Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 14
alveg horfinn úr Norðurá, því 85 cm hrygna veiddist á Berghylsbroti og annað 90 cm langur tók á Brotinu og þurfti veiðimaðurinn að elta hann langa leið niður ána, alla leið niður í Myrkhyl. Þá fréttist af fleiri stórum hrygnum sem tóku fluguna í Kross- holu og Klingenberg. Laxinn er farinn að ganga fossinn Glanna og Óskar Páll Sveinsson, Evróvisjóntónskáld, veiddi fyrsta laxinn ofan við Glanna þetta sum- arið, við Króksbrú. Segja veiðimenn að göngur séu að glæðast en vatnið fellur hinsvegar hratt. Þrátt fyrir að enn sé rúm vika í að laxveiðin hefjist á svæðum Laxár- félagsins í Laxá í Aðaldal er fyrsti laxinn veiddur þar, en hann veiddu silungsveiðimenn við Knútsstaði. Þá er greint frá því á vef SVFR að fyrstu laxarnir séu mættir við útfall Laxárvirkjunar, en lengra komast þeir ekki. Veiðar hefjast ekki á Nes- svæðinu fyrr en fyrsta júlí. „En síðan varð allt vitlaust“  Veiðimenn í Minnivallalæk settu í fjölda fiska í vikunni  „Setti í eitthvert skrímsli sem sleit allt eftir tólf mínútur“  Einungis stórlaxar hafa veiðst í Norðurá til þessa, sá stærsti 90 cm langur Urriðinn getur verið afar vandlát- ur, eins og margir veiðimenn hafa kynnst í Minnivallalæk. Stundum dettur hann þó í tökustuð. Ný- genginn lax tekur fluguna oft vel, eins og dæmin í Norðurá sanna. Morgunblaðið/Golli Tók aðra flugu Fyrsta Norðurárlaxi sumarsins var sleppt með þríkrækjuna í kjaftvikinu. Hann veiddist aftur. STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson VEIÐI hófst í Minnivallalæk í byrjun apríl og mun hafa verið upp og ofan, eins og urriðaveiðimenn þekkja, enda er sá staðbundni dynt- óttur og viðkvæmur þar eystra. Í byrjun þessarar viku skiptu fimm veiðimenn með sér stöngunum fjór- um í Minnivallalæk í byrjun vikunar. Flestir eru þeir óvanir silungs- veiðimenn. Þórður Ólafur Þórðarson þekkir lækinn vel og leiddi hópinn. „Það var ekki mikil hreyfing fyrsta einn og hálfan daginn en síðan varð allt vitlaust á þriðjudagsmorgun- inn,“ segir hann. „Þá var blankalogn, hlýtt og skýjað. Fiskurinn var út um allt! Sneisafullt af fiski að sýna sig og að taka flugur í yfirborðinu. Ég var með félaga mínum, sem var að veiða á þurrflugu í fyrsta skipti og hann setti í fjölda fiska en átti í vandræðum með að halda þeim á þessa litlu króka. Að lokum setti hann straumflugu undir og setti í eitthvert skrímsli sem sleit allt eftir tólf mínútur,“ segir Þórður. Hann segir sérkennilegt að einn aðal-veiði- staðurinn, Húsabreiða, hafi verið al- veg tóm meðan flestir aðrir veiði- staðir iðuðu af fjöri. Þetta er fjórða sumarið sem hann veiðir í Minni- vallalæk og sagðist hann aldrei hafa séð viðlíka magn af fiski þar áður. „Maður er vanur að skríða á hnjánum langar vegalengdir til að styggja ekki fiskinn. Á þessari stundu var hinsvegar ekki hægt að styggja fiskinn. Við gátum staðið á bakkanum og horft á hann gæða sér á flugunum. Þetta var algjört partý.“ Þórður segir að strax eftir túrinn hefðu félagarnir verið farnir að hringja og spyrja hvort þeir gætu ekki fengið annað holl strax aftur. Evróvisjónlax við Króksbrú Annað hollið í Norðurá lauk veið- um með sex laxa, rétt eins og opn- unarholl stjórnarmanna SVFR. Ber- sýnilega er tveggja ára laxinn ekki 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Á þriðja tug laxa eru komnir á land í Norðurá. Allt stórlaxar. „Sá minnsti er í raun þessi 66 cm sem kom fyrstur,“ segir Grétar Þorgeirsson veiði- vörður. „Mjög sennilega var sá lax veiddur aftur nokkrum dögum seinna. Á Berghylsbrotinu fékkst nákvæmlega jafnstór fiskur með þríkrækju í kjaftvikinu en Marínó Marínósson klippti tauminn á fyrsta fiski ársins sem hann veiddi á Eyrinni og sleppti honum með þríkrækjuna.“ En þetta er ekki eini endurveiddi laxinn. „Veiðimenn sem lönduðu öðr- um laxi tóku eftir flugu í kjaftvikinu á honum en það var ekki þeirra fluga, hún var föst í tungu laxins og erfitt að losa hana. Þeir klipptu því á taum- inn en losuðu fluguna sem var fyrir í kjaftvikinu. Þannig má segja að þeir hafi skipt um flugu í þessum laxi,“ segir Grétar. Veiðimenn skiptu um flugu í laxinum PÁLMI Gunnarsson, tónlistar- og stangveiðimaður, er ómyrkur í máli í nýju tölublaði Sport- veiðiblaðsins. Hann segir að svo virðist vera að 9. greinin í lög- unum um fiskrækt sé gagnslaus, en hún er um bann við flutningi fisks á milli vatna. Í greininni seg- ir: „Hvers konar flutningur á lax- fiskum úr náttúrulegu veiðivatni, hafbeitar- eða eldisstöð í annað náttúrulegt veiðivatn til stang- veiði er óheimill.“ „Núna liggur til dæmis fyrir að það er verið að gera massífar árásir á þessa einstæðu stofna enn þann dag í dag,“ segir Pálmi um sjóbirtingsstofna og bætir við: „það ríkir í rauninni algjört ófremdarástand í Vestur-Skaftafellssýslu hvað þetta varðar. Fyrir það fyrsta er verið að fikta við laxarækt þarna sem er fyrir utan lög og reglur.“ Pálmi gagnrýnir einnig framkvæmdir erlends manns sem keypti Heiðarvatn fyrir norðan Vík í Mýrdal og hefur verið með umfangsmikla laxa- og urriðarækt. „Hann gerir sér engan veginn grein fyrir því að hann er trúlega að ganga frá þessu svæði þar um kring og jafnvel lengra í burtu steindauðu með sleppingum á laxaseiðum í Vatnsá.“ Fleiri en Pálmi gera ástand mála í stofnum laxfiska að umfjöllunarefni í Sportveiðiblaðinu. Bjarni Júlíusson, fyrrverandi formaður SVFR, skrifar grein um netaveiðina í Hvítá-Ölfusá en sumarið 2008 veiddust þrefalt fleiri laxar þar í net, 3.120, en sumarið áður, en þá keypti SVFR upp þriðjung net- anna. „Þetta gengur ekki,“ skrifar Bjarni. „Ef sami háttur verður hafður á í sumar, þá er þessu verkefni SVFR sjálfhætt og þar með á þetta svæði sér enga framtíð lengur í stangveiði.“ Segir Bjarni sanngjarna kröfu að veiðitími netabænda verði styttur, og hefjist ekki fyrr en 15. júlí. Gagnrýna fiskirækt og leggja til styttri netaveiði Netaveiði í Ölfusá Bjarni Júlíusson vill stytta netaveiðitímabilið á svæðinu. Morgunblaðið/Golli Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir. Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is 31 vatnasvæði vítt og breitt um landið fyrir aðeins 6000 krónur Þú ákveður svo hva r og hvenær þú veiðir veidikortid.is Hver seg ir að það sé d ýrt að veiða ? Stangaveiðifélag Reykjavíkur www.svfr.is – Sími 568 6050 Úrval veiðileyfa… laxveiði silungsveiði …fyrir alla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.