Nýtt kvennablað - 01.05.1955, Side 15
ATHUGASEMD Fmmh. af bls. 7.
miður. Flestar verðum við að sætta
okkur við meðalmennskuna á þessu
sviði.
Þó hagur þjóðarinnar hafi stór-
um batnað almennt, hina síðari ára-
tugi og þægindi aukizt, her það enn
við, að heimili séu stofnuð af litl-
um efnum og lítilli getu til kaupa
á öðru en því nauðsynlegasta lil
búreksturs. Er það þá hverri ungri
konu gleðiefni og hagur að eiga
fallega og vel unna muni, sem koma
strax að notum. Og eru það þá ein-
mitt munirnir, sem unnir hafa verið
í skólunum, sem hafðir eru til að
prýða hið nýstofnaða heimili og eru
oft uppistaðan í búnaði aðalstofunn-
ar. Þess vegna er það von nn'n, að
skólarnir haldi áfram að starfa á
svipaðan hátt og verið hefur að
þessu leyti.
Hitt er svo aftur annað mál, að
þeir mega ekki staðna um of í föst-
um formum, hvað snertir handa-
vinnukennsluna og á það ekki síð-
ur við um vefnað. En þar tel ég verð-
ugt verkefni fyrir hina vel menntuðu
handavinnukennara að sjá um að
útlíreiða nýjar aðferðir og fjöl-
brevtileg mynztur og umfram allt
irjnlend, ef hægt er, því það er þó
fáránlegt að sjá íslenzkar konur
sitja við að sauma myndir af dönskum herragörðum
og trjágöngum.
Eins og allir vita hefur aðsókn að húsmæðraskól-
unum mikið dvínað hin síðari ár og eru til þess marg-
ar ástæður, sem ekki verða ræddar hér. En ekki held
ég að þetta myndi lagast, væri kennslunni breytt i
’það horf, sem þær mæltu með. bó aldrei nema stúlk-
ur lærðu einhverjar fleiri aðferðir. Áhuginn hlýtur að
dofna, ef lítill árangur sést af starfi. Kostnaðurinn við
efniskaup yrði ef til vill eitthvað minni, en í unnum
munum er líka mjög mikil og skemmtileg eign.
Ég þekki unga stúlku, sem lokið hefur stúdents-
prófi og langar að halda áfram námi. Hún sér eftir
að hafa ekki verið einn vetur á húsmæðraskóla, ein-
mitt vegna hinna ágætu muna, sem frænkur hennar og
jafnöldrur koma með úr skólunum.
fíulda Jónsdóttir.
Sum SLirk] ólam
Hvíti, þóttfcllti kjóllinn lincpptur niður úr. En 4 þeim köflótta
aðeins hnapparnir, sem sjást á myndinni.
RABARBARAKAKA (handa 6).
10 grannir raharbarastilkar.
ca. 1 dl. vatn. — ca. 150 gr. sykur.
2 dl. mjólk, 2 egg, 30 gr. sykur,
(4 stöng van lle, 25 gr. maisinamél, 30 gr.
brauSmylsna, 1—2 dl. rjómi.
Rabarbarasti'karnir þvegnir, yzta himnan tekin af, skornir i
b'ta. soðnir i vatninu með sykrinum unz þeir meirna. Þetta má
hykkja með ca. 5 gr. kartöflumjöli, hrærðu út í köldu vatni.
Krem búið til úr mjólk, eggjum, sykri og maísinamjöli, van-
illust. eða dropar. Hrært saman í skál, suða látin koma upp á
mjólkimi og henni smátt og smátt hrært saman við. Suðun
svo látin koma upp aftur. Ilrært í )>ar til það er kalt.
Síðan lítið í glerskál, sitt lagið af hvoru, rabarbari og krem.
Brauðmyls-\a fvrst og seinast. Flórsykur eða sykur ofan á til
skrauts. Þeyttur rjómi borinn með.
Reynið að forðast áhyggjur út af hlufum,
sem þér getiS hvort sem er alls ekki breytl.
NÝTT KVENNABLAÐ - AfgreiSsla: Fjolnisveg 7 í Reykit vík - Sími 2740 - Ritstj. og ihm.: Gw&rún Stefánsd. - Borgarprent