Morgunblaðið - 14.07.2009, Page 15
Fréttir 15ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, varði í gær stefnu stjórn-
ar sinnar í Afganistan og sagði Breta
hafa fulla burði til að gegna sínu
hlutverki í baráttunni gegn talibön-
um. Bretar hafa nú misst fleiri menn
í Afganistan, 184, en í Írak og full-
yrða sumir heimildarmenn að lið
þeirra sé allt of fámennt og illa búið
vopnum og öðrum búnaði.
Skiptar skoðanir eru meðal Breta
um þátttökuna í stríðinu gegn talib-
önum. Í nýrri könnun sem gerð var
fyrir BBC og Guardian sögðust 47%
vera andvíg hernaði Breta á svæðinu
en 46% styðja hann. En þess ber að
geta að árið 2006 sagðist aðeins 31%
styðja hernaðinn. Lið Breta er eink-
um með stöðvar í héraðinu Helmand
í sunnanverðu
landinu en þar
eru talibanar
mjög öflugir.
Brown sagði að
ástandið væri erf-
itt. En ef menn
vildu sigra talib-
ana í Helmand og
gera heiminn
þannig öruggari
yrði að halda áfram aðgerðum á
svæðinu. Breski herinn væri nú bet-
ur búinn en hann hefði verið und-
anfarin 40 ár, breskum herþyrlum í
Afganistan hefði t.d. verið fjölgað
um 60% síðustu tvö árin.
Þyrlur eru afar mikilvægar í
Helmand vegna þess hve landslag er
víða erfitt yfirferðar og fjarlægðir
miklar. David Cameron, leiðtogi
Íhaldsflokksins, sagði að skorturinn
á herþyrlum væri „hneyksli“.
Mannafli Breta hefði tvöfaldast frá
2006, þyrlum hefði því ekki verið
fjölgað neitt miðað við hermanna-
fjölda. Krafðist hann þess að Brown
svaraði því hvort hann hefði hafnað
ósk hersins um að sendir yrðu 2.000
menn til að efla herliðið í Afganistan.
Brown segir herliðið
í Afganistan vel búið
Íhaldsmenn segja allt of fáa hermenn senda til vígvallanna
auk þess sem of fáar þyrlur séu þeim til stuðnings
Gordon Brown
Í HNOTSKURN
»Framlög Breta til hern-aðarins í Afganistan hafa
aukist úr 700 milljónum punda
árin 2006-2007 í yfir þrjá millj-
arða á þessu ári.
»Bretar misstu átta menn ásólarhring fyrir helgi, þrír
þeirra voru aðeins 18 ára.
FJÖGUR aðildarríki Evrópusam-
bandsins og Tyrkland undirrituðu í
gær samning um að lögð yrði 3.300
km gasleiðsla frá ríkjunum við Kasp-
íahaf til Austurríkis. Einkum verður
flutt um leiðsluna gas frá Aserbaíd-
sjan en ef til vill einnig frá Túrkmen-
istan, Íran og Írak.
Bandaríkjamenn hafa stutt hug-
myndina um lagningu leiðslunnar
sem nefnd er Nabucco. Þeir fögnuðu
samningnum og segja mikilvægt fyr-
ir vestræn ríki að tryggja orkuör-
yggi sitt.
Rússar selja ESB-ríkjunum nú
um fjórðung af öllu gasi sem þau
nota og hefur lengi verið gagnrýnt
að þau séu svo háð einum seljanda.
Truflanir sem hafa orðið á gasflutn-
ingum frá Rússum vegna deilna
þeirra við Úkraínumenn um verð á
gasinu hafa ýtt mjög undir umræður
um nauðsyn þess að Vestur-Evrópa
fái gas frá fleiri aðilum. Nabucco
mun verða í beinni samkeppni við
leiðslu sem Rússar hyggjast leggja á
Svartahafi. kjon@mbl.is
Samið um Na-
bucco-leiðsluna
Tryggir ESB gas frá Kaspíahafsríkjum
Í HNOTSKURN
»Áætlað er að Nabucco munikosta um 7,9 milljarða evra
og verði tekin í gagnið árið 2014.
»Rússar hafa nokkrum sinnumlokað fyrir gasið í deilum við
Úkraínu. Þá stöðvast einnig
flæðið til V-Evrópu, gas á leið
þangað fer um Úkraínu.
PALESTÍNSK börn á Gaza mótmæla herkví Ísraela við
hlið á landamærunum að Egyptalandi í borginni Rafah
um helgina. Landtökumenn gyðinga voru fluttir á brott
frá Gaza-spildunni árið 2005. En vígamenn úr röðum
Palestínumanna á spildunni héldu áfram að skjóta eld-
flaugum á byggðir í sunnanverðu Ísrael og svöruðu Ísr-
aelar með gagnárásum auk þess sem þeir settu miklar
skorður við samskiptum Gaza-búa við umheiminn.
Reuters
Innilokuð á Gaza
VIÐ getum aukið þol okkar gagn-
vart sársauka með því að bölva og
ragna, ef marka má niðurstöður
rannsóknar sem vísindamenn undir
stjórn Richard Stephens við sál-
fræðideild Keele-háskóla í Bretlandi
hafa gert, að sögn BBC.
Þeir létu 64 sjálfboðaliða stinga
annarri hendinni í ískalt vatn. Þegar
fólkið mátti blóta, gat þa’ haft hönd-
ina nærri mínútu lengur í vatninu en
í næstu tilraun en þá máttu þáttak-
endur aðeins nota sakleysisleg orð
eins og „borð“.
Skýrt er frá málinu í ritinu Neuro-
Report. Hjartað sló hraðar við blótið
og gæti það verið merki um aukna
árásargirni. Ekki er þó ljóst hvað
veldur þessum áhrifum blótsyrða.
En teymi Stephens álítur að þau
leysi úr læðingi eðlislæga hneigð til
að berjast í stað þess að gefast upp
og hneigð til að reyna að gera lítið úr
hættu eða veiklyndi sínu til að auð-
veldara sé að takast á við vandann.
kjon@mbl.is
Bölvið eflir
hetjulundina
KÍNVERJAR virðast staðráðnir í
að feta í fótspor vestrænna þjóða í
lífsháttum og eru þeir meðal annars
að verða mikil bílaþjóð. Þrátt fyrir
nokkru minni hagvöxt en undanfarin
ár eykst bílasala hratt í Kína og var
hún 48% meiri í júní en í sama mán-
uði í fyrra.
Hvergi eru nú seldir fleiri bílar en
í Kína, alls nærri 873 þúsund bílar í
júní en tæplega 860 þúsund í Banda-
ríkjunum. En Kínverjar berjast við
mikinn vanda vegna loftmengunar
og stefna að því að verða forysturíki
í framleiðslu rafknúinna bíla innan
fárra ára. Og nú þegar eru nær
hundrað milljónir rafknúinna reið-
hjóla í landinu. kjon@mbl.is
Reuters
Fagurgrænn Gestir á bílasýningu í Peking skoða rafknúinn bíl um helgina.
Um 50 kínverskir bíla- og rafhlöðuframleiðendur tóku þátt í sýningunni.
Samgöngur verða
rafvæddar í Kína
• Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr.
• Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr. EBITDA 35
mkr. Hagstæðar skuldir.
• Þjónustufyrirtæki sem selur fyrirtækjum lögbundna þjónustu með föstum
samningum. Ársvelta 170mkr.
• Innflutningsfyrirtæki með fatnað og vefnaðarvöru. Ársvelta 150 mkr.
• Deildarstjóri-meðeigandi óskast að meðalstóru þjónustufyrirtæki á sviði tölvu-
og tæknibúnaðar. Æskilegt að viðkomandi sé rafeindafræðingur eða hafi
svipaða menntun og starfsreynslu. Fyrirtækið er ört vaxandi og er nú með 12
starfsmenn. Fyrirtækið er 100% í eigu starfsmanna.
• Ein þekktasta og elsta ísbúð borgarinnar. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 8 mkr.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). Ársvelta 260 mkr.
• Þekkt sérverslun með heimilisvörur. Ársvelta 150 mkr. Góður leigusamningur.
• Sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki með langtímasamninga. Hentugt til sameiningar.
• Rótgróin heildverslun með fyrirtækjavörur. Ársvelta 140 mkr. Hagstæðar
skuldir.
• Trésmiðja til sölu eða leigu. Sérhæfð framleiðsla og góð tæki. Lítið skuldsett
og vel staðsett í 600 fermetra ódýru húsnæði.
• Rótgróið þjónustufyrirtæki sem selur fyrirtækjum og félagasamtök sérhæfða
þjónustu. Ársvelta 120 mkr.
• Meðalstórt iðnfyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 140 mkr.