Morgunblaðið - 05.06.2009, Side 26

Morgunblaðið - 05.06.2009, Side 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 Í MARS sl. lánaði fjármálaráðuneytið tveimur fjárfestinga- bönkum nærri fimm- tíu þúsund milljónir króna á sérstökum vildarkjörum. Lán- veiting ráðuneytisins hefur fengið litla um- fjöllun enda hverfur margt í hít stórra frétta um þessar mundir. Hún er þó alvarlegri en fréttir hafa borið með sér. Lánveitingin skapar for- dæmi um mismunun gagnvart fyrirtækjum í landinu og er illt upphaf að þeirri endurreisn sem þarf að verða í atvinnulífinu. Með lánunum tók fjármála- ráðuneytið yfir ónýtar kröfur sem Seðlabankinn átti á hendur viðkomandi fjárfestingabönkum, þ.e. Sögu Capital og VBS fjár- festingabanka. Þeim hafði leyfst, ásamt nokkrum öðrum fjármála- fyrirtækjum, að taka þátt í stór- felldri fjármögnunarmyllu banka- kerfisins, með því að vera milligönguaðilar stóru bankanna gagnvart Seðlabankanum í því skyni að búa til laust fé. Seðla- bankinn kaus að setja kíkinn fyr- ir blinda augað. Honum mátti vera ljóst, einkanlega ef hann hafði áhyggjur af miklum vexti og ört hrakandi gæðum banka- kerfisins, að þarna voru að hrannast upp ótrygg veðlán milli bankastofnana og kerfisleg áhætta var að aukast til muna. Litlar fjármálastofnanir, hver á fætur annarri, gerðu sér þetta ástand að féþúfu, með þeirri ógætni að þessi viðskipti námu orðið margföldu eigin fé þeirra. Þegar bankakerfið hrundi blasti við að Seðlabankinn hafði tapað 350 milljörðum vegna um- ræddra veðlána, þar af tæpum 50 milljörðum vegna þessara tveggja fjárfestingabanka. Ný- bökuðum fjármálaráðherra fannst nú nóg komið af töpum. Það væri skárra að slá vandanum á frest með því að breyta tapi í lán. Og þetta eru lán með kjörum sem engum öðrum á Íslandi býðst, 2% verðtryggðir vextir. Til samanburðar má nefna að þann dag sem tilkynnt var um lánin voru kjör Íbúðalánasjóðs um 6%. Almennt fjármagna fyrirtæki sig með töluverðu álagi á kjör Íbúða- lánasjóðs eftir stöðu þeirra og veðum. Síðan voru sett nokkur yfirborðsleg skilyrði með lánveit- ingunni í þeirri veiku von að með þeim mætti réttlæta ákvörðunina. Það er t.d. ekki ein setning um samkeppnismál í þeim skilyrðum. Fyrsta skilyrðið kveður á um að arð megi greiða hluthöfum komi til samsvarandi niðurgreiðsla á höfuðstóli lánsins. Þetta er í hæsta máta óeðlilegt. Skattborg- arar hljóta að gera þá eðlilegu kröfu að lánið hafi fullan forgang á arðgreiðslur miðað við alla mál- vöxtu. Þessar lánveitingar eru auðvitað ekkert annað en dulbú- inn ríkisstyrkur. Að opinber fyrirgreiðsla af þessu tagi og í þessum mæli standist strangar ríkisstyrkjareglur EES- samningsins tel ég mjög hæpið. Þiggjendurnir taka við lánunum, halda hlutafé sínu óskertu, reikna sér síðan tekjur upp á marga milljarða vegna hagfelldra láns- kjara og búa þar með til sýndar eigið fé og halda svo áfram eins og ekkert hafi í skorist. Þá nota þeir kærkomið tækifæri og af- skrifa í leiðinni óþægileg per- sónuleg lán eins og Morgunblaðið hefur greint frá. Ég óska eftir svörum við eft- irfarandi spurningum frá fjár- málaráðuneytinu: Þótti ekki eðilegt að hluthafar bankanna tækju á sig neitt tap meðfram fyrirgreiðsl- unni? Eru skilaboðin til viðskiptalífsins þau að hlutafé sé áhættu- laust fjármagn? Eiga hluthafar, stjórnendur og stjórn ekki að bera neina ábyrgð á gjörð- um sínum? Þóttu þessir bankar tveir það þjóðhagslega mikilvægir að það lægi mikið við að bjarga þeim? Var hugað að samkeppnis- áhrifum þessara björgunaraðgerða og því fordæmi sem þær skapa? Þótti ekki ástæða til að setja fulltrúa frá ríkinu í stjórn viðkom- andi banka þar sem lán frá ríkinu mynda stóran hluta af efnahags- reikningi bankanna? Er til greinargerð um allt málið? Nú efast ég ekki um að fjár- málaráðherra gekk gott eitt til með þessari þægilegu leið að breyta tapi í lán. Með því er hann aðeins að fresta vandamálinu með dýrum aukaverkunum fyrir allt fjármálaumhverfið. Kannski fékk hann þetta í arf frá forvera sínum? En gæskan ein dugar því miður ekki sem rök í málinu, hvað þá heldur að nóg hafi verið komið af vandamálum fjármálafyrirtækja. Menn þurfa meira hugrekki í póli- tík en það. Það er dapurleg byrjun á valdstjórn hjá stjórnmálamanni sem hefur predikað af mikilli vand- lætingu um réttlátt þjóðfélag sl. 20 ár, að byrja ráðherraferil sinn á því að mismuna fyrirtækjum með svo óeðlilegum hætti. Ef þetta eru leikreglurnar sem gilda eiga á Íslandi næstu árin þá er ekki von á góðum bata. Einka- rekstur mun eiga mjög erfitt upp- dráttar við hlið ríkisins og þeirra sem hafa betri aðgang að þeim sem útdeila fjármunum ríkisins en aðrir. Það er lágmarkskrafa að hér sé gætt jafnræðis. Hvernig halda menn að hér sé hægt að byggja upp atvinnulíf þegar völdum fyr- irtækjum er veitt stórkostleg fyr- irgreiðsla þannig að þau geta hag- að sér eins og þeim sýnist? Hvernig eiga einkafyrirtæki að keppa við ríkisstyrkt einkafyr- irtæki eins og Sögu Capital og VBS? Þau geta verðlagt þjónustu sína að vild, þau hafa engu að tapa, búin að tryggja sér rekstrar- styrk næstu sjö árin. Ríkisfyrir- tæki geta vitaskuld verið fyrir- myndarfyrirtæki eins og hver önnur fyrirtæki en ekkert er eins varhugavert í viðskiptalífinu og ríkisstyrkt einkafyrirtæki í sam- keppnisrekstri. Það er ófrýnileg kynjaskepna. Að lokum þetta. Menn geta talað með mælskubrögðum og klisjum um alla nýfrjálshyggjuna sem setti allt í rúst og þar með bægt eilítið athyglinni frá sjálfum sér. En má ég heldur biðja um alla nýfrjáls- hyggju sólkerfisins heldur en fyrirgreiðslupólitík og ívilnun til handa þeim sem klókastir eru að ota sínum tota innan kerfisins. Nú reynir á siðferðisþrek stjórnmála- manna og embættismanna sem aldrei fyrr. Ríkisstyrktir fjár- festingarbankar Eftir Halldór Frið- rik Þorsteinsson Halldór Friðrik Þorsteinsson » Að opinber fyrir- greiðsla af þessu tagi og í þessum mæli standist strangar ríkisstyrkjareglur EES-samningsins tel ég mjög hæpið. Höfundur rekur verðbréfafyrirtæki. MEÐ BÆTTUM hag einstaklinga og fyrirtækja á síðast- liðnum árum hefur það færst í vöxt að aðilar leiti sér sérfræðiað- stoðar á sviði skatta- mála. Þegar ein- staklingur eða fyrirtæki leitar sér skattaráðgjafar leitar viðkomandi eftir fag- legri aðstoð á því sviði sem ráðgjafinn býr yfir sérþekkingu á. Hugtakið skattaráðgjöf er ekki skýrt í íslenskum lögum og er enga skilgreiningu á því þar að finna, en samkvæmt orðanna hljóðan er það sérfróður aðili sem veitir ráðgjöf um skattamál. Skattaráðgjöf er ekki lögvernduð starfsgrein hér á landi og því eru ekki til nein lög eða reglu- gerðir sem ná beint yfir starfssvið hennar. Því getur hver sá sem býr yfir sérfræðiþekkingu á skatta- málum svo sem lögfræðingar, við- skiptalögfræðingar, viðskiptafræð- ingar eða endurskoðendur gefið sig út fyrir skattaráðgjöf og þar með borið starfsheitið skattaráðgjafi. Til þess að mæta óskum mark- aðarins hóf Háskólinn á Bifröst árið 2006 kennslu á meistarastigi í skattarétti, þeir sem ljúka þessu námi útskrifast með M.A. í skatta- rétti og teljast að vera skattalög- fræðingar. Háskólinn á Bifröst hef- ur nú þegar útskrifað þó nokkra skattalögfræðinga. Hefur þetta nám mælst vel fyrir og hyggst Háskóli Íslands hefja kennslu í samskonar námi haustið 2009. Skattaráðgjafar selja þjónustu og í henni felst að leiðbeina aðilum um skattamál og því eðlilegt að gera þá kröfu að viðkomandi sé sérfróður um þau. Fram til þessa hafa lög- fræðingar og endurskoðendur starf- að við slíka ráðgjöf og þar af leiðandi telst eðlilegt að tekið sé mið af þeim reglum sem gilda um þessar starfsstéttir, og má þá sérstaklega benda á siðareglur endurskoð- enda og lögmanna, þegar verið er að meta kröfur til skattaráð- gjafa. Skattaráðgjafar hafa ávallt hagsmuni við- skiptavinarins að leið- arljósi í öllu sem við- kemur skattamálum. Ráðgjöfin byggist á lögum og er því lágmarkskrafa að viðkomandi ráðgjafi þekki lögin sem snúa að álitaefninu í víðasta skiln- ingi. Oft er ástæða til þess að taka tillit til væntanlegra lagabreytinga. Brýnt er að skattaráðgjafar gæti meðalhófs í störfum sínum og ráði viðskiptamönnum sínum heilt á grundvelli gildandi laga. Þátttaka skattaráðgjafa í brotum gegn skattalöggjöfinni er að sjálfsögðu refsiverð ásamt því að rýra traust hans til starfans. Mistúlkun og/eða misnotkun á skattalögum til að kom- ast hjá að greiða þann skatt sem þeim ber kallast skattasniðganga. Hún er ólík skattafyrirhyggju sem felst í því að minnka skattgreiðslur eins og hægt er á löglegan hátt. Til þess að ýtrasta hlutleysis sé gætt er ekki eðlilegt að sami aðili veiti ráðgjöf og sé endurskoðandi hjá einum og sama aðila og því hefur færst í vöxt að þetta tvennt sé að- skilið. Í þeim tilfellum sem skattaráð- gjafi ráðleggur mönnum ólögmæta leið til að minnka skattgreiðslu ber hann ábyrgð ásamt öðrum þeim sem að brotinu koma. Þegar skoða á hvort um refsiábyrgð skattaráðgjafa geti verið að ræða, þá verður fyrst að athuga hvort um refsiverða hátt- semi hefur verið að ræða. Í almenn- um hegningarlögum nr. 19/1940, er sérstaklega tekið fram í 262. gr. að skilyrði refsiábyrgðar eru ásetn- ingur eða stórfellt gáleysi og auk þess þarf brotið að vera verulegt. Í 3. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt segir með- al annars, hafi skattskyldur maður af ásetningi eða stórkostlegu hirðu- leysi vanrækt að telja fram til skatts sæta refsingu samkvæmt 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga,og dæmdir í allt að 6 ára fangelsi auk sekta ef um stórfellt brot er að ræða. Refsiábyrgð skattaráðgjafa stofnast þegar þeir hafa gerst brotlegir við lög sem refsing liggur við. Ekki hef- ur ennþá reynt á refsiábyrgð skatta- ráðgjafa á Íslandi, en hinsvegar hef- ur reynt á hvort endurskoðendur séu hlutdeildarmenn í broti sem varðar við almenn hegningarlög og hefur endurskoðandi verið dæmdur til refsingar. Dæmi um það er að finna í dómi hæstaréttar nr. 490/ 1991 en þar var endurskoðandi dæmdur til þriggja mánaða skilorðs- bundinnar refsingar. Þegar litið er til dómaframkvæmdar nágranna- þjóðanna hafa refsingar þar verið mun þyngri. Sakarmat á störfum skattaráð- gjafa er strangt og þá sérstaklega varðandi gáleysi, þeir veita þjónustu á sviði sem þeir eiga að hafa sér- fræðiþekkingu á og verður því að gera miklar kröfur til þeirra. Hvergi er kveðið á um opinbert eftirlit með skattaráðgjöf í lögum og því eru aðilar sem starfa við hana ekki eftirlitsskyldir. Á næstu árum munum við vonandi sjá mun harðara eftirlit á þessu sviði. Skattaráðgjöf Eftir Jón Halldór Guðmundsson » Skattaráðgjafar selja þjónustu sem felst í að leiðbeina að- ilum um skattamál og því eðlilegt að gera þá kröfu að viðkomandi sé sérfróður um þau Jón Halldór Guðmundsson Höfundur er skattalögfræðingur. ÉG ER ein þeirra sem tók gengistryggt húsnæðislán í góð- ærinu, sem ég vil gefa nafnið varglán. Und- anfarið hefur mér fundist umræðan vera farin að snúast um það að Íslendingar í þessari stöðu séu upp til hópa óráðsíufólk og geti nú bara sjálfum sér um kennt. Ég tel mig ekki til þess hóps. Mig langar að deila með lesendum hversu al- varleg staðan er hjá okkur, skít- ugu börnunum hennar Evu. Margt bendir til þess að gengistryggðu lánin hafi verið og séu í raun ólög- leg, skv. lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, þ.e. að gengistryggðir lánssamningar sem greiddir eru út í íslenskum krón- um séu óheimilir, einkum gagnvart neytendum. Það verður fróðlegt að sjá hver niðurstaðan verður úr þeim hópmálsóknum sem nú eru í undirbúningi. Við sem höfum kynnst því að vera með verðtryggt íbúðalán vor- um örugglega fljótari að koma auga á þennan nýja valkost. Hrun- ið og sá forsendubrestur sem átti sér stað í kjölfarið var aftur á móti ekki inní forsenduútreikningum okkar né þeim sem bankinn lét okkur í té. Bankastjórnendur segj- ast hafa varað við áhættunni en samtímis voru bankarnir að mark- aðssetja þessi lán sín sem íbúðalán í samkeppni hver við annan og Íbúðalánasjóð. Um leið og blekið hafði þornað á pappírnum beitti bankinn verð- breytingarákvæði og hélt uppteknum hætti samhliða því að gengið hrapaði. Það fóru reyndar að vakna grunsemdir á heimilinu þegar í ljós kom að lánið hækkaði jafnt og þétt, jafnvel þótt að krónan væri að standa sig prýði- lega, um tíma a.m.k. Í ljós kom að bank- inn hafði við hvert tækifæri hækkað kjörvexti einhliða og kom því svo fyrir í samningnum við okk- ur að þeir þyrftu ekki að til- kynna okkur um það. Og hverjir voru það sem voru að „fikta við“ gengið? Má með þessu segja að bankinn hafi ráðist að mér úr tveimur áttum. Slurp! Bankinn minn var einkahluta- félag sem skipti um kennitölu og er nú ríkisbanki. Hvaða rétt hafði ríkið til að yfirtaka lánið mitt á upphæð sem nam tvö- földu söluandvirði eignarinnar? Mér finnst að stjórnvöld, sem eigandi hinna nýju ríkisbanka, geti ekki krafið lántakendur gömlu bankanna um 100% efndir lánasamninga þegar haft er í huga að eignir gömlu bankanna voru fluttar yfir í hina nýju rík- isbanka með verulegum afföllum (50-90%), þ.e. á 10-50% upp- reiknuðum höfuðstól. Ég á líka kennitölu sem ég get ekki skipt út fyrir nýja ef illa fer í mínum fjármálum. De facto! Stjórnvöld lemja ennþá hausn- um við steininn og virðast ætla að horfa framhjá þeirri stað- reynd að mörg heimili í landinu eru tæknilega gjaldþrota. Eru stjórnvöld að bíða eftir því, svo að ríkisbankarnir geti aukið við eignir sínar og við orðið vitni að stór- felldustu eignaupptöku á sögu- legum tímum? Við höfum gróflega reiknað út að ef við nýtum okkur greiðslu- jöfnun sem í boði er og borgum þá upphæð á mánuði sem við ráðum við eða þá upphæð sem við greidd- um í maí 2008, þá í versta falli greiðum við bara vexti það sem eftir og höfuðstóllinn stendur óhagganlegur eftir okkar dag. Í besta falli tækist okkur að krafsa smá í höfuðstólinn. Allt er þetta auðvitað háð því hvað krónan gerir næstu áratugina og hvað hugs- anlega gerðist ef evran yrði tekin upp, og ef þetta og ef hitt. Er ein- hver til í að gefa mér áreiðanlegar forsendur svo ég getið planað framtíðina eða eigum við að segja planað gjaldþrotið? Jæks! Stjórnmálaflokkarnir hafa ólíka afstöðu til lausnar vanda heim- ilanna. Samfylkingin þverskallast við og segir nóg að gert, fólk verði bara að halda áfram að borga, fá sér tilsjónarmann og herða sultar- ólina… um hálsinn. Sjálfstæðis- flokkurinn þorir ekki, frekar enn fyrri daginn. Framsóknarflokk- urinn talar fyrir 20% flatri leið- réttingu, sem er vissulega í áttina, Ég er syndug Eftir Ágústu Sig- rúnu Ágústsdóttur » Greinin fjallar um vanda þeirra sem hafa tekið gengistryggð myntkörfulán og eru að kikna undan greiðslu- byrðinni. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.