrir útlendingar hafa áður unnið þetta af-
rek. Gísli mun hins vegar setja aldursmet hring-
ræðara en hann verður 66 ára gamall síðar á þessu
ári.
Gísli er í Kayakklúbbnum og hægt er að fylgjast
með ferðalaginu á www.kayakklubburinn.is.
Sævar Helgason, annar félagi í klúbbnum, er í
daglegu sambandi við Gísla og ritar ferðasöguna.
Ferðamenn til aðstoðar
Á vefnum kemur fram að þegar Gísli ætlaði að
taka land skammt frá Ökrum á Snæfellsnesi á
miðvikudagskvöld hafi honum vart litist á blikuna
vegna brims og íhugaði að lengja ferðina um 10
km og taka land við Búðir. „En þá sá hann tvo
ferðamenn sem veifuðu honum úr fjörunni þarna
og óðu á móti honum til aðstoðar og allt í sóm-
anum,“ skrifaði Sævar. runarp@mbl.is
Kajakræðara miðar vel í hringferð
Verður ekki fyrstur en setur aldursmet 170 kílómetrar á fjórum dögum
GRUNNSKÓLI Reyðarfjarðar tók
á móti Grænfánanum nýverið við há-
tíðlega athöfn á sal skólans. Grunn-
skóli Reyðarfjarðar varð „skóli á
grænni grein“ árið 2005 og hefur
umhverfisnefndin unnið mikið starf
til að gera skólann umhverfisvænni
og kenna starfsfólki og nemendum
umgengni og vinnubrögð sem sam-
ræmast því. Þeir skólar sem vinna
að því að fá Grænfánann og verða
skólar á grænni grein þurfa að stíga
sjö umhverfisskref áður en þeim
hlotnast Grænfáninn til tveggja ára
og þurfa að halda áfram að vinna að
umhverfismálum til að halda honum.
Orri Páll Jóhannsson frá Land-
vernd kom og afhenti fánann og á
móti honum tók stóra Grænfána-
nefndin sem skipuð er starfsfólki í
umhverfisnefnd og hópi nemenda.
Ganga Farið var með Grænfánann í skrúðgöngu um bæinn.
Grunnskóli Reyðar-
fjarðar fékk Grænfána
Í HNOTSKURN
»Grænfáninn er alþjóðlegtverkefni sem Landvernd
er aðili að.
»Er markmið þess að aukaumhverfismennt og
styrkja umhverfisvitund í
skólum.