Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 39

Morgunblaðið - 12.06.2009, Page 39
Menning 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2009 Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–14 Notað & Nýtt Mörkinni 1 108 Reykjavík sími 517 2030 pils skór buxur náttföt peysur jakkar skyrtur 50% afsláttur L A G E R S A L A Svavar Pétur og Berglind Häsler, einna best þekkt sem meðlimir Skakkamanage, eiga hér útspil í þessa veru undir merkjum dúetts- ins Létt á bárunni. Á borðum er kreppupopp í átta lögum. Platan heitir Sexí og er með báða fætur á kafi í einkar ósexí íslensku nútíma- hallæri. Svo sem kreppulistar er von er áferðin á tónlistinni öll hin hráasta og stúdíótrix öll í lágmarki. Svavar leikur á gítar og Berglind á tromm- ur, Svavar syngur. Þá eru lögin frumsamin utan slorslagarann sí- gilda, „Stolt siglir fleyið mitt“ eftir Eftir því sem oss Íslend-ingum verður betur ljóssú grafalvarlega staðasem þjóðin á við að etja í kjölfar bankahrunsins, eykst framboðið á krepputónlist enda verður að sögn listamönnum allt að innblæstri þegar kreppir að og herða þarf sultarólina. Hjónakornin Gylfa Ægisson og er óljóst hvaða erindi það lag á hér; kannski til að minna á mik- ilvægi sjáv- arútvegsins á erfiðum tímum? Ekki gott að segja. Annars er hér sungið um þrengingar íslensks tónlist- arfólks sem lepur dauðan úr skel („á meðan Bubbi og Björgvin Hall- dórsson raka inn öllum seðlunum“), nýtt líf sem hefja skal langt upp í sveit, og atvinnuvegina sem við fór- um með í gröfina. Þá er ljóst að þau hjónin gjalda varhug við töfra- lausnum Evrópusambandsins; „eft- ir Evróputilskipunum, gaula garn- irnar í þjóðinni“ segir í laginu „Síðasti Íslendingurinn“. Líklega er erfitt að semja fágaða og fínpússaða kreppumúsík og hljóma sannfærandi um leið. Létt á bárunni mega eiga það að þau hljóma eins og leikið sé fyrir síð- asta tíkallinn, svo gróft er sándið og knöpp hljóðfæraskipan. Það er útaf fyrir sig gott og blessað, en það má samt ekki gefa of mikinn afslátt af metnaðinum. Öllum er ljóst hvers þau Svavar og Berglind eru megnug ef mið má taka af efni Skakkamanage og hér hefði hæg- lega mátt vanda sig meir. Textarnir eru margir hverjir lunknir og víða má finna beittar ádeilur, en bitið er sljóvgað með einbeittu skipbroti í öllu sem viðkemur bragfræði, rímið er hræódýrt, setningagerðin kauða- leg og sándið verður einhæft þegar á líður. Hrós fá þau fyrir lögin „Bleikan stromp“ og „Síðasti Ís- lendingurinn“ en hér hefði mátt gera talsvert betur í það heila. Kreppa er góð og gegn sem inn- blástur en nái hún til metnaðarins og úrvinnslu er illt í efni. Kreppa – hvert sem litið er Létt á bárunni – Sexíbbmnn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST KATIE Price, öðru nafni Jordan, hefði aldrei skilið við Peter Andre ef hún hefði fengið að ráða. Breska glamúrfyrirsætan neitar því að hún hafi lagt eiginmann sinn í einelti eins og hann hélt fram fyrr í vikunni. Hann sagðist vera orðinn skugginn af sjálfum sér vegna konu sinnar. „Pete var sálufélagi minn. Þetta var hans ákvörðun en ekki mín. Ég hef alltaf elskað hann og líður mjög illa yfir því að þetta hafi farið svona en ég verð að hugsa um mig og börnin mín núna,“ sagði Price. Parið skildi fyrir þremur vikum eftir rúmlega þriggja ára hjóna- band. Hjónaskilnaðurinn kom í kjölfarið á því að Andre sá myndir af konu sinni drukkinni að daðra við aðra karlmenn. Var hann líka orðinn þreyttur á ráðríki hennar. Söngvarinn flutti endanlega út í vikunni og flaug svo til Hong Kong til að kynna nýjustu plötu sína. Parið á tvö börn saman, Junior þriggja ára og Princess Tiaamii tveggja ára og fyrir átti Price Har- vey sem er nú sjö ára. Búist er við að skilnaðarbarátta þeirra hefjist fljótlega og að hún verði erfið. Bleik Katie Price, eða Jordan, er af- ar vinsæl í Bretlandi. Hefur alltaf elskað Andre SLEFIÐ hefur nú slitnað á milli Paris Hilton og Doug Reinhardt eftir sex mánaða samband. Það væri ekki ofsögum sagt að parið hefði verið áberandi í þann stutta tíma sem það var saman, en þau urðu t.d fræg fyrir kossaflens og káf á nýliðinni kvikmyndahátíð í Cannes. Fjölmiðlafulltrúi fröken Hilton staðfesti sambandsslitin við fjöl- miðla og bætti við að þau væru enn vinir og bað um að einkalífi þeirra yrði sýnd virðing. Áður fyrr Paris Hilton og Doug Reinhardt á MTV-kvikmyndaverð- laununum 31. maí síðastliðinn. Búið spil

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.