Morgunblaðið - 14.07.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Sá fáheyrði atburður átti sér stað áAlþingi í gær, að frumvarp við-
skiptanefndar Alþingis, sem heimilar
ótvírætt að laun til 120 fyrrverandi
starfsmanna SPRON verði greidd úr
þrotabúi út uppsagnarfrest starfs-
mannanna, var lögfest, eftir aðeins
tuttugu mínútna umræður.
47 þingmennsamþykktu
frumvarpið, sem
lagt var fram í
þinginu á laug-
ardag, en karpað
hefur verið um
málið frá því fyrir
síðustu mán-
aðamót og starfs-
fólkið verið í mik-
illi óvissu á sama tíma.
Slitastjórn SPRON tilkynnti starfs-mönnunum þann 30. júní sl. að
ekki yrðu greidd laun í uppsagn-
arfrestinum, þar sem hún taldi sig
ekki hafa lagaheimild til að borga
þau.
Eftir það lýsti Gylfi Magnússon við-skiptaráðherra því yfir að hann
teldi nefndina hafa heimild til launa-
greiðslna og í sama streng tók Álf-
heiður Ingadóttir, formaður við-
skiptanefndar. En slitastjórn sat við
sinn keip og taldi sig ekki hafa laga-
heimild.
Því er það ánægjulegt, að það skuliekki hafa tekið þingheim meira
en tuttugu mínútur að höggva á
hnútinn og aflétta réttaróvissu
starfsmannanna.
En það er vissulega hálfvandræða-legt að það skuli hafa gerst hjá
viðskiptanefnd að í tvígang skuli
hafa þurft að leiðrétta hið uppruna-
lega frumvarp.
Hlynur Jónsson, slitastjóri SPRON,benti strax í júníbyrjun á galla
upphaflega frumvarpsins. Hvers
vegna var ekki hlustað á hann þá?
Álfheiður
Ingadóttir
Batnandi mönnum er best að lifa
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 16 léttskýjað Lúxemborg 22 skýjað Algarve 28 heiðskírt
Bolungarvík 14 léttskýjað Brussel 23 skýjað Madríd 35 heiðskírt
Akureyri 10 heiðskírt Dublin 15 skýjað Barcelona 27 léttskýjað
Egilsstaðir 9 alskýjað Glasgow 16 léttskýjað Mallorca 33 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 13 skýjað London 22 heiðskírt Róm 30 heiðskírt
Nuuk 12 skýjað París 21 heiðskírt Aþena 30 léttskýjað
Þórshöfn 13 skýjað Amsterdam 22 léttskýjað Winnipeg 21 alskýjað
Ósló 17 skýjað Hamborg 23 heiðskírt Montreal 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Berlín 24 heiðskírt New York 24 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt Vín 28 léttskýjað Chicago 24 skýjað
Helsinki 17 skýjað Moskva 28 skýjað Orlando 29 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
14. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.33 0,9 10.40 3,2 16.46 1,1 22.59 3,2 3:40 23:29
ÍSAFJÖRÐUR 6.33 0,6 12.26 1,8 18.38 0,7 3:04 24:14
SIGLUFJÖRÐUR 2.45 1,2 8.52 0,3 15.19 1,1 21.08 0,5 2:45 23:59
DJÚPIVOGUR 1.34 0,6 7.39 1,9 13.53 0,7 19.54 1,8 3:00 23:07
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag og fimmtudag
Norðaustan 3-10 m/s, dálítil
rigning eða súld á N- og A-
landi, annars skýjað með köfl-
um og stöku skúrir S-lands. Hiti
7 til 17 stig, hlýjast suðvest-
antil.
Á föstudag og laugardag
Austan- og norðaustanátt, skýj-
að með köflum og stöku skúrir
sunnantil. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag
Útlit fyrir svipað veður áfram.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan 5-13 en hægari vindur á
austanverðu landinu. Dálítil
rigning eða súld en þurrt að
mestu SV-lands. Hiti 5 til 15
stig, hlýjast syðst.
„ÞAÐ er ljóst að við náum
ekki að standa undir aðhalds-
kröfum næstu ára nema að
draga mjög saman í rekstri og
stjórnunarkostnaði,“ segir
Árni Páll Árnason, félags- og
tryggingamálaráðherra, um
sameiningu Tryggingastofn-
unar (TR), Vinnumálastofnun-
ar og Vinnueftirlitsins. Hann
segir sameiningu einnig koma
til með að einfalda þá vinnu sem fari í að und-
irbúa starfsendurhæfingu fyrir öryrkja og auð-
velda þeim endurkomu á vinnumarkaðinn. Þá
verði almannatryggingakerfinu jafnframt breytt
til einföldunar. Árni Páll segist ekki vera kom-
inn með nákvæmar tölur um kostnað af samein-
ingunni en gera megi ráð fyrir nálægt 20 millj-
ónum í kostnaði. Ekki sé gert ráð fyrir
umtalsverðum árangri af hagræðingunni fyrr en
árið 2011.
Árni Páll staðfestir að sameining þýði að ein
yfirstjórn komi til með að verða yfir sameinaðri
stofnun og segir nú búið að taka fyrir fastráðn-
ingar. Stefnt sé að því að starfsemin færist und-
ir eitt þak á höfuðborgarsvæðinu og einnig þurfi
að útfæra sameiningu stofnananna sem eru
dreifðar úti á landsbyggðinni. sigrunrosa@mbl.is
Sparað í stjórnunarkostnaði
Í HNOTSKURN
»Áætluð fjárveiting til rekstrar Trygg-ingastofnunar, Vinnumálastofnunar og
Vinnueftirlitsins var samtals um 1.200
milljónir á endurskoðuðum fjárlögum 2009.
»Er gert að spara um 2% í rekstrargjöld-um út þetta ár og 10% á því næsta.
»Sameining kostar nálægt 20 milljónum,áætlað að árangur af hagræðingu fari
að skila sér árið 2011.
Árni Páll Árnason
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
1971 • 2009
ÁTTU SUMARBÚSTAÐ?
ER SJÓNVARPIÐ ÓSKÝRT?
Stafrænar sjónvarpsútsendingar eru nú komnar í gang víða
um land. Með þeim og stafrænum DVBT móttakara má ná
fulkomnum myndgæðum. Þar sem áður var snjór og truflanir í
mynd verða kristaltær myndgæði. Auk þess nást útsendingar
frá Stöð 2 og Skjá 1 víða þar sem þær gerðu illa áður.
Dantax DVBT510
• Stafrænn DVB-T MÓTTAKARI
• Fyrir UHF/Digital útsendingasvæði
• Samhæft við PAL sjónvarpstæki
• EPG dagskrávísir
• Hljóðstillingar
• 2 Scart tengi
• Sjálfvirk leit
• Textavarp
• Fjarstýring
VERÐ 12.990
FRÁBÆRT VERÐ