Morgunblaðið - 12.06.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
ostur
Ríkur af mysupróteinum
Bra
gðg
óð
nýju
ng
9%
aðeins
Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn,
fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins.
„VIÐ erum ekki að breyta út frá
þeirri almennu stefnu okkar að skipta
okkur ekki af því sem er inni á netinu,
þarna var bara um svo ýkt dæmi að
ræða að okkur þótti það forsvar-
anlegt að bregðast við,“ segir Hrann-
ar Pétursson, upplýsingafulltrúi
Vodafone.
Vodafone og Síminn lokuðu í vik-
unni fyrir aðgang að vefsíðunni ring-
ulreid.org eftir beiðnir frá ríkislög-
reglustjóra, Barnaverndarstofu o.fl.
Á síðunni má finna gróf dæmi um ne-
teinelti og barnaklám.
Í kjölfar áskorana könnuðu fyr-
irtækin lagalegan grundvöll fyrir því
að loka aðgangi að síðunum og reynd-
ist hann vera til staðar. Þetta er í
fyrsta skipti sem gripið er til þessa
úrræðis og ekki merki um breytta
stefnu að sögn Hrannars. „Við erum
meðvituð um að þetta er aðgerð sem
er ekki hafin yfir gagnrýni, en þetta
mál þótti þannig vaxið að það væri til
þess vinnandi að gera þessa tilraun.“
Margrét Stefánsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi hjá Símanum, er sama
sinnis. „Við myndum aldrei taka upp
á því að okkar frumkvæði að loka
síðu, það er ekki okkar að gera það.
En þegar svona alvarleg beiðni kem-
ur þá verðum við við því.“
Margir hafa bent á að tilraunir til
að loka vefsíðum á netinu séu eins og
að berjast við vindmyllur, þær spretti
einfaldlega upp annars staðar. Mar-
grét bendir á að vilji viðskiptivinir
Símans tryggja að lokað sé fyrir að-
gang að slíkum síðum í eigin tölvum
sé hægt að koma sér upp netvara sem
síi út síður á svörtum lista, m.a. vegna
barnakláms.
Ekki á stefnuskránni að
hefja ritskoðun á netinu
Lokun Símans og Vodafone að
vefsíðunni Ringulreið er einsdæmi
Frumkvöðlar
í varaaflstöð
ÞANKAREGN verður væntanlega
einkennandi fyrir starfsemina í
Toppstöðinni, varaaflstöðinni í
Elliðaárdal, á næstunni en
borgarráð hefur nú samþykkt til-
lögu um að fela borgarlögmanni
að móta samning um tímabundin
afnot áhugahóps um frum-
kvöðlasetur af húsinu. Aflstöðin
hefur ekki verið notuð til raf-
orkuframleiðslu síðan á 9. áratug
síðustu aldar. Í samkomulagi
Landsvirkjunar og Reykjavík-
urborgar er gert ráð fyrir að
borgin rífi bygginguna.
Hugmynd áhugahópsins felst í
því að skapa hönnuðum, arkitekt-
um og iðnaðarmönnum sameig-
inlegan vettvang til að skapa nýj-
ar vörur, þekkingu og hugvit í
afmörkuðu rými varaaflstöðv-
arinnar.
Í lögum nr. 30/2002 um raf-
ræna þjónustu segir að þjón-
ustuveitendur, s.s. Síminn og
Vodafone, beri ekki ábyrgð á
gögnum sem þeir hýsi fyrir ann-
an aðila. Nokkrar undantekn-
ingar eru hins vegar á þessu.
Þannig geta fyrirtækin m.a.
verið talin ábyrg fyrir hýsingu
efnisins ef þau bregðast ekki
við rökstuddum grun um að
gögnin innihaldi barnaklám, líkt
og tilfellið var á ringulreid.org.
Þjónustuveitendum ber því að
fjarlægja gögnin eða hindra að-
gang að þeim. Ekki er tekið sér-
staklega fram í lögum að loka
eigi fyrir aðgang að vefsíðunni í
heild, en lögin taka hinsvegar
ekki fyrir það heldur.
Heimild í lögum
Vildu Sigríði úr nefnd
Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson töldu Sigríði eiga að víkja úr rann-
sóknarnefndinni Samt grundvöllur fyrir samstarfi og vinnu segir Sigríður
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
DR. Sigríður Benediktsdóttir stað-
festi í samtali við Morgunblaðið í gær
að Páll Hreinsson og Tryggvi Gunn-
arsson, sem sitja með henni í rann-
sóknarnefnd um bankahrunið, hefðu
óskað eftir því að Sigríður myndi
hætta í nefndinni, með símtali 22.
apríl. Þann sama dag krafðist Jónas
Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri
FME, þess að Sigríður viki úr nefnd-
inni.
Sigríður var stödd á skrifstofu
sinni í Yale-háskólanum í Bandaríkj-
unum þar sem hún starfar við
kennslu og fræðistörf þegar hún fékk
símtal frá Páli og Tryggva, eftir að
krafa Jónasar kom fram.
Sigríður sagðist þó í samtali við
Morgunblaðið í gær telja að enn sé
grundvöllur fyrir góðu samstarfi í
nefndinni og faglegri vinnu.
Frá því Jónas Fr. Jónsson krafðist
þess að Sigríði yrði vikið úr nefndinni
vegna vanhæfis hefur verið um það
deilt hvort Sigríður ætti að víkja úr
nefndinni eða ekki.
Sigríður segir Pál og Tryggva hafa
lagt að henni að víkja, en Páll hefur
sagt í samtali við mbl.is að það hafi
verið einn möguleikinn sem hafi verið
ræddur eftir að Jónas krafðist þess
að Sigríður viki, á grundvelli orða
sem hún lét falla í viðtali við skólablað
Yale-háskólans 31. mars. Í því var
haft eftir Sigríði að „hrunið [væri]
niðurstaða af öfgakenndri græðgi
margra sem hlut eiga að máli og tóm-
látu andvaraleysi þeirra stofnana
sem hafa áttu eftirlit með fjár-
málakerfinu og sjá áttu um fjármála-
legan stöðugleika í landinu“.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins töldu prófessorar við
Yale-háskóla fráleitt að Sigríður
þyrfti að hætta störfum vegna um-
mælanna í skólablaðinu, og ákvað
hún því að segja sig ekki úr nefnd-
inni.
Málið hefur valdið miklum titringi
innan íslensks fræðasamfélags en
kollegar Sigríðar úr hagfræðistétt
hafa meðal annars komið henni til
varnar. Þar á meðal Gauti Eggerts-
son, Jón Steinsson, Gylfi Zoëga og
Jón Daníelsson.
Rannsóknarnefndin sendi erindi til
forsætisnefndar Alþingis, þess efnis
að Alþingi þyrfti að taka afstöðu til
hæfis Sigríðar. Forsætisnefndin var
þessu mati Páls ósammála og vísaði
málinu aftur til rannsóknarnefnd-
arinnar, á þeim forsendum að það
væri hennar að skera úr um hæfi
nefndarmanna. Páll sagði í samtali
við mbl.is á miðvikudag að það væri
óvænt niðurstaða hjá forsætisnefnd-
inni að telja sig ekki eiga að meta
hæfi nefndarmanna í ljósi þess að það
væri Alþingi sem skipaði í nefndina.
Stjórnsýslulögin væru skýr um það
atriði. Þess er nú beðið að rannsókn-
arnefndin stígi næsta skref í málinu.
Sigríður
Benediktsdóttir
Páll
Hreinsson
GULLNI hringurinn hefur aðdráttarafl fyrir
innlenda sem útlenda ferðamenn. Geysir í
Haukadal er eitt aðalsmerkja þessa fræga hrings
um náttúruperlur Suðurlands og laðar að á öll-
um árstímum. Ferðamenn bíða gjarnan spenntir
eftir því að hverinn sendi frá sér eina góða gusu
og ekki er verra ef hveravatnið slettist aðeins á
áhorfendurna. Þá lifa þeir ofurlítið ævintýri á
þessu blessaða landi elds og ísa.
BEÐIÐ EFTIR EINNI GÓÐRI GUSU ÚR GEYSI
Morgunblaðið/RAX
NÝR vefur, atvinnuleit.is, er kom-
inn í gagnið. Atvinnuleit er nýr
kostur fyrir atvinnurekendur til að
gera fleiri störf sýnileg. Frítt er að
auglýsa fyrir atvinnurekendur, og
mörg fyrirtæki styrkja fólk í at-
vinnuleit um vörur og þjónustu.
Atvinnuleit.is
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra náms-
manna ætlar ekki að aðhafast frek-
ar vegna viðskipta sem sjóðurinn
átti við Frjálsa miðlun, fyrirtæki í
eigu dóttur Gunnars Birgissonar,
sem átti sæti í stjórn sjóðsins.
Stjórn LÍN bað Ríkisendur-
skoðun að fara yfir viðskiptin.
Fram kemur í skýrslu hennar að
keypt var vinna af Frjálsri miðlun á
tímabilinu 1992 til 1998 fyrir tæpar
10 milljónir auk 1,2 milljóna króna
útlagðs kostnaðar við prentun.
Ríkisendurskoðun segir að vinn-
an hafi raunverulega verið unnin
en þar sem ekki hafi verið leitað
verðtilboða áður en Frjáls miðlun
tók verkefnin að sér sé ekki hægt
að fullyrða hvort hægt hefði verið
að fá þessa þjónustu á betri kjörum.
Stjórn Lánasjóðsins
aðhefst ekki frekar