Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 40

Morgunblaðið - 12.06.2009, Side 40
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Gunnar vill víkja  Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, bauðst í gærkvöldi til að víkja sæti og greiða þannig fyrir áframhaldandi samstarfi Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks. Ekki var samstaða innan Sjálfstæð- isflokks um þessi málalok. »Forsíða Víkur ekki  Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari kveðst ekki sjá ástæðu til þess að víkja úr starfi. Hann sagði kröfur Evu Joly óljósar. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hyggst funda með Valtý og freista þess að leysa málið. »4 Atvinnuleysi minnkaði  Atvinnuleysi var í maí 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns. Í apríl var skráð atvinnuleysi 9,1% og minnkaði þannig milli mánaða í fyrsta sinn frá því í fyrrasumar. »12 SKOÐANIR» Staksteinar: Tvöfalt siðgæði Forystugrein: Mikilvægasta rannsóknin Pistill: Bítlatölvuleikur Ljósvaki: Morðtól framtíðar … UMRÆÐAN» RÚV brýtur sínar eigin reglur Áskorun til þingmanna Hvar á að draga mörkin? Kvóti ljóti Bílasala tekur kipp í Frakklandi … Reynsluakstur: Hóflegur lúxus Þjónusta við eðalbíla Góð landkynning BÍLAR »                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-./ +*.-,0 **/-.1 +2-*.+ +.-*30 */-/,3 **,-/2 *-0./, *13-42 *31-4. 5 675 **# 89: +..1 *+,-03 +**-02 **/-20 +2-*30 +.-+0+ */-30/ **,-13 *-0*./ *1,-*0 *,.-.. +0+-134, &  ;< *+,-/, +**-,4 **/-33 +2-+22 +.-+1* */-3,4 **1-0. *-0*22 *1,-3+ *,.-4. Heitast 15°C | Kaldast 5°C  Norðaustan 3-10 m/s og birtir til vest- anlands, en annars skýjað og smáskúrir. Hlýjast S- og SV-lands. »10 Fjórtán hljómsveitir stíga á svið í Álafoss- kvosinni á morgun á árlegum tónleikum í tilefni fánadagsins. »34 TÓNLIST» Tónleikar í Álafosskvos FÓLK» Ljósmyndarar ættu að vara sig á Grant. »37 FM957 á 20 ára starfsafmæli í dag og af því tilefni kíkja gamlir góðkunn- ingar stöðvarinnar í heimsókn. »32 ÚTVARP» Alltaf fjör á EffEmm FÓLK» Hvað er að frétta af Brad og Angelinu? »35 ÍSLENSKUR AÐALL» Aðalskona vikunnar vill hitta Franz Liszt. »33 Menning VEÐUR» 1. Sáu fjölskyldumyndina í auglýsingu 2. Eva Joly er dínamítkassi 3. Hverjir fylla skarð Ronaldos? 4. Neitar orðrómi um framhjáhald  Íslenska krónan styrktist um 0,06% »MEST LESIÐ Á mbl.is Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is „ÆTLI heilsan sé ekki bara góð eftir aldri. Ég elda matinn í okkur en eig- inkonan hjálpar mér stundum við að steikja kjöt og svoleiðis,“ segir Ólafur Pétursson á Giljum í Mýrdal sem fagnar 100 ára afmæli í dag. Eiginkona Ólafs, Þórunn Björns- dóttir, er 97 ára og bundin við hjóla- stól. Þau fá hjálp við þrif einu sinni í viku en að öðru leyti hugsa þau um sig sjálf þrátt fyrir sjóndepru. „Við getum ekki lesið lengur. Það þjáir mann nú heldur, en við hlustum mikið á útvarp. Ég horfi lítið á sjón- varp. Ég þarf að fara alveg að því til að sjá en horfi ef mig langar mikið til,“ segir Ólafur. Hann fæddist í Vík í Mýrdal en fór ungur í Skaftártungu og það var þar sem hann kynntist Þórunni. „Við er- um búin að vera gift í 71 ár og einum mánuði betur,“ segir hann. Þau höfðu verið par í einn vetur áður en þau gengu í hjónaband en kynnst nokkr- um árum áður. Þau eignuðust tvær dætur en önnur dó skömmu eftir fæð- ingu. Barnabörnin eru fjögur og barnabarnabörnin 12. Að Giljum fluttu þau árið 1943. „Við vorum bæði með kýr og sauðfé. Það voru skin og skúrir í búskapnum eins og gengur en maður komst vel af. Það eru um 20 ár síðan ég hætti búskap en undir lokin var ég bara með sauðfé,“ segir Ólafur sem í slát- urtíðinni starfaði í sláturhúsinu í Vík. Þar var hann deildarstjóri í mörg ár og sláturhússtjóri í sjö ár. Langlífið þakkar Ólafur góðum ís- lenskum mat en lambakjöt er oft á borðum hjá þeim hjónum. Ekki gafst mikill tími til tómstunda á búskaparárunum, að sögn Ólafs. „Við fórum þó inn á hálendið að sumri með öðru fólki, ýmist á hestum eða bíl, og höfðum gaman af.“ Ólafur og Þórunn hafa einu sinni farið í utanlandsferð. „Við fórum í bændaferð til Noregs. Það var auðvit- að ágætt en ekkert var ég nú hrifinn af því að keyra klukkutímum saman í gegnum skógartraðir.“ Afmælinu fagna Ólafur og Þórunn á Hótel Höfðabrekku þar sem þau taka á móti gestum frá klukkan 18 til 21. 100 ára og eldar ofan í sig og eiginkonuna sem er 97 Ólafur Pétursson í Mýrdal fagnar aldarafmæli í dag Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Aldrei of seint „Eiginkonan hjálpar mér stundum við að steikja kjöt og svoleiðis,“ segir Ólafur. Hann lærði að hella upp á kaffi og elda þegar eiginkona hans, Þórunn Björnsdóttir, veiktist fyrir tveimur árum. Nú hjálpast þau að. FYRIR efnahagshrunið voru langhlaup frekar ódýr íþrótt. Vafamál er að svo sé enn. Hlauparar sem hlaupa mikið þurfa að gæta þess að vera í góðum skóm. Misjafnt er hvaða gerðir af hlaupaskóm henta hlaupurum og sé röng gerð notuð getur það leitt til álagsmeiðsla. Þeim sem þetta skrifar var ráðlagt, eftir hlaupa- greiningu, að nota Gel Kayano-skóna frá Asics, eða aðra álíka gerð frá öðrum framleiðanda. Verðið á þessum útlensku skóm hefur hækkað gríðarlega, en það er afar misjafnt eftir versl- unum hversu mikið þeir kosta. Intersport á Ís- landi selur slíkt skópar á 29.990 krónur en í Úti- lífi eru skórnir 17% dýrari og kosta 34.990 krónur. Í Runners Need í London kostar parið 22.700, í Stadium í Svíþjóð kosta skórnir 28.600 en í Intersport í Danmörku er verðið jafnvel hærra en í Útilífi, og er þá mikið sagt, eða 37.400 íslenskrar krónur. runarp@mbl.is Auratal MANDHESTER United gekk í gær að risatilboði Real Madrid í hinn 24 ára gamla Portúgala, Crist- iano Ronaldo. Tilboðið hljóðaði upp á 80 milljónir punda eða sem nemur 17 milljörðum íslenskra króna og verður Ronaldo því dýrasti leikmaður heims. Brasilíumaðurinn Kaká var sá dýrasti, en Real Madrid keypti hann frá AC Milan á mánu- daginn var fyrir 56 milljónir punda, eða um 12 milljarða króna þannig að Florentino Pérez, nýr forseti Real, hefur greitt 29 milljarða króna fyrir tvo af bestu knattspyrnumönnum heims á tæpri viku. Til gamans má geta þess að kaupverðið á Ronaldo er það sama og aflaverðmæti alls upp- sjávarfisks hér á landi. | Íþróttir Ronaldo fór fyrir metfé  Real Madrid greiðir United 17 milljarða Reuters Dýrastur Cristiano Ronaldo fer frá United til Real Madrid fyrir 17 milljarða króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.