Morgunblaðið - 05.06.2009, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009
HEIMILDARMYND UM HANDBOLTALANDSLIÐ
ÍSLANDS
Á ÓLYMPÍULEIKUNUM Í PEKING 2008
SÝND Í KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Versta starf í heimi færði honum
besta tíma ævi sinnar
Frábær tónlist og hinir frábæru
leikarar Ryan Reynolds og
Kirsten Stewart (Twilight)
tryggja góða skemmtun
HHHH
CHICAGO TRIPUNE
HHHH
THE WASHINGTON POST
HHH½
T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHH½
PREMIERE
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
Frá leikstjóraTHE NIGHTMARE
BEFORE CHRISTMAS
og metsöluhöfundinum
Neil Gaiman kemur ein
frumlegasta mynd ársins.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
HÚN ELSKAÐI ALLT
SEM MIAMI HAFÐI
UPPÁ AÐ BJÓÐA
EN NÚ VERÐUR HÚN AÐ
FLYTJA Í MESTA
KRUMMASKUÐ ÍHEIMI!
MAÐURINN SEM BAUÐ RISUNUM
BYRGINN OG SIGRAÐI
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
SÝND Í KRINGLUNNI
M I L E Y C Y R U S
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND ME
Ð
ÍSLENSK
U TALI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND Í ÁLFABAKKA
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
SÝND Í KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÞETTA SÖGÐU NOTENDUR KVIKMYNDA.IS
RÓBERT : „KLÁRLEGA FYNDNASTA
MYND 2009 HINGAÐTIL !
NÁNAST HVERT EINASTA ATRIÐI
FÉKK MIGTIL AÐ HLÆJA.“
“GRÓFUR, KLIKKAÐUR EN UMFRAM ALLT
FRÁBÆR HÚMOR! GLOTTIÐ ER ENN LÍMT VIÐ
ANDLITIÐ Á MÉR.”
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HAUKUR: „ALVEG FRÁBÆR,
ÞAÐ VERÐUR ERFITT AÐ
TOPPA HANA FYRIR BESTA
GRÍNMYND ÁRSINS.“
FORSÝND ALLA HELGINA
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
HANGOVER Forsýning kl. 10 12
STAR TREK XI kl. 5:40 10
GOTT SILFUR GULLI BETRA Frumsýning kl. 8 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 6 L
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 16
LET THE RIGHT ONE IN kl. 10 16
16
THE HANGOVER Forsýning kl. 10 12
TERMINATOR SALVATION kl. 5:30 - 8 - 10:20 12
GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 8 L
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:30 L
THE HANGOVER Forsýning kl. 10 12
GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 8 L
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10:20 16
HANNAH MONTANA kl. 6 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN kl. 6 L
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
HÚN iðar af lífi hjónasæng þeirra
Svavars Péturs Eysteinssonar og
Berglindar Hässler en þau eru lík-
legast þekktust sem liðsmenn
sveitarinnar Skakkamanage. Sú
sveit gaf fyrir síðustu jól út aðra
plötu sína All over the face og fékk
lof fyrir. Fyrir skemmstu komu svo
út tvær plötur er hægt er að skil-
greina sem hliðarverkefni þeirrar
sveitar. Það er að segja að Svavar
Pétur er í þeim báðum. Fyrst er
það breiðskífa hjónadúettsins Létt
á bárunni og svo sólóþröngskífa
Svavars er hann kallar Prins Póló.
Stórskemmtilegt lag hans, „Átján
og hundrað“, ómar nú ótt og títt á
Rás 2. Það lag er smellinn ást-
aróður 18 ára pilts til hundrað ára
konu er hann hittir í ferming-
arveislu.
Á laugardagskvöldið spila svo
allar þrjár sveitir Svavars á
skemmtistaðnum Karamba við
Laugaveg.
„Ég keypti mér trommusett þeg-
ar ég flutti austur á Seyðisfjörð og
ætlaði að gerast trommuleikari en
síðan atvikaðist það þannig að
Berglind varð fyrri til,“ segir Svav-
ar. „Hún náði strax tökum á því og
ég fór að spila með á gítar. Út frá
því spratt Létt á bárunni. Við fór-
um að dunda okkur við þetta á síð-
kvöldum. Lögin runnu út hvert á
fætur öðru og úr varð plata.“
Poppástarsöngvar á íslensku
Svavar segir Létt á bárunni vera
afar ólíkt sólóverkefni sínu, Prins
Póló, sem hann tekur greinilega
ekki of alvarlega. „Þetta er tónlist
sem ég hef ekki fengist við áður, að
syngja poppástarsöngva á íslensku.
Ég vissi ekki hvert ég væri að fara
með þetta þannig að ég stöðvaði
það verkefni á því að gera bara
fjögurra laga plötu og þá get ég
fengið að melta þetta. Lögin eru
ekki beint um neitt. Bara það sem
manni dettur í hug þegar maður ýt-
ir á upptöku og byrjar að bulla. Í
Létt á bárunni eru meiri meiningar
um hversdagslífið, landsbyggðina
og pólitík.“
Plata Skakkamanage kemur út í
Evrópu í næstu viku og er hljóm-
sveitin á leið í tónleikaferðalag um
Þýskaland. Svavar segir það afar
hentugt að hafa innanborðs tvö
önnur upphitunaratriði sem hægt
sé að nýta við tækifæri, eins og tón-
listarunnendum í Reykjavík gefst
færi á að sjá á laugardagskvöldið.
„Þá gerum við þetta þannig að
Prins Póló byrjar, sem er ég einn
með gítarinn. Svo kemur Berglind
upp á svið og við spilum lög Létt á
bárunni. Restin af Skakkamanage
kemur svo upp á svið og við tökum
okkar lög. Ég verð orðinn alveg
pungsveittur í framlínunni áður en
yfir lýkur,“ segir Svavar að lokum.
Pungsveittur í framlínunni
Létt á bárunni Berglind og Svavar manna dúettinn Létt á bárunni en starfa
einnig saman í Skakkamanage. Svavar starfar svo einn sem Prins Póló.
Svavar Pétur gaf út tvær plötur á
sama deginum Spilar með þremur
sveitum á Karamba á laugardagskvöld
BANDARÍSKI
leikarinn David
Carradine
fannst látinn á
hótelherbergi
sínu í Bangkok
á Taílandi í
gærmorgun.
Samkvæmt
upplýsingum á
fréttavef
breska rík-
isútvarpsins er talið að um sjálfsvíg
hafi verið að ræða.
Carradine var staddur í Taílandi
við upptökur á kvikmyndinni
Stretch, að sögn umboðsmannsins
Chucks Binders.
Carradine var hluti af stórri leik-
arafjölskyldu, en faðir hans, John
Carradine, var leikari sem og bræð-
ur hans Bruce, Keith og Robert.
Hann var þekktastur fyrir hlut-
verk sitt sem Kwai Chang Caine í
þáttunum Kung Fu á áttunda ára-
tugnum.
Kvikmyndaferillinn spannar yfir
100 kvikmyndir, en hann sló í gegn á
nýjan leik þegar hann lék í Kill Bill,
sem Quentin Tarantino leikstýrði ár-
ið 2003.
David Carradine var 72 ára og
lætur eftir sig eiginkonu og fjögur
börn.
David Carr-
adine látinn
Allur David
Carradine.