Morgunblaðið - 05.06.2009, Page 28

Morgunblaðið - 05.06.2009, Page 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009 ✝ Eðvarð Jónassonfæddist á Brú- arlandi, Svalbarðs- hreppi í Þistilfirði, 15. maí 1953. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 30. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Anna Guðrún Jóhannesdóttir, f. 2. júní 1920, d. 21. maí 1995, frá Gunn- arsstöðum í Þist- ilfirði, og Jónas Að- alsteinsson, f. 2. mars 1920, d. 19. apríl 2008, frá Hvammi í sömu sveit. Eðvarð átti fimm systkin. Þau eru: Aðalbjörg, f. 24. október 1941, d. 16. nóvember 1990, Aðalsteinn, f. 2. ágúst 1946, d. 21. september 1984, Arnþrúður, f. 1976, sjómaður, búsettur á Ak- ureyri. Eðvarð, f. 24. febrúar 1981, knattspyrnudómari, búsettur á Ak- ureyri. Sævar, f. 28. apríl 1983, nemi, búsettur á Akureyri. Barna- börn Eðvarðs og Kristjönu eru Harpa María Benediktsdóttir, f. 26. nóvember 1995, og Andrea Ylfa Benediktsdóttir, f. 21. september 1999. Eðvarð ólst upp á Brúarlandi í Þistilfirði hjá foreldrum sínum og systkinum. Hann lauk búfræðinámi frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal árið 1971. Að námi loknu stundaði Eðvarð sjómennsku og starfaði við það til dánardags. Lengst af starfaði hann á skipum Útgerðarfélags Akureyringa en einnig á hinum ýmsu uppsjáv- arveiðiskipum, síðast um borð í Há- koni EA-148 frá Grenivík. Útför hans fer fram í dag, 5. júní, frá Glerárkirkju, Akureyri, kl. 13.30. Meira: mbl.is/minningar 27. janúar 1948, Jó- hannes, f. 23. janúar 1955, og Sigrún Lilja, f. 28. febrúar 1959. Eðvarð kvæntist 7. apríl 1972 Kristjönu Guðrúnu Benedikts- dóttur, f. 29. sept- ember 1951, frá Jöt- unfelli á Akureyri, og bjuggu þau lengst af í Arnarsíðu 2b þar í bæ. Foreldrar Krist- jönu eru Sigrún Að- alsteinsdóttir, f. 29. júlí 1930, frá Vað- brekku í Hrafnkelsdal, og Benedikt Kristjánsson, f. 7. apríl 1922, d. 30. september 1976, frá Sandgerðisbót í Glerárþorpi. Synir Eðvarðs og Kristjönu eru Jóhann Benedikt, f. 22. nóvember Þá er komið að þessari stund, pabbi minn, sem við töluðum stundum um, nú ert þú farinn frá okkur. En samt trúði ég aldrei að þetta myndist ger- ast því þú varst svo sterkur og barðist eins og stíðshetja við þennan ban- væna sjúkdóm og varst svo ákveðinn að sigrast á honum og trúði ég ekki öðru en þú myndir gera það. En núna erum við að kveðja þig, elsku pabbi minn, og það sem við höf- um eru allar þær góðu og skemmti- legu minningar sem við eigum um þig. Stærsta minningin sem ég á um þig er hversu ljúfur og góður maður þú varst og alltaf gat maður leitað til þín þegar eitthvað bjátaði á. Gleymi ég aldrei þeim stundum þegar maður var lítill strákur og þú varst að koma í land og maður fékk að fara með á bryggjuna til að taka á móti þér, hversu spenntur maður var að sjá þig. Síðan eru það allar minningarnar úr ferðalögunum sem fjölskyldan fór í en þú gerðir allt sem þú gast til að gera þær eins skemmtilegar og hægt var. En aldrei veit maður hvernig lífið verður hjá okkur, hvar og hvenær það endar. Lífið er ferðalag sem maður á að njóta, og því miður fyrir okkur var ferðalagið þitt ekki lengra. En miðað við hvernig þú hugsaðir þá átti það eftir að vera langt og gott. Manstu þegar við vorum um daginn að gera fellihýsið klárt fyrir sumarið? Þú tal- aðir um hvert átti að fara í sumar og hvar átti að gista. Einnig þegar við vorum að gera veiðinetin klár ofan í poka og töluðum um hversu stutt væri í að við kæmumst í Ánavatn til að veiða. Þú varst hress og kátur og svo bjartsýnn á veikindin að þú tal- aðir um hvað væri hægt að gera í framtíðinni og var ég orðinn spenntur að taka þátt í henni með þér. En núna ertu farinn frá okkur og við kveðjum þig í hinsta sinn og vil ég kveðja þig með þessum orðum: Í gegnum móðu og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. (Davíð Stefánsson.) Hvíldu í friði, elsku besti pabbi minn, þín verður sárt saknað. Eðvarð (Eddi litli). „Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa.“ (Matt. 5,5.) Við eigum minningu um ljúfan dreng, dreng sem var hvers manns hugljúfi í lífi og starfi. Hans verður sárt saknað, en minningin mun lifa. Þessi yfirvegaði maður, samt svo kraftmikill, eins og klettur í hafi sem stóð af sér hverja raun með hógværð og æðruleysi. Sagan af Edda er sagan um sveitapiltinn sem fór ungur í bændaskóla en var sjómaður upp frá því. Hávaðalaust vann Eddi öll sín verk fumlaust og örugglega og skilaði af sér meiru en meðalmaður gerir á heilli ævi. Aðalsmerki hans voru dugnaður, lagni og samviskusemi. Hann var af- burða sjómaður, sem kunni allt sem góður sjómaður þarf að kunna. Greið- vikni, hjálpsemi og einstök vinátta sem aldrei bar skugga á situr í minn- ingunni um þennan góða dreng og all- ar gleðistundir á 40 ára tímabili eru ógleymanlegar. Síðustu baráttu sína háði Eddi með sama æðruleysi og sama krafti og önnur verkefni sem hann tók sér fyrir hendur. Hann þurfti að lokum að gjalda fyrir með lífi sínu en var samt sigurvegari orrustunnar og lét aldrei bugast. Fyrir 10 ára dreng sem átti enga bræður, bara systur, var himnasend- ing að fá hann í fjölskylduna. Frá og með fyrsta degi skapaðist sú vinátta sem entist alla tíð og nú fljóta minn- ingarnar áratugi aftur í tímann. Þrátt fyrir aldursmuninn var ekkert til- tökumál að hafa þennan litla mág sinn í eftirdragi hvert sem farið var eða hvað sem verið var að gera. Fyrsta flugferðin var í hans boði, fyrsta borgarferðin líka, svo ferðirnar á Skodanum sem hann eignaðist síð- ar. Í dag eru þessar minningar perlur í huga manns og það ríkidæmi sem fylgdi því að eiga hann sem vin verður aldrei fullþakkað. Skarðið sem hann skilur eftir sig verður vandfyllt, en andi hans mun sannarlega lifa í hjörtum okkar hinna sem fengum að njóta návistar hans. Nú hefur Eddi lokið sínu hlutverki hérna megin lífsins og tekið við ábyrgum störfum annars staðar þar sem kostir hans fá notið sín. Guð blessi minningu þessa góða drengs. „Sælir eru sorgbitnir, Því að þeir munu huggaðir verða.“ (Matt. 5,4.) Kidda mín, Bensi, Eddi og Sævar. Guð varðveiti ykkur á erfiðri stundu. Kveðja úr Miðholtinu. Víðir Benediktsson og fjölskylda. Arnarsíða 2b er sá staður á Ak- ureyri sem ég kalla „heima“. Ég bjó þar um tíma hjá þeim Edda og Kiddu meðan ég var í námi. Þá kenndi Eddi, föðurbróðir minn, mér að það er hægt að búa til veislumáltíð úr nánast öll- um mat. Hann kenndi mér einnig að með stuttum fyrirvara má halda full- komið matarboð ef grill er við hönd- ina. Eddi og Kidda héldu einmitt fyrir mig ógleymanlega útskriftargrill- veislu þegar ég kláraði BA-námið mitt. Ég er þeim ævinlega þakklát fyrir það. Við í Brúarlandsfjölskyldunni höf- um í gegnum tíðina verið dugleg að fara saman í útilegur. Þar mættu Eddi og Kidda alltaf með nógan mat til að fæða alla á svæðinu. Útilegurn- ar hafa þjappað fjölskyldunni saman og munu vonandi gera það áfram. Okkur Edda frænda fannst skemmti- legt að syngja og gerðum það gjarnan í útilegum. Það kom mér á óvart þeg- ar ég komst að því að við ættum þetta sameiginlegt og líka hvað hann kunni mikið af söngtextum. Eddi var mjög gestrisinn og þannig munu margir muna eftir honum. Ég á eftir að sakna þess að drekka með honum kaffi og spjalla um allt milli himins og jarðar. Hann var mér mikið meira en föðurbróðir og það vissi hann jafn vel og ég. Ég mun sakna samsöngsins og stundanna okkar saman. Kiddu, Bensa, Edda, Sævari, Hörpu og Andreu sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Með ykkur munu minningarnar um Edda-Stóra vel lifa. Hvíldu í friði elsku Eddi frændi Þín bróðurdóttir, Hólmfríður Anna. Sofðu nú sonur minn kær, senn kemur nótt úti hinn blíðasti blær, bærist svo hljótt. Út í hið kyrrláta kvöld, kveð ég minn óð sem fléttast við fallandi öldurnar fegurstu ljóð. Í svefnhöfgans sætleika er svifin þín önd gæti þín Glókollur minn, guðsmilda hönd Dýrðlegum draumheimi í dvel þú um stund uns morgunsól blíðlega brosir mót blómstrandi grund. (B. Marinósson.) Það var fyrir 40 árum sem Eddi birtist fyrst á heimili okkar þegar hann kom með Kiddu systur þá 16 ára gamall. Reyndar finnst mér sem hann hafi alltaf verið í fjölskyldunni og nöfn þeirra hjóna samtvinnuð sem ein ein- ing. Það er ekki fyrr en Eddi er burt kallaður að maður áttar sig á að Kidda og Eddi voru tveir einstakling- ar, svo sterkt var samband þeirra. Eftir að við Kristján hófum búskap urðu fjölskyldur okkar svo samrýmd- ar að ekki mátti á milli sjá hver ætti hvað eða hvar hver ætti heima, slíkur var samgangurinn. Innbyrðis vin- skapur barna okkar einlægur og varir ætíð. Það var mikil gæfa að eiga Edda fyrir vin. Þessi hægláti, rólegi ein- staklingur sem lét sér hvergi bregða þó mikið gengi á var svo traustur og svo heill í gegn að það var aðdáun- arvert. Eddi var sannarlega traustur vinur og minningin um hann mun lifa í hjörtum okkar, minningin um þenn- an góða dreng sem bjó yfir svo mikilli og einlægri hógværð. Samvistir okk- ar í gegnum tíðina varðveitast í minn- ingunni, ótal gleðistundir bæði heima fyrir sem og á ferðalögum streyma um hugann þessa stundina. Nú þegar kemur að kveðjustundinni er þakk- læti fyrir að hafa átt hann að í öll þessi ár það fyrsta kemur upp í huga manns, þakklæti fyrir að hafa átt þennan gleðigjafa fyrir vin og sam- ferðamann. Við sendum Kiddu, Bensa og dætrum, Edda og Sævari okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Edda mágs míns. Bára Benediktsdóttir og fjölskylda. Eðvarð Jónasson Burtu deyfð og drunga hrekur dimmar næturnar Lítill geisli ljóss sem vekur ljúfar minningar Eins og blik á björtum degi bros þitt gleður mig Langa ferð um lífsins vegi leiði drottin þig. (Hákon Aðalsteinsson.) Þín, Kristjana. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SVANFRÍÐUR ÞÓRODDSDÓTTIR, Hólmagrund 4, Sauðárkóki, lést föstudaginn 29. maí. Útför hinnar látnu fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. júní kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað verður í dag, föstudaginn 5. júní, vegna útfarar ALFREÐS GUÐMUNDSSONAR. Sturta.is ehf., Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SELMA FRIÐGEIRSDÓTTIR, áður til heimilis Vogatungu 3, Kópavogi, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík þriðju- daginn 26. maí. Jarðarförin fer fram frá Áskirkju mánudaginn 8. júní kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningaröldu Sjómannadagsins, Hrafnistu Reykjavík, sími 585 9500. Indriði Guðjónsson, Erla Sigurlaug Indriðadóttir, Björn Þorsteinsson, Friðgeir Indriðason, Stella María Reynisdóttir, Ingibjörg Indriðadóttir, Guðjón Indriðason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, Hlyngerði 12, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 2. júní. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 12. júní kl. 13.00. Sigtryggur Helgason, Þórhildur Sigtryggsdóttir, Hrafnkell Óskarsson, Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir, Skapti Haraldsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri sonur og bróðir, ARNÓR ALEX ÁGÚSTSSON, Laufvangi 9, Hafnarfirði, lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 10. júní kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hjördís Þórarinsdóttir, Sigurbjörn Ágúst Ágústsson, Silja Rut Tómasdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRHALLS GUTTORMSSONAR íslenskufræðings. Sérstakar þakkir fá eldri félagar úr Karlakór Reykja- víkur og starfsfólk hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Anna Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Þórhallsson, Ragna Steinarsdóttir, Páll Þórhallsson, Þórdís Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.