Morgunblaðið - 14.07.2009, Side 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÞEIR aðilar sem stýrðu fimm lífeyr-
issjóðum sem hafa verið til rann-
sóknar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara frá því í mars liggja undir
grun um að hafa fjárfest um of í
skulda- og hlutabréfum tengdum
Landsbankanum eða eigendum
þeirra. Sjóðirnir fimm voru allir í
eignarstýringu hjá Landsbankanum.
Búið er að yfirheyra töluverðan
fjölda manna í tengslum við rann-
sóknina, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Mikið í tengdum félögum
Fjárfestingar sjóðanna fóru að
mestu fram í gegnum verðbréfasjóði
í eigu Landsbankans, meðal annars
peningamarkaðssjóði. Heimildir
Morgunblaðsins herma að í gegnum
þá sjóði hafi meðal annars verið fjár-
fest umfram heimildir í bréfum frá
Landsbankanum sjálfur, Straumi
Burðarási og Samson. Meint brot
áttu sér stað á fyrri hluta ársins
2008. Öll umrædd félög voru að
stórum hluta í eigu Björgólfsfeðga.
Framlengt hjá þremur sjóðum
Sjóðirnir sem um ræðir eru Ís-
lenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyris-
sjóður Eimskipafélags Íslands, Líf-
eyrissjóður Tannlæknafélagsins,
Eftirlaunasjóður íslenskra atvinnu-
flugmanna og Kjölur, lífeyrissjóður.
Sameiginleg stærð sjóðanna fimm
var um 52 milljarðar króna.
Rannsókn sérstaks saksóknara á
málinu hófst 17. mars síðastliðinn
þegar því var vísað þangað af Fjár-
málaeftirlitinu (FME). Þeir sem eru
til rannsóknar eru grunaðir um að
hafa farið langt út fyrir löglegar fjár-
festingarheimildir í einstökum fé-
lögum og fyrir falska skýrslugjöf til
FME um þær fjárfestingar.
Stjórnum og framkvæmdastjórum
sjóðanna var vikið frá störfum og
fjármálaráðherra skipaði þeim um-
sjónaraðila til 1. júlí. Þremur sjóðum
hefur nú verið skilað aftur í hendur
réttkjörinna stjórna en skipan Láru
V. Júlíusdóttur lögmanns sem um-
sjónaraðila Íslenska lífeyrissjóðsins
og lífeyrissjóðs Eimskipafélags Ís-
lands hefur verið framlengd í þrjá
mánuði. Umsjónaraðili starfar bæði
sem stjórn og framkvæmdastjóri
sjóðanna á meðan skipun hans er í
gildi.
Fé stýrt til Landsbankans
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbankinn Allir sjóðirnir fimm voru í eignarstýringu hjá Landsbank-
anum. Grunur leikur á að offjárfest hafi verið í tengdum bréfum.
Rannsókn á fjárfestingum fimm lífeyrissjóða langt komin
Búið að yfirheyra marga Umsjónaraðili skipaður áfram
● Búið er að endurskipuleggja Kaup-
þing í Lúxemborg og mun hann héðan í
frá heita Banque Havilland S.A.
Bankinn var keyptur af hinni bresku
Rowland-fjölskyldu fyrir nokkru og mun
héðan af einbeita sér að einka-
bankaþjónustu og eignastýringu.
Magnús Guðmundsson mun áfram
stýra bankanum, en hann var lykil-
maður í gamla Kaupþingi fyrir banka-
hrun. Starfssvæði bankans er Evrópa,
Mið-Austurlönd og Asía.
Banque Havilland opnaður
ÞETTA HELST ...
● Fjárfestar hafa sýnt Securitas mik-
inn áhuga, að sögn Óskars Sigurðs-
sonar, skiptastjóra Fons. Hinsvegar er
ekki búið að opna fyrir söluferlið en
margir hafa óskað eftir upplýsingum,
að hans sögn. Þrotabúið á einnig hluti í
Heklu Travel, Plastprenti og 365
miðlum. Flestar eignir búsins eru veð-
settar. helgivifill@mbl.is
Sýna Securitas áhuga
● Alþjóðlega
matsfyrirtækið
Moody’s við-
heldur neikvæð-
um horfum fyrir
danska banka-
kerfið.
Björgunar-
aðgerðir sem
danska ríkið
réðst í síðastlið-
inn október hafa
stutt við bankakerfið varðandi aðgengi
að lausafé og fjármunum. Aftur á
móti, segir í frétt frá matsfyrirtækinu,
er helsta áskorunin að gæði eigna fara
minnkandi.
Moody’s segir að fjármögnun
danskra banka, sem fyrirtækið metur,
sé viðunandi. helgivifill@mbl.is
Frá Kaupmannahöfn.
Neikvæðar horfur fyrir
danska bankakerfið
Eftir Helga Vífil Júlíusson
helgivifill@mbl.is
VERIÐ er að ganga frá sölu á
einkaþotu Pálma Haraldssonar,
VP-CEO, úr þrotabúi fjárfesting-
arfélagsins Fons, sem hann átti,
samkvæmt upplýsingum frá Ósk-
ari Sigurðssyni skiptastjóra.
Þrotabúið mun ekki ríða feitum
hesti frá sölunni, heldur er um lít-
ið annað að ræða en yfirtöku á
skuldum og öðrum kostnaði sem
tilheyrir, svo sem tryggingagjöld-
um.
Væntanlegur kaupandi er Norð-
maður en í samningsgögnum kem-
ur fram að trúnaðar verði að gæta
um hver hann er.
Kaupin eru að ekki að fullu frá-
gengin: Búið er að samþykkja
kauptilboð Norð-
mannsins en
beðið er eftir
samþykki frá GE
Capital Invest-
ment, sem er
veðhafi í flugvél-
inni.
Við kaup Fons
á þotunni var
lagt fram nokk-
uð mikið af eigin fé, að sögn Ósk-
ars, en hafa ber í huga að verð á
einkaþotum hefur lækkað frá
þeim tíma.
Samkvæmt flugvélasöluvefnum
Controller, hvar vélin er auglýst
til sölu, er verðmiðinn 15 milljónir
dollara. Vikuritið Viðskiptablaðið
hefur greint frá því að kaupverðið
hafi verið 24 milljónir dollara.
Vélin hefur verið til sölu frá því í
fyrrahaust. Flestar eignir þrota-
búsins eru veðsettar, því er ekki
búist við að fá mikið upp í al-
mennar kröfur, að sögn skipta-
stjóra. Það þýðir t.d. að þrotabúið
fær ekkert fyrir Securitas, heldur
rennur fjárhæðin til veðhafans,
sem er samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins Landsbankinn.
Einkaþota Pálma seld
til Noregs með afföllum
Farkosturinn Þotan er Bombardier Challenger, smíðuð árið 2002.
Ljósmynd/Controller
Pálmi Haraldsson
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
Enn er stefnt að því að ná samkomu-
lagi við erlenda kröfuhafa Lands-
banka, Kaupþings og Íslandsbanka
um aðkomu þeirra að nýju bönkun-
um og virði eigna þeirra gömlu fyrir
næstkomandi föstudag, 17. júlí, að
sögn Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra. Morgunblaðið sagði
frá því á laugardag að ekki hefði tek-
ist að ná allsherjarsamkomulagi við
kröfuhafana í fundaröð sem haldin
var í lok síðustu viku. Þar kom fram
að ljóst sé að ekki takist að klára
formlegt samkomulag á þeim tíma
sem er til stefnu þótt að viðræðuað-
ilar nái saman í orði. Steingrímur
staðfestir að fundað verði stíft í þess-
ari viku til að reyna að ná niðurstöðu
fyrir vikulok. „Það er allavega stefnt
að því að finna leiðir til þess að þá
verði hægt að leggja fram efnahags-
reikninga bankanna og fjármagna
þá. Menn eru að reyna að vera til-
búnir með leiðir í þessum efnum.“
Heimildir Morgunblaðsins herma að
samtals verði efnahagsreikningur
nýju bankanna á bilinu 1.800-2.000
milljarðar króna. Til samanburðar
má nefna að efnahagsreikningur
Kaupþings fyrir hrun var talinn um
6.000 milljarða króna virði, eða
þrisvar sinnum meira en allir nýju
bankarnir.
Formlegar viðræður milli kröfu-
hafanna og viðræðunefndar ríkisins
hófust í byrjun júní og var þá stefnt
að því að ljúka þeim á tæpum mán-
uði. Það tókst ekki og var þá loka-
frestur settur til 17. júlí. Upphaf við-
ræðna hafði þá tafist mánuðum
saman vegna verðmatsvinnu Delo-
itte. Hingað til hefur því verið haldið
fram að forsenda þess að hægt sé að
stofnsetja nýju bankana, birta efna-
hagsreikninga þeirra og leggja þeim
til eigið fé, sé að niðurstaða fáist í
þessum viðræðum. Nú er hins vegar
verið að ræða það í fullri alvöru að
FME geti stofnsett bankana þrjá á
föstudag með einhliða ákvörðun. Þó
er talið fullvíst að slík ákvörðun
myndi leiða til þess að erlendu kröfu-
hafarnir myndu samstundis hefja
málsóknarferli.
Bankar í gang í vikulok
Fjármálaráðherra segir enn stefnt að birtingu efnahagsreikninga nýju bank-
anna 17. júlí Efnahagsreikningur þeirra allra þriðjungur af gamla Kaupþingi
Í HNOTSKURN
»Viðræður skilanefndagömlu bankanna við er-
lenda kröfuhafa fóru fram í
London í síðustu viku.
»Skilanefnd Landsbankanshitti þá síðastliðinn mið-
vikudag, fulltrúar Kaupþings
á fimmtudag og Landsbank-
ans á föstudag. Samkomulag
náðist ekki á fundunum.
»278 dagar eru frá því aðNýi Landsbanki var stofn-
aður, fyrstur nýju bankanna.