Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
ÚTSALA
YFIR 1000 VÖRUNÚMER Á LÆKKUÐU VERÐI
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Animal. Barnamyndir. Ýmsar gerðir.
14 x 14 cm. Verð 1.490,- NÚ 990,-
30 x 30 cm. Verð 3.490,- NÚ 2.490,-
990,-
SPARAÐU 500,-
Bjóðum uppá
vaxtalaust lán til
6 mánaða
ÁRNI Finnsson,
formaður Nátt-
úruvernd-
arsamtaka Ís-
lands segir
fáránlegt að
hugsanlegar
virkjanir í Hvítá,
sem myndu
ramma inn sjálf-
an Gullfoss, verði
með í rammaáætlun um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma.
Í vikunni voru m.a. kynntir fimm
nýir virkjunarkostir í Hvítá, sem
samanlagt gæfu 227 megavött.
Árni hefur gagnrýnt að hvergi sé
talað um náttúruverndargildi eða
verðmat á náttúru í erindisbréfi
stjórnar Rammaáætlunar. Sendi
hann bréf þess efnis til umhverf-
isráðherra í september. Viss orku-
slagsíða sé á vinnunni, sem valdi því
að náttúruverndin hafi oft verri spil
á hendi. Sagði hann í bréfinu til um-
hverfisráðherra að erindisbréfið
gæti allt eins hafa verið samið af
Landsvirkjun.
„Þarna er verið að bæta við
nokkrum mannspilum á hönd virkj-
unaraðila, sem síðar geta þá náð-
arsamlegast gefið eitthvað eftir ef
þeir kjósa,“ segir Árni. Hann telur
að umhverfisráðherra ætti að mót-
mæla þessari viðbót við ramma-
áætlunina. onundur@mbl.is
Mannspil á hendi
orkufyrirtækjanna
Árni Finnsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VALTÝR Sigurðsson segist ekki hafa
hugleitt að segja af sér embætti ríkis-
saksóknara. Eva Joly, ráðgjafi sér-
staks saksóknara, sagði í Kastljósi
sjónvarpsins í fyrrakvöld að það væri
ekki nægilegt að Valtýr viki að hluta,
hann yrði að víkja alfarið.
Valtýr ritaði Rögnu Árnadóttur
dómsmálaráðherra bréf 18. maí sl.,
þar sem hann segir rétt að hann víki
tímabundið, til að byrja með til 1. júní
2010, í öllum málum sem heyra undir
embætti sérstaks saksóknara. Þetta
gerði Valtýr vegna þess að Sigurður
sonur hans er annar forstjóra Exista
hf. „Ríkissaksóknara er mikið í mun
að hið nýstofnaða embætti sérstaks
saksóknara njóti fulls trausts og að
sjálfstæði þess sé hafið yfir allan
vafa,“ segir Valtýr m.a. í bréfinu.
Dómsmálaráðherra brást við bréfinu
með því að fela Birni Bergssyni
hæstaréttarlögmanni að gegna hlut-
verki ríkissaksóknara í málum sem
heyra undir Ólaf Þór Hauksson, sér-
stakan saksóknara. Til þess þarf
lagabreytingu. Það var niðurstaða
ráðuneytisins og sérfræðinga að rík-
issaksóknari gæti ekki að óbreyttum
lögum vikið sæti á grundvelli van-
hæfis í einum málaflokki, heldur ein-
ungis á grundvelli einstakra mála. Þá
verður lagt til að tilkynningaskylda
rannsóknarnefndar Alþingis fari ekki
til ríkissaksóknara.
Valtýr Sigurðsson kveðst ekki sjá
hvernig Eva Joly, sem ráðgjafi sér-
staks saksóknara, tengist málum
hans embættis eftir að hann hafi hætt
öllum formlegum afskiptum af mál-
um sem snúa að embætti sérstaks
saksóknara. „Ég hef verið að berjast
fyrir því að byggja upp ákæruvaldið í
landinu en það hefur skort til þess
peninga,“ segir Valtýr. Hann segir að
það séu vandamál alls staðar og það
verði að hafa í huga að verkefni
ákæruvaldsins í landinu snúi ekki
bara að bankamálum. Valtýr sagði að
kröfur Evu Joly væru óljósar og hann
sæi ekki tilganginn í því að verða við
þeim.
Ríkissaksóknari er skipaður ótíma-
bundið í embættið af dómsmálaráð-
herra. Hann er engum háður í störfum
sínum og ekki er hægt að víkja honum
úr embætti. Það er því alfarið ákvörð-
un Valtýs hvort hann situr áfram í
embætti eða ekki. Þegar Morgun-
blaðið ræddi við Valtý í gærmorgun
var hann staddur í Finnlandi en var
væntanlegur til landsins síðar í gær.
Hann sagði að ekki væri áformaður
fundur með dómsmálaráðherra vegna
málsins. Ragna Árnadóttir sagði í við-
tali við mbl.is, að hún hygðist ræða við
Valtý og freista þess að leysa málið.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að hún
gæti tekið undir allt sem fram hefði
komið hjá Evu Joly. „Ég get líka tekið
undir það sem hún segir varðandi van-
hæfi ríkissaksóknara og á því verður
að taka. Dómsmálaráðherra er að und-
irbúa frumvarp þannig að hægt sé að
taka á því eins og Eva Joly óskar eftir.
Ég tel þetta vera grundvallaratriði.“
Ríkissaksóknarinn hyggst ekki víkja
Segir að verkefni ákæruvaldsins snúi ekki bara að bankamálum Sérstakur ríkissaksóknari mun
fara með mál sérstaks saksóknara Ýmsar lagabreytingar nauðsynlegar í tengslum við skipunina
Óvenjuleg staða er komin upp í
kjölfar kröfu Evu Joly um að rík-
issaksóknari víki alfarið úr emb-
ætti. Dómsmálaráðherra hyggst
funda með Valtý Sigurðssyni og
freista þess að leysa málið.
Eva
Joly
Valtýr
Sigurðsson
Ragna
Árnadóttir
Jóhanna
Sigurðardóttir
SKULDBINDINGAR ríkisins
vegna Icesave-samkomulagsins er
komin í 732 milljarða skv. nýjum
upplýsingum um ábyrgð ríkisins í
erlendri mynt. Þessu hélt Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, fram á Al-
þingi í gær.
„Nýjustu tölur í Icesave-
hneykslinu eru þær að ábyrgð rík-
isins er komin í 732 milljarða og 720
milljónir, eða tæplega 733 millj-
arða,“ sagði Sigmundur. Í gærmorg-
un hafi fengist nákvæmari upplýs-
ingar um upphæðina í erlendri mynt
og hún reynst vera töluvert hærri en
ríkisstjórnin hafi kynnt. „Því til við-
bótar hefur gengi íslensku krón-
unnar hríðfallið frá því að tilkynnt
var um Icesave-samkomulagið og
skyldi engan
undra, þegar ver-
ið er að skuld-
binda ríkið svo
gífurlega í er-
lendri mynt.
Þetta mun þess
vegna verða til
þess, nánast óhjá-
kvæmilega, að
festa í sessi lágt
gengi íslensku
krónunnar í alla vega 20 ár.“ Birkir
Jón Jónsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, tók undir þetta.
Upplýsingar væru misvísandi. Á
fundi efnahags- og skattanefndar
hafi komið fram að vextir reiknist
frá seinustu áramótum og verði 41
milljarður á fyrsta ári.
Skuldbindingin
732 milljarðar
Ábyrgð ríkisins hærri en kynnt var?
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
GATNAMÓTIN VIÐ FLUGVALLARVEG RÝMKUÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Að mörgu er að hyggja þegar götum er breytt. Byrjað er að rýmka gatna-
mót Bústaðavegar og Flugvallarvegar vegna aukinnar umferðar, meðal
annars að húsi Háskólans í Reykjavík sem rís við Öskjuhlíð. Flytja þarf um-
ferðarljós og í því var Kristinn Pálsson hjá ÁÞ verktökum að vinna í gær.
RAUÐI kross
Íslands harmar
þá niðurstöðu
sem kemur
fram í skýrslu
dómsmálaráðu-
neytisins um að
6 hælisleitendur
sem komu frá
Grikklandi
verði sendir til baka á grundvelli
Dyflinnar-reglugerðarinnar.
Rauði krossinn byggir skoðun
sína á Skýrslu Flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna frá apr-
íl 2008.
Rauði krossinn vill að umsókn
hvers og eins hælisleitenda verði
skoðuð sérstaklega og leggur
áherslu á að þau ríki sem sam-
þykkt hafa Dyflinnar-reglugerðina
séu ekki skyldug til að endursenda
fólk á þeim forsendum þó það sé
heimilt.
Hælisleit-
endur send-
ir til baka