Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 05.06.2009, Síða 22
22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 Eftir Reyni Þorbjarnarson, Jónas Guð- jónsson og Ásgeir Jarl Júlíusson Í LOK maí var opnuð fyrsta og jafn- framt eina öldulaug á Íslandi ásamt stærstu rennibraut landsins á Álfta- nesi. Rennibrautin er 80 m löng og 10 m há. Öldulaugin var keypt inn frá fyrirtækinu API Waterfun í Þýska- landi en laugin líkir eftir öldugangi. David Park, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Álftanesi, segir að hugmyndin að íþróttamið- stöðinni hafi kviknað árið 2006 og var hún samþykkt á bæjarstjórnarfundi sama ár. Síðan sundlaugin var opnuð hefur verið gífurlega góð aðsókn en um opnunarhelgina mættu 3000 gestir í laugina. Þá var frítt í sund, en héðan í frá er frítt fyrir börn yngri en 5 ára. Einnig er frítt fyrir aldraða og öryrkja. Fyrir börn á aldrinum 5-16 ára er 120 kr. gjald og fyrir fullorðna er gjaldið 360 kr. David segir að viðskiptavinir íþróttamiðstöðvarinnar séu flestir Álftnesingar en samt hefur fólk kom- ið héðan og þaðan af höfuðborgar- svæðinu til að njóta þess sem íþróttamiðstöðin hefur upp á að bjóða. Þar má nefna 400 fermetra líkamsræktarstöð sem Nautilus rek- ur. Í henni er boðið upp á sérstaka aðstöðu fyrir unglinga frá 12 ára aldri, en yfirleitt er ekki boðið upp á þannig aðstöðu fyrir krakka í þess- um aldurshópi. Einnig er kaffitería sem selur bæði heitan og kaldan mat sem einkennist af hollustu. Í sundlaugaraðstöðunni er að finna 12,5 metra innilaug, 25 metra útilaug, vaðlaug, heita potta og ekki má gleyma öldulauginni og renni- brautinni. Sundlaugargestir eru almennt ánægðir með nýju sundaðstöðuna og þegar einn sundlaugargestur, Bene- dikt Jakobsson, var spurður um að- stöðuna sagði hann að þetta væri flott og í heildina frábært. Fast- eignafélagið Fasteign á íþróttahúsið og sundlaugina. Morgunblaðið/Heiddi Öldulaug David Park, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar, með nýju rennibrautina í baksýn. Höfundar eru nemendur í Varmalandsskóla. Öldulaug- in slær í gegn Þetta byggist aðallega á þvíað taka fólk í hópefli ogskipuleggja allskonar leikifyrir það,“ segir Eyþór Guðjónsson um Skemmtigarðinn í Grafarvogi sem var opnaður nýlega í Gufunesinu. Er garðurinn sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi að sögn Eyþórs. Eyþór á og rekur garðinn með konu sinni, Ingibjörgu Guðmunds- dóttur, en þau segja starfsemina fara betur af stað en þau þorðu að vona. Þrátt fyrir krepputíð sé mikil ásókn í hópefli og hvers kyns skemmtan og gjarna sé garðurinn fullbókaður frá morgni til kvölds. Er það skoðun þeirra að meiri þörf sé nú en oft áður á að fólk þjappi sér saman og geri sér glaðan dag. Í garðinum er m.a. boðið upp á lasertag, litbolta, ratleiki, grill- aðstöðu og ýmis leiktæki á þremur mismunandi ævintýravöllum; Frum- skógarvelli, Villta vestrinu og Vík- ingavelli. Sviðsmyndin fyrir Villta vestrið er hönnuð af Hollywood- leikmyndahönnuðinum Robb Wilson King sem hefur hannað leikmyndir fyrir yfir fimmtíu Hollywood- myndir, þar á meðal Scary Movie, Rush Hour og Hostel 2. Í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur er einnig boðið upp á klifurturn, strandblakvöll og ráð- stefnusal. Þá er hægt að keppa í hinni sérstöku íþrótt frisbígolfi. Fiðurfé í kanínubúningum Alls kyns hópar heimsækja Skemmtigarðinn að sögn Eyþórs og Ingibjargar, grunn- og mennta- skólanemar, starfsmenn fyrirtækja, fólk með barnaafmæli og þar fram eftir götunum. Er þar um að ræða fólk á öllum aldri en Ingibjörgu er sérstaklega minnisstætt þegar 78 ára gamall maður kom skellihlæj- andi og ataður litboltamálningu af einum þriggja litboltavalla garðsins. „Hingað kemur nánast hver ein- asta steggjaveisla,“ segir Eyþór. Bætir hann kíminn við að venja sé að steggurinn sé klæddur í kanínubún- ing og félagar hans skemmti sér við að skjóta á hann litboltum. skulias@mbl.is Hópefli Gestir sýna fram á í verki að vinátta sé nokkuð sem hægt er að byggja á. Morgunblaðið/Jakob Fannar Í sigtinu Hægt er að klæða sig upp í feluliti og skiptast á skotum, í lasertag fyrir yngstu kynslóðina og litbolta fyrir þá eldri. Morgunblaðið/Jakob Fannar Blöðruleikur Farið er í ýmsa leiki í skemmtigarðinum til að hrista fólk saman. Pöntunarsími: 534 1900 www.skemmtigardur.is info@skemmtigardur.is Skemmtiveisla í Grafarvogi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.