Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 32
32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009  Eilífðartöffarinn Helgi Björns og kátir kappar hans í SSSól hafa nú hertekið Stúdíó Sýrland og vinna hörðum höndum að nýju efni. Ráð- gert er að klára tvo nýja ópusa fyrsta kastið en breiðskífa ku einn- ig vera á teikniborðinu. Í viðtali við blað þetta í apríl 2007 minntust liðs- menn á að plata væri í uppsiglingu og slíkt væri í raun forsenda fyrir aukinni spilamennsku. Í ljósi tón- leika sveitarinnar í Officeraklúbbn- um á morgun má ætla að sú plata sé loks að fæðast. Fimmtán áru liðin frá því að stór plata með SSSól kom út síðast, en hún nefnist Blóð. SSSól vinnur að nýju efni í Sýrlandi Fólk DANSK-íslenska víkingasveitin Krauka er kom- in til landsins og mun leika á Víkingahátíð Fjörukráarinnar í Hafnarfirði um helgina. Ís- lendingurinn og söngvarinn í Krauku er Guðjón Rúdólf Guðmundsson sem flestir landsmenn þekkja sem manninn sem týndi húfunni sinni um árið („Karekarekarekar er húfan mín“). „Við verðum með lítinn konsert á tveggja tíma fresti alla dagana á Víkingahátíð í dag, morgun og sunnudaginn,“ segir Guðjón. „Þetta er í fjórða sinn sem við komum fram á Víkingahátíð. Við höfum spilað mikið á þessum hátíðum um all- an heim og Fjörukráin er kannski mekka í vík- ingaheiminum,“ segir Guðjón. Íbúar Austur- lands eiga svo von á góðu því Krauka spilar í Skaftafelli og á Geitafelli 16. og 17. júní. „Krauka er orðið tíu ára band og byggðist í byrjun mikið á því elsta sem hefur fundist frá víkingatímanum en núna erum við búnir að bæta við bassaleikara og öll lögin eru samin af okkur á nýju plötunni fyrir utan eitt sænskt þjóðlag,“ segir Guðjón en Krauka sendi nýverið frá sér plötuna Óðinn sem hefur hlotið góðar viðtökur. Árið 2003 kom frá Guðjóni sólóplatan Mini- mania sem innihélt áðurnefndan „húfu“-smell. Spurður hvort önnur sólóplata sé væntanleg jánkar Guðjón því. „Þegar ég losna við Danina úr landi ætla ég að klifra upp í rjáfur fyrir vest- an með Þorkeli Atlasyni, sem vann að Minimania með mér, og athuga hvort við getum barið eitt- hvað saman. En við erum með ein tíu til tólf lög í salttunnunni.“ ingveldur@mbl.is Með ein tíu til tólf lög í salttunnunni Krauka Guðjón er annar frá vinstri á myndinni.  Nýjasta plata Sindra Más Sigfús- sonar, Clangour, sem hann gaf út undir nafninu Sin Fang Bous var ný- lega dæmd á tónlistarvefnum Pitch- fork.com. Þar fær platan einkunnina 6,9 og er ævintýralegt yfirbragð hennar hyllt. Plötunni er líkt við verk Stuart Murdoch og Panda Bear en er einnig sögð bera allan seiðandi sjarma hljómsveitarinnar Seabear þar sem Sindri er einnig í forsprakki. Undarlegasta samlíkingin hlýtur þó að vera við hlaðinn hljóðheim Phils Spector er var nýlega dæmdur í 18 ára fangelsisvist. Clangour kom nýverið út hjá Morr Music útgáfunni. Sin Fang Bous hyllt á vef Pitchfork Hvernig hefur umhverfið áhrif á okkur? Hvernig höfum við áhrif á umhverfið? Nemendur 16-20 ára 18. júní, frá kl. 17:30 - 21:30 og 5.-21. ágúst kl. 9:00-15:00 Skráning fyrir 15.júní www.myndlistaskolinn.is Myndlistaskólinn í Reykjavík s: 551 1990 Myndlist/Arkitektúr Verð 15.000 kr Er framtíðin í höfn? Unnið að framtíðarsýn í hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík Sumarnámskeið fyrir ungt fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ hefur væntanlega farið fram hjá fáum að auglýsingaandlit Olís undanfarin misseri er hinn ástkæri söngvari Ragnar Bjarnason. Í einni útgáfu útvarpsauglýsinga fær hann barnabörnin sín til liðs við sig en þær auglýsingar hlutu góðan hljómgrunn í fyrra. Morgunblaðið sló á þráðinn til Ragnars þar sem hann var að ljúka upptökum á skammti þessa sumars sem fer í loft- ið von bráðar. Að vanda er „sögu- sviðið“ á þann veg að Ragnar er að keyra úti á landi með börnin sem eru forvitin og spurul eins og þeirra er háttur. „Strákarnir hérna í TBWA\- Reykjavík áttu hugmyndina að þessu á sínum tíma, eins og öllum þessum auglýsingum. Ég bara mæti á svæðið,“ segir Ragnar og rekur upp sinn einkennandi roknahlátur. „Þeir leggja til handrit en svo krafsa ég í þetta líka og set eitthvað af mínu efni fram.“ Yndislegt Börnin eru þau Aron Henrysson, níu ára og Aþena Eiðsdóttir, sjö ára. Aron er barnabarn Ragnars en Aþena barnabarnabarn. „Þetta er fjölskylduvænt efni og það geta margir tengt við þetta. Það er ástæðan fyrir þessum vinsældum,“ segir Ragnar. „Við reynum að hafa þetta á léttu nótunum, reynum að draga upp aðstæður sem fólk þekkir og læða inn litlum bröndurum. For- eldrar, afar og ömmur þekkja það að taka krílin með í svona bíltúra. Margar setningarnar eru þannig byggðar á raunverulegum atburðum getum við sagt!“ Ragnar segir það frábært að vinna svona með barnabörnunum, þau séu alveg yndisleg í upptökunum. „Þau standa á dýnu fyrir framan mig, svo ég hafi þau nú í höfuðhæð,“ segir Ragnar og brosir í gegnum símann, spurður um hvernig þau beri sig nú að í vinnunni. „Þau eru miklir vinir og eru auð- vitað mikið að spá og spekúlera í til- verunni, bendandi hingað og þangað og skoðandi sig um. Þannig að ég á fullt í fangi með að halda þeim upp að hljóðnemanum og passa að setn- ingarnar þeirra fari ekki út og suður inn á hljóðrásina. Þetta er eiginlega alveg eins og þegar maður er að reyna að hafa stjórn á þeim í bíltúr- unum“ (hlær). Í auglýsingabíltúr með afa  Raggi Bjarna leikur í útvarpsauglýsingum ásamt barnabörnum  Börnin tvö eru miklir vinir og afinn að vonum stoltur af meðleikurunum Morgunblaðið/Heiddi Þríeykið Raggi Bjarna segir samstarfið við barnabörnin einstaklega farsælt og þau séu með þetta í blóðinu. HLUSTENDUR FM957 eiga ef- laust eftir að sperra upp eyrun í dag þegar útvarpsstöðin fagnar því að á morgun eru liðin 20 ár frá því að henni var hleypt í loftið. Í dag mæta fyrrverandi dagskrárgerðamenn og rifja upp gamla takta þegar þættir á borð við Tveir með öllu og Ding Dong verða endurvaknir í einn dag. Fullyrða má að þáttur þeirra Jóns Axels og Gulla Helga hafi á sínum tíma verið vinsælasti útvarpsþáttur landsins. Einnig mæta Richard Scobie, Ragnar Bjarnason, Ásgeir Kolbeinsson og fleiri fyrrverandi út- varpsstjörnur í loftið og fær hvert sitt „slott“ til að fylla. Annað kvöld verður svo blásið til heljarinnar boðsveislu á Nasa sem er ein af 20 uppákomum sem haldnar verða í sumar til að fagna afmælinu. FM957 er 20 ára Morgunblaðið/Kristinn FM957 Svali við hljóðnemann. Afmælinu fagnað með gömlum dag- skrárliðum í dag Raggi segist aðspurður eiga „helling af þessu“ en barna- börnin eru tvö og barna- barnabörnin eru nú orðin fimm. Hann segir Aþenu og Aron hafa staðið sig eins og hetjur, þetta sé þeim náttúrulegt og t.a.m. hafi Aþena sungið inn á barna- plötu Hafdísar Huldar, Englar í ullarsokkum. „Ég á ábyggilega eftir að drífa þau með mér í ein- hver fleiri verkefni!“ Af niðjum er nóg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.