Nýtt kvennablað - 01.05.1944, Blaðsíða 16
12
NÝTT KVENNABLAÐ
Þeim þykir minnsta kosti gaman aS lesa ])ar skálda-
mál kvennanna. Þar er líka sumstaSar slegi'5 á fína
strengi, ekki síöur en hjá skáldum karlkynsins.
Einu sinni geröi hagyrðingur i sveitinni minni
eftirfarandi vísu til stúlku, sem einnig var hagorö :
Þráfalt prísar þjóöin fín
þær, sem vísur mála.
Gáfum lýsa ljóöin ]>ín
lágar dísin bála.
Honum þótti vænt um hagoröu stúlkurnar þessum.
Og þeim þykir þaö líklega fleirum. Ljóö kvenn-
anna eru líka oft svo rik af næmum tilfinningum.
Fallegt þótti mér jólaæfintýriö i desemberblaöinu,
og væri gaman aö heyra fleira frá þeirri konu. —
Frú Guðbjörg á Broddanesi er nú aö veröa þjóð-
fræg kona fyrir sínar „Gömlu glæöur“. Þaö er ekki
aö íurða þó aö mér hafi þótt góð sagan hennar úni
hana Hcrborgu á Heiði.“
Úr öðru bréfi:
,,Þaö verður nú víst komandi til Reykjavíkur eða
öllu heldur verandi þar til heimilis ]>egar hitaveitan
er komin; mér finnst þetta bara eins og í æfintýr-
um, livað allt er að veröa fullkomiö hér á jörðu —
út á við — aö mirmsta kosti. — Vatniö streymir inn
i húsin, hreint og tært, og allt það óhreina burt.
Hitinn streymir inn í ýmsum myndum; auðvitað
hverfur þá kuldinn að sama skapi; og allur óhroði
sem okkar gömlu upphitun fylgir — enginn til
lengur. — Ætli við hljótum ekki aö veröa betri
menn líka?“
(Það verður aldrei ofmælt livaö hitaveitan er
góö. Nú ætti bréfritarinn að koma „sviptúr" til
Reykjavíkur og vita hvaö honum þætti um gæði
mannanna).
*
Frá kvenfélögum í Danmörku.
Síðan striðiö hófst, berast fáar fréttir frá hinni
hernumdu dönsku þjóð, um dagiegt líf hennar og
viðhorf í félagsmálum innanlands. Hitt vitum viö,
að hún er hart leikin af erlendri kúgun, og aö of-
sóknir og ofbeldi eru þar nú tíðir viðburðir, en að
viðnám hennar eykst eftir þvi sem kostir hennar
þrengjast.
Á þessum erfiðu árum hafa kvenfélög og kvenna-
samtök landsins leyst af höndum geysimikið verk.
Þau hafa lyft merkinu hátt og haldið ótrauð áfram
starfi. Jafnframt hafa þau snúið sér að nýjum
verkefnum, til að bæta úr þeirri þörf, sem breytt-
ir tímar skapa.
Meðal annars hafa þau komið á fót hjálpar-
stúlkustöðvum víðsvegar um landið. Þangað geta
heimili snúið sér, þegar veikindi ber að höndum
eða húsmóðirin verður að taka sér hvíld heilsu
sinnar vegna. Stöðin sendir þá hjálparstúlku heim
á heimilið og húsmóðirin getur verið róleg. Þá
hafa verið settar á slofn vinnustofur, sem taka að
sér allskonar viðgerðir á fatnaði gegn ótrúlega
lágu gjaldi. Má geta nærri hve ómetanlegt hagræði
slíkt er einyrkja húsmæðrum bæði í sveitum og
borgum. Vinnustofur þessar gera auk ]>ess tvö-
fallt gagn — þær veita mörgum konum og stúlk-
um atvinnu, sem ekki hafa tök á að vinna fullan
vinnudag utan heimilis sins, en hafa þó tíma og
vilja. eða þörf fyrir að vinna sér eitthvað inn, og
hæta þannig hag sinn.
Hvorutveggja þessi starfsemi er borin uppi fjár-
hagslega af hinu opinhera.
*
Mjög íallegur kjóll, sem er nothæfur við flest
tækifæri: Fyrirmyndin er hlár með bronz'elituðum
stjörnum.
Smásteik.
Höggvið kjötið smátt. Þerrið þaö, ef með þarf,
með klút, undnum úr heitu vatni. Sjóðhitið pönnuna.
Ketið steikt í J4 matsk. af smjörl. eða tólg, með ör-
litlu salti, pipar og lárberjalaufi. Hell sjóðandi vami
á og það soðið í —i klukkustund. Ketið þá fært
upp úr. Sósa löguð með hveitijafningi og henni
helt yfir. Borðað með kartöflum.
NÝTT KVENNABLAÐ
Kemur út iiiánaðarlega frá október—mai, -—
Gjalddagi í júni ár hvert. Verð árg. kr. 8.50.
8 sinnum á ári, — fellur niður sumarmánuðina.
Afgreiðsla:
Fyrir Reykjavík: Framnesveg 38.
Fyrir sveitirnar: Fjölnisveg 7.
Utanáskrift: Nýtt kvennablað.
Pósthólf 613, Reykjavík.
Ritstjórar
og
útgefendur
Guðrún Stefánsdóttir,
Fjölnisveg 7. Sími 2740.
María J. Knudsen,
Framnesveg 38. Sími 5516.
Prentað í Félagsprentpsmiðjunni li.f.