Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 ✝ Franch Michel-sen úrsmíða- meistari fæddist á Sauðárkróki 31. des- ember 1913. Hann lést á Landakoti 7. júní sl. Foreldrar hans voru hjónin Jörgen Frank Mic- helsen úrsmíðameist- ari, frá Horsens í Danmörku, f. 25. jan. 1882, d. 16. júlí 1954, og Guðrún Pálsdóttir, frá Draflastöðum í Sölvadal, f. 9. ág 1886, d. 31. maí 1967. Systkini Franchs eru: Karen Edith, Pála Elínborg, Hulda Est- er, Rósa Kristín, Georg Bernharð, Paul Valdimar, Aðalsteinn God- fred, Ottó Alfreð, Elsa María, Kristinn Pálmi og Aage Valtýr sem lifir systkini sín. Franch kvæntist 19. júlí 1944 Guðnýju Guðrúnu Jónsdóttur, f. 11. mars 1921. Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson, f. 8. jan. 1879, d. 6. jan. 1964, og Ingibjörg Eyjólfsdóttir, f. 14. nóv. 1895, d. 4. febr. 1966. Börn Franchs og Guðnýjar eru: 1) Ingibjörg Ást- hildur, f. 1938, maki Lúðvíg Thor- berg Helgason. Börn: Guðný Bergdís, f. 1956, Birgir Freyr, f. 1957, Fjölnir, f. 1962, Björn Fjal- ar, f. 1965 og Frank Snær, f. 1966. 2) Guðrún Rósa, f. 1944, giftist Leif Eiríkssyni. Börn: Atli, f. 1962, Kristrún, f. 1965, og opnaði hann úraverslun í Reykja- vík sem sameinaðist fyrirtæki föð- ur hans. Hann rak fyrirtækið til ársins 1992 er sonur hans tók við. Störfuðu þeir feðgar saman fram- undir það síðasta. Franch var meistari 12 úrsmiða og var um- hugað um framgang úrsmíði á Ís- landi og fylgdist ætíð með framþróun og nýjungum í úra- heiminum. Hann starfaði um ára- bil fyrir Úrsmiðafélag Íslands og var sæmdur gullmerki þess, starf- aði árum saman fyrir Kaup- mannasamtök Íslands, var í stjórn og formaður A.S.K.Í. og var sæmdur gullmerki K.Í. Franch var skáti af lífi og sál fram á síð- asta dag. Hann stofnaði skátafé- lagið Andvara (síðar Eilífsbúa) á Sauðárkróki 1929, formaður þess um árabil og heiðursfélagi. Franch stofnaði Skátablaðið og var ritstjóri þess ásamt því að rit- stýra Foringjablaðinu og Bálinu. Hann tók Gilwell-foringjaþjálfun í Danmörku og kom á Gilwellskól- anum á Íslandi. Franch var land- gildismeistari St. Georgsgildisins um árabil og sat í stjórn og vara- stjórn Bandalags íslenskra skáta í 18 ár. Hann var sæmdur Skáta- kveðjunni úr gulli fyrstur ís- lenskra skáta, gullmerki BÍS, Þórshamrinum, gullbjálka St. Georgsgildisins, gullmerkjum sænska skátasambandsins auk margra viðurkenninga og heið- ursmerkja frá BÍS og skáta- samböndum víðsvegar í Evrópu. Franch verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, 12. júní, kl. 15. Meira: mbl.is/minningar Guðný, f. 1968. Sam- býlismaður er Ulf Anders Löndahl. 3) Lilja Dóra, f. 1948, maki Sigurður Þor- steinsson. Bör: Elín Hanna, f. 1968, Þor- steinn Birkir, f. 1975, og Hlynur Örn, f. 1980. 4) Frank, f. 1952, d. 1954. 5) Frank Úlfar, f. 1956, maki Inga Sigríður Magn- úsdóttir. Börn Frank Magnús, f. 1978, Ró- bert Freyr, f. 1984, og Magnús Daníel, f. 1989. 5) Hlynur Jón, f. 1961, maki Valentína Hristova. Börn: Magdalena Valentinova og Kolgrímur Hristo. Fyrir átti Hlynur Marvin Kjarval. 6) Anna Birna, f. 1963, maki Marcel Fu- rer. Börn Robin Alex, f. 1988, og Íris Svetlana, f. 2003. Franch hóf nám í úrsmíði hjá föður sínum J. Frank úr- smíðameistara á Sauðárkróki 1934, lauk námi í Iðnskólanum í Reykjavík og hélt til framhalds- náms í Den Danske Urmagerskole í Kaupmannahöfn 1937. Eftir út- skrift starfaði hann hjá Carl Jon- sèn, konunglegum hirðúrsmið, og bauðst jafnframt sú nafnbót. Við hernám Þjóðverja neyddist Franch til að afþakka störf hjá virtum úrafyrirtækjum í Berlín og Genf en komst heim með Esj- unni frá Petsamo 1940. Árið 1943 Það er með sárum söknuði sem við skrifum þessi orð. Ekki sorg, því við vitum hve þreyttur afi Franch var orðinn og lélegur til heilsunnar. Sökn- uði, því góður og gegnheill maður, sannkallað ljúfmenni, er nú fallinn frá og skilur eftir stórt skarð í fjölskyld- unni. Afa munum við fyrst eftir í úrabúð- inni á Laugavegi þar sem hann og pabbi stóðu saman vaktina í áraraðir. Það var gaman að koma í heimsókn í búðina því afi kunni ýmsa galdra, s.s. að töfra nammi úr eyrum barna og taka af sér þumalfingurinn. Svo borg- aði hann vel fyrir ýmis smáverk eins og sendiferðir. Vasaklinkið hans var mikill fjársjóður í okkar vösum. Afi var með vinnuaðstöðu á úra- verkstæðinu og svo skrifstofu á ann- arri hæð. Afi setti ekki stigann fyrir sig heldur mætti í vinnu allt fram á þetta ár, slíkur var áhuginn. Á skrif- stofuna var spennandi að koma fyrir litla afastráka og fikta í strimla- reiknivélinni sem prentaði bæði í svörtu og rauðu með miklum látum. Afi var ekki alltaf ánægður með papp- írseyðsluna hjá okkur en hann nefndi það þó ekki. Til ömmu og afa var alltaf gott að koma. Afi bauð þá oft upp á sitt víð- fræga og heimsþekkta á öllu Íslandi (eins og hann sagði sjálfur) afa-kakó. Þrátt fyrir einfalda uppskrift virkaði það eins og geimvísindi fyrir litla afa- stráka. Afa-kakó kunni aðeins afi að búa til. Afi fylgdist alltaf vel með því sem við vorum að gera og var stoltur af því. Það gladdi hann mikið þegar Ró- bert ákvað að feta í hans fótspor og læra úrsmíði erlendis. Hann spurði oft um hvernig námið gengi og það var honum mikils virði þegar Róbert útskrifaðist núna í lok maí sem úr- smiður. Afi var mikill sögumaður og hafði gaman af að segja frá æskuæv- intýrum á Króknum. Þessar sögur ásamt skátasögum og söguna af Pet- samo-ferðinni geymum við nú í hjört- um okkar ásamt öllum þeim góðu minningum sem við eigum um afa Franch. Hvíl í friði, elsku afi, og þakka þér fyrir allt. Þínir afastrákar, Frank (nafni), Róbert og Magnús. Látinn er Franch Bertholt Michel- sen úrsmiðameistari sem um langt árabil var félagi í Úrsmiðafélagi Ís- lands og allt til ársins 2007 mætti hann á aðalfundi félagsins. En á fund- inn árið 2008 bárust okkur kveðjur frá honum þar sem hann sagðist ekki fara nógu hratt yfir til að taka þátt í fundinum en þá var Franch orðinn 93 ára gamall. Hann var við úrsmiðanám hjá föður sínum en lauk úrsmiðanámi árið 1939 í Den Danske Urmager- skole Teknologisk Institut í Kaup- mannahöfn. Franch vann við úrsmíði í Kaupmannahöfn á árunum 1937 til 1940, þá meðal annars hjá konung- lega hirðúrsmiðnum. Heim til Íslands kom hann haustið 1940. Eftir heim- komuna hóf hann fljótlega eigin rekstur, fyrst á Sauðárkróki en 1943 flutti hann til Reykjavíkur þar sem hann hóf rekstur úrsmíðaverkstæðis og verslunar sem hann færði fljótlega á Laugaveginn þar sem hann starfaði í hálfa öld. Þar fara um borgina framandi menn, og framhjá mér ganga þeir. Allt þetta fólk sem ég sé í svip og síðan aldrei meir. Frá landinu öllu labbandi fólk á Laugaveginum er svo fjarlægt, að aldrei þekki ég það, - en þó svo nálægt mér. (Gunnar Dal.) Franch naut lífsins í mannmergð og ys miðbæjarins. Fyrirtæki Franchs seldi úr, skrautmuni og skartgripi ásamt því að sjá um við- gerðaþjónustu á úrum og klukkum. Verslunin bauð ævinlega breitt úrval en það sem vakti hvað mesta athygli var framboðið af heimsþekktum, dýr- um og vönduðum úrum og klukkum. Mér er minnisstæð ein bæjarferð sem ég fór fyrir móður mína einhverra er- inda en þá átti ég leið framhjá verslun Franchs og sá þá í glugganum und- arlega gullislegna klukku sem komið var fyrir inni í vönduðum glerkassa. Ég starði sem bergnuminn á hæga snúningshreyfingu klukkuverksins. Ég gat slitið mig frá þessari völund- arsmíð og snaraði mér inn í búðina til að fá upplýsingar um gripinn og var tjáð að klukkan, Atmos Jaeger-LeCo- ultre, gengi fyrir þyngdarbreytingum andrúmsloftsins, þ.e.a.s nokkurs kon- ar eilífðarvél, sem mér þótti allnokkur tíðindi. Síðar er ég hafði lært úrsmíði vann ég á úrsmíðaverkstæði Franchs tímabundið og náði þá að kynnast honum nokkuð. Franch leiðbeindi mér faglega og reyndist mér í alla staði vel og fyrir mig sem hafði lært á litlu úrsmíðaverkstæði var gaman að sjá hvernig stórt verkstæði var rekið þar sem 4 til 5 úrsmiðir unnu og næg spennandi verkefni lágu alltaf fyrir. Tólf úrsmiðanemar lærðu á verkstæði Franchs. Síðasti nemandi hans var sonur hans, Frank Úlfar, sem nú rek- ur fyrirtækið. Franch var skemmti- legur í viðkynningu, léttur í lund, bar með sér fágun og var fylginn sér. Er kom að faginu gerði hann kröfur um nákvæmni og fagmennsku. Þegar tæknibreytingar gengu yfir í úra- heiminum gekkst hann fyrir og hélt námskeið með erlendum leiðbeinend- um fyrir íslenska úrsmiði um hina nýju tækni. Franch sat í stjórn Úrsmiðafélags Íslands um nokkurt skeið og var alla tíð virkur félagi. Hann var sæmdur gullmerki félagsins. Fyrrum nemend- ur hans minnast hans nú með virð- ingu og þökk sem og aðrir fagfélagar hans. Ég sendi Guðnýju eiginkonu hans og allri fjölskyldunni innilegar sam- úðarkveðjur. Axel Eiríksson, formaður Úrsmiðafélags Íslands. Í starfi mínu sem framkvæmda- stjóri Bandalags íslenskra skáta á annan áratug hef ég haft samskipti við fjölmarga einstaklinga sem starf- að hafa á vegum skátahreyfingarinn- ar sem sjálfboðaliðar. Flesir eiga sín tímabil þar sem þeir eru sem virkastir en fjarlægjast síðan. Þar sem aldurs- munur var mikill á okkur Franch var hans öflugasta tímabil innan skáta- hreyfingarinnar löngu fyrir minn starfstíma en allan starfstíma minn var Franch eftir sem áður viðriðinn skátahreyfinguna og mun svo hafa verið alla hans tíð. Yfirleitt liðu ekki margar vikur án þess að ég heyrði í honum. Ávallt kappkostaði hann að mæta við setningu skátaþinganna og jafnvel sitja aðeins lengur og ef hann átti þess ekki kost að mæta hringdi hann í mig og sendi kveðjur inn á þingið og þannig var það nú í vor. Franch var vakinn og sofinn í þessu æfilanga tómstundastarfi sínu og dundaði hann við það síðustu árin að taka saman margvíslegar upplýsing- ar úr starfinu, m.a. um upphaf Gil- well-námskeiðanna. Þá var honum skátafélagið á Sauðárkróki, Eilífsbú- ar, einnig ávallt mjög hugleikið og spurði hann mig ævinlega um gang- inn hjá þeim er við ræddum saman. Á starfstíma mínum hjá skátahreyfing- unni er Franch án efa einn ötulasti eldri skátinn sem ég hef haft kynni af sem alla tíð var með hugann við vel- ferð hreyfingarinnar og sýndi það í verki með virkri þátttöku og með því að hafa reglulega samband ef honum datt eitthvað í hug sem hjálpað gæti til. Slíkur velvilji og ræktarsemi er fé- lagasamtökum sem skátahreyfing- unni afskaplega mikils virði og ber að þakka það sérstaklega. Franch var virkur skáti alla tíð og gegndi fjöl- mörgum ábyrgðarstörfum innan hreyfingarinnar, foringjastörfum á öllum stigum starfsins, m.a. í stjórn BÍS til margra ára, ritstjóri Skáta- blaðsins, kom Gilwell skólanum á laggirnar og var virkur í starfi St. Georgsskáta. Síðustu árin mætti hann ávallt í mánaðarlega hádegis- súpu Endurfunda skáta og oft þurfti hann að spjalla líka eitthvað í leiðinni. Síðast hitti ég Franch er ég heimsótti hann á heimili hans á Eir með blóm frá hreyfingunni á 95 ára afmæli hans að morgni dags 31. des. síðastliðinn. Þau hjón tóku afskaplega ljúfmann- lega á móti mér og naut ég morgun- verðar með þeim í eldhúsinu og áttum við ánægjulegt spjall sem eðlilega gekk út á að Franch var að spyrja mig um gang ýmissa mála innan skáta- hreyfingarinnar. Með Franch er genginn einn af frumkvöðlum skáta- hreyfingarinnar á Íslandi og vil ég þakka honum hans framlag sem og afskaplega ánægjulegt samstarf og viðkynningu. Eftirlifandi konu hans og börnum sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur. Með skátakveðju, Þorsteinn Fr. Sigurðsson framkvæmdastjóri BÍS. Franch Michelsen  Fleiri minningargreinar um Franch Michelsen bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 2 4 1 1 5 8 2 2 1 4 9 7 3 1 2 4 2 4 1 4 4 8 5 1 8 1 6 6 3 3 8 7 7 3 2 3 7 1 2 8 8 1 1 9 1 7 2 2 0 5 4 3 2 0 1 4 4 1 5 4 9 5 2 1 1 8 6 3 8 2 2 7 3 6 5 5 1 3 1 5 1 1 9 8 9 2 2 1 8 7 3 2 1 1 2 4 1 9 1 6 5 2 4 5 3 6 4 0 9 3 7 4 0 5 6 2 0 0 4 1 2 1 4 7 2 3 5 2 4 3 2 1 1 6 4 1 9 3 5 5 2 7 1 2 6 4 5 0 1 7 4 0 9 6 3 7 9 9 1 2 4 3 0 2 3 7 3 4 3 2 2 3 4 4 2 4 6 7 5 3 0 8 5 6 4 7 0 1 7 4 2 5 7 3 9 1 8 1 3 6 2 1 2 3 8 9 6 3 2 3 0 3 4 2 5 7 3 5 4 1 1 8 6 4 7 9 8 7 4 3 4 6 4 3 3 7 1 3 9 3 8 2 3 9 0 4 3 2 7 5 0 4 2 8 2 8 5 4 2 6 6 6 4 9 7 5 7 4 3 5 8 4 3 5 0 1 4 1 2 9 2 3 9 2 3 3 3 1 2 4 4 2 8 8 1 5 4 3 8 1 6 5 2 7 5 7 4 5 5 1 4 5 7 2 1 4 3 3 4 2 4 1 0 5 3 3 5 3 3 4 3 0 3 6 5 4 5 1 3 6 5 8 5 7 7 4 7 6 5 4 8 7 4 1 4 3 9 2 2 4 1 2 8 3 3 5 7 6 4 3 6 9 6 5 4 8 7 5 6 5 8 8 8 7 4 8 6 4 4 9 6 9 1 4 4 3 2 2 4 3 9 4 3 4 0 7 6 4 4 2 3 7 5 5 1 1 3 6 6 0 3 6 7 5 5 8 7 5 3 7 6 1 4 8 4 0 2 4 3 9 7 3 4 2 7 0 4 4 6 4 2 5 6 0 0 7 6 6 2 1 8 7 5 6 0 1 6 1 2 2 1 4 8 5 6 2 4 4 5 1 3 4 6 4 7 4 5 4 2 6 5 6 5 0 5 6 6 5 1 1 7 5 6 3 0 6 4 7 3 1 5 0 7 1 2 4 7 7 6 3 5 2 9 1 4 5 5 2 2 5 6 6 3 2 6 6 6 3 4 7 6 1 6 6 6 7 7 4 1 5 6 1 9 2 5 2 2 9 3 5 9 0 2 4 7 0 7 1 5 6 7 1 9 6 7 6 8 5 7 6 2 3 9 7 5 3 0 1 5 7 6 5 2 6 5 4 7 3 6 0 8 1 4 7 1 8 4 5 6 9 8 4 6 7 9 3 8 7 6 2 5 3 7 7 1 2 1 5 8 2 4 2 6 5 7 3 3 6 1 3 8 4 7 3 0 7 5 7 4 4 2 6 8 9 8 9 7 6 3 4 9 7 9 3 7 1 5 8 8 7 2 6 6 7 3 3 6 3 0 8 4 7 7 1 3 5 8 7 3 0 6 9 1 2 0 7 6 3 8 5 8 3 1 6 1 5 9 0 5 2 6 9 6 2 3 6 5 5 2 4 7 7 6 7 5 8 8 6 1 6 9 1 8 3 7 6 7 9 4 8 3 5 9 1 6 0 2 7 2 7 8 4 6 3 6 7 6 6 4 8 0 9 0 5 9 0 3 7 6 9 3 1 4 7 6 9 4 5 8 5 0 2 1 6 2 9 4 2 7 9 9 5 3 7 2 1 8 4 8 6 4 2 5 9 4 7 7 6 9 3 9 7 7 6 9 8 3 8 5 8 1 1 7 1 4 4 2 8 2 0 2 3 7 8 0 7 4 9 4 0 6 5 9 5 2 3 6 9 4 7 4 7 7 9 8 1 8 9 0 6 1 7 6 0 9 2 8 2 5 9 3 7 8 5 6 4 9 6 0 8 6 0 3 8 0 7 0 6 3 5 7 8 2 8 3 8 9 3 6 1 7 7 5 4 2 8 3 9 1 3 8 2 3 3 4 9 7 0 1 6 0 7 9 4 7 0 8 5 8 7 8 5 3 0 9 4 3 3 1 7 7 9 2 2 8 6 0 5 3 8 6 9 2 4 9 8 9 8 6 1 0 8 2 7 0 9 3 5 7 8 8 5 7 9 6 2 0 1 8 9 0 5 2 9 9 2 3 3 9 0 0 5 5 0 1 0 0 6 1 4 3 5 7 1 0 2 0 7 9 1 3 4 9 9 6 4 1 9 1 2 1 3 0 1 6 3 3 9 2 4 2 5 0 3 1 2 6 1 4 7 4 7 1 4 9 4 1 0 4 3 7 1 9 3 8 8 3 0 3 6 7 4 0 3 1 7 5 1 1 7 6 6 1 7 4 4 7 1 5 2 7 1 0 7 3 0 2 0 1 2 6 3 0 5 7 7 4 1 0 9 2 5 1 2 6 7 6 2 0 1 1 7 1 5 7 2 1 0 7 5 0 2 0 2 7 5 3 0 5 9 4 4 1 1 1 4 5 1 3 8 2 6 2 6 9 8 7 1 7 8 9 1 1 2 5 9 2 1 1 2 0 3 0 7 6 0 4 1 1 1 7 5 1 4 1 0 6 2 9 9 6 7 2 4 2 5 1 1 2 8 6 2 1 2 0 4 3 1 2 2 0 4 1 2 7 1 5 1 7 1 7 6 3 0 7 9 7 2 5 1 4 Næstu útdrættir fara fram 18. júní, 25. júní & 2. júní 2009 Heimasíða á Interneti: www.das. V i n n i n g a s k r á 6. útdráttur 11. júní 2009 A ð a l v i n n i n g u r Vespa LX kr. 500.000 kr. 1.000.000 (tvöfaldur) 4 6 6 6 5 9 7 1 4 6 8 4 4 0 3 6 6 4 9 6 1 8 4 7 7 7 1 2 9 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 6 3 7 7 1 4 5 1 2 3 9 8 1 3 7 4 6 2 1 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9091 25727 35399 52474 62402 71775 13148 28345 36330 61809 69684 76098 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 2 1 9 1 1 5 1 4 2 3 6 0 2 3 5 8 1 5 4 4 8 6 0 5 3 6 2 1 6 1 9 2 4 6 8 6 0 2 1 0 8 3 1 1 5 4 9 2 3 8 3 2 3 6 7 9 0 4 6 5 6 3 5 6 1 0 1 6 2 2 0 8 6 8 8 6 7 2 6 4 5 1 2 2 0 0 2 4 0 2 5 3 7 0 9 8 4 8 0 2 2 5 7 0 8 5 6 2 9 4 8 6 9 4 1 2 3 3 1 4 1 5 1 6 3 2 7 0 4 1 3 7 1 3 3 4 8 3 3 5 5 7 3 7 7 6 4 0 9 7 6 9 7 2 8 5 2 2 4 1 5 2 0 4 2 8 5 3 6 3 7 1 4 7 4 8 4 9 7 5 7 6 1 1 6 4 0 9 8 7 0 7 9 3 5 3 1 4 1 6 5 7 0 2 8 6 7 5 3 7 2 5 9 4 8 7 9 5 5 7 9 0 5 6 4 2 2 5 7 1 4 6 5 5 4 1 2 1 6 6 8 8 3 0 2 9 8 3 7 7 1 4 4 9 5 8 6 5 8 0 1 7 6 5 9 2 1 7 2 3 5 9 6 8 8 2 1 7 0 5 3 3 1 3 1 6 3 8 4 1 9 5 0 9 3 0 5 8 0 2 3 6 6 2 9 3 7 4 4 1 3 7 4 9 2 1 7 5 6 1 3 1 3 4 1 4 0 7 9 5 5 1 1 2 3 5 8 3 9 7 6 7 5 9 5 7 9 2 7 7 7 7 5 3 1 7 9 0 4 3 1 4 9 3 4 1 2 4 4 5 1 1 9 6 5 8 4 5 5 6 7 6 2 4 8 3 1 7 2 0 0 5 6 3 3 4 8 9 4 1 7 5 7 5 1 5 6 3 5 8 4 7 9 6 7 9 3 2 8 6 4 9 2 0 3 2 0 3 3 7 0 3 4 2 7 6 6 5 1 7 0 5 5 8 5 7 4 6 8 2 8 6 9 6 0 1 2 2 3 8 7 3 5 6 7 0 4 3 2 1 5 5 3 1 4 2 6 0 1 8 4 6 8 5 0 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.