Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Þetta helst ... ● Matsnefnd um hæfi umsækjenda í stöðu seðlabankastjóra hefur frest til í dag til að svara athugasemdum um- sækjenda, að því er formaður nefnd- arinnar sagði Morgunblaðinu. Þorvald- ur Gylfason bað forsætisráðuneytið um að hæfi umsækjenda verði lagt í dóm erlendra sérfræðinga. Már Guð- mundsson og Arnór Sighvatsson voru taldir mjög vel hæfir. Upplýsir umsækjendur ● Íslendingar ferð- uðust 42% minna í maí síðast- liðnum, sam- anborið við sama mánuð fyrir ári. Fjöldinn ferðlanga nam 22.500 í síð- asta mánuði, sam- kvæmt tölum um brottfarir úr Leifs- stöð. Greiningardeild Íslandsbanka segir að ferðalögum Íslendinga til útlanda hafi fækkað samfellt undanfarna tólf mánuði en mjög herti á samdrætt- inum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar síðastliðið haust. Kaupmáttur Íslendinga í útlöndum hefur sjaldan verið minni. helgivifill@mbl.is Utanlandsferðum fækkar um 42% ● Þó velta smásöluverslana í maí hafi verið mun minni en í sama mánuði í fyrra að raunvirði jókst hún töluvert frá mánuðinum á undan. Segir Rann- sóknasetur verslunarinnar, að verslunin virðist vera að rétta úr kútnum eftir langvarandi samdrátt. Velta húsgagnaverslana jókst um 30,7% í maí frá mánuðinum þar á und- an, fataverslun um 25% og skóverslun um 24,5%, allt á föstu verðlagi. Hugs- anlegt er að rekja megi eitthvað af þessari söluaukningu til útsala. Langt er í svipaða veltu og fyrir ári síðan. helgivifill@mbl.is Smásöluverslun að rétta úr kútnum um háar kröfur Glitnis á Milestone. Skuldir þess félags voru metnar á 115 milljarða króna og Glitnir er stærsti kröfuhafinn. Alls nema skuldir FL Group/ Stoða um 287 milljörðum króna. Samkvæmt nauðasamningum, sem kröfuhafar samþykktu í lok maí, eru eignir félagsins metnar á 70 til 80 milljarða króna. Eignirnar nema samkvæmt því 25 til 30% af skuld- unum miðað við stöðuna í dag. Stærstu eignirnar eru TM, drykkjarvörufyrirtækið Refresco og fasteignafélagið Landic Property. FL Group skuldar Glitni 72 milljarða Kaupþing og Landsbanki eiga 58 milljarða kröfu á FL Group Morgunblaðið/RAX Forstjórinn Jón Sigurðsson stjórnaði FL Group fyrir og eftir hrun Glitnis. Árni Tómasson segir að haldið verði í suma stjórnendur félagsins. Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is KRÖFUR Glitnis á FL Group nema samtals 71,8 milljörðum króna sam- kvæmt fundargerð til kröfuhafa. Kröfur Nýja Kaupþings á FL nema 41,3 milljörðum króna og Nýi Lands- bankinn á 16,3 milljarða kröfu á fé- lagið. Samtals nema kröfur Glitnis og nýju ríkisbankanna á FL Group því rúmlega 129 milljörðum króna. Nafni FL Group var breytt í Stoð- ir á fundi hluthafa 30. apríl sl. Félag- ið átti um 32% í Glitni þegar bankinn féll og var stærsti hluthafinn. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segist ekki hafa heimild til að staðfesta þessa tölu. Spurður hversu mikið skilanefnd- in búist við að fáist greitt til baka af kröfum sínum á FL Group segir hann: „Það er mikil óvissa tengd því. Það er ekki verið að tala um neinar ofboðslegar tölur í því sambandi, því miður.“ Ekki sé hægt að svara spurningunni nákvæmar en það. „Við viljum gera það sem við get- um til að lágmarka rekstrarkostnað og jafnframt tryggja að það, sem er þó að hafa, skili sér örugglega til okkar,“ segir Árni. Hann viðurkennir að krafan á FL Group sé vissulega há en kannski ekki sú hæsta sem bankinn eigi beint og óbeint. Hann vildi ekki nefna neitt félag eða fyrirtæki í því samhengi. Morgunblaðið hefur áður fjallað Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „ÉG hafna því alfarið að Baugur hafi verið kominn í greiðsluþrot í mars 2008 og hafi verið gjaldþrota á þeim tíma eins og fullyrt er í fréttinni,“ segir Stefán Hilmarsson, fyrrv. aðstoðarforstjóri Baugs. Í frétt Viðskiptablaðs Morgunblaðsins í gær um bók Jóns F. Thoroddsens, Íslenska efnahags- undrið, segir að Baugur hafi ekki getað greitt skuldabréf í mars 2008. Þröngur hópur banka- manna hafi vitað að félagið var komið í greiðslu- þrot og reynt að semja um afföll á greiðslum. „Hið rétta er að í lok mars 2008 var bókfært eigið fé Baugs Group um 58,3 millj- arðar króna án víkjandi lána og eiginfjárhlutfall félagsins um 19,3%. Handbært fé félagsins nam 10,3 milljörðum kr. á sama tíma,“ segir Stefán. Hann segir að Baugur hafi staðið frammi fyrir því að skuldabréf að fjárhæð ellefu milljarðar hafi verið á gjalddaga um miðjan mars í fyrra. Vilyrði hafi verið fyrir því frá mörgum eig- endum skuldabréfanna að framlengja bréfin gegn greiðslu vaxta af höfuðstóli. Áður en að því kom hafi skuldabréfamarkaðurinn nánast lokast vegna van- skila fasteignafélags sem hafði gefið út skuldabréf. Þá hafi margir kippt að sér höndum. Stefán segir að samt hafi Baugur greitt sex millj- arða króna á gjalddaga en fimm milljarðar voru framlengdir. Félagið hafi greitt upp skuldabréf og víxla fyrir 19 milljarða króna yfir árið. „Ekki var um það að ræða að farið hefði verið fram á afföll af skuldabréfunum við eigendur þeirra og þeirri fullyrðingu algerlega hafnað sem rangri,“ segir Stefán. Baugur var ekki í greiðsluþroti  Stefán Hilmarsson segir Baug hafa greitt upp skuldabréf fyrir 19 milljarða í fyrra  Rangt sé að félagið hafi verið komið í greiðsluþrot og viljað afföll á greiðslum Stefán Hilmarsson Fjármálaeftir- litið er að rann- saka átta mál þar sem grunur leik- ur á að reglur um gjaldeyris- höft hafi verið brotin. Gunnar And- ersen, forstjóri Fjármálaeftir- litsins (FME), segir málin ekki einsleit. Ýmsar að- ferðir séu notaðar til að fara fram hjá reglunum, sem settar voru á til að styðja við gengi krónunnar. Hann nefnir sem dæmi að tekjur af útflutningi skili sér ekki nema að hluta til baka. Í samstarfi og eftir ábendingar frá Seðlabankanum rannsaki FME slík tilvik. Gunnar tekur dæmi um fyrirtæki sem selur afurð til dótturfélags í einhverju landi á eina krónu. Af- urðin sé verðmætari og seld áfram til erlends aðila fyrir mun hærri upphæð. Mismunurinn skili sér ekki til landsins. Gunnar segir eftirlitsteymi skip- að starfsfólki FME og Seðlabank- ans. Teymið nýti sér sérfræðinga hér heima og erlendis. Brot geta þýtt stjórnvaldssekt upp á tíu þúsund til tuttugu millj- ónir króna fyrir einstakling. Fyrir lögaðila er ramminn fimmtíu þús- und til 75 milljónir. bjorgvin@mbl.is Rannsaka skil á gjaldeyri Gunnar Andersen Átta mál til rann- sóknar hjá FME #' #'  ! "#  "$  #' (' #%&# ' "#  "# & %)* )+, $ ,- . %&&# #% !$ "  " ( &/"0 %' %!$ (%#& " ! "# # #' #'  &# &# " $ "# # ● Í síðustu könnun Capacent Gallup í mars meðal stærstu fyrirtækja landsins örlaði á bjartsýni um að aðstæður í efnahagslífinu myndu fara batnandi þegar horft væri hálft til eitt ár fram í tímann. Sú bjartsýni er nú að mestu horfin, segir í frétt Samtaka atvinnu- lífsins. Telja stjórnendur að aðstæður séu nú mjög slæmar (62%) eða frekar slæmar (35%), en ekkert fyrirtæki telur þær góðar, segir í fréttinni. helgivifill@mbl.is Stjórnendur svartsýnni á framtíðina Finninn Kaarlo Jännäri gagn- rýndi ákveðið hversu mikla áhættu íslenskir bankar tóku í lánveitingum til fárra aðila. Í 23 tilvikum fór áhættuskuldbinding á einn eða tengda aðila yfir tíu prósent af eiginfjárgrunni. Jännäri sagði í skýrslu sem hann samdi fyrir ríkisstjórnina að þetta væri mjög óvenjulegt. Stórar áhættur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.