Nýtt kvennablað - 01.05.1944, Blaðsíða 12
8
NÝTT KVENNABLAÐ
a<5 vei-ða að veruleika. Island er að verða frjálsl
Iýðveldi.
Aldrei hefir konum hoðist amiað eins tæki-
færi til þess að ná fullkomnu jafnrétti við karl-
menn, að svo miklu leyti sem löggjöf geiur
skapað slikt. Nú liggur fyrir að búa til stjórnar-
slcrá íslenzka lýðveldisins, þá verða íslenzkar
konur að iaka höndum saman lil þess að krefj-
ast ])ess að sjálf stjórnarskráin tryggi þeim full-
komið jafnrétti. Til þess verða konur allra
flokka að hindast föstum samtökum.
Landsfundur kvenna i júlí i vor mun eink-
um ræða þessi aðalmál:
1. Jafnréttiskröftir kvenna og lýðræðisstjórn-
arskráin.
2. Skipulagning kvenfélaga landsins um sam-
hand um kvenréttindamál.“
„----— Við skorum á kvenfélög landsins að
gera sitl ílrasla lil þess að senda fulltrúa á
Landsfund kvenna í vor, og nota hið einsíæða
tækifæri til samvinnu, sem sjálfsagt kemur
aldrei oftar i okkar lífi. Merkari tímamót hefir
Island aldrei lifað. Látum það ekki verða sagl
um íslenzkar konur, að þær hregðist skyldu
sinni við hið unga lýðveldi. Léggjum fram okk-
ar skerf til þess að skapa lýðræði í þessu landi
með virkri þátttöku kvenna í þjóðmálum. Sam-
einum okkur um kröfuna um fullkomið jafn-
rétti karla og kvenna.
Komum sem flestar á Landsfund kvenna í
vor og hjálpum lil þess að gera hann ógleym-
anlegan.“
MAMMA.
(Jóhanna Fr. Loftsdóttir, Borg).
O, mamnia, ó, mamma, það elskaða orö
á unaðar-bernskunnar lieini,
og ungum sem gömlum þess ómur um storð
ber indælan söngvanna hreim.
Er barnshjartað viðkvæma hýsti sinn harm,
er hræðsla og kvíði það skar,
þú tókst mig í faðm, við þinn blessaða barm,
á burtu allt mótlæti var.
Ef sálarstríð baka mér samvizkan vann
og sízt vildi auðsýna grið,
ég sagði þér frá og þú sýndir mér H a n n,
sem segir: „Ég gef yður frið“.
í unaði’ og sorg varstu athvaríið mitt
og enn er það huga míns þrá,
að halla mér ástríka hjartað við þitt
og heyra það fyrir mig slá.
Þó oft værir, mamma, að efninu snauð,
það ætíð var Ijóst fyrir mér,
að sálin þín geymir þann gimsíeina-auð,
sem göfgusíu drottningu ber.
Og gnægð til að miðla frá Guði þú lilauzt —
— til góðverka lundin er fús —.
Að líkna þeim bágstöddu löngum þú kaust,
já, líka hinni’ aumustu mús.
Því kærleikans faðmur þinn umvefur allt,
sem andar og hrærist þér nær.
O, værirðu horfin, hve væri þá kalt
þeim verum, sem ertu svo kær.
í stjórn Kvenréttindafélags íslands eru eftir-
taldar konur: Laufey Valdimarsdóttir formað-
ur, Aöalhjörg Sigurðardóttir varaformaður.
Meðstjórnendur: Maria J. Knudsen, Guðrún
Stefánsdóttir og Charlotta Alhertsdóltir.
Hjálpum til að klæða
landið.
„Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa
sveitirnar fyllast, akrar hylja móa,
brauS veitir sonum móðurm Jdin frjóa,
menningin vex í lundum nýrra skóga.“
(IJ. Hafstein).
Hve særðan oft gladdi þín sól-hlýja lund,
— það sá enginn maður né veit, —
og öreigann saddi þín örláta mund.
Það Alfaðir himnanna leit.
Og þjáningasagan þín þeygi var skráð.
En þrautirnar berðu með ró,
því Frelsarinn segir: „Þér nægir mín náð“,
og náðin hans veitir þér fró.
Já, hann er í lííinu hjálp þín og skjól,
tii himinsins vegurinn beinn,
þitt eilífa lífið og sannleikans sól,
er sífellt þér ljómar, — hann einn. —
Og þegar hann kallar þig þrautunum frá,
aö þiggja sín náðarlaun dýr,
hve dásamleg verður þér dýrðarvist þá
og dagurinn bjartur og nýr!
í himninum fjársjóði finnurðu þá,
sem fátækum miðlaðir hér.
í Ijómanum kærleiks þeir lýsa þér frá,
þú Lausnsrans helgaða ker.