Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.06.2009, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Atvinnuauglýsingar Starfsfólk óskast Hótel Reykjavík Centrum óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður:  Herbergisþernur í sumarafleysingar.  Starfsmann á næturvaktir í gesta- móttöku. Unnið er frá 20:00 – 08:00, unnið 7 daga og 7 daga frí. Verður að geta byrjað strax! Umsækjendur senda ferilskrá með mynd á Thorhallur@hotelcentrum.is Umsóknarfrestur er til 16. júní 2009. www.hotelcentrum.is Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Gnoðarvogur 44, 202-2896, Reykjavík, þingl. eig. Bergheimar ehf., gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 13:30. Vesturberg 78, 205-0559, Reykjavík, þingl. eig. Þorvaldur Þórarinsson, gerðarbeiðandi nb.is-sparisjóður hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 10:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 11. júní 2009. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fellabrekka 15, fnr. 231-1197, Grundarfirði, þingl. eig. Landsmenn byggingaverktakar ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 11:15. Fellabrekka 17, fnr. 231-1201, Grundarfirði, þingl. eig. Landsmenn byggingaverktakar ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 11:25. Norðurtangi 1, fnr. 210-4004, Snæfellsbæ, þingl. eig. Húsgeymur ehf., gerðarbeiðendur Bílaumboðið Askja ehf. og Innheimtumaður ríkis- sjóðs, þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 12:00. Norðurtangi 1, fnr. 226-0195, Snæfellsbæ, þingl. eig. Húsgeymur ehf., gerðarbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs, þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 12:10. Ólafsbraut 36, fnr. 210-3759, Snæfellsbæ, þingl. eig. HaraldurYngva- son og Sigurlaug Konráðsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, NBI hf. og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 12:25. Snæfellsás 1, fnr. 211-4447, Snæfellsbæ, þingl. eig. Margrét Árna- dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 12:50. Sólvellir 10, fnr. 211-5262, Grundarfirði, þingl. eig. Vélaleiga Kjartans og Svanh. ehf., gerðarbeiðandi Nýi Kaupþing banki hf., þriðjudaginn 16. júní 2009 kl. 11:00. Sýslumaður Snæfellinga, 11. júní 2009. Þjónusta Tilboð/Útboð BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071 Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024. Búrfellslína, Kolviðarhólslína Hér með er auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024., vegna skipulags háspennulína. Annarsvegar vegar er gert ráð fyrir nýbyggingu háspennulína (400 kV) meðfram núverandi línu um Húsfellsbruna í Bláfjallafólkvangi. Hinsvegar er gert ráð fyrir niðurrifi Sogslínu 2 frá Sandskeiði að spennustöðinni við Geitháls og niðurrifi Hamraneslínu 1 og 2 frá Geithálsi að Hamranesi. Tillögunni fylgir umhverfisskýrsla, sbr. lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana. Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkur- borgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 12. júní 2009 til og með 27. júlí 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is undir mál í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Samanber lög nr. 105/2006 liggur umhverfisskýrsla frammi ásamt aðalskipulagstillögunni. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 27. júlí 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 12. júní 2009 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Sjálfstæðisfélag Kópavogs Laugardagsfundur í Kópavogi um efnahags- tillögur Sjálfstæðisflokksins laugardaginn 13. júní munu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Jón Gunnarsson fara yfir efnahags- tillögur Sjálfstæðisflokksins á laugardagsfundi hjá Sjálfstæðis- félagi Kópavogs. Fundurinn hefst kl. 10.00 í félagsheimili sjálfstæðisfélagsins að Hlíðasmára 19. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Fyrirspurnir og umræður. Allir velkomnir. Fréttir á SMSFréttir á SMS Fundir/Mannfagnaðir ✝ Hörður Arinbjarn-ar fæddist í Reykjavík 21. desem- ber 1937. Hann lést á heimili sínu 2. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru María Tóm- asdóttir og Sveinbjörn Arinbjarnar en Hörð- ur var alinn upp af móður sinni og stjúp- föður Jóni D. Guð- mundssyni. Jón var einstakt góðmenni og reyndist Herði ein- staklega vel. Hinn 10. apríl 1965 kvæntist Hörður Ragnheiði Guðfinnu Har- aldsdóttur og eignuðust þau tvær dætur, þær eru: a) Edda Arinbjarn- ar, f. 20. september 1965, gift Þórði Kristleifssyni, f. 21.júlí 1963, þau eiga fjögur börn, Jakob, f. 13. janúar 1992. Matthildi, f. 21.júní 1993. Ragnheiði Kristínu, f. 11.ágúst 2002 og Ingibjörgu, f. 11.janúar 2005. b) María Arinbjarnar, f. 16. janúar 1973. Börn hennar og Tómasar V. Albertssonar, f. 22. janúar 1960, eru Val- gerður Fríða, f. 2. maí 2002 og Sveinbjörn Snorri, f. 25. sept- ember 2004. Hörður stundaði nám við versl- unarskóla á Englandi, og starfaði hjá Áfeng- is- og tóbaksverslun ríkisins í nær áratug, síðan hjá Reiknistofnun Háskólans í nær tvo áratugi. Hann stundaði eigin versl- unarrekstur í tæpan áratug. Eftir það starfaði hann hjá VISA- Ísland. Herði verður sungin sálumessa í Dómkirkju Krists konungs í Landa- koti í dag, 12. júní og hefst hún kl. 13. Hörður faðir minn var mér mjög kær, hann átti marga vini sem reyndust honum mjög vel. Pabbi hafði lag á að koma færandi hendi til að aðstoða vini sína þegar þeir mest þurftu þess við enda áskotn- aðist honum fjöldi vina sem einnig voru til staðar þegar hann sjálfur þurfti á að halda. Ekki hafði hann alltaf af miklu að gefa en vinskapur og nærvera er oft það sem mest er þörf á og þar sparaði hann ekki. Við feðginin höfum bæði sigrast á mjög illvígum dimmum fjanda. Ennþá eru fordómar í þjóðfélaginu svo gífurlegir og læknavísindin svo skammt á veg komin við að ráða bug á þunglyndi að ég er rög við að geta þessa í minningargrein um föður minn. Dropinn holar steininn og eins er það í þessu að því fleiri sem ræða slíkt opinskátt því betur tekst okkur að vinna gegn for- dómum. Það er einmitt þegar dagarnir eru dimmastir sem við þurfum mest á vinskap að halda, marga átti pabbi að sem komu einmitt þá og réttu honum hjálparhönd eða nærveru sína til þess að komast yf- ir erfiðasta hjallann og sigrast á veikindunum. Slík vinátta er ómet- anleg, pabbi ræddi það oft við mig að hann kunni vel að meta það og var vinum sínum ævarandi þakk- látur. Það er ljóst öllum sem stóðu pabba næst að hans ævi hefði orðið önnur ef ekki hefði verið fyrir veik- indin, bæði hvað varðar menntun og atvinnu. Pabbi átti sérstaklega gott með að læra og var mjög vel að sér á mörgum sviðum, þó sér- staklega um klassíska tónlist og sögu Evrópu og eins var hann góð- ur ljósmyndari. Það er ljóst að ef hann hefði haft tök á því á sínum tíma að klára nám þá hefðu margar námsbrautir staðið honum opnar. Ekki var hans ævi þó eintóm þrautaganga, hann átti margar gleði stundir og ferðaðist mikið, bæði innanlands og utan. Báðar höfum við dæturnar gengið menntaveginn og það gladdi hann mjög. Síðustu árin var hann mjög virk- ur í bæði Oddfellowreglunni og safnaðarstarfi kaþólsku kirkjunnar. Meðal annars tók hann oft myndir af athöfnum og hátíðum kirkjunnar og sumar þeirra bárust páfanum. Pabbi var mjög stoltur af því. Það er ekki síst í þetta félagsstarf sem hann sótti styrk síðustu árin og mér þótti sérstaklega vænt um að hann var andlega hress í nokkur ár áður en hann dó. Pabbi hafði sérstaklega góða kímnigáfu og lumaði yfirleitt á góð- um brandara eða skemmtilegri sögu. Hann hafði lag á að hvetja menn til dáða og að sjá það góða í öðrum. Heiðruð sé minning Harðar. María Arinbjarnar tölvunarfræðingur. „Íslendingur – það er maður sem veit hvaða stykki í Ford passa í Moskvitsj og öfugt!“ sagði Hörður. Hann var einmitt gott dæmi um þessa gerð Íslendinga; hann vissi eitthvað um allt og lá ekki á því. Hann stjórnaði um tíma tölvu Háskóla Íslands – var „vitenska- pens fyrbøter“ eins og góðkunningi hans, Jón Thor Haraldsson, komst að orði. Haustið 1971 flutti ég inn í sama hús og Hörður ásamt konu minni austrænni. Af vörum Harðar lærði hún ósköpin öll af íslensku og hag- kvæmum fróðleik um þetta nýja, skrítna land, og Hörður naut þess af hafa næma og áhugasama áheyrn. Af þessu spannst kunningsskap- ur sem entist meðan hans naut við. Við hjón vottum fjölskyldu Harð- ar samúð vegna fráfalls hans með þakklæti fyrir þær hlýju minningar sem hann skilur eftir sig. Helgi Haraldsson. Hörður Arinbjarnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.