Morgunblaðið - 14.07.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.07.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is BANKINN hefur alltaf verið eitt stórt nei. Þau eru ofsalega hugguleg, klappa mér á bakið og rétta mér tissjú þegar ég hef fellt þar tár af reiði eða angist,“ segir kona sem hef- ur ekki fengið lausn sinna skuldamála þrátt fyrir tíðar ferðir í bankann sinn í vetur. „Það er ekkert hægt. Þau eru ráðalaus. Það er alltaf talað um ein- hverjar nefndir sem eru með öll svör- in. Þaðan kemur alltaf nei og ekkert er gert á meðan.“ Konan, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði Morgunblaðinu af högum sínum. „Við erum ósköp venjulegt fólk sem var að byggja. Eigum hvorki fellihýsi, hesta né sum- arbústað. Vorum ekki á neinu fjár- festingafylliríi,“ sagði konan. Saga hennar er ábyggilega ekki einsdæmi og gefur innsýn í þá erfiðleika sem margir kljást við. Konan og maður hennar áttu fasteign í haust sem á hvíldi húsnæðislán í íslenskum krón- um frá Kaupþingi. Þau áttu aðra eign og hvíldi á henni erlent lán. Sú fast- eign seldist í september, tæpum þremur vikum fyrir bankahrunið. „Þá var okkur ráðlagt að færa er- lenda lánið yfir á húsið okkar. Sem sagt losa okkur við góða lánið sem við vorum með á 4,15% vöxtum og taka þetta yfir,“ sagði konan. Hún segir að þau hafi leitað annarra leiða því þau treystu því ekki að þetta væri ráðlegt. „Það var ekkert annað hægt. Ef við hefðum borgað upp erlenda lánið á þessum tíma hefðum við tapað fjórum milljónum á einu bretti. Það var verið að reyna að koma í veg fyrir það.“ Konan sagði að maðurinn hennar hefði verið daglegur gestur hjá úti- bússtjóranum dögum saman. Þau hefðu tekið erlenda lánið á húsið sitt samkvæmt eindreginni ráðgjöf bank- ans. Erlenda lánið hefur nú tvöfaldast að verðgildi í íslenskum krónum frá í haust og greiðslubyrðin á mánuði meira en tvöfaldast. Þungbært byggingarlán Húsbóndinn á heimilinu er húsa- smiður og byggði íbúðarhús í nýju hverfi til að selja. Húsið varð fokhelt í lok árs 2007. Það var reist fyrir bygg- ingarlán, sem í raun var yfirdráttar- lán. Húsið seldist ekki strax og hlóð lánið á sig kostnaði. Loks tókst að losna við húsið en með verulegu tapi svo ekki var hægt að borga bygging- arlánið upp. Eiginmaðurinn var tekjulaus í marga mánuði í vetur. Var fyrst svikinn um vinnulaun og síðan atvinnulaus um tíma. Konan segir að þau hjónin hafi mætt, ýmist saman eða hvort í sínu lagi, til þjónustu- stjóra og útibússtjóra einu sinni til tvisvar í viku frá því í október sl. til að ræða sín mál. „Sérstaklega höfum við rætt um þennan yfirdrátt [byggingarlánið] sem einhvern veginn vex eins og æxli. Hann bara vex og vex upp í það enda- lausa. Við höfum hvorki fundið né fengið neina lausn á því. Húsnæð- islánið fór úr frystingu 1. maí og við höfum ekki getað greitt af því síðan. Ekki átt fyrir því. Það er komið í milliinnheimtu og yfirdrátturinn líka,“ sagði konan. Henni svíður úr- ræðaleysið sem henni finnst ríkja í bankanum. Hún kennir starfsfólkinu þó ekki um. Finnst ekkert vera að gerast „Mér finnst þau öll af vilja gerð – en það gerist ekki neitt. Akkúrat ekki neitt,“ sagði konan. „Þau lögðu til að setja yfirdráttarlánið í kúlulán, óverð- tryggt lán með litlum vöxtum sem við myndum ekkert finna fyrir. Það mátti síðan ekki. Að uppástungu bankans kom sú hugmynd að afskrifa hluta af þeirri skuld þannig að við gætum ein- hvern veginn farið að borga af henni. Það var sett fyrir afskriftanefnd sem hafnaði umsókninni því það mátti ekki afskrifa neitt!“ Síðasta hugmynd bankans var að reikna út 80% af fasteignamati hússins sem veðhæfi og setja það sem út af stæði af skuld- um hjónanna í óverðtryggt lán. Það yrði fryst og geymt í tvö til þrjú ár. Þá yrði skoðað hvað ætti að gera. „Þessu fylgir sú kvöð að erlenda láninu verði breytt í íslenskar krónur á gengi dagsins í dag. Manni svelgist á við þá tilhugsun,“ sagði konan. Hún kvaðst hafa vonast eftir betri lausn. Konan spurðist fyrir um það í bank- anum hvort hægt yrði að leiðrétta lánið, ef betri lausn kæmi fram. T.d. ef ríkisstjórnin kæmi með einhverjar lausnir fyrir almenning. Hún fékk þau svör hjá stjórnanda útibúsins að það yrði hægt. „Frábært, sagði ég, vildir þú senda mér það í tölvupósti, sagði ég. Ég treysti einhvern veginn engum núna og vildi hafa þetta skriflegt. Nei, hann vildi ekki senda þetta í tölvu- pósti. Það kom ekki til greina,“ sagði konan. Á fasteign hjónanna hvílir lítið líf- eyrissjóðslán á 2. veðrétti, næst á eft- ir erlenda húsnæðisláninu. Þar fyrir aftan er tryggingarvíxill vegna bygg- ingarlánsins. Konan segir bankann setja það sem skilyrði fyrir því að skuldbreyta lánunum að lífeyrissjóðs- lánið verði fjarlægt af fasteigninni. Til að það sé hægt verður að leita til ættingja eða annarra með veðleyfi, að sögn konunnar. Konan segir lífeyr- issjóðinn skiljanlega ekki vera tilbú- inn til að fara neðar á veðbókarvott- orðinu. Hún kvaðst vera ráðþrota og hafa sótt um ráðgjöf hjá Ráðgjafarstofu heimilanna fyrir um sex vikum. Um- sóknin er enn í bunkanum. Þar er henni sagt að enn þurfi að bíða ein- hverjar vikur í viðbót eftir viðtali. „Við erum venjulegt fólk sem var að byggja“ Kona segir ráðleysið vera ríkjandi í viðskiptabanka sínum og hún hafi ekki fengið raunhæfa lausn Í HNOTSKURN »Hjón voru hvött í sept-ember til að greiða upp hagstætt húsnæðislán í krónum og setja erlent húsnæðislán á húsið sitt. »Lánið hefur tvöfaldast oggreiðslubyrðin meira en tvöfaldast í vetur. »Ítrekaðar ferðir í bankannhafa ekki skilað neinni var- anlegri lausn að mati kon- unnar. »Nýja Kaupþing skoðar leiðfyrir skuldsetta ein- staklinga. Í henni felst m.a. um- breyting erlendra lána í íslensk og niðurfelling skulda að hluta. Morgunblaðið/Ómar Skuld vegna byggingarstarfsemi húsbóndans og húsnæðislán í erlendri mynt er að sliga hjónin. Myndin tengist ekki efni greinarinnar beint. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is „HELSTA vandamálið er að útlendingarnir treysta því ekki alveg að þetta sé ókeypis og halda að þetta sé eitthvert svindl,“ segir Páll Zophanías Pálsson, sem í sumar starfar við að ferja Íslend- inga og erlenda ferðamenn um miðborgina á sér- útbúnu reiðhjóli. Verkefnið kallast Crymoguide og er skapandi sumarstarf á vegum Hins hússins, en meðan á hjólatúrnum stendur leiðsegir Páll farþegum sín- um og sýnir þeim borgina í nýju ljósi. Páll er ann- ar tveggja sem hafa þetta óvenjulega starf með höndum, en hjólin fá þau að láni frá símafyrirtæk- inu NOVA. „Þeir fá að koma sínum skilaboðum á framfæri, fólk fær ókeypis túra, ég fæ að gleðja fólk og laun frá borginni og allir eru sáttir,“ segir hann en verkefnið varir út júlí. Hann viðurkennir að í fyrstu hafi honum þótt nokkurt puð að stíga hjólið með jafn þungan farm og raun ber vitni en hægt er að hafa tvo fullorðna „í skottinu“ í einu. „Við hönnuðum hins vegar ferðina þannig að við byrjum uppi á Skólavörðu- holti og svo leyfi ég þyngdaraflinu að hjálpa mér niður eftir og í gegnum miðbæinn. Svo fer ég bara einn uppeftir aftur.“ Spurn eftir túrunum hefur verið góð segir Páll sem er nýútskrifaður úr leiðsögumannaskólanum. „Ég tala um Guðjón Samúelsson, Einar Jónsson og svo það sem fólk spyr mig út í um Ísland. Það er aðeins erfiðara ef Íslendingar eru farþegar – þeir vita meira og þá þýðir ekkert að bulla. Það er samt bara gott að þurfa að vera aðeins á tánum.“ Þýðir ekkert að bulla við Íslendingana Morgunblaðið/Jakob Fannar Leiðsegir Páll Zophanías Pálsson lætur sig lítið muna um að hjóla með tvo farþega. Páll Zophanías Pálsson ferjar mann og annan um miðborgina á reiðhjóli og segir frá landinu um leið NÝJA Kaup- þing undirbýr nú lausn fyrir skuldsetta einstaklinga og lítil og meðalstór fyr- irtæki. Hún mun væntanlega fela í sér afskrift veðskulda umfram virði fasteigna. Helgi Bragason, lánastjóri við- skiptabankasviðs Nýja Kaupþings, vonast til þess að hægt verði að kynna þessa leið innan tíðar. Helgi segir bankann ekki vera að knýja á fólk um að breyta hús- næðislánum í erlendri mynt í lán í íslenskum krónum. Vilji fólk hins vegar fara hina nýju leið með bankanum þá vilji bankinn breyta lánunum í íslenskar krónur. Hugmyndin er að skuldbreyta eldri lánum og búa til verðtryggt lán sem nái upp í 80% af markaðs- virði eignar. Það sem eftir standi af skuldum viðkomandi verði sett í óverðtryggt „biðlán“ til 2-3 ára. Það verði tryggt með þinglýstu tryggingabréfi upp í sem nemi 110% af virði eignarinnar. Biðlánið gæti þó verið hærra og því að hluta án veðs. Helgi telur að það þurfi að ganga enn lengra. „Það þarf í raun að segja við fólk: Við getum af- skrifað það sem er umfram virði eignarinnar.“ Hann segir að um- hverfið hafi ekki leyft slíkar af- skriftir hingað til. „Þessa dagana erum við að vinna í því að þessi að- ferðafræði gangi þannig upp á endanum að við náum að afskrifa allt sem stendur umfram 110% verðmætis eignar viðkomandi.“ Beðið eftir Gamla Kaupþingi Það hefur tafið að ekki hefur enn verið skilið á milli eignarhalds gömlu og nýju bankanna. Helgi segir lánasöfnin sem um ræðir vera í eigu og umsjón Gamla Kaup- þings en þau verði ekki í efnahag Nýja Kaupþings, a.m.k. ekki í byrj- un. Hann sagði málið komið svo langt að einungis sé eftir að fá samþykki Gamla Kaupþings. „Þetta er nokkurs konar flýtileið að því að fólk þurfi ekki að fara í greiðsluaðlögunina sem tekur þrjú ár. Það er of langur tími og þung leið fyrir fólk,“ sagði Helgi. Helgi sagði að allir sem þessi nýja leið hafi verið kynnt fyrir hafi verið hrifnir af henni. Í þeim hópi eru m.a. ráðherrar. Hann telur að þetta sé hin óumflýjanlega leiðrétt- ing hjá of skuldsettu fólki. „Það er ekki bönkunum í hag að sitja uppi með húsnæði í stórum stíl sem þeir hafa eignast við nauð- ungarsölu,“ sagði Helgi. gudni@m- bl.is Afskriftir skulda til skoðunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.