Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 19

Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 19
Fréttir 19VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SUND ehf., sem átti 22% hlut í Northern Travel Holding (NTH) um ellefu mánaða skeið á árinu 2007, var með sölutryggingu á hlut sínum, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. NTH var á þeim tíma móðurfélag Sterling-flugfélagsins, en efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra framkvæmdi húsleitir á miðvikudag vegna rannsóknar á við- skiptum fyrrverandi eigenda félags- ins með Sterling. Sölutryggingin var með þeim hætti að Sund gat í raun ekki tapað á því að kaupa í NTH. Samkomulag lá fyrir sem tryggði að Baugur, sem á þeim tíma var stærsti hluthafinn í FL Group, myndi kaupa hlutinn á sama verði og Sund ehf. keypti hann á, um 2,7 milljarða króna, auk vaxta ef Sund vildi losna við hann. Sund seldi hlut sinn í NTH í lok árs 2007. Umboðslausar millifærslur Morgunblaðið sagði frá því í gær að Hannes Smárason, þáverandi stjórnarformaður FL Group, hefði millifært um þrjá milljarða króna inn á bankareikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg til að „lána“ Fons, eign- arhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, fyrir hluta af kaupverði Sterling þegar það var keypt vorið 2005. Kaupverðið var á þeim tíma fjórir milljarðar króna, en Sterling var síð- an selt áfram til FL Group rúmu hálfu ári síðar á fimmtán milljarða króna. Að lokum var Sterling síðan selt inn í nýstofnað félag, NTH, í blálok ársins 2006 fyrir 20 milljarða króna. Heimildir Morgunblaðsins herma að þetta hafi einvörðungu verið gert til að koma Sterling úr bókum FL Group. Söluhagnaðurinn var síðan bókfærður og hluthafar FL Group greiddu sér út fimmtán milljarða króna í arð fyrir árið 2006. Lán sem aldrei voru greidd NTH skuldaði 20 milljarða króna samkvæmt ársreikningi félagsins 2007. Það eru þeir 20 milljarðar króna sem greiddir voru fyrir Sterl- ing þegar NTH keypti flugfélagið í árslok 2006. Fjórtán milljarðar af því fé voru seljendalán frá FL Gro- up, sem þá var almenningshluta- félag. Hinir sex milljarðarnir voru lán frá Fons til NTH, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hinn 17. september 2008, hálfum mánuði fyrir bankahrun, tilkynnti FL Group, sem þá hét Stoðir, að fé- lagið hefði selt 34% hlut sinn í NTH til Fons. Samhliða sölunni átti að hafa farið fram uppgjör á fjórtán milljarða króna seljendaláninu sem veitt var þegar FL Group var enn al- menningshlutafélag. Talsmenn FL Group/Stoða hafa aldrei viljað gefa upp hvert söluverðið á hlutnum var né hversu mikið af láninu var greitt til baka. Sölutrygging fylgdi kaupum Sunds í NTH Morgunblaðið/ÞÖK Flugslys Sterling var selt með miklum hagnaði þrátt fyrir að tapa miklu fé. Sölutrygging fylgdi kaupum Sunds ehf. á 22% hlut í NTH í árslok 2006. Baugur skuldbatt sig til að kaupa hlutinn á sama verði auk vaxta.  Baugur sölutryggði 22% hlut Sunds í Northern Travel Holding  Hluturinn var seldur innan árs Í HNOTSKURN »NTH var stofnað í árslok2006 til að kaupa Sterling af FL Group á 20 milljarða. » Í kjölfarið var Sundi boðiðað eignast hlut í NTH gegn sölutryggingu, sem félagið nýtti sér síðar. »Aðrir eigendur NTH voruFL Group og Fons, sem keypti Sterling upphaflega með láni frá FL. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is JÓN S. Helgason, löggiltur endur- skoðandi og einn eigenda KPMG, „játar því hvorki né neitar“ að hafa haft vitneskju um að Hannes Smárason hafi millifært um þrjá milljarða króna inn á bankareikn- ing hjá Kaupþingi í Lúxemborg í apríl 2005 í tengslum við kaup eign- arhaldsfélagsins Fons á danska flugfélaginu Sterling. Efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar nú aðkomu FL Group að umræddum kaupum. Jón var endurskoðandi FL Group og skrifaði upp á ársreikninga fé- lagsins. Hann var spurður um þessa millifærslu á aðalfundi og hluthafa- fundi FL Group á sínum tíma, en engin efnisleg svör fengust. Hingað til hefur Hannes Smárason ávallt neitað því að umrædd millifærsla hafi átt sér stað. Aðspurður hvort það hafi ekki verið skylda hans gagnvart hluthöfunum að upplýsa um millifærsluna segir Jón að hann hafi uppfyllt allar sínar skyldur gagnvart hluthöfum FL Group. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins sendi Jón fyrirspurn til Kaupþings í Lúxemborg á sínum tíma um hvað hefði orðið um upp- hæðina sem millifærð var, þ.e. hvort hún hefði verið hreyfð. Jón vildi í gær ekki staðfesta að hafa sent umrædda fyrirspurn eða tjá sig að öðru leyti um hvaða svör hann hefði fengið við henni. Tjáir sig ekki um millifærsluna Sendi fyrirspurn til Kaupþings í Lúx Morgunblaðið/Sverrir • Upplýsingar í síma 865-1650 Brynja Blaðbera vantar í sumarafleysingar á Eyrabakka Blaðbera vantar Í Miðbæjarskólanum – Fríkirkjuvegi 1 laugardaginn 6. júní kl. 10:00-14:00 Fyrirlestrar og kynningar á metnaðarfullu leikskólastarfi í leikskólum Reykjavíkurborgar - ALLIR VELKOMNIR - Jafnrétti í leikskólum Tilfinningatjáning Nýjungar í foreldrasamstarfi Kynning á ASSIST Fjörulallar Íslenskukennsla í útinámi Söguaðferðin Tónlistarverkefni Leikur er heilsubót Skapandi starf, smíðar og þæfingar Leirvinna – taflmenn Verðlaust efni Heimsins börn Stærðfræði í leikskóla Jóga og slökun Umhverfismennt Hollt mataræði Þróunarverkefni um vísindi Handbækur og námskrár Samstarf við myndlistarskóla Vinna með þjóðsögur Gaman saman Ferilmöppur Útikennsla Skilaboðaskjóða Efling sjálfsmyndar og félagsfærni Fjölmenningarvefur Leikið og lært Nánari upplýsingar um dagskrá á www.leikskolar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.