Nýtt kvennablað - 01.02.1953, Síða 3

Nýtt kvennablað - 01.02.1953, Síða 3
NÝTT KVENNABLAD 14. árgangur. 2. tbl. febráar 1953. Hugleiðingar um unpeldismál Sú öld bættra, — og framar öllu öðru — breyttra Hfskjara, sem við lifum á, hefur fært íslenzkum for- eldrum margvíslega aðstoð við uppeldi og menntun barna sinna. Skólar og sérfróðir vísindamenn vinna nú geysimikið starf í þágu þjóðaruppeldisins og íslenzk- ar mæður hafa yfirleitt tekið allri starfsemi á því sviði með opnum huga og mikilli námfýsi. Margur Vandinn og áhyggjuefnið er þó samfara þessum hreytingum og skyldi þá varast öfgarnar en því bet- ur gœtt hinnar heilbrigð’u umhyggju. Þess verður stundum vart, að litið er á hina lög- bundnu uppeldisaðstoð skólanna sem algilda og full- uægjandi, sem komi að öllu leyti í stað þess upp- eldis, er heimilin veittu áður. Breyttir atvinnuhættir hafa að vísu breytt heimilisháttum, bæði í bæjum og sveitum, svo mjög, að mikill hluti þess andlega og verklega uppeldis barna og unglinga, sem heimilin veittu áður hefur óhjákvæmilega færst yfir á önnur svið — og einkum skólana. — Fleiri og fleiri lieim- 'lisfeður stunda nú þess háttar störf, sem gera þeim örðuga persónulega umgengni við börn sín og gildir þetta bæði um nauðsynjastörf og tómstundaiðju. 1' leiri og fleiri börn alast nú upp, án þess að finna þörf heimilis síns fyrir aðstoð þeirra smáu starffúsu handa — þarna hvílir mikill vandi á móðurinni, að tengsl barns við heimili sitt rofni þó ekki fyrr og meir en nauðsyn krefur. Ekki er við því að búast, að unnt sé á þessu sviði, að sigla fyrir öll sker eða komast hjá öllum mistök- um. — Nú er svo margt rætt og ritað um uppeldi öarna og árangur þess, og það er að vonum um svo NÝTT kvennablað Jarþrúður Einarsdóttir. viðkvæmt efni, að oft gætir meiri viðkvæmni er vera þyrfti og hollast væri. Það er gömul kenning og sí- gild, að börnum sé ekki holt að hlusta á foreldra sína deila um uppeldi þeirra. En allar umræður í útvarpi og dagblöðum má segja að fari fram í áheyrn barnanna, og skyldi því þar allt með hófi og gát. Heimili og skóli verða á marga lund að starfa hvor á sínu sviði, en svo aðeins getur skólinn leyst af hendi starf sitt í þjónustu heimilanna og báðir þessir aðilar í þjónustu þjóðfélagsins, að skilningur og sanngirni riki þar á báða bóga. Slörf flestra húsmæðra hafa færst í það horf að hún ver nú meiri tíma en áður til þvotta, ræsting- ar og breytilegrar matreið lu, en minni tíma til kyrr- látrar iðnar og iðju. Verður henni þá örðugra að fræða börnin og skemmta þeim jafnframt starfi sínu. Þá hefur og nokkuð gætt þess mikla misrkilnings, að hin almenna skólaskvlda valdi því, að börnin séu tekin af heimilunum og úr þeirra ábyrgð, ev hún hefst — við 7 ára aldur — og hljóti því uppeldið frá þeim tíma að færast að mestu leyti yfir á opinbera aðila. — Það er að vísu rétt og skylt, að foreldrar geri sér og börnunum ljóst, að fræðslulögin eru liin fyrstu borgaralegu lög, sem til þeirra taka persónu- lega, og þeim beri að sýna hlýðni og virðingu. Getur

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.