Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 ✝ Gísli Bjarnasonfæddist á Upp- sölum í Blönduhlíð í Skagafirði 3. júlí 1930. Hann lést á dval- arheimilinu Hlíð á Ak- ureyri 30. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin á Upp- sölum, Sigurlaug Jón- asdóttir húsmóðir, f. 8. júlí 1892, d. 13. okt. 1982 og Bjarni Hall- dórsson bóndi, f. 25. jan. 1898, d. 15. jan. 1987. Systkini Gísla eru Halldór, f. 1922, Kristín, f. 1925, Jónas, f. 1926, d. 2003, Egill, f. 1927, er Hildur Magnea, f. 1994. Stjúp- börn Árna eru Eva Dögg, f. 1982 og Þorsteinn, f. 1984. Seinni kona Gísla er Guðný Georgsdóttir frá Ak- ureyri. Gísli ólst upp á Uppsölum við hefðbundin sveitastörf og öðru hvoru í vegavinnu á sumrin. Hann stundaði nám við héraðssólann á Laugarvatni 1946-8, lauk kenn- araprófi 1952 og íþróttakenn- araprófi 1953. Kenndi við barna- skólann á Bíldudal 1953-56 við barnaskóla Akureyrar 1956-76, skólastjóri þar frá 1976-84. Kennari við Laugagerðisskóla 1984-93 er hann fluttist aftur til Akreyrar og þar vann hann við kennslu meðan heilsa leyfði. Útför Gísla fer fram í dag, föstu- daginn 12. júní, frá Glerárkirkju á Akureyri og hefst athöfnin kl. 13.30. Árni, f. 1931, Stefán, f. 1933, d. 1934, og Helga, f. 1935. Gísli kvæntist 23. maí 1953 Elínu Sig- urjónsdóttur kennara frá Fáskrúðsfirði, f. 12. sept. 1929. Þau skildu. Synir þeirra eru 1) Ævar, f. 1953. 2) Kári, f. 1956, maki Bryndís Dagbjarts- dóttir, f. 1966, sonur þeirra er Arnór, f. 1987, sonur Kára er Halldór Ingi, f. 1979. 3) Árni, f. 1967, maki Sigurborg Í. Sævarsdóttir, f. 1966, dóttir þeirra Það er komið fram í ágúst. Blönduhlíðarfjöllin böðuð sólskini. Það er asi á túnunum. Það á að nýta þennan dag vel, því suðvest- urloftið boðar ekki gott. En það virðist ekki vera asi á öllum. Á bakkanum við ármótin þar sem Norðuráin hittir Héraðsvötnin stendur maður og var búinn að standa lengi og lá greinilega ekkert á. Öðru hvoru glampaði á langa stöngina og stundum steig upp blár reykur frá honum. Þá vissi maður að hann hafði leyft sér að kveikja í vindli og var í stuði. Vegna anna við heyskapinn náði ég ekki alveg að fylgjast með, en þessi ró yfir mann- inum við ána færði manni vissu um að laxinn væri farinn að ganga. Ég held að Gísla frænda mínum hafi sjaldan liðið jafn vel og við þessi ár- mót sem voru og eru að vísu sí- breytileg og ekki svipur hjá sjón í dag frá því ég man þau flottust. Stór og breið lygna með litaskilum í miðjunni og þar lá laxinn. Laxinn sem Gísli ólst upp við og menn elskuðu að glíma við. Og þá var dregið fyrir. Já það var gaman að hlusta á þá bræður, Gísla og pabba, segja frá gömlum fyrirdráttarferð- um í Brúarneshylinn með Jóhanni á Kúskerpi og þessar sögur tíndu þeir í mann í rólegheitunum því ekki var asinn á þeim bræðrum þegar þeir tóku tal saman. Enda mjög samrýndir, aðeins árs munur á þeim. Alla tíð meðan Gísli hafði heilsu til var hann mættur til að reyna við Héraðsvatnalaxinn, þann göfuga fisk, og hinn spegilfagra sil- ung sem er bragðbesti silungur í heimi. Það var mér undrunarefni þegar ég var ungur og átti enga stöng hvað hann nennti að standa við ána. Ég botnaði ekkert í þessari þolinmæði. Gísli var fyrsti maður- inn sem ég sá eyða heilum degi með stöng við á og var það ekki tal- ið búmannslegt, enda látið duga í sveitinni að vitja um lagnet kvölds og morgna. En svo sagði hann manni sögur úr fjarlægum ám eins og Laxá fyrir austan og kveikti í manni. Og nú húmar að. Sólin er horfin úr fjallinu og bakkinn í vestrinu færist nær. Veiðimaðurinn er kominn úr ánni og hamast við að moka í blásarann. Hann er glaður; 10 punda lax í skottinu og nokkrir silungar. Hann var að vísu alltaf jafn ánægður hvort sem hann kom fisklaus úr ánni eða ekki … nei nú lýg ég aðeins. Brosið var aðeins bjartara og grynnra á sögunum ef laxinn kom með. Þegar ég fer norð- ur í sumar er best að ég stoppi í Varmahlíð og kaupi mér einn vindlapakka. Gangi svo niður að ár- mótunum og taki nokkur köst og kveiki mér í vindli. Frændi myndi skilja það. Eyþór Árnason. Tíminn líður hratt og á undra- verðan hátt þegar manni verður hugsað til þess að tæplega aldar- fjórðungur er liðinn frá því að við kynntumst Gísla Bjarnasyni og konu hans, Guðnýju Georgsdóttur. Þau tvö voru sem einn maður og nú er hann fallinn frá. Gísli Bjarnason kennari kom ásamt konu sinni vestur að Laug- argerðisskóla í Eyjarhreppi á Snæ- fellsnesi til að kenna. Við vorum ung hjón í sveitinni og bæði úr Reykjavík en Gísli og Gullý frá Ak- ureyri. Það tókst ágætis vinátta með okkur þó nokkuð mörg ár í aldri skildu okkur að. Við áttum það hins vegar sammerkt að vera aðkomufólk í sveitinni og hvert og eitt okkar var við sitt starf þar. Kannski sáum við sveitina með öðr- um augum en þau sem alist höfðu þar upp og búið þar alla sína tíð. Sáum kosti hennar en söknuðum þó að nokkru leyti okkar eigin átthaga. En meðan búsetan í sveitinni varði var hún sæl og ógleymanleg. Þetta voru yndisleg ár fyrir vest- an. Gísli og Gullý áttu þarna sinn góða tíma. Þetta voru fyrstu bú- skaparár þeirra og hamingjurík ár. Þau komu að norðan til að búa sér heimili í skólanum. Það skein gleði og hamingja úr andlitum þeirra eins og þau hefðu nú loksins höndl- að eitthvað sem þau bæði þráðu. Börnum okkar tóku þau af mikilli vinsemd og sérstaklega tóku þau miklu ástfóstri við Harald og minn- ist hann þess enn í dag þótt ungur væri. Fyrir alla þá hjálpsemi og vináttustundir er nú þakkað. En við fluttum suður þar sem rætur okkar lágu. Og þau fluttu norður þar sem þeirra rætur voru. Þó leiðir skildu þá vissum við alltaf allnokkuð hvert af högum annars. Við heimsóttum þau oftast þegar leiðin lá um Norðurland. Það var okkur líka mikið gleðiefni að geta skotið yfir þau skjólshúsi þegar Gísli þurfti að leita sér lækninga hér syðra fyrir nokkrum árum. Gísli var vandaður maður, hægur og traustur. Fór í engu óðslega og hafði sinn hátt á því sem hann tók sér fyrir hendur. Það var happa- fengur fyrir sveitaskólann að fá jafn reyndan kennara og hann var. Nemendum sínum reyndist hann ákaflega vel og þótti þeim vænt um hann. Hann var raungóður og ag- aður í starfi. Það var svo sann- arlega vinnufriður í kennslustund- um hjá honum og baldnir nemendur sáu fljótt að sér og urðu hinir mennilegustu. Síðast hittum við Gísla og Gullý fyrir um mánuði á dvalarheimilinu Hlíð. Enda þótt veikur væri var ekki örgrannt um að í augum hans og kímnisvip brygði fyrir þeim Gísla Bjarnasyni sem við kynnt- umst fyrir um aldarfjórðungi. Gullý stóð sem klettur við hlið hans í þungbærum veikindum hans og var hjá honum allt þar til yfir lauk. Þar sýndi hún sem fyrr óbilandi traust og þrek andspænis því sem hún tekur að sér. Við vitum að missir Gullýjar er mestur sem og sona hans og ann- arra vandamanna. En öll eiga þau góðar minningar um traustan og góðan dreng sem hefur kvatt heim þenna og skilað drjúgu og farsælu dagsverki. Guð blessi minningu Gísla Bjarnasonar. Hreinn S. Hákonarson og Sigríður Pétursdóttir. Gísli Bjarnason Það er sárt að sakna vinar, seint mun líða þraut. Þó tíminn ávallt lægi, linar lífs á vorri ævi braut. Þín var alltaf ásjón sýn á æsku þinnar slóðir. Guð mun ætíð gæta þín, Gísli, elsku bróðir. (Kolbeinn Konráðsson.) Helga systir. HINSTA KVEÐJA ✝ Sveinn G. Schev-ing fæddist í Vestmannaeyjum 27. ágúst 1933. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 5. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðjón S. Scheving málarameistari, f. 11.9. 1898, d. 9.10. 1974 og Ólafía Kristný Jónsdóttir húsfreyja, f. 4.4. 1904, d. 10.4. 1983. Systkini Sveins eru Jón Guðjón Scheving, f. 1.3. 1924, d. 19.12. 1992 og Aðalheiður Steina Scheving, f. 19.2. 1927, gift Lofti Magnússyni. f. 15.5. 1979, sambýliskona Krist- ín Helgadóttir, f. 1.7. 1982. Sveinn lauk gagnfræðaprófi frá Vestmannaeyjum árið 1950. Hann stundaði vélvirkjanám frá Vél- smiðju Magna í Vestmannaeyjum og Iðnskólanum í Vestmanna- eyjum frá 1951 og lauk sveins- prófi í vélvirkjun 18. júní 1955. Sveinn lauk vélstjóraprófi frá Vélskólanum í Reykjavík 1958. Sveinn var vélstjóri hjá Land- helgisgæslunni 1958-1960, vél- stjóri og verkstæðisformaður hjá RARIK 1960-1967. Sveinn hóf störf hjá Orkustofnun 1967 og var verkstjóri hjá fyrirtækinu. Árið 1986 hóf Sveinn störf sem innkaupastjóri Jarðborana og starfaði þar alla tíð þar til hann lauk sínum starfsferli 2005. Sveinn verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 12. júní og hefst athöfnin kl. 13. Maki Sveins er Kristín Einarsdóttir, f. 10.2. 1945. Börn þeirra eru: 1) Ómar Þór Scheving, f. 21.4. 1966, kvæntur Evu Hlín Thoraren- sen, f. 11.2. 1971, börn þeirra eru Matthías Þór og Elí- as Andri. 2) Birgir Scheving, f. 14.10. 1970, kvæntur Paz Alvarez Beneyto, f. 11.7. 1975, börn Birgis eru Alex- andria Björg og Edda María. 3) Daníel Scheving, f. 3.11. 1977, sambýliskona Inga Jasonardóttir, f. 25.10. 1979 4) Reynir Scheving, Elsku afi. Síðast þegar við hittumst þá vorum við í afmælinu hans Reynis frænda. Það var svo gaman og þú varst svo ánægður með hvað við vorum dugleg- ir og kysstir og knúsaðir okkur bless eins og þú varst vanur. Það er erfitt fyrir okkur að skilja að þú sért ekki lengur hjá okkur, að þú munir ekki koma á móti okkur niður stigann þegar við komum í heimsókn á Flyðrugrandann og passa að við för- um varlega og að þú munir ekki koma með ömmu Stínu í heimsókn til okkar. En við vitum að þú ert núna engill á himnum og þér líður vel og að þú munt halda áfram að passa að við för- um varlega, þó við sjáum þig ekki. Bless, elsku afi! Afadrengirnir þínir, Matthías Þór og Elías Andri. Margt er það, sem við mennirnir sjáum ástæðu til að sækjast eftir með- an á lífshlaupi okkar stendur, svo sem: menntun, ást, fé, frami, fjöl- skylda. Allt á þetta sér rætur í mann- legu eðli. Í sjálfu sér er ekkert at- hugavert við neitt af þessu, ef hófs er gætt í meðferð þeirra af þessum gæð- um, sem hættast er við misnotkun, en af hinum verður sjálfsagt aldrei nóg- samlega veitt. Sennilega felst því lífs- kúnstin ekki sízt í því, hvernig við beinum áherzlum okkar og áhuga að þessum mikilvægu atriðum. Mági mínum, Sveini G. Scheving, sem við kveðjum í dag, hafði tekizt á ævi sinni að vinna svo úr sínum feng, að við okkur blasti hamingjusamur maður, sem naut trausts og virðingar fjölskyldu sinnar, vina, samstarfs- manna og annarra þeirra, sem af hon- um höfðu kynni. Hann hafði fundið jafnvægið. Og eftir standa gjörvilegir afkomendur, sem með góðu fordæmi hefur verið kennt að ganga lífsgöng- una af hófsemi og dugnaði. Þó að Sveinn setti fjölskyldu sína í fyrsta sæti, nutu vinir hans og sam- starfsmenn hins góða hjartalags hans og hjálpsemi í ríkum mæli. Hann var alltaf sannur Vestmannaeyingur, áhugasamur Akógesmaður og ætíð reiðubúinn að rétta hjálparhönd þeim, sem á þurftu að halda. Sche- vingarnir í Vestmannaeyjum hafa lengi sett svip á heimabæ sinn. Vissu- lega fór þar aðkomumaður frá Dan- mörku í upphafi, en fyrir löngu eru þeir orðnir samgrónir íslenzku um- hverfi sínu. Þó gleymdust ekki ræt- urnar. Það fundum við vel þau okkar í fjölskyldunni, sem áttum þess kost að slást í för með þeim Sveini og Kristínu til bæjarins Skævinge á Sjálandi á síðasta sumri. Hann naut þess að koma á þennan vinalega stað, þar sem forfeður hans og frændur höfðu lifað og starfað og einn þeirra loks tekið sig upp í för til Íslands og lagt þar grund- völl að ætt, sem kennd er við hinn danska heimabæ og hefur lagt ís- lenzku þjóðfélagi markvert lið á mörgum sviðum. Við Steinunn og fjölskylda okkar þökkum Sveini ljúfa og trausta sam- fylgd á liðnum árum og sendum syst- ur minni og fjölskyldu hennar einlæg- ar samúðarkveðjur. Þau eiga ríka huggun í minningum um góðan dreng. Hörður Einarsson Mig langar í nokkrum fátæklegum orðum að kveðja uppáhaldsfrænda minn hann Svein, litla bróður hennar mömmu. Sveinn var mér afar kær og á stóran sess í minningum úr mínu lífi, honum fylgdi hlýja og glaðbeitt bros hans og frískleg framkoma kallaði alltaf fram sterka tilfinningu um að þar færi maður sem gott væri að eiga að. Hvert sem ég lít í minningunum um Svein frænda þá kvikna upp myndir af ferðalögum og nýjungum, ekki það að við hefðum ferðast saman eða legið yfir tækninýjungum en flottar myndavélar og upptökutæki voru í höndum hans í mínum bernskuminn- ingum og svo fannst mér hann alltaf vera að koma frá eða vera að fara til útlanda. Hann bar sem sagt með sér strauma um framandi og nýja heima sem lítilli frænku fannst spennandi og kveikti hjá mér langanir til að skoða heiminn. Ég minnist líka fyrstu Þjóð- leikhúsferðar minnar á 12 ára afmæli mínu í boði Sveins og þá var Kristín kona hans komin í líf okkar og hér eft- ir hét Sveinn eiginlega Sveinn og Stína. Hann fylgdist með frænku sinni og var hvetjandi í bakgrunnin- um allt mitt líf. Minningin um góðan frænda, uppáhaldsfrænda, lifir með mér. Við Gummi og dætur okkar send- um Stínu, strákunum þeirra og fjöl- skyldum samúðarkveðjur. Ásdís Loftsdóttir Í grein í Óðni 1934 var komist svo að orði um afa og nafna Sveins G. Scheving að hann hefði verið starf- samur, samviskusamur og vandvirk- ur. Þessi orð lýsa Sveini móðurbróður mínum ekkert síður en Sveini P. Scheving ættföður okkar Scheving- anna úr Vestmannaeyjum. Hann var sérlega vandaður og traustur maður. Hann var 6 árum yngri en móðir mín, Aðalheiður Steina, og á milli þeirra var ávallt einlægt og gott samband. Fyrir henni hefur hann aldrei verið neitt annað en hann Sveinn litli bróðir hennar og hún hefur aldrei dregið dul á stolt sitt af honum. Henni var ómet- anlegt á erfiðum tíma í lífi hennar þegar við fluttum úr Vestmannaeyj- um snemma árs 1970 að vita af honum hér „fyrir sunnan“ til halds og trausts. Í upphafi síðustu aldar hófst vél- bátaöldin í landinu og Sveinn P. Scheving, hreppstjóri í Vestmanna- eyjum, var einn af þeim fyrstu sem öfluðu sér þekkingar og reynslu á hinni nýju tækni. Hann vann sem vél- stjóri um nokkurra ára skeið á mót- orbátum. Sonur hans, Páll, gerðist einnig forvígismaður á þessu sviði. Hann var rafvirki en stóð fyrir auk- inni fræðslu og menntun vélstjóra og var einn af stofnendum Vélstjóra- félags Vestmannaeyja 1939. Ég býst við að þessi forsaga eigi einhvern hlut í því að frændi minn, Sveinn, lagði þessa grein fyrir sig og gerði hana að ævistarfi sínu. Hann átti auðvelt með nám og eftir námsvist hjá vélsmiðj- unni Magna í Vestmannaeyjum fór Sveinn liðlega tvítugur að aldri til vél- stjórnarnáms í Sjómannaskólanum í Reykjavík. Að námi loknu vann hann lengst af við jarðboranir, síðast sem rekstrarstjóri hjá Jarðborunum þar til hann lét af störfum vegna aldurs fyrir nokkrum árum. Sveinn var yfirburðamaður í öllu því er laut að jarðborum og tækni á því sviði. Þetta vissi ég allt frá þeim tíma er ég var sumarmaður hjá Orku- stofnun á árunum 1975 og 1976. Auð- vitað hafði Sveinn bjargað mér um þessa vinnu, líkt og eldri bróður mín- um, Guðjóni, en það leyndi sér ekki á vinnustaðnum að Sveinn var hafður í miklum hávegum meðal samstarfs- manna minna. Ég var hreykinn af því að eiga þennan frænda. Hann var ekki margmáll en átti ljúft bros og var undirmönnum sínum vinsamlegur. Hann átti alltaf til úrræði þegar vandamál komu upp. Mörgum árum síðar kom ég að lögfræðilegum verk- efnum fyrir Jarðboranir og þá komst ég fljótt að því að yfirmenn fyrirtæk- isins höfðu sömu mætur á Sveini og undirmennirnir, sem ég starfaði með á árum áður, hann var orðlagður fyrir skynsemi sína og fagmennsku. Í húsi afa míns og ömmu í Vest- mannaeyjum, Guðjóns S. Scheving málarameistara og kaupmanns, og Ólafíu Jónsdóttur, var á uppvaxtarár- um mínum ávallt talað um Svein eins og að hann væri á staðnum. Samt sá ég hann aldrei fyrr en mörgum árum síðar. Leikföngin hans voru enn á sín- um stað og allt bar merki þess að hann væri augasteinn foreldra sinna. Þessi umræða hafði mótandi áhrif, einkum á Guðjón, elsta bróður minn, sem á sinn hátt fetaði í fótspor Sveins, fór snemma til náms og varð verk- fræðingur. Hann upplifði Svein eins og stóran bróður sinn og var nánastur honum af okkur systkinunum. Við er- um öll þakklát fyrir samfylgdina og fyrirmyndina sem hann gaf okkur. Um leið vottum við Kristínu samúð okkar og sonum þeirra, Ómari, Birgi, Daníel og Reyni og fjölskyldum þeirra. Blessuð sé minning góðs drengs úr Vestmannaeyjum. Hreinn Loftsson Sveinn G. Scheving  Fleiri minningargreinar um Svein G. Scheving bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.