Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 30
30 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
NÚ stendur yfir í
Listasafni Árnes-
inga sýningin
Leiftur á stund
hættunnar. Á
sýningunni eru
verk eftir átta ís-
lenska myndlist-
armenn sem allir
vinna með ljós-
myndina í list
sinni og hafa á
undanförnum árum hlotið mikla at-
hygli bæði hér heima og erlendis
fyrir verk sín.
„Það sem mér finnst einkenna
hópinn er að þau eru mjög persónu-
leg í verkum sínum en um leið er
sterk áhersla hjá þeim að segja eitt-
hvað um samfélagið um leið,“ segir
sýningarstjórinn Sigrún Sigurð-
ardóttir menningarfræðingur.
Listamennirnir átta eru: Pétur
Thomsen, Kristleifur Björnsson,
Katrín Elvarsdóttir, Ingvar Högni
Ragnarsson, Haraldur Jónsson,
Einar Falur Ingólfsson, Gréta S.
Guðjónsson og Charlotta Hauks-
dóttir.
„Í sýningunni vann ég út frá því
hvernig íslenskir samtímaljósmynd-
arar vinna með minningar í list sinni
og svo tengi ég líka verk þeirra við
hugmyndina um einsögu,“ segir Sig-
rún.
Tilfinning fyrir liðinni tíð
Sýningunni er skipt í tvo sali í
Listasafni Árnesinga.
„Í öðrum salnum eru fyrst og
fremst myndir sem tengjast minn-
ingum og þar er svolítið áberandi að
flestir eru að vinna með ómeðvitaðar
minningar. Upplifanir sem hafa haft
áhrif á þá en erfitt eða ómögulegt er
að lýsa með orðum. Þær myndir
vekja upp einstakt brot úr veru-
leikanum sem vekur upp tilfinningu
fyrir liðinni tíð hjá áhorfandanum.
Í hinum salnum eru verk sem
tengjast einsöguhugmyndinni. Þau
endurspegla þá hugsun að í einu ein-
stöku augnabliki kristallist ákveðinn
sannleikur um samfélagið í stærra
samhengi. Þau verk eru öll unnin í
ólíkum Evrópulöndum.“
Sigrún valdi sjálf listamennina og
verkin á sýninguna og segist hafa
lagt ríka áherslu á að skipta þeim
ekki upp eftir menntun. „Annars
vegar eru listamenn með háskóla-
próf í ljósmyndun og hins vegar með
próf í myndlist en hafa unnið með
ljósmyndun í list sinni.“
Sýningin stendur til 28. júní.
Listasafn Árnesinga er að Aust-
urmörk 21 í Hveragerði.
Leiftur á stund hættunnar
Átta myndlistarmenn sýna ljós-
myndir í Listasafni Árnesinga í júní
Minning Mynd eftir Pétur Thomsen sem var tekin í Rússlandi 2005.
Sigrún
Sigurðardóttir
DANIR minnast nú sinnar ástsælu
leikkonu, Helle Virkner, sem lést í
fyrradag, 83 ára að aldri.
Það er ekki ofsögum sagt að fer-
ill Helle Virkner hafi verið stór-
brotinn. Hún kom fyrst fram í kvik-
mynd aðeins sextán ára, og kom
síðast fram í myndinni Se dagens
lys, sem gerð var árið 2003. Á
starfsferli sem spannaði á sjöunda
tug ára lék hún í á sjöunda tug
kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða,
auk þess að leika á sviði.
Danir minnast hennar sem hæfi-
leikaríkrar leikkonu og einstaks
ljúflings.
Það olli talsverðu fjaðrafoki þeg-
ar Helle Virkner, þá tvífráskilin,
hóf samband með þáverandi for-
sætisráðherra Dana, Jens Otto
Kragh. Sjálf hélt hún sínu striki og
lét hjónabandið ekki trufla leikfer-
ilinn. Á meðan voru „dönsku blöð-
in“ full af sögum og sögusögnum af
forsætisráðherrafrúnni.
Hér á landi er hún þekkt úr fjöl-
mörgum dönskum myndum og
sjónvarpsþáttum, allt frá gam-
anmyndunum um Ólsengengið, til
sjónvarpsþáttanna Húsið, Matador
og Ríkið, sem Lars von Trier gerði.
Í Matadorþáttunum sem nutu
gríðarlegra vinsælda, lék hún El-
isabeth Friis, systur Maude sem
giftist hinum sterkefnaða Hans
Christian Varnæs, en svo vildi til að
Elisabeth Friis var ástfangin af
Kristen Skjern, bróður erkióvinar
mágs hennar, Mads Skjern.
begga@mbl.is
Helle Virkn-
er látin 83
ára að aldri
Lék í fleiri en 60
myndum og þáttum
Ástsæl Helle Virkner lék í 60 ár.
SKÓFÍLAR snúa aftur á tón-
leikum í Jazzkjallaranum á
Cafe Cultura á Hverfisgötu í
kvöld kl. 22. Hljómsveitin Skó-
fílar var stofnuð í upphafi árs
2003 og hefur sérhæft sig í leik
á lögum gítarleikarans John
Scofield. Hún snýr nú aftur eft-
ir nokkurt hlé og lofar frábærri
skemmtun á skemmtilegum
lögum. Í sveitinni eru Ásgeir J.
Ásgeirsson gítarleikari, Ólafur
Jónsson saxófónleikari, Þorgrímur Jónsson
bassaleikari og Erik Qvick sem leikur á trommur.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er 1000 kr. að-
gangseyrir og 500 kr. fyrir námsmenn.
Tónlist
Skófílar snúa aftur
til byggða í kvöld
Ólafur Jónsson
saxófónleikari.
VERKSMIÐJAN á
Hjalteyri kynnir sýn-
ingarhópinn Shoe-
boxtour sem saman-
stendur af heims-
þekktum sirkus-
listamönnum, þau
eru á ferð um landið
og sýna ljóðrænan spennandi sirkus. Leikið er
undir af raftækjum, unnið með form og ætla þau
að spinna af fingrum fram á Hjalteyri. Með þeim í
för eru sirkuslistamenn frá Finnlandi sem taka
þátt í spunanum og töframenn koma frá Reykja-
vík. Sýningin verður annað kvöld og hefst kl. 21.
Aðgangur er ókeypis. Í Verksmiðjunni stendur nú
yfir sýningin „Hertar sultarólar“.
Sirkus
Sirkus Shoeboxtour
í Verksmiðjunni
Sirkus Shoeboxtour.
SIGRÍÐUR Ása Júlíus-
dóttir opnar í dag sýningu
á málverkum sínum á
Mokka, Skólavörðustíg 3a.
Síðustu þrjú ár hefur Sig-
ríður Ása lagt stund á
hönnunarnám við Dan-
marks Designskole. Í
haust heldur hún til
Amsterdam, til náms í
grafískri hönnun við Gerrit Rietveld Akademíuna.
Viðfangsefni mynda hennar er fólk, sem hún á
vissan hátt sviptir samhengi sínu og umhverfi.
Myndirnar á sýningunni eru akrýl og lakk á
striga, málaðar á vordögum 2009. Þetta er hennar
fjórða einkasýning, og stendur til 9. júlí
Myndlist
Sviptir fólkið
samhengi sínu
Eitt verka Sigríðar.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„HÚFUR hafa fylgt okkur alla tíð, og ef við
skoðum gömlu íslensku húfurnar, þá leyfði fólk
sér að skreyta þær eftir efnum og geðþótta. Þeg-
ar Sigurður Guðmundsson málari teiknaði ís-
lenska búninginn, var húfan orðin að lítilli dúllu
ofaná höfðinu með löngu skotti, og sú húfa varð
tískuvara,“ segir Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
búningahönnuður, en hún er hönnuður sýning-
arinnar Ást á arfleifðinni sem nú stendur í Þjóð-
minjasafninu. Þar má sjá eldri skotthúfur úr eigu
safnsins ásamt ýmsum safngripum, en einnig
nýjar skotthúfur hannaðar af Þórunni og Ingi-
björgu Guðjónsdóttur. Skotthúfur þeirra byggj-
ast á gamalli hefð en eru nútímalegar.
„Langa skottið var fallegt með síðu kven-
mannshári, en það var líka stöðutákn, því silki-
garn í skottið var dýrt. Þetta er eins og hjá Loð-
vík fjórtánda, þegar skór fóru að verða tískuvara;
þá lengdist táin á skóm þeirra efnuðu, og sagan
segir að Loðvík hafi þess vegna þurft að ganga
afturábak upp stiga.“
Sjálfstæðisyfirlýsing í húfu
Þórunn segir að ef til vill hafi það verið eins
konar sjálfstæðisyfirlýsing hjá stelpum að stela
húfum af strákum og byrja að ganga með þær,
rétt eins og það var hjá ástkonu Chopin, sem
gekk í jakkafötum og Marlene Dietrich sem gekk
stundum með bindi. „Stelpunum hefur ekkert
veitt af því að vera með húfur í útiverkunum.“
Sennilega kemur skotthúfa Sigurðar málara
upp í huga flestra þegar talað er um slík höf-
uðföt, en Þórunn segir að húfurnar hafi alla tíð
verið margvíslegar. „Skotthúfan hefur tekið á sig
ýmsar myndir, og þær voru oft rosalega fallega
prjónaðar. Barnahúfurnar voru dýpri. Hólkurinn
var heldur ekki alltaf hólkur. Það var hægt að
kaupa band með málmi í, og stundum var kniplað
eða ofið og samskeyti skottsins og húfunnar vafin
á ýmsan hátt. Enn og aftur byggðist þetta á hug-
myndaflugi kvennanna og löngun til að fegra og
skreyta.“
Ekki bannað að fikta
Þórunn segir það hafa tekið sig fimmtán ár að
fullhanna skotthúfuna sína, og hún er auðvitað
byggð á hefðinni. „En sagan segir að það megi
fikta. Íslenski búningurinn er ekki heilagur, pils-
in voru misvíð eftir tísku og og stærðin á sjöl-
unum sömuleiðis – stundum voru þau hyrna; og
stundum voru engar svuntur notaðar. Skotthúfan
er heldur ekki heilög. Ég hef til dæmis verið að
vinna með fólki að því að búa til hólka úr lambs-
leggjum og það gengur vel. Allt hlýðir þetta kalli
fólks um það hvað þykir fallegt á hverjum tíma
fyrir sig.“ Sýningin er opin frá kl. 10–17 alla daga
í sumar.
Skotthúfur í öndvegi á sýningunni Ást á arfleifðinni í Þjóðminjasafninu
Ingibjörg Guðjónsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýna nýjar skotthúfur
Langa skottið var stöðutákn
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Skotthúfurnar Nýju húfurnar, eftir þær Ingibjörgu og Þórunni Elísabetu sverja sig í ætt við þá gömlu, þótt nýmóðins séu.
Ég á fullt í fangi
með að halda þeim
upp að hljóðnemanum og
passa að setningarnar
þeirra fari ekki út og suður
inn á hljóðrásina. 32
»