Morgunblaðið - 12.06.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
Sumarhappdrætti
Dregið 17. júní 2009
176 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti 24.240.000 kr.
Krabbameinsfélagsins
Vertu með og st
yrktu
gott málefni
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VILHJÁLMUR Bjarnason, framkvæmdastjóri Sam-
taka fjárfesta og lektor við Háskóla Íslands, hefur
óskað eftir því við embætti sérstaks saksóknara að
rannsókn fari fram á viðskiptum Landsbanka og
Glitnis á árunum 2006-2008 við Árvakur hf. og þáver-
andi eigendur hans. Fer hann þess á leit að gengið
verði úr skugga um hvort um umboðssvik hafi verið
að ræða og hvort viðskiptin hafi verið svo óábyrg að
tap á þeim hafi verið fyrirséð.
Tvo þætti ber hæst í beiðni Vilhjálms. Annars veg-
ar lánveitingar bankanna til Árvakurs hf. sem urðu
til þess að þeir töpuðu útlánum að andvirði 3-4 millj-
arða króna. Hins vegar hvort kaup Björgólfs Guð-
mundssonar og Ólafs Jóhanns Ólafssonar gegnum
eignarhaldsfélög þeirra hafi verið fjármögnuð með
lánum frá Landsbankanum, ótryggðum eða aðeins
tryggð með handveði í hlutabréfum Árvakurs hf.
Björgólfur var aðalhluthafi Landsbankans gegnum
Samson Holding á þeim tíma sem um ræðir. Sér-
stakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, staðfesti í
samtali við mbl.is í gær að málið væri til athugunar.
magnush@mbl.is
Óskar eftir rannsókn á við-
skiptum banka og Árvakurs
Athugað verði hvort um
umboðssvik hafi verið að ræða
Tillögur
birtar upp
úr helgi?
LJÓST er að engin niðurstaða fæst í
dag í viðræðum viðsemjenda á
vinnumarkaði og stjórnvalda um
stöðugleikasáttmála. Fram kom á
Alþingi í gær að gert er ráð fyrir að
bandorms-frumvarp um ráðstafanir
í ríkisfjármálum komi fram upp úr
helginni og áætlun um víðtækar að-
gerðir til næstu þriggja ára verði
tilbúin í kringum 20. júní.
Á fjölmennum formannafundi ASÍ
í gær var samninganefnd ASÍ veitt
umboð til að halda viðræðum áfram.
Var jafnframt lögð áhersla á að
verja gildandi kjarasamninga sem
felur í sér að standa beri við að laun
hækki 1. júlí. Forseti ASÍ segist
vona að lögð verði mikil vinna í við-
ræðurnar í Karphúsinu yfir helgina
og alla næstu viku.
Ríkisfjármálin eru eitt af stærstu
viðfangsefnunum. Hannes G. Sig-
urðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
SA, segir í fréttabréfi samtakanna
að ekki hafi enn verið tekin pólitísk
ákvörðun um hlutföll skatttekna og
niðurskurðar í blandaðri leið til auk-
ins aðhalds í ríkisfjármálum. Óraun-
hæft sé að ganga út frá því að helm-
ingur aðhaldsins náist með auknum
skatttekjum. omfr@mbl.is
Búist við fundahöld-
um út næstu viku
„STARFS- og stjórnarmönnum er óheimilt að
þiggja boðsferðir af viðskiptavinum, innanlands
sem utan, hvort sem um er að ræða skemmtiferð-
ir, svo sem veiðiferðir og golfferðir, eða kynnis-
ferðir vegna einstakra fyrirtækja eða viðskipta-
kosta,“ segir í siðareglum fyrir stjórnarmenn í
lífeyrissjóðum sem samdar hafa verið á vettvangi
ASÍ og kynntar voru í gær.
Tekið er fram að undanteknar séu ferðir sem
talið er að hafi upplýsingagildi fyrir lífeyrissjóð-
inn eða gera hann hæfari til að sinna hlutverki
sínu. „Í slíkum tilvikum skal metið af yfirmanni
eða sjóðstjórn eftir atvikum hvort svo sé, enda
greiði lífeyrissjóðurinn sjálfur kostnað við ferðina
nema annað sé sérstaklega ákveðið og formleg
heimild veitt til.“
Sett verði á fót siðanefnd lífeyrissjóða
Í tillögunum er starfs- og stjórnarmönnum líf-
eyrissjóðsins gert óheimilt „að þiggja eða sækjast
eftir gjöfum eða fjármunum frá viðskiptavinum
eða væntanlegum viðskiptamönnum sem á einn
eða annan hátt tengjast starfi þeirra. Undan-
teknar eru jóla- og afmæliskveðjur, sem eru að
fjárhagslegu verðmæti innan marka sem teljast
algeng í slíkum tilvikum skv. nánari reglum […].“
Áhersla er lögð á að sjóðir taki ekki þátt í fjár-
festingum sem orka tvímælis út frá almennum
siðferðisreglum.
Lagt er til að stofnuð verði sérstök siðanefnd
lífeyrissjóðanna á vettvangi Landssambands líf-
eyrissjóða og jafnframt hafa verið mótaðar hug-
myndir að reglum um „samfélagslega ábyrgar
fjárfestingar lífeyrissjóðanna“.
Eiga lífeyrissjóðir þannig m.a. að leggja ít-
arlegt mat á fjárfestingarkosti sína og kappkosta
að fjárfesta í fyrirtækjum „sem eru vel rekin og
hafa jafnframt siðræn gildi að leiðarljósi“.
omfr@mbl.is
„Óheimilt að þiggja
eða sækjast eftir gjöfum“
Lífeyrissjóðir fjárfesti aðeins í fyrirtækjum sem hafa siðræn gildi að leiðarljósi
HANN mundar hamarinn kröftuglega að víkingasið,
þessi maður, enda önnum kafinn við undirbúning ár-
legrar víkingahátíðar sem hefst við Fjörukrána eftir
viku.
Það má því búast við að menn og konur klædd að
fornum sið og vopnum búin fari að sjást á götum
Hafnarfjarðar á næstu dögum. Þá munu gamli og nýi
tíminn mætast um stund og lífga upp á tilveruna.
Morgunblaðið/Golli
HAMARSHÖGGIN DYNJA
Vitnað er til tveggja laga-
ákvæða í bréfi Vilhjálms sem
bankarnir hafi mögulega gerst
brotlegir við. Annars vegar 249.
gr. auðgunarbrotakafla al-
mennra hegningarlaga og hins
vegar 19. gr. laga um fjármála-
fyrirtæki um góða viðskipta-
hætti og venjur. Í síðarnefndu
greininni segir að fjármálafyr-
irtæki skuli starfa í samræmi
við eðlilega og heilbrigða við-
skiptahætti.
Góðir viðskiptahættir og venjur
Vilhjálmur
Bjarnason
KONAN sem beið bana í eldsvoð-
anum í sumarbústað á Kljáströnd í
Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð síð-
astliðinn þriðjudag hét María Ás-
grímsdóttir.
Hún var á 84. aldursári, fædd árið
1925, og var til heimilis að Reynivöll-
um 8 í Akureyrarbæ. María lætur
eftir sig eiginmann og þrjú upp-
komin börn. andri@mbl.is
Lést í bruna í
sumarbústað
„ÁSTÆÐAN fyr-
ir því að Alþjóða-
heilbrigðisstofn-
unin hefur
dregið lappirnar
með að lýsa
þessu yfir er að
sumar þjóðir
nota þetta til
þess að grípa til
yfirdrifinna sótt-
varnaráðstafana,“ segir Haraldur
Briem sóttvarnalæknir eftir að
stofnunin lýsti því yfir í gær að
svínaflensa væri orðin að heimsfar-
aldri.
„Nú eru lyfjafyrirtækin búin að
fá grænt ljós um að þau geti byrjað
að búa til bóluefni fyrir haustið.“
Haraldur segir tilkynninguna
ekki hafa komið á óvart og að hún
muni á þessu stigi hafa lítil áhrif
hér. Í undirbúningnum væri miðað
við verstu mögulegu útkomu færi
svo að flensan yrði skæðari með
haustinu. baldura@mbl.is
Grænt ljós
á bóluefnið
Haraldur Briem
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
í gærkvöldi tvo skipverja línu-
veiðiskipsins Valdimars GK. Þeir
slösuðust þegar verið var að sjó-
setja léttbát skipsins, en sigvír
slitnaði þannig að báturinn féll til
sjávar með mennina innanborðs.
Læknir á þyrluvakt taldi meiðsl
skipverjanna tveggja svo alvarleg
að rétt væri sækja þá í skipið. Þó
var líðan þeirra eftir atvikum góð.
Voru mennirnir hífðir um borð í
þyrluna sem ferjaði þá til aðhlynn-
ingar á sjúkrahúsi. skulias@mbl.is
Tveir slösuðust