Nýtt kvennablað - 01.05.1955, Qupperneq 13

Nýtt kvennablað - 01.05.1955, Qupperneq 13
Jóna. En það er þó gott að strákurinn er farinn. Hann hefur látið svo mikið með hana Siggu, að ég hef verið hrædd um hana fyrir honum. Þú skilur, að það getur margt komið fyrir unglingana og hann verður sjálf- sagt léttur á sér, drengurinn þessi!“ „Þetta eru nú ekki annað en börn,“ sagði Signý og kafroðnaði, þegar hún heyrði Jónu rausa um það, sem henni hafði sjálfri dottið í hug, þó hún léti það aldrei heyrast, því hún var gætin kona í tali. „Það verða sum börn undarlega fljótt fullorðin, eitt af þeim er Bensi í Bakkabúð. Þess vegna skaltu hafa ráð, þó heimskur kenni og láta Siggu þína vera í hæfilegri fjarlægð frá honum. Það hafa fleiri tekið eftir því, hvað hann er kompánlegur við hana.“ „Hún er nú víst alráðin í að fara í síldina með Hall- fríði næsta sumar,“ sagði Signý og brosti að fátinu, sem kom á Jónu. „Það læturðu aldrei viðgangast.“ „Auðvitað lætur mín stelpa eins o.g allar stelpur, þykj- ast ætla í síld!“ En það verður hún Jóna mín, sem tekur bar af skarið, gæti ég hugsað mér,“ sagði Jóna hvatskeytislega. — „Ég læt það líklega afskiptalaust, það verður sjálfsagt faðir hennar, sem þar ræður mestu,“ sagði Signý. „Það er mikið þar að hafa.“ „Alltaf ert þú sama rolan! systir góð,“ sagði Jóna. Árin hafa liðið eitt af öðru. Sigga er orðin tvílug stúlka og stendur við rakstur fram á Stóru-Grundar- eng'um. Þar er hún ráðin vinnukona betta ár. Þar eru sléttar og gras^efna'- eneiar og húsbændurnir v'ðfoldn- ir. Samverkakona hennar hét Gunnvör, þrítug stúl'ka, sem búin var að vera á heimilinu lengi og nat bví saet Sisrgu frá mörgu. Si^ga sagði henni aftur á móti frá því. hvernig gekk í S'ldinni á Sirdufirði. Þar hafði hún verið þrjú sumur. Fvrsta sumarið eekk hað á.qætlega. Svo brást síldin algiörlega og álniginn dvínaði. og nú hafði henni dottið í hug að prófa, hvernig það væri að vera vinnukona í sveit. Húsbóndinn á Stóru-Grund hét Bjarni, en húsmóð- irin Friðrikka. Þau voru svo sem ekki ómerkilegar manneskiur, sagði Gunnvör. Einna leiðinle°rast fannst henni, hvað bau höfðu mikinn áhuga á hví að koma börnunum í heldri manna tölu, eins og kallað var. Þau töldu bað víst, að Guðni, sem var elztur svstkinanna, yrði eitthvert afarmenni, ef hann kæmist á búnaðar- skólann, og þangað átti hann að fara í haust. Dóttirin, Steinunn var látin vera í kaupstaðarvist. Það var svo mikið ffnna en vera heima í sveitinni .Það var fullTOtt handa vinnukindum eins og henni og hennar líkum. „Ó, það læt ég nú liggja milli hluta,“ sagði Sigga. „Það getur verið nógu slæmt að vera í eldhúsunum í sumum kaupstaðarhúsunum ög standa í stóru þvottun- Vináttu sona Gunnhildar vildi eg ekki kaupa Undan hörku Haraldar hingaS flýSu happar. Ekki friSsœlt aldarfar, óöld nærri stappar. Ekki var það heiglum hent, hingaS þeirra skipum rennt, þó aldrei Gunnhildi um er kennt svo af þyrfti aS raupa: En vináttu sona Gunnhildar vildi eg ekki kaupa. Samt viS geflið Gunnhildar gátu ekki allir búiS. Ut í líti'S íslandsfar Ólöf hefur flúiS. ÞorSi ’ún ckki á eigin grund eiga heima nokkra stund — lániS úti — lokuS sund —. langt var til aS hlaupa: En vináttu sorm Gunnhildar vildi eg ekki haupu. Grimmdar hugur Gunnhildar gat flœmt her úr landi. En œskubrekin Ólafar — á var nokkur vandi. Kvennahvggjan keppist á hvorug hina líta má. UrræSin eru orSin smá upp á fil aS hlauna: En vináttu sona Gunnhildar vildi eg ekki kaupa. Á farmannsskipi fegin kraup, og farginu af ’enni létti, viS Gunnhildi engin átti kaup — mót ó’ðr’ út faSminn rétti. Nú hennar sialdan minnast menn, þó margir flýi land sitt enn, og fólska Faralds firnist senn. Af fáu er aS raupa: En vináttu sona Gunnhildar vildi. eg ekki kaupa. G. St. um bar.“ „Hún Steinunft litla á nú lield ég ekki að vera í eldhúsi, heldur í ákaflega léttri vist, og fær tilsögn í útsaum og einhverri handavinnu þar til og með. Gott ef hún á svo ekki að fara á kvennaskóla næsta vetur.“ „Það er ágætt,“ sagði Sigga. „Það ættu allar stúlkur NfTT KVENNABLAÐ 11

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.