Morgunblaðið - 14.07.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SKAGFIRÐINGAR á öllum aldri
hafa aðstöðu til tómstundastarfs í
Húsi frítímans á Sauðárkróki. Þar
geta eldri borgarar spilað á spil á
meðan prjónaklúbbur starfar, kór
æfir og unglingar eru á netinu eða
spila billjard við afa, svo dæmi af
einum raunverulegum degi sé tek-
ið.
Hús frítímans er miðstöð tóm-
stundastarfs allra íbúa sveitarfé-
lagsins, óháð aldri, og er nýjung
hér á landi. Það var opnað í mars
sl. Áður var sérstök félagsmiðstöð
fyrir grunnskólanemendur og að-
staða til tómstundastarfs eldri
borgara annars staðar, eins og víð-
ast er. Húsnæðið var illa nýtt og
ungmennahús vantaði fyrir eldri
unglingana.
„Við hugsum þetta eins og
íþróttahús þar sem dagskrá er all-
an daginn fyrir mismunandi hópa.
Við getum ráðið fólk í fullt starf
og nýtt reynslu þess og þekkingu
og jafnframt lækkað rekstrar-
kostnað,“ segir María Björk
Ingvadóttir, frístundastjóri sveit-
arfélagsins Skagafjarðar.
Fjölbreyttari starfsemi
Ivano Tasin, forstöðumaður
Húss frítímans, er ánægður með
starfsemina fyrstu fjóra mánuðina.
„Mér fannst fólk ná fljótt vel sam-
an og ekki hafa orðið neinir
árekstrar. Áhugamálin tengja fólk
saman,“ segir hann.
Auk starfsemi í þágu eldri borg-
ara, ungmenna og grunnskóla-
barna er húsið opið fyrir hvers
konar félags- og menningarstarf
íbúa héraðsins. Mikið er um að
íþróttafélög og klúbbar fundi.
Haldnir eru tónleikar, opnar kór-
æfingar, fyrirlestrar, námskeið og
leikæfingar, svo nokkur dæmi séu
nefnd. Áherslan er ekki síst á
menningu og listir. „Við trúum því
að listirnar komi okkur út úr erf-
iðleikunum,“ segir María Björk.
Ekki má gleyma því að starfs-
menn sveitarfélagsins sem vinna
með ungu fólki hafa bækistöð í
Húsi frítímans, útideildin, leiðbein-
endur og verkstjórar í vinnuskóla
og á sumarnámskeiðum sem hald-
in eru undir heitinu Sumar TÍM.
Við skipulagningu dagskrár-
innar er tekið mið af fjölskyldu-
stefnu. Þannig er að sögn Maríu
reynt að flytja starfsemina framar
á daginn. Markmiðið er að börn
yngri en ellefu áru séu ávallt búin
klukkan fimm á daginn og geti
notið samvista við foreldra sína
eftir vinnu.
Þá vekur María Björk athygli á
því að boðið sé upp á frístunda-
strætó til að auðvelda öllum Skag-
firðingum, hvar sem þeir búa í
héraðinu, að taka þátt í starfinu í
Húsi frítímans.
„Það hefur orðið mikil aukning í
öllu félagsstarfi með þessari nýju
aðstöðu enda hefur fjölbreytnin
aukist,“ segir María Björk.
Áhugamálin tengja fólk saman
Félagsstarf eldri borgara, félagsmiðstöð unglinga og ungmennahús er sameinað í Hús frítímans á
Sauðárkróki Aðstaðan opin fyrir félagsstarfsemi allra íbúa sveitarfélagsins
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hús frítímans Ivano Tasin forstöðumaður og María Björk Ingvadóttir frí-
stundastjóri stofnuðu Hús frítímans og stýra því.
IVANO Tasin er Ítali sem kom til Ís-
lands sem sjálfboðaliði á vegum
Evrópu unga fólksins. Hann ætlaði
að vinna að verkefni í Ungmenna-
húsinu á Sauðárkróki í hálft ár en
var boðið að starfa áfram á frí-
stundasviði sveitarfélagsins og er
nú búinn að dvelja hér í fimm og
hálft ár. Hann er forstöðumaður
Húss frítímans sem vakið hefur
verðskuldaða athygli.
„Mig langaði alltaf til Íslands
þegar ég var lítill. Það tengist
áhuga mínum á náttúru og um-
hverfismálum,“ segir Ivano. Hann
vann í fjármáladeild fyrirtækis á
Norður-Ítalíu og því varð mikil
breyting á starfsumhverfi hans við
búferlaflutningana.
Æskulýðs- og forvarnamálum
var lítið sinnt í heimabyggð Iv-
anos, þótt það hafi eitthvað
breyst, og hann segist hafa lært
mikið á Íslandi. Telur hann málum
vel fyrir komið hér. Sérstaka
ánægju hefur hann haft af því að
taka þátt í undirbúningi að stofn-
un Húss frítímans frá upphafi og
skipulagningu starfsins.
Ivano hefur haldið tengslum við
áætlun Evrópusambandsins sem
heitir Evrópa unga fólksins og
vinnur að ungmennaskiptum.
Starfsfólk sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar hefur fengið tækifæri til að
starfa erlendis og í haust verður
hópur erlendra ungmenna á Sauð-
árkróki að vinna að sýningu fyrir
Menningarnótt í Reykjavík.
helgi@mbl.is
Sjálfboðaliði í föstu starfi
BÓK sem ætlað
var að leiða er-
lenda ferðamenn
í allan sannleika
um Ísland og ís-
lenska þjóð hefur
verið innkölluð
vegna „tillitssemi
við tiltekna að-
ila“, að sögn höf-
undarins, Páls
Ásgeirs Ásgeirs-
sonar. Í bókinni voru upplýsingar
um heimilisföng frægs fólks og mun
það hafa verið ástæðan fyrir því að
bókin var innkölluð og breytt.
„Það var tekin sú ákvörðun af til-
litssemi við tiltekna aðila að innkalla
bókina úr verslunum og ný prentun
verður væntanlega komin í dreifingu
eftir helgina,“ segir Páll Ásgeir.
Bókin heitir The Real Iceland og
var kynnt sem skrítin og skemmti-
leg bók þar sem erlendir ferðamenn
eru leiddir í allan sannleika um Ís-
land og íslenska þjóð. Í bókinni voru
gefin upp heimilisföng frægra Ís-
lendinga, meðal annars Bjarkar
Guðmundsdóttur, og voru gerðar at-
hugasemdir við það, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Eftir
fundi lögmanna Forlagsins sem gef-
ur bókina út og Bjarkar var ákveðið
að gefa bókina út að nýju án heim-
ilisfanganna. helgi@mbl.is
Heimilis-
föngin
strikuð út
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
HORFUR eru á að verslun kunni að
dragast saman enn frekar á næst-
unni og starfsfólki muni fækka. Á
þetta einkum við um litlar verslan-
ir. Eru þetta niðurstöður könnunar
sem Rannsóknasetur verslunar-
innar gerði nýlega meðal stjórn-
enda í verslun. Töldu 62% svarenda
að sala á árstíðabundnum sumar-
vörum yrði minni nú en í fyrra og
um fjórðungur taldi að fækka þyrfti
starfsfólki.
Samdráttur í sölu á
sumarvörum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FYRIRUGAÐAR fjárfestingar og sala Reykjanesbæjar
á eignarhlutum í orku- og veitufyrirtækjum hafa jákvæð
áhrif á rekstur og efnahag bæjarins. Á árinu 2009 eru
áhrifin talin jákvæð um yfir 10 milljarða en verulega
minni eftir það. Kemur þetta fram í umsögn Guðmundar
Kjartanssonar, endurskoðanda Reykjanesbæjar, um
samningana við Geysi Green Energy sem lagðir verða
fram á fundi bæjarstjórnar í dag þegar samningarnir
verða teknir til umræðu og væntanlega einnig afgreiðslu.
Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs, sagði frá þessu
áliti á íbúafundi sem bæjarstjóri efndi til í gærkvöldi.
Guðbrandur Einarsson, oddviti minnihlutans í bæjar-
stjórn, sagði að sá flýtir sem verið hefði á málinu væri ill-
skiljanlegur og vekti tortryggni. Hann lýsti mismun í
verðmati og sagði að allt of miklu munaði til að hægt væri
að láta eins og ekkert væri. Hann sagði nauðsynlegt að
láta endurmeta verðmæti fyrirtækjanna, miðað við að-
stæður í dag og sagði síðar í framsögu sinni að gera þyrfti
sjálfstætt mat á verðmæti hvors fyrirtækis fyrir sig, það
er HS orku og HS veitum. Guðbrandur sagðist ekki geta
fullyrt nú hvort það þjónaði hagsmunum bæjarins að
gera einhverjar breytingar á eignarhaldi orkufyrirtækj-
anna en það þyrfti að gera rétt og heiðarlega.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði að við samningana
hefði verið stuðst við verðmat sem Capacent gerði fyrir
HS orku á síðasta ári, fyrir hrunið. Sagðist hann stoltur
af að geta haldið í við það mat, miðað við það sem síðan
hefði á gengið. Það væri ekki í þágu Reykjanesbæjar að
gera nýtt verðmat. „Þetta er góður samningur, fyrir þá
sem vilja eiga HS veitur,“ sagði Árni og bætti því við ekki
væri víst að allir í salnum vildu eiga það fyrirtæki.
Skilar 10 milljörðum
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
Fjölmenni Hiti var í húsinu þegar íbúar Reykjanesbæjar komu í Bíósal Duushúsa til að fræðast um forsendur samn-
inga Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy um orkufyrirtækin. Sumir komu heim úr frí til að taka þátt.
Oddviti minnihlutans í Reykjanesbæ vill gera nýtt verðmat
á orkufyrirtækjunum Bæjarstjóri segir samninginn góðan
Tilfinningar til
óskabarnsins
HEITAR tilfinningar í garð Hitaveitu
Suðurnesja komu fram í fyrirspurnum
á íbúafundinum í Reykjanesbæ um
samninga Reykjanesbæjar og Geysis
Green Energy um arftaka Hitaveit-
unnar, HS orku og HS veitur. Reykja-
nesbær er að selja hlut sinn í orkuöfl-
unarfyrirtækinu en eignast mikinn
meirihluta í orkudreifingarfyrirtækinu.
Fram kom gagnrýni á að fundur um
þetta mikilvæga mál væri boðaður
með skömmum fyrirvara og þegar
flestir væru í sumarfríi. Spurt var
hvort bæjarstjórnin hefði umboð frá
íbúunum til að selja eignir bæjarbúa.
Í fyrirspurn frá fundarmanni komu
fram áhyggjur af því að allt væri í upp-
námi milli meirihlutans og Grindvík-
inga. Ekki væri lengur samstaða um
þetta óskabarn Suðurnesjamanna. Ás-
geir Margeirsson, formaður stjórnar
HS orku, sagði að þrátt fyrir að illa
hefði gengið að fá upplýsingar frá bæj-
arstjórn Grindavíkur myndi hann halda
áfram að leita sameiginlegra lausna.
Jón Gunnarsson spurði hvort menn
teldu nægilegt að hafa veð í hlutabréf-
um fyrir greiðslum Geysis Green á
kaupverði HS orku og hvers virði þau
væru. Böðvar Jónsson, formaður bæj-
arráðs, sagði að til viðbótar veði í
hlutabréfum HS orku væri sá fyrirvari
að hægt væri að gjaldfella lánið ef fjár-
hagsleg staða fyrirtækisins færi niður
fyrir ákveðin mörk.
Spurt var um aðkomu kanadíska fyr-
irtækisins Magma Energy sem tekur
þátt í kaupunum með Geysi Green og
hvort Íslendingar tengdust því félagi á
einhvern hátt. Ásgeir Margeirsson
sagði frá Magma og stjórnanda þess.
Það væri skráð á markaði í Toronto,
hluthafar væru orðnir yfir 100 og færi
fjölgandi. Sagðist Ásgeir hafa þær
upplýsingar frá hluthafaskrá Magma
að engir Íslendingar ættu í því og að
enginn feluleikur væri með það.
helgi@mbl.is