Morgunblaðið - 14.07.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
STANGVEIÐI
eftir Kjartan Þorbjörnsson
golli@mbl.is
TUTTUGU stiga hiti og sól hafa ekki
þótt lofa góðu þegar laxveiði er ann-
ars vegar. Enda hafa veðurskilyrði
síðustu vikna gert mörgum veiði-
manninum erfitt fyrir. Veiðimenn
sem heimsóttu Fljótaá í Fljótum
gerðu þó góðan túr í lok síðustu viku
þrátt fyrir erfið skilyrði. Áin sem er
mjög straumhörð fyrir, var óvenju
vatnsmikil og litaðist í kakólit seinni-
part dags vegna hita og bráðnunar.
Einn lax var skráður í veiðibók, en
þann tók Adrian Latimer í Bakkahyl
á fyrstu veiðidögunum.
Þeir feðgar Hörður Blöndal og
Gísli Harðarson bættu þó um betur
og lönduðu fjórum löxum til viðbótar
auk þess sem þeir og aðrir veiðimenn
hreinlega mokuðu upp vænni bleikju.
Bleikjumergðin í Fljótaá er með ólík-
indum á þessum tíma árs og eru veiði-
menn oft tvístígandi hvort þeir eigi að
leggja áherslu á laxveiði eða halda sig
við bleikjupúpurnar. Unaðslegur val-
kvíði.
Veitt og sleppt á maðk
Blaðamaður átti leið um Víðidal í
lok síðustu viku og hitti þar fyrir
veiðimennina Stefán Kristjánsson og
Stefán Sigurðsson. Þeir höfðu verið
að veiða Brúna og þó enn væri hálf-
tími eftir af vaktinni voru þeir orðnir
saddir eins og þeir orðuðu það og ætl-
uðu fyrr í mat. Blaðamaður gat þó tal-
að þá til og fékk að fylgjast með Stef-
áni Kristjánssyni vaða út í grunna
ána og renna maðkinum ofan í litla
holu neðan brúarinnar. „Þetta verður
erfitt, við erum búnir að taka marga
fiska hérna,“ sagði hann. „Svona ger-
um við þegar við viljum veiða og
sleppa í maðkveiði,“ sagði hann og
sýndi hvernig hann kom maðki fyrir
á lítilli þríkrækju sem vanalega hang-
ir aftan úr flugutúbum. „Svo bara
kippum við um leið og laxinn tekur.“
Það var greinilegt að mikið var af laxi
í pyttinum og tvisvar skellti fiskur
sér snöggt á maðkinn en náði ekki að
festa sig. Tvær mínútur í hádegismat
setti Stefán þó í grálúsugan smálax,
landaði honum og sleppti aftur.
Stefán Sigurðsson er leigutaki
Víðidalsár og hann sagði hollið hafa
náð 69 löxum á átta stangir. „Þetta er
rosalega gott holl hér. Það er að
smella sér inn hellingur af smálaxi.“
Hann sagði hollið sem á eftir þeim
kom hafa fengið yfir 30 laxa. „Það er
lax um alla á. Kominn langt upp á
heiði. Það er t.d. fullt af laxi í Girðing-
arhyl,“ sagði Stefán en sá hylur er
mjög ofarlega í Fitjá, þverá Víðidals-
ár. Stefán sagði menn ánægða með
að veðrið færi kólnandi og sólin færi í
felur. „Það er búið að vera sól og tutt-
ugu stiga hiti hér í 10 daga og vatnið
eftir því.“
Góður gangur í Blöndu
Stefán sagði mikla veiði í Blöndu.
„Það hafa verið að koma allt að 30
laxar á vakt á svæði 1. Bæði smálax
en líka mjög stórir laxar,“ sagði Stef-
án og taldi upp nokkra laxa sem hann
hafði heyrt af. „Tveir veiðimenn hafa
hringt í mig sem hafa sett í laxa á
Breiðunni og misst þá niður að
Kríueyju og af færinu. Einn var með
hendurnar skornar og brunnar eftir
átökin. Annar var eiginlega grenj-
andi þegar hann hringdi. Hann elti
laxinn alla leið niður eftir og aftur
uppeftir. Þá sleit hann á steini.“
Morgunblaðið/Golli
Víðidalsá Stefán Sigurðsson og Stefán Kristjánsson hjálpast að við að losa úr grálúsugum smálaxi sem sá síðarnefndi
setti í og landaði við brúna í Víðidalsá. Þeir sögðu lax um alla á, langt upp á heiði. Hollið tók 69 laxa á átta stangir.
„Rosalega gott holl hér“
Páll Magnússon náði lúsugum 17
punda hæng í Strengjunum í
Langá á gárutúpu. Er það annar
stórlaxinn á stuttum tíma sem
kemur úr þessari annars hreinu
smálaxaá. Sá fyrri var 94 cm flykki
sem tók á sama stað í júní.
Stórlaxarnir veiðast enn í Laxá í
Aðaldal. Á vefnum svfr.is er sagt
frá þremur 20 til 22 punda fiskum
sem komið hafa þar á land síðustu
daga. Einnig mun veiðikona hafa
lotið í gras fyrir risalaxi sem áhorf-
endur fullyrða að hafi verið um 30
pund. Sá tók í þeim fræga stór-
laxastað Höfðahyl.
Á vefnum votnogveidi.is segir
Þröstur Elliðason frá 100 senti-
metra hrygnu sem hann landaði í
Breiðdalsá og vigtaði 24 pund.
Frásögnin er þó hlaðin trega því
fiskeldismaðurinn Þröstur hafði
aldrei veitt jafn stóran lax og
þessa hrygnu og sá fyrir sér fram-
tíðarstofn árinnar koma undan
henni. Hún lifði þó ekki að komast
í eldisstöðina, heldur drapst í klak-
kistu.
Risahrygna veiddist í Breiðdalsá
SKIPULAGSSTOFNUN hefur gef-
ið álit sitt um mat á umhverfisáhrif-
um fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar
frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að
Hveragerði. Það er niðurstaða Skipu-
lagsstofnunar að óháð því hvaða kost-
ur verði valinn við að tvöfalda og/eða
aðskilja akstursstefnur á Suður-
landsvegi á milli Hólmsár og Hvera-
gerðis, þá hafi þeir allir jákvæð áhrif
á umferðaröryggi. Stofnunin telur sig
hins vegar ekki hafa forsendur til að
leggja mat á hver kostanna sé bestur
m.t.t. umferðaröryggis.
Neikvæðustu umhverfisáhrif
verða vegna lagningar 2+2 vegar
með mislægum vegamótum, sem hef-
ur í för með sér verulega neikvæð
áhrif á nútímahraun og búsvæði fugla
og talsvert neikvæð áhrif á gróður,
landslag, fornminjar og útivist. Um-
ferðarmannvirki vegna 2+2 vegar í
nágrenni byggðar hafi verulega nei-
kvæð sjónræn áhrif. Áhrif á hljóðvist
af 2+2 vegi með mislægum vegamót-
um og hljóðvörnum muni hins vegar
ekki verða verulega neikvæð. Áhrif
2+2 vegar með vegamót í plani muni
verða talsvert neikvæð á nútíma-
hraun, en síður á lífríki, landslag, úti-
vist, hljóðvist og fornminjar heldur
en af 2+2 vegi með mislægum vega-
mótum. Áhrif 2+1 vegar með vega-
mót í plani verða nokkuð neikvæð á
hraun að mati Skipulagsstofnunar,
en ekki verulega neikvæð á lífríki,
landslag, útivist, hljóðvist og forn-
minjar. Álitið í heild sem og mats-
skýrslu Vegagerðarinnar má finna á:
www.skipulag.is.
Allar útfærslur auka
umferðaröryggi
Suðurlandsvegur Annar varla um-
ferðinni á á háannatímum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Handbók með ítarlegum upplýsingum og veiðikortum fylgir.
Fæst hjá N1, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
31 vatnasvæði vítt og breitt um
landið fyrir aðeins 6000 krónur
Þú
ákveður
svo hva
r og
hvenær
þú
veiðir
veidikortid.is
Hver seg
ir að
það sé d
ýrt
að veiða
?
LAXÁ Á REFASVEIT
Það var að losna holl 19.-21. júlí
Eigum laust: 1 holl í ágúst · 4 holl í september
Upplýsingar veitir Stefán í síma 898-3440
veiðideild
Húsgagnahöl l inni , s ími 585 7239. L indir , Skógar l ind 2, s ími 585 7262
efni í lundaháfa
Opið 7 dagavikunnar
„Hendurnar skornar og brunnar eftir átökin“ Mikið
af bleikju í Fljótaá „Grenjandi þegar hann hringdi“