Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 16

Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 16
16 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is SAMDRÆTTINUM í bresku efna- hagslífi er lokið. NIESR, sjálfstæð, bresk rannsóknastofnun, hefur kom- ist að þessari niðurstöðu en hún er kunn fyrir mjög áreiðanlegar spár um þróun efnahagslífsins. Að hennar mati var botninum náð í mars og í apríl og maí var um nokkurn hagvöxt að ræða. Fréttir annars staðar að úr heimi benda einnig til þessa sama og þá þykir hækkun olíuverðs að undanförnu nokkuð örugg vísbend- ing um, að efnahagslífið almennt sé aftur á uppleið. Hagvöxtur í apríl og maí Í apríl var hagvöxtur í Bretlandi 0,2% og 0,1% í maí. Þótt ekki sé um háar tölur að ræða þá skilja þær samt á milli feigs og ófeigs. Segja hinir vísu menn hjá NIESR, að haldi þessi þróun áfram sé ljóst, að krepp- an nú sé miklu vægari en kreppan mikla á fjórða áratug síðustu aldar og samdráttarskeiðið á níunda ára- tugnum. Hún sé aftur á móti harðari en afturkippurinn upp úr 1990. NIESR telur, að sú stefna stjórn- valda og Englandsbanka að dæla fé inn í efnahagslífið og miklar vaxta- lækkanir hafi hér skipt sköpum. Ef allt gengur vel mun Bretland verða fyrst stóru ríkjanna í Evrópu til að snúa blaðinu við. Mun það ekki koma sér illa fyrir Gordon Brown forsætisráðherra og ríkisstjórn Verkamannaflokksins en hún hefur ekki beinlínis velt sér upp úr góðu fréttunum að undanförnu. Annað, sem vekur vonir í Bret- landi, er, að fasteignamarkaðurinn virðist heldur vera að taka við sér á ný. Eftir mikla lækkun hækkaði hús- næðisverð um 2% í maí og nýjum kaupendum fjölgaði. Olían mælir umsvifin Fram kemur í júnískýrslu IEA, Alþjóðaorkustofnuninni, að þróun olíuverðs að undanförnu bendi til, að samdrættinum í heimsbúskapnum sé að ljúka. Á skömmum tíma hefur verð á hverju olíufati hækkað um 20 dollara og er það rakið til aukinnar eftirspurnar eftir olíu í helstu hag- kerfunum, einkanlega í Bandaríkj- unum. Er um að ræða aukna olíu- notkun í alls konar iðnaði en hún hefur ekki enn tekið við sér í sam- göngum og þjónustu. Á síðasta ári dróst olíunotkun í heiminum saman um 2,9%. Segja samdráttinn í bresku efnahagslífi vera yfirstaðinn Aukin eftirspurn og hærra olíuverð benda til meiri umsvifa í heimsbúskapnum Reuters Til sölu! Ekki er loku fyrir það skot- ið að þessi hús fari að seljast. ÁHRIFAMENN í Likud-flokknum í Ísrael leggja nú fast að leiðtoga hans, Benjamin Netanyahu for- sætisráðherra, að nota ekki orð- ið Palestínuríki í ræðu sem hann hyggst flytja á sunnudag. Netanyahu hefur ekki viljað sam- þykkja stofnun Palestínuríkis eða stöðva alveg stækkun landtöku- byggða gyðinga á Vesturbakkanum þrátt fyrir mikinn þrýsting stjórnar Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Búist er við að í ræðunni reyni Net- anyahu að koma til móts við banda- rísk stjórnvöld í málinu en hann er milli steins og sleggju vegna and- stöðu flokksbræðra hans í Likud við stofnun Palestínuríkis. Reyni hann að fara bil beggja er hugs- anlegt að ræðan valdi gremju hvorra tveggja. Aðstoðarmenn Netanyahus segja að hann kunni að samþykkja stofn- un Palestínuríkis með nokkrum skilyrðum, m.a. um að Palest- ínumenn viðurkenni fyrst tilvist- arrétt Ísraels sem gyðingaríkis og lofi að stofna ekki her. bogi@mbl.is Netanyahu milli steins og sleggju Benjamin Netanyahu WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, lýsti í gær yfir því, að svínaflensan eða H1N1 væri orðin að faraldri og færði viðbúnaðinn upp í sex eða efsta stig. Var þetta ákveðið á fundi WHO í aðalstöðvum stofnunarinnar í Genf en sóttin hefur nú komið upp í 74 löndum. Þykir enginn vafi leika á því lengur, að hún berst auðveld- lega á milli manna í Evrópu og As- íu, ekki síður en í Suður- og Norð- ur-Ameríku. 40 ár eru liðin síðan WHO lýsti síðast yfir heimsfaraldri. Í fyrradag voru flensutilfellin orðið tæplega 28.000 í 74 löndum og þar af hafði 141 maður látist. Hafa dauðsföllin átt sér stað í átta löndum og eru þau öll í Ameríku eða Karíbahafi. Flensan er samt enn væg en óttast er, að hún geti orðið skæðari í haust og næsta vet- ur. Breytir litlu um viðbúnaðinn hér á landi Haraldur Briem sóttvarnalæknir sagði, að yfirlýsing WHO breytti litlu um viðbúnaðinn hér enda var- aði stofnunin við yfirdrifnum við- brögðum. Þessi flensa, H1N1, væri heldur ekki skæð. „Yfirlýsingin skiptir hins vegar miklu máli fyrir lyfjafyrirtækin, sem nú geta einhent sér í að fram- leiða bóluefni gegn veirunni. WHO þurfti hins vegar fyrst að lýsa yfir eða staðfesta, að um faraldur væri að ræða,“ sagði Haraldur. Sagði hann, að bóluefnisframleiðslan tæki yfirleitt þrjá til sex mánuði og því mætti búast við að fyrstu lyfja- skammtarnir kæmu hingað til lands í október eða nóvember. Hér á landi hafa þrjár mann- eskjur greinst með flensuna og nú síðast hjón, sem voru nýkomin frá Bandaríkjunum. Sagði Haraldur, að þeim liði vel og væru að ná sér. Maðurinn hefði sýnt dæmigerð flensueinkenni og fengið viðeigandi meðferð en hjá konunni hefðu ein- kennin verið mjög væg. svs@mbl.is Reuters Faraldur Víða um heim er fólk hvatt til að vera vel á verði gegn svínaflens- unni og þá ekki síst að gæta hreinlætis. Þetta skilti er í borginni Hyderabad í Suður-Indlandi en flensan er nú komin upp í 74 löndum. Flensan að heimsfaraldri Viðbúnaður hér á landi sá sami og verið hefur SVOKÖLLUÐ „Coca“-hátíð er haldin árlega í héraðinu Redondela á Norðaustur-Spáni og þá dansa konurnar með ungar dætur sínar á öxlunum. Er það vegna þess, að einu sinni endur fyrir löngu brugðu tvær konur á þetta ráð þegar eldspúandi dreki ætlaði að taka þær. Það varð þeim til bjargar. Reuters Dansað og leikið á drekann MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi Líb- íu, líkti Bandaríkjunum við hryðju- verkasamtökin al-Qaeda þegar hann ávarpaði öldungadeild Ítalíuþings í gær. „Hver er munurinn á árás Banda- ríkjanna á heimili okkar og hryðju- verkum al-Qaeda?“ spurði Gaddafi og skírskotaði til loftárása Banda- ríkjahers á Líbíu árið 1986. Tugir manna biðu bana í árásunum, þeirra á meðal ættleidd dóttir Gaddafis. „Heimurinn er í skugga opinberr- ar hryðjuverkastarfsemi,“ sagði Gaddafi í ræðunni. „Osama bin Lad- en er ekki með ríki, en BNA eru ríki.“ Gaddafi er í fyrstu opinberu heim- sókn sinni til Ítalíu. Heimsóknin er umdeild og ákveðið var að Gaddafi flytti ræðuna í einum af aukasölum öldungadeildarinnar, ekki aðalfund- arsalnum, eftir að stjórnarand- staðan hótaði að sniðganga gestinn. Stjórnvöld í Líbíu viðurkenndu að hafa borið ábyrgð á því að farþega- þota bandaríska flugfélagsins PanAm var sprengd yfir Lockerbie í Skotlandi 1988. 270 manns biðu bana í tilræðinu og Líbíumenn samþykktu að greiða fjölskyldum fórnarlamb- anna skaðabætur. bogi@mbl.is Líkir BNA við al-Qaeda Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn „Senda inn efni“ veljið „Senda inn minningargrein“ þar sem fram koma nánari leiðbeiningar. Skilafrestur Minningargrein sem á að birta á útfarardegi verður að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Birting getur dregist þó greinin berist innan skilafrests þar sem pláss er takmarkað. Sami skilafrestur er á greinum vegna útfarar í kyrr- þey. Allar greinar birtast jafnframt á vefnum www.mbl.is/minningar Lengd Hámark 3.000 slög. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, „Hinstu kveðju“, 5–15 línur. Formáli Nánustu aðstandendur skulu rita formála og senda inn, skv. leið- beiningum á mbl.is Undirskrift Minningargreinahöfundar noti skírnarnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar og skil Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skoðið leiðbeiningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.