Nýtt kvennablað - 01.02.1953, Blaðsíða 10

Nýtt kvennablað - 01.02.1953, Blaðsíða 10
Heimabakstur Margir halda að það sé svo mikill vandi að búa til lagkökur að það megi aðeins heppnast faglærðum. En ef þið bara byrjið eftir uppskrift hafið þið ein- mitt sérstaklega gaman af að geta búið til terludeig, þar sem deigið má bafa í margt fleira. Deig lagað af 250 gr. smjörlíki og jafnri vigt af hveiti er ekki dýrt. En smjörlikið má ekki vera salt, sé svo verður að þvo saltið úr því í volgu vatni. Kreista með hrein- um höndum saltið út úr og svo vatnið úr því og kæla það. Þið verðið að laga tertudeig á köldum stað og vinnuborðið verður að vera hart og kalt. Verði deigið volgt verður það klesst og seigt og illa, heppnað. Prýðilegt er að laga það daginn áður en það er not- að. Má jafnvel viku áður, en þá þarf að geyma það á vel köldum stað og vefja það í smjörpappír eða mjölvað stykki. LAGKÖKUDEIG (terta). 250 gr. hveiti, 250 gr. smjörlíki, l/j dl. vatn, 1 teskeið edik eða konjak. Ósöltu smjörlíkinu skipt í 3 hluta, hveitið sigtað og 1/3 af smjörlíkinu nuddað út í. Kalda vatnið blandað edikinu sett í og þetta hnoðað saman. (Ekki of lengi, þá verður deigið seigt). Látið híða á köld- um stað 14 stundar (ekki frjósa). Þá er það flatt út í ferkantaðan hleif. Helmingurinn af smjörl., sem eftir var hnoðað með örlitlu hveiti og sett í smá kladda á hleifinn og því smurt með hníf yfir 2/3 hluta hans. Leggja svo þann 1/3 sem ekki var smurður inn á miðjuna og hinn yfir (kakan þreföld) og flelja út með hraða og geymt kl.tíma í kulda. Nú á hleif- urinn að vera stærri. Það sem eftir er af smjörl. svo unnið inn í deigið á sama hátt, og það enn sett í kulda 14 tíma. Þegar baka á deigið, hvort heldur er sama daginn eða næsta dag, er deiginu skipt, kakan á að vera ca. 1 cm. þykk. í napóleonskökur og eftirfarandi kökur má hún vera aðeins þynnri og pikka þá ögn til að forðast loftbólur. Kökurnar eru settar á hreinar, ósmurðar plötur, kældar rennandi vatn, þær svo hafðar á köldum stað áður en þær eru settar í ofninn. Þá settar í ofninn miðjan, vel heitan. Lækka má hitann, þegar kökurn- ar eru hefaðar og hafa fengið bökunarlit. Þykkar kökur, sem venjulega þurfa langan bökunartíma á að þekja með smjörpappír svo þær verði ekki of dökkar. Þessar kökur heldtir minnka um sig við bökunina. sérstaklega ef deigið er ekki nógu kalt. Hringir, liálfmánaðar og hanakambar úr þessu tertudeigi: „I allar þessar tegundir stemmir að breiða út ferkantaðan hleif ca. 32x32 cm og taka undan glasi ca. 8 cm. kökur (þvermál). Hringir, hálfmánar og hanakambar úr þessu tertu- deigi: „1 allar þessari tegundir' stemmir að breiða möndlum. 2. Hálfmánar: Láta kökurnar á vel kælda, j)lötu, láta lítið sultutau á hvprja, leggja þær saman, en ekki hafa kantana alveg jafna. Standa í kulda stundarkorn. Penslaðir yfir með eggi. 3. Hanakambar: Sullutau sett á hverja köku á vel kældri jdötu, þær lagðar tvöfaldar og köntunum þrýst vel saman og skorið í þá hér og hvar með hníf. Kælt. Penslað með eggi. Hakað í vel heittim ofni. ★ FYRR OG NÚ f. Einu sinni ung ég var. og átti margar þrár. Þœr glötuðust í gleymshu-mar, er gengu liSin ár. / skyndi dró upp skýja-fjöld, er skyggfiu á himinninn. Og fljótt kom líka frostrós köld. og fönn á gluggann minn. Nú eilíf sólin upp mér rann, allt annaö reyndist tál. Því ég hef fundiS Frelsarann og friS í minni sál. Gréta. Sú aumasta kytra, sem rúmar kærleikann innan \eggja sinna, er guða höll, en liöll án kærleika er varga bæli. Þegar guðinn Brahma hafði skapað manninn og konuna, sagði hann við sjálfan sig: „Látum þau nú fá tóm til að vera ástfangin hvort í öðru, því ég vil að ástin sé ætíð undanfari hjú:?kaparins.“ Og er næturgalarnir hófu sinn hljómfagra klið, þá hittust hinir sælu elskendur í ljósi tindrandi stjarna. Þau héldust í hendur og sátu innan um blómin upp í iðgrænni brekku. — ímyndið ykkur þessa ástafundi. Engir tilvonandi tengdaforeldrar! .... (ISunn) 8 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.