Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Kristinn
Nokkrir tugir manna söfnuðust saman á Austurvelli í gær til að mótmæla óbreyttum framfærslulánum
námsmanna og kjörum þeirra í versnandi árferði. Hrópaði fólkið „betra líf á bótum“ og vísaði þannig til
betri tekna atvinnulausra en þeirra sem taka námslán. skulias@mbl.is | 12
STÚDENTAR MÓTMÆLTU
F Ö S T U D A G U R 1 2. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
157. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
ÁLFABÖRN BOÐIN
TIL ÆTTLEIÐINGAR
«SIGURRÓS
TÍU ÁR FRÁ ÆÐIS-
GENGNUM HROLLI
Eftir Magnús Halldórsson
og Baldur Arnarson
GUNNAR Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, bauðst í gær til að víkja
sæti og greiða þannig fyrir áfram-
haldandi samstarfi framsóknar-
manna og Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn. Ekki liggur fyrir hver
mun taka sæti bæjarstjóra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var hins vegar ekki sam-
staða um þessi málalok á meðal
sjálfstæðismanna.
„Ég mun tala við mitt fólk áður en
ég tala við fjölmiðla um þetta,“ sagði
Gunnar á ellefta tímanum í gær-
kvöldi og vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
Fyrr um kvöldið sagðist Ómar
Stefánsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknar í Kópavogi, hafa fengið fullan
stuðning við afstöðu sína á fundi full-
trúaráðs flokksins í Kópavogi.
Inntur eftir þessari afstöðu vildi
Ómar ekkert láta hafa eftir sér. Það
væri Gunnars að greina frá stöðunni.
Heimildir Morgunblaðsins herma
hins vegar að á fundi fulltrúaráðsins
hafi komið fram skýr afstaða um að
núverandi meirihlutasamstarf gengi
ekki áfram óbreytt. Ómar hafi síðan
farið með það umboð af fundinum til
viðræðna við Gunnar bæjarstjóra.
Á fundinum var rætt vítt og breitt
um samstarfið við sjálfstæðismenn
og voru margir fundarmenn á því að
fjarað hefði smátt og smátt undan
samstarfi flokkanna í bænum að
undanförnu. Kornið sem hefði fyllt
mælinn væri skýrsla Deloitte um
viðskipti fyrirtækisins Frjálsrar
miðlunar, sem er í eigu dóttur Gunn-
ars, við Kópavogsbæ.
Gunnar bauðst til að víkja
Ekki eining um þessi málalok í röðum sjálfstæðismanna Óvíst hver verður
næsti bæjarstjóri Gunnar mun ræða við sitt fólk áður en hann tjáir sig frekar
Gunnar Birgisson Ómar Stefánsson
» Fjarað hefur undan
samstarfi flokkanna
» Ómar Stefánsson
tjáir sig ekki
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
RAGNA Árnadóttir, dóms-
málaráðherra, kynnir ríkis-
stjórninni í dag hugmyndir
Evu Joly um fjölgun sér-
stakra saksóknara vegna
rannsóknar mála sem tengj-
ast bankahruninu. Þá kynn-
ir ráðherra vinnu sem fram
hefur farið við gerð frum-
varpa til breytinga á lögum
sem gera eiga mögulegt að
setja sérstakan ríkissaksóknara í þeim málum.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, hef-
ur lagt til að starfsfólki verði fjölgað í 35-40, að
sögn ráðherra. Kostnaður við svo mannmargt
embætti yrði um 500 milljónir króna á ári að
mati Joly, skv. upplýsingum Rögnu Árnadótt-
ur. Ráðherra segir hins vegar að á vegum rík-
isstjórnarinnar hafi ekki verið reiknað út hver
kostnaðurinn yrði við það að fjölga sérstökum
saksóknurum úr einum í þrjá.
Dómsmálaráðherra fundaði í gær með Evu
Joly og Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum sak-
sóknara, í kjölfar gagnrýni Joly á yfirvöld í
Kastljósi Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld. Joly
lýsti þar m.a. þeirri skoðun sinni að ekki væri
nóg að Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, viki
að hluta til; hann yrði að víkja alveg úr starfi.
Hann hefur sagt sig frá hluta starfssviðs síns
en Ragna segist hafa skýrt Joly frá því að
dómsmálaráðherra hafi ekkert um hæfi ríkis-
saksóknara að segja. „Hún er enn sömu skoð-
unar, en ríkissaksóknari er æðsti handhafi
ákæruvaldsins, sjálfstæður og ákveður sjálfur
eigið hæfi. Ég hef engar heimildir til að þrýsta
á hann,“ sagði Ragna Árnadóttir.
Hún kvaðst í gær ekki geta metið samtal
þeirra Joly á annan veg en þann að ráðgjafinn
starfaði áfram við rannsóknina.
Forsætisráðherra tók í gær undir orð Joly
um vanhæfi ríkissaksóknara.
4 | Ríkissaksóknarinn hyggst ekki víkja
Hugmynd um fleiri sak-
sóknara kynnt ríkisstjórn
Kostnað-
ur liggur
ekki fyrir
Eva Joly
„ÞAÐ er þung
greiðslubyrði á
íslenskum heim-
ilum, eins og
kemur fram í
þessum tölum.
Fólk er þá við-
kvæmara fyrir
tekjumissi og er
strax komið í
vandræði. Við
höfum áhyggjur af því,“ segir
Henný Hinz, hagfræðingur hjá Al-
þýðusambandi Íslands.
Fram kom á málstofu hjá Seðla-
banka Íslands í gær að þrjú af
hverjum fjórum heimilum búa við
viðráðanlega greiðslubyrði vegna
lána. Hins vegar er eitt af hverjum
sex heimilum með mjög þunga
greiðslubyrði og þarf að verja
meira en helmingi ráðstöfunar-
tekna í greiðslur vegna íbúða-, bíla-
og yfirdráttarlána.
Ýmislegt vantar í þessar upplýs-
ingar. Henný nefnir að ekki sé tek-
ið tillit til þeirra úrræða sem lán-
takendum standi nú til boða en þau
geti skipt verulegu máli. » 8
Skuldsett heimili eru við-
kvæmari fyrir tekjumissi
Henný Hinz
GLITNIR,
Nýja Kaupþing
og Nýi Lands-
bankinn gera
kröfu um að FL
Group/Stoðir
endurgreiði þeim
samtals 129 millj-
arða króna.
Stærstu kröf-
una á Glitnir,
samtals 71,8 milljarða króna. Árni
Tómasson, formaður skilanefndar,
gerir sér ekki vonir um að stór hluti
upphæðarinnar endurheimtist.
Eignir FL/Stoða eru metnar á 80
milljarða. Skuldirnar nema 287
milljörðum króna. Þeim á að breyta
í hlutafé í nauðasamningum. »15
Reyna að endurheimta 129
milljarða frá FL Group
Árni Tómasson
AÐSTANDENDUR Airwaves-
tónlistarhátíðarinnar segja sig
knúna til að hafa miðaverð á hátíð-
ina í ár í evrum.
Landsmenn geta þó keypt miða á
sama verði og í fyrra (8.900 kr.) í
tvær vikur eftir að miðasala hefst.
Eftir það kostar miðinn 85 evrur,
eða 15.300 krónur. »36
Miðaverð á Airwaves-
tónlistarhátíðina í evrum
SIGRÍÐUR Benediktsdóttir telur
að þrátt fyrir að samnefndarmenn
hennar hafi viljað víkja henni úr
rannsóknarnefnd um bankahrunið
sé grundvöllur fyrir góðu samstarfi
í nefndinni. Jónas Fr. Jónsson, fyrr-
verandi forstjóri fjármálaeftirlits-
ins, krafðist þess upphaflega að
Sigríður viki sæti vegna harðorðra
ummæla sinna um orsakir banka-
hrunsins. Ummælin féllu í viðtali
skólablaðs í Yale-háskóla við hana,
en Sigríður kennir við skólann og
leggur þar stund á fræðastörf.
Páll Hreinsson og Tryggvi Gunn-
arsson sitja í nefndinni og lögðu
þeir að Sigríði að víkja úr nefnd-
inni. Sendi nefndin beiðni til for-
sætisnefndar Alþingis um að taka
þyrfti afstöðu til hæfis hennar. »6
Telur enn grundvöll fyrir
góðu samstarfi í nefndinni