Morgunblaðið - 14.07.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„TIL AÐ MYNDA í þremur tilvikum
eru til samtöl milli mín og seðlabanka-
stjóra Englands þar sem hann segir
efnislega að ef það sé svo að inni-
stæðutryggingasjóðurinn […] ráði
ekki við þetta og að menn hafi verið
að braska og reyna að fá mjög háa
vexti þó að þeir hefðu verið varaðir
við, að þá muni hann ekki gera kröfu
til þess að við borgum það,“ sagði
Davíð Oddsson, spurður í viðtalsþætt-
inum Málefninu á Skjá einum í gær-
kvöldi, um þau fyrri ummæli hans að
til væru gögn sem sýndu fram á þetta
álit Englandsbanka.
Davíð, sem segir þessi gögn til hjá
ríkinu, fór um víðan völl í viðtalinu og
lýsti m.a. þar yfir
þeirri skoðun
sinni að samn-
ingamenn Íslands
hefðu gert regin-
mistök með því að
„viðurkenna að
nauðsynjalausu
og án þess að
nokkur bær aðili
hefði um það
fjallað að við værum skuldbundin til
að greiða“ [skuldbindingar vegna Ice-
save]. Hann vísaði ríkisábyrgð á bug.
„Málið er þannig vaxið að þú getur
ekki sagt að Landsbankinn hafi verið
seldur Björgólfsfeðgum með ríkis-
ábyrgð. Menn hafa verið að tala um
að Landsbankinn hafi verið seldur
ódýrt, fyrir slikk, og hafi reyndar
margoft verið boðinn til sölu […] En
hafi hann verið seldur fyrir slikk þá
var hann ekki seldur fyrir neitt ef
honum fylgdi ríkisábyrgð.“
Átti að taka nokkra mánuði
Davíð vitnaði jafnframt til fundar
með bankastjórum Landsbankans í
febrúar, eða mars, 2008, þar sem hon-
um var tjáð að búið yrði að flytja Ice-
save inn í dótturfélag á Englandi á
fjórum til fimm mánuðum. Í júní hafi
hins vegar orðið fátt um svör.
„Þá kom þögn […] og þeir til-
kynntu okkur að það yrði ekkert í
þessu gert því að þetta væri svo erfitt
fyrir Landsbankann og svo framveg-
is. Okkur var mjög brugðið þegar við
heyrðum þetta.“
Meira: mbl.is
Engin krafa um greiðslu
Davíð Oddsson segir gögn til sem sýni að bankastjóri Englandsbanka hafi ekki
talið Íslendinga þurfa að ganga í ábyrgð vegna Icesave Vísar ríkisábyrgð á bug
Davíð Oddsson
LANDSMENN hafa að undanförnu notið ein-
stakrar veðurblíðu, sólin hefur skinið frá morgni
til miðnættis, og í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum er líf og fjör allan daginn. Þar er líka gam-
an að sigla, jafnvel þótt stýrimennirnir séu
kannski ekki alveg sammála um stefnuna.
STOLT SIGLIR FLEYIÐ MITT
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞETTA eru dýratilraunir og þær segja ekki alla söguna.
Við fylgjumst fyrst og fremst með því sem gerist í mann-
fólkinu,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um nýj-
ar rannsóknir á mörðum, öpum og músum sem benda til
þess að H1N1-veiran, sem veldur svínaflensu, ráðist á
öndunarfæri með ákveðnari hætti en venjuleg árstíða-
bundin inflúensa.
BBC greindi í gær frá rannsókninni sem gerð var við
Háskólann í Wisconsin og birt var í fræðiritinu Nature.
Niðurstöður hennar benda til þess að veiran fjölgi sér
meira og víðar um öndunarkerfið en hefðbundin flensa og
sé líklegri en ella til að valda lungnabólgu. Sömuleiðis
gæti svínaflensan hegðað sér svipað og spænska veikin
sem 1918 olli miklu manntjóni og lagðist einmitt þungt á
öndunarfæri. Rannsóknarteymið leggur þó áherslu á að í
langflestum tilfellum séu einkenni svínaflensunnar væg
og hún sé enn móttækileg fyrir lyfjum.
Haraldur tekur undir þetta. „Enn lítum við á þetta sem
frekar væga pest, en það má ekki gleyma því að þær geta
líka verið skæðar og valdið mannslátum. En við fylgj-
umst vel með því hvort hún taki einhverjum þeim breyt-
ingum sem þarna er lýst.“ Hann segir aðspurður að líkt
og með spænsku veikina leggist svínaflensan frekar á
yngra fólk en hið eldra, þótt ýmsar ástæður geti verið
fyrir því. | 7
Ýmsar hliðstæður við
spænsku veikina 1918
Reuters
Svínaflensan Von er á bóluefni til landsins í haust.
Svínaflensan enn væg í fólki
og móttækileg fyrir lyfjum
FYRRVERANDI
starfsmenn
SPRON sem ekki
fengu greidd laun
í uppsagnarfresti
um síðustu mán-
aðamót fengu
laun sín greidd í
gær, eftir að Al-
þingi lögfesti í
gær frumvarp
sem tekur af öll tvímæli um að
slitastjórn sé heimilt að greiða
launin úr þrotabúi SPRON.
Að sögn Hlyns Jónssonar,
skiptastjóra SPRON, fóru launin
inn á reikninga starfsmannanna
strax eftir að lögin voru sam-
þykkt, en eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær var búið að
vinna launakeyrsluna fyrirfram,
og því lítið annað eftir en að ýta á
„enter“.
Greiðslan í gær var loka- og
uppgjörsgreiðsla til stórs hluta
starfsmanna, þ.e. þeirra sem voru
með þriggja mánaða uppsagnar-
frest.
„Hins vegar var starfsaldurinn
hár hjá SPRON og margir voru
búnir að vinna þar lengi og voru
því með sex mánaða uppsagnar-
frest,“ segir Hlynur. ben@mbl.is
Fengu
útborguð
laun í gær
Hlynur Jónsson
Alþingi samþykkti lög
vegna slita SPRON
SAMNINGANEFND Alþýðu-
sambands Íslands hefur staðfest
samkomulag sem gert var við Sam-
tök atvinnulífsins undir lok júní um
framlengingu kjarasamninga og til-
kynnt SA þá niðurstöðu. Fyrir lá,
samkvæmt upplýsingum ASÍ, að
víðtæk samstaða væri um nið-
urstöðu samningsaðila og gerð
stöðugleikasáttmálans.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir mikilvæga niðurstöðu vera í
höfn. „Verkefnið var unnið í nánu
samstarfi við okkar bakland,“ segir
Gylfi. Kauptaxtar hækkuðu um
6.750 kr. eða 8.750 kr. 1. júlí sl. en
það er helmingur þess sem kveðið
var á um í fyrri samningum.
Samningar
staðfestir
fyrir alla sem
www.gottimatinn.is
fituminnstagrillsósan!
loksinsfáanlegiraftur!
góðir með grillmatnum
Tilbúnir til notkunar! Þarf í mesta lagi að setja þá í skál.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
0
9
7
Steingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra, og Árni Páll
Árnason, félagsmálaráðherra,
sögðu í þættinum EES-samn-
inginn í húfi væri ekki gengið
frá Icesave-samningnum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, vildi setjast við
samningaborðið á ný enda væri
samningsstaða Íslands sterk í
þessu máli. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, taldi dómstólaleiðina
hins vegar færa.
EES-samningur í húfi