Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 8

Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is ÞRJÚ af hverjum fjórum heimilum, eða 77%, verja innan við 40% af sín- um ráðstöfunartekjum í greiðslur vegna íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána. Greiðslubyrði þessi, sem miðast við tekjur einstaklinga og greiðslur til lánastofnana í febrúar síðastliðnum, telst viðráðanleg. Þetta kom fram á málstofu hjá Seðlabanka Íslands í gær. Fjölmenni var á fundinum þar sem kynnt var greining á gögnum um skuldastöðu heimila í hlutfalli við tekjur, samkvæmt upplýsingum frá fjármálastofnunum og ríkisskatt- stjóra. Gögnin, sem eru dulkóðuð og fengin með leyfi Persónuverndar, ná til um 75.000 heimila og undanskilja skuldlaus heimili. Hérlendis dreifast heildarskuldir nokkuð jafnt milli tekjuhópa. Þannig eru þeir tekjulægstu, með undir 150.000 kr. á mánuði, með um 10% skuldanna en 20% skuldanna leggjast á þá tekjuhæstu, með yfir 650.000 kr. Mest meðal þeirra tekjulægstu Greiðslubyrði íslenskra heimila er mest meðal þeirra tekjulægstu, en nær 10% heimila með 150-250 þúsund krónur á mánuði er með yfir 90% greiðslubyrði vegna lána. Þegar litið var til fjölskylduaðstæðna kom í ljós að staða hjóna með börn er svipuð og þegar litið er til heildarinnar sem lýst var í upphafi. Um einstæða foreldra gegnir öðru máli, en 29% þeirra eru með mjög þunga greiðslubyrði, þ.e. þurfa að verja yfir helmingi ráðstöfunartekna til greiðslu á íbúða-, bíla og yfirdráttarlánum. Hátt í tvö þúsund heimili, eða 2,5%, eru bæði með þunga greiðslubyrði og mjög neikvætt eigið fé á sama tíma. Innan við 0,5% heimila býr jafnframt þessu við atvinnuleysi maka. Flestir ráða við greiðslur  Eitt af hverjum sex heimilum þarf að verja yfir helmingi tekna í greiðslur lána  Heildarskuldir heimilanna dreifast jafnar milli tekjuhópa en í öðrum löndum Skuldsetning íslenskra heimila miðað við ráðstöfunartekjur er mikil í alþjóðlegu samhengi. Lið- lega fjórðungur heimila skuldar meira en sem nemur fimm- földum árstekjum þeirra.                                     Í HNOTSKURN » Í stærsta áhættuhópi eruþeir sem hafa greiðslu- byrði yfir 40% og meira en 5 milljónir í neikvætt eigið fé húsnæðis. » Greiðslubyrðin er hæstmeðal þeirra sem minnstar tekjur hafa. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞESSI lög eiga við um Kópa- vogsbæ eins og önnur sveitarfélög,“ segir Knútur Þórhallsson, höfundur skýrslu Deloitte um viðskipti Kópa- vogsbæjar við Frjálsa miðlun, fyrir- tæki dóttur Gunnars Birgissonar bæjarstjóra. Á hann þar við lög um opinber innkaup. Gunnar sagði í gær að tilvitnuð ákvæði laganna tækju ekki til innkaupa sveitarfélaga og að vægast sagt undarlegt væri að virtri endurskoðunarskrifstofu yfirsæist slíkt lykilatriði. Deloitte sendi í gærmorgun frá sér þriggja blaðsíðna viðauka við skýrsluna, í kjölfarið á gagnrýni Gunnars. Fyrirtækið stendur við þá niðurstöðu sína að viðskiptin hafi hugsanlega verið lögbrot. Lögin um opinber innkaup skiptast í nokkra þætti. Í skýrslu Deloitte var fjallað um viðmiðunar- upphæðir Evrópska efnahagssvæð- isins í 2. þætti laganna, um það hve- nær viðskipti opinberra aðila við fyrirtæki eru út- boðsskyld. Þar er miðað við 10 milljónir króna á fjögurra ára tímabili. Í viðauk- anum taka þeir Knútur og Barði Ingvaldsson end- urskoðandi fram að betra hefði verið að miða við upphæðir í 3. þætti laganna. Þar er þessi upphæð á bilinu 16-21 milljónir króna, eftir því hvaða ár á við. Upphæðin sem Kópavogsbær greiddi Frjálsri miðlun var hins veg- ar um 39 milljónir króna og því yfir viðmiðunarmörkunum alveg óháð því hvaða þáttur laganna um op- inber innkaup á við. Lögin eiga við sveitarfélög „Einnig vísar þriðji þáttur lag- anna til annars þáttar. Það er því einföldun að segja að annar þáttur þeirra eigi ekki við um sveitarfélög. Þessi lög í heild sinni eiga við um sveitarfélög,“ segir Knútur. Þá gagnrýndi Gunnar skýrsluna fyrir að hvorki formaður afmæl- isnefndar bæjarins né starfsmenn nefndarinnar hefðu verið boðaðir á fund Deloitte til viðtals. Segir Knút- ur að skýrslan hafi verið unnin eftir gögnum sem fyrirtækinu voru af- hent frá Kópavogsbæ og ekki hafi verið beðið sérstaklega um nein við- töl við málsaðila. Samkvæmt venju í svona verkum sé ekki farið út í slík viðtöl nema beðið sé um það. Þá hafi verið tekið fram að skýrslan hafi verið unnin á mjög skömmum tíma. Deloitte svaraði Gunnari  Stendur við niðurstöðu skýrslunnar um hugsanlegt lögbrot  Viðskiptin útboðsskyld, óháð því í hvaða þátt laganna er vísað Í HNOTSKURN »Knútur hafnar því að hafafullyrt að bærinn sé stærsti viðskiptavinur FM. Í skýrslunni hafi staðið að laus- leg skoðun bendi til þess. »Skýrslan byggist á þeimgögnum sem Deloitte voru afhent af Kópavogsbæ.Knútur Þórhallsson HAFINN er undirbúningur að gerð undirganga við Vesturlandsveg að sögn Kristjáns L. Möller samgöngu- ráðherra. Framkvæmdir munu hefjast þegar skipulagsvinnu í sam- vinnu við Reykjavíkurborg lýkur. Kristján hefur fullan skilning á áhyggjum íbúanna. „Þetta er óvið- unandi ástand,“ sagði hann og lagði áherslu á að unnið væri af krafti að málinu. Borgarráð tók á fundi sínum í gær undir með íbúum á Kjalarnesi um að brýnt væri að auka umferð- aröryggi á Vesturlandsvegi. Lögð var áhersla á að vinnu við gerð undirganga undir þjóðveginn á móts við Fólkvang yrði hraðað og aðrar ráðstafanir gerðar til að tryggja öryggi gagnvart umferð á veginum. Undirbúningur haf- inn að undirgöngum BÓNDINN á Hofi í Vatnsdal fann gamlan kirkjugarð þegar hann var að grafa fyrir fráveitu við íbúðar- húsið. Sjást leifar af níu gröfum. Eru þær undir öskulagi úr Heklu- gosi frá 1104. Auk kirkjugarðsins fundust hleðslur sem taldar eru tilheyra gamalli kirkju. Guðný Zoëga, deild- arstjóri fornleifadeildar Byggða- safns Skagfirðinga, segir að grafið hafi verið í kistum í garðinum og því séu grafirnar væntanlega frá því eftir kristnitöku. Nánari aldurs- greiningu þurfi til að staðfesta að beinin séu ekki enn eldri. Ákvarðanir um frekari rannsókn verða teknar á næstu vikum. Frá- veituframkvæmdir á Hofi bíða því um sinn. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Kirkjugarður Ásdís Brynja Jónsdóttir ásamt tíkinni Vöku við gömlu kirkjuna á Hofi í Vatnsdal. Kirkjugarð- ur frá því fyrir 1100 Bóndinn á Hofi í Vatnsdal kom niður á bein þegar hann gróf fyrir fráveitu Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla MEÐ TUDOR fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík og Selfossi og Barðanum Skútuvogi HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 48 ára gamlan karlmann, Þorstein Kragh, í níu ára fangelsi fyrir inn- flutning á 192 kg af kannabisefnum og 1,3 kg af kókaíni á árinu 2008. Einnig var Jacob Van Hinte, 71 árs gamall Hollendingur, dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að málinu. Efnin fundust við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þriðjudaginn í júní á síðasta ári, falin í húsbifreið. Sam- kvæmt dómnum telst sannað að á fyrri hluta ársins 2008 lögðu Þor- steinn Kragh og Jacob Van Hinte á ráðin um flutning efnanna frá Hol- landi til Íslands og hittust þeir í því skyni í Hollandi auk þess að vera í símasambandi. Hæstiréttur féllst ekki á kröfu Þorsteins um frávísun málsins á grundvelli þess að hann hefði í fjöl- mörg skipti ekki fengið gögn afhent eða fengið þau of seint á meðan á lögreglurannsókn stóð. Hæstiréttur segir, að Þorsteinn hafi ekki haldið því fram að vörn hafi verið áfátt vegna þessa dráttar á afhendingu rannsóknargagna og sé ekki fallist á með honum að vísa beri málinu frá af þessum sökum. Hins vegar tekur Hæstiréttur undir það með héraðs- dómi að þessi vinnubrögð lögreglu séu aðfinnsluverð. Níu ár fyrir 192 kg af kannabis Hæstiréttur staðfesti dóm úr héraði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.