Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 28
28 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
2
5 3 2
8 7 3 9 4
4 5 7
8 3
4 1
1 2
3 5
6 3 9 7
7 5
5 8 2 1
4 1 8
9 7 3
2 6
1 9 6
2 1 5 9
8
1 4
5 2 7 3
8 2
9 6
5 7
1
2 4 6 8
7 2 4 6
7 1
5 3 9
4 5 8 6 7 2 3 9 1
7 9 2 1 3 5 4 6 8
1 6 3 9 4 8 7 2 5
3 2 5 7 9 6 1 8 4
8 1 9 4 5 3 2 7 6
6 4 7 2 8 1 9 5 3
2 3 6 8 1 7 5 4 9
9 7 1 5 6 4 8 3 2
5 8 4 3 2 9 6 1 7
5 1 2 6 7 3 4 8 9
4 8 3 9 5 2 7 6 1
6 9 7 8 1 4 2 3 5
9 5 6 4 3 7 1 2 8
1 3 4 2 8 6 5 9 7
7 2 8 5 9 1 3 4 6
8 6 1 3 2 5 9 7 4
3 7 9 1 4 8 6 5 2
2 4 5 7 6 9 8 1 3
7 6 4 5 3 9 8 2 1
2 8 5 6 4 1 7 3 9
1 9 3 2 8 7 4 6 5
6 1 8 3 2 5 9 7 4
5 3 9 7 6 4 2 1 8
4 7 2 9 1 8 6 5 3
8 4 6 1 7 3 5 9 2
9 2 1 8 5 6 3 4 7
3 5 7 4 9 2 1 8 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 12. júní, 163. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Þegar Víkverji undrast ókurteisiog tillitsleysi margra Íslend-
inga verður honum oft hugsað til
ágæts vinar í Vesturheimi, sem var
kurteisin uppmáluð og tillitssamur
fram í fingurgóma.
x x x
Fyrir margt löngu var umræddurmaður í heimsókn og fór meðal
annars í vínbúðina. Fullt var út úr
dyrum og stöðugur straumur en allt-
af stóð okkar maður utan við dyrnar
og hleypti fólki fram fyrir sig. Svo
fór að starfsmaður verslunarinnar
kippti honum inn fyrir þröskuldinn
áður en hann skellti í lás með þeim
orðum að hann fengi aldrei af-
greiðslu með svona háttalagi.
Þessi saga rifjaðist upp í mat-
vöruverslun vestur á Granda á dög-
unum. Þar var maður með fulla
kerru við afgreiðslukassann og
hleypti fólki með fáar vörur fram
fyrir sig með þeim orðum að hann
væri með svo mikið og ekki stætt á
því að hann tefði aðra. Ólíkt
skemmtilegra að sjá þetta heldur en
„íslenska“ ruðninginn.
x x x
Umferðin er annað umhugsunar-efni. Hvernig stendur á því að
menn komast endalaust upp með að
drullast á vinstri akrein, til dæmis
vestan úr bæ á Hringbraut og
Miklubraut austur Vesturlandsveg-
inn, og hindra þannig eðlilega um-
ferð dag eftir dag? Er ómögulegt að
koma þessu fólki í skilning um að
geti það ekki haldið venjulegum um-
ferðarhraða eigi það að halda sig
sem lengst til hægri svo aðrir geti
ekið framúr á vinstri akrein?
Umræddur vinur í Kanada hafði
eina reglu ávallt í heiðri. Að aka ekki
á vinstri akrein nema hann ætlaði að
beygja fljótlega til vinstri. Það er
góð regla og til eftirbreytni nema á
álagstímum kvölds og morgna. Í því
sambandi leggur Víkverji til að
vinstri beygjur á gatnamótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar verði
bannaðar á álagstímum, frá klukkan
07:30 til 09:00 á morgnana og kl.
16:00 til 17:30 síðdegis.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gegnt, 8 í
vondu skapi, 9 ber birtu,
10 blása, 11 ákvæði, 13
huglausum, 15 rok, 18
svarar, 21 erfðafé, 22
verkfærið, 23 rótarleg,
24 aflóga.
Lóðrétt | 2 skammt frá,
3 röð af lögum, 4 hyggst,
5 flatfótur, 6 ofsareiðar,
7 nöf, 12 meis, 14 rán-
fugl, 15 pest, 16 skjall,
17 orma, 18 hetjudáð, 19
sátan, 20 jaðar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bjarg, 4 fákæn, 7 lokka, 8 líkur, 9 sæl, 11 siða,
13 vani, 14 leiti, 15 fínt, 17 tekt, 20 aga, 22 rófur, 23 lítil,
24 afræð, 25 aflar.
Lóðrétt: 1 bælis, 2 aukið, 3 glas, 4 fell, 5 kikna, 6 narri,
10 æfing, 12 alt, 13 vit, 15 firma, 16 næfur, 18 eitil, 19
telur, 20 arið, 21 alda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 Rf6 2. Rc3 d5 3. e5 Re4 4. Rce2 f6
5. d3 Rg5 6. Rf4 e6 7. Rf3 Rf7 8. exf6
gxf6 9. d4 c6 10. Bd3 Bd6 11. Rh5 Ra6
12. O-O Rb4 13. He1 Rxd3 14. Dxd3
Kf8 15. Bf4 Bxf4 16. Rxf4 Dd6 17. De3
Ke7 18. c4 dxc4 19. Had1 Kf8 20. Rd2
b5 21. Re4 De7 22. Rc5 e5 23. d5 cxd5
24. Rxd5 Dd6 25. Re4 Dc6 26. Da3+
Kg7 27. Rexf6 Bf5 28. Rh5+ Kh6
Staðan kom upp á 8. asíska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Su-
bic í Filippseyjum. Kínverski skák-
maðurinn Yangyi Yu (2.433) hafði
hvítt gegn gamla brýninu og heima-
manninum Eugenio Torre (2.561). 29.
Re7! De6 30. Rf4! Df6 31. Rfd5 Dg5
32. h4! og svartur gafst upp enda
mannstap óumflýjanlegt. Yu þessi er
15 ára titillaus skákmaður sem náði
stórmeistaraáfanga á mótinu og lenti í
þriðja sæti.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Öflug átta.
Norður
♠ÁK
♥642
♦KG86
♣8754
Vestur Austur
♠DG1098 ♠7632
♥KG1075 ♥93
♦4 ♦32
♣103 ♣DG962
Suður
♠54
♥ÁD8
♦ÁD10975
♣ÁK
Suður spilar 6♦.
Vestur hefur sýnt hálitina með því
að segja 2♦ ofan í eðlilega opnun suð-
urs á 1♦ og af því mótast áætlun sagn-
hafa. Útspilið er ♠D.
Eftir upphreinsun á hliðarlitunum er
hin augljósa áætlun sú að spila hjarta
úr borði og láta áttuna duga ef austur
fylgir með smáspili. En austur er eng-
inn græningi og mun hoppa upp með
millispil ef hann getur. Áttan er ekki
alveg nógu öflug. Eða hvað?
Sagnhafi ætti að setja stefnuna á
fjögurra spila endastöðu þar sem hann
á ♠Á í borði og þrjá hjartahunda, en
einn spaða og ♥ÁD8 heima. Vestur
verður að vera á þremur hjörtum og
einum spaða, en hvaða hjörtum á vest-
ur að halda eftir? Ef hann reynir að af-
blokkera með því að henda tíu eða
gosa, vex áttan að virðingu og þá dugir
austri ekki að fara upp með níuna.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Óhófleg ástundum félagslífs að
undanförnu hefur tekið sinn toll hjá þér.
Leyfðu þér að njóta þess en gættu þess þó
að ganga ekki of nærri þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Notaðu daginn til þess að gera áætl-
anir svo lítið beri á. Með því að sýna þínar
bestu hliðar færðu góðan vin til að deila
með þér ánægjustundunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér hættir til þess að færast of
mikið í fang, en nú er rétti tíminn til þess
að beita hæfileikum þínum fyrir gott mál-
efni. Gerðu samt ekkert, nema athuga
málavexti fyrst.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gættu að því hvað þú segir. Að
eyða minna en maður aflar er einfaldasta
leiðin til þess að draga úr streitu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Tímabundið peningaleysi gæti verið
það besta sem gerst hefur í fjármálum
þínum í langan tíma. Of mikil pressa get-
ur sett allt á annan endann.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er allt í sómanum hjá þér um
þessar mundir í vinnunni svo þú getur
leyft þér að slaka svolítið á. Flas er ekki
til fagnaðar og þér liggur ekki á.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert að velta fyrir þér leynd-
ardómum lífs og dauða. Lífið skánar til
muna þegar þú þekkir og virðir eigin tak-
mörk.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhver misskilningur gæti
komið upp milli ástvina sem þarf að leið-
rétta. Allir gera mistök og þau sem þú
gerir verða til vegna gæsku þíns saklausa
hjarta.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Farðu á kaffihús, kayptu þér
bók eða tímarit eða jafnvel tónlist sem er
frábrugðin því sem þú ert vön/vanur að
hlusta á.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Flest virðist ganga þér í haginn
og haldir þú vöku þinni ætti ekki að verða
breyting þar á. Reyndar muntu eyða
meiru í fallega muni og gjafir handa ást-
vinum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hvað gengur og hvað gengur
ekki er álitamál. Fáðu aðstoð, ef það er
það sem þarf til þess að þú getir staðið við
þitt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert listfengur þessa dagana og
nýtur þess að lesa ljóð og hlusta á góða
tónlist. Sjáðu til þess að svo geti orðið.
Myndirðu vilja eiga sjálfan þig að vini?
Stjörnuspá
12. júní 1838
Miklir jarðskjálftar urðu á
Norðurlandi. Þeir voru einna
harðastir á Siglufirði. Bæir
skemmdust og grjót hrundi
úr fjöllum og björgum í
Eyjafirði og Skagafirði.
Maður beið bana. Kirkjan á
Hólum í Hjaltadal „skaðaðist
nokkuð“, sagði í ritinu Land-
skjálftar á Íslandi. Skjálftar
fundust allt sumarið, oft
margir á dag. Sá stærsti er
talinn hafa verið 7 stig.
12. júní 1913
Fánatakan. Skipherra á
dönsku varðskipi lét taka
bláhvítan fána af báti á
Reykjavíkurhöfn. Þetta ýtti
undir kröfu um íslenskan
fána. Báturinn var gefinn
Þjóðminjasafninu árið 1983
en fáninn hafði áður verið
afhentur safninu.
12. júní 1976
Benny Goodman klarinettu-
leikari, konungur sveifl-
unnar, hélt tónleika í Laug-
ardalshöll. Morgunblaðið
sagði að hann hefði unnið
hug og hjörtu áheyrenda.
„Þvílíkir tónar“, sagði í Al-
þýðublaðinu.
12. júní 1986
Hljómsveitin The Shadows
hélt tónleika á Broadway á
vegum Listahátíðar. Morg-
unblaðið sagði stemninguna
hafa verið ólýsanlega og DV
að þetta hefði verið ógleym-
anlegur atburður.
12. júní 1999
Sigur Rós efndi til tónleika í
tilefni af útgáfu geisla-
disksins Ágætis byrjun.
Rúmu ári síðar var disk-
urinn valinn „plata ald-
arinnar“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist ...
Jóhann Lárus Jónasson læknir fagnar 75 ára af-
mæli sínu í dag ásamt nánustu ættingjum í sum-
arbústað við Hafravatn. „Það verður ekki mikið til-
stand. Við ætlum að borða saman og ætli það verði
ekki blessaða, litla, íslenska lambið sem verður sett
á grillið,“ segir Jónas.
Hann kveðst aðeins einu sinni hafa verið með
mikið tilstand, eins og hann orðar það, í tilefni af-
mælis. „Það var þegar ég varð sextugur. Það er
ágætt að gera það einu sinni á ævinni og mér fannst
ekki ástæða til að draga það lengur. Þá bauð ég
stórum hópi af ættingjum og samstarfsmönnum.“
Jóhann starfaði sem rannsóknarlæknir á Landakoti en þar hóf hann
störf um leið og hann kom heim 1968 úr framhaldsnámi í London. Jó-
hann stundaði blóðrannsóknir og var einnig með rannsóknarstofu í
læknastöðinni í Glæsibæ.
Þar sem stutt er í sumarbústaðinn gerir Jóhann ráð fyrir að dvelja
þar oft í sumar. „Það er þægilegt að sigla eftir veðrinu. Það er svo fljót-
legt að skjótast í bústaðinn.“ Sumarið er hann svo vanur að lengja með
nokkurra vikna dvöl á Spáni, bæði á vorin og á haustin. „Ég er búinn að
gera það í mörg ár,“ segir Jóhann. ingibjorg@mbl.is
Jóhann Lárus Jónasson læknir 75 ára
Lítil veisla í bústaðnum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is