Morgunblaðið - 14.07.2009, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
✝ Magnús Þór-arinsson, listmál-
ari og fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Nýju Fasteignasöl-
unnar, fæddist á
Hjaltabakka í Aust-
ur-Húnavatnssýslu 1.
júní 1915. Hann lést
á heimili sínu á
Bergstaðastræti 11A
í Reykjavík sunnu-
daginn 5. júlí sl. For-
eldrar Magnúsar
voru Þórarinn Jóns-
son, alþingismaður
og bóndi á Hjaltabakka, og Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir, húsfreyja á
Hjaltabakka. Systkini Magnúsar
voru Þorvaldur, f. 1899, d. 1901,
Ingibjörg Jóninna, f. 1903, d.
1994, Aðalheiður, f. 1905, d. 1999,
Brynhildur, f. 1905, d. 1994,
Skafti, f. 1908, d. 1936, Sigríður,
f. 1910, d. 1956, Jón, f. 1911, d.
1999, Hermann, f. 1913, d. 1965,
sjómaður, f. 1959, maki Sigríður
G. Pálsdóttir, f. 1958, 7) Svanhild-
ur, f. 1962. Barnabörn Magnúsar
og Vilborgar eru fimmtán, og
barnabarnabörnin eru 16.
Magnús var fæddur á Hjalta-
bakka í Torfalækjarhreppi í
Húnavatnssýslu og ólst þar upp.
Hann lauk unglingaprófi á
Blönduósi og var veturna 1934-
1936 í myndlistaskóla Finns Jóns-
sonar og Jóhanns Briem í Reykja-
vík. Sumarið 1936 vann Magnús á
búgarði í Danmörku, en réð sig
þá um haustið í vinnu hjá Jóni
Loftssyni stórkaupmanni við hin
ýmsu störf, bæði í Reykjavík og á
Arnarstapa en þar var hann
verkstjóri í vikurnámi í þrjú ár.
Magnús stofnaði og var fram-
kvæmdastjóri Nýju Fasteignasöl-
unnar í Reykjavík í um 30 ár, og
stofnaði síðan og rak Nýja Gall-
eríið á Laugavegi 12 í Reykjavík
til ársins 1989. Magnús og Vil-
borg bjuggu á Bergstaðastræti
11A.
Magnús verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju í dag, 14. júlí,
klukkan 15.
Þóra, f. 1916, d.
1947, og Hjalti, f.
1920, d. 2008.
Magnús kvæntist
1944 Vilborgu Guð-
bergsdóttur, f. 1920,
d. 2004, foreldrar
hennar voru Guð-
bergur Davíðsson
bóndi og Svanhildur
Árnadóttir hús-
freyja. Börn þeirra
eru: 1) Þórarinn Sig-
valdi skipstjóri, f.
1944, maki Anna
Magnea Ólafsdóttir,
f. 1948, 2) Guðbergur trésmíða-
meistari, f. 1946, maki Guðný
Ragnarsdóttir, f. 1947, 3) Þórir
Skafti deildarstjóri, f. 1948, maki
Matthildur Guðmannsdóttir, f.
1958, 4) Stefán deildarstjóri, f.
1950, maki Guðbjörg Ása And-
ersen, f. 1954, 5) Jóhannes mál-
arameistari, f. 1954, sambýliskona
Elsa Björnsdóttir, f. 1951, 6) Helgi
Elsku besti afi minn.
Ekki bjóst ég við að þurfa að
skrifa þér seinasta bréfið svo
skjótt. Ég elskaði þig afar heitt,
elsku afi, og mér fannst ég ekki ná
því að faðma þig og segja þér hve
vænt mér þætti um þig. Það er sárt
að sjá á eftir þér og erfitt að sjá
Bergstaðastrætið autt. Þar var allt-
af best að vera, hjá ömmu og afa á
Bergstaðastrætinu. Minningarnar
eru ótal margar og yndislegar og
mér finnst ég svo lánsöm að hafa
átt ykkur að.
Þú varst mikill maður og lifðir
löngu og viðburðaríku lífi. Áttir
stóra fjölskyldu og varst vinmarg-
ur. Vel máli farinn, mikill skemmti-
kraftur með harmónikuna við hönd
og hrókur alls fagnaðar. Það var
ekkert skemmtilegra en að hlusta á
sögurnar þínar og skoða málverkin
þín fallegu. Skemmtilegast fannst
mér að heyra af honum Kjarval
vini þínum og af dvöl þinni í Dan-
mörku. Þar lentirðu í ýmsum æv-
intýrum sem hægt var að hlæja að.
Það var toppurinn að rölta með
ömmu til þín í galleríið á Lauga-
vegi. Þar tóku á móti mér alls kyns
furðuverur eins og dvergurinn litli
skrækróma og fuglinn góði sem átti
það til að gogga í mig þar til ég
veltist um af hlátri á gólfinu. Alltaf
sástu til þess að nóg væri um kræs-
ingarnar, afi minn, enda mikill
gestgjafi. Þú varst hálfgerður jóla-
sveinn í augum okkar barna-
barnanna og gladdir okkur mikið
með gotteríi og gjöfum.
Ég brosi í gegnum tárin við þá
hugsun að nú sértu hjá elsku
ömmu. Þar áttu heima, í faðmi ynd-
islegu eiginkonu þinnar. Minning-
arnar varðveiti ég í hjarta mínu og
ég vona að þú vakir yfir okkur. Á
næstu dögum ætla ég að fljúga
norður á Blönduós og koma við á
Hjaltabakka. Ég efast ekki um að
þú verðir með mér í hægra sætinu.
Ég sendi þér og ömmu saknaðar-
kveðjur og ég vona að Guð varðveiti
ykkur. Þið voruð mér allt. Við
þökkum öll elsku Ellu okkar fyrir
að hafa séð svo vel um þig, afi
minn.
Þín
Berglind.
Magnús Þórarinsson
✝ Helga Guð-mundsdóttir
fæddist í Nýjabæ í
Kelduhverfi 26. sept-
ember 1916. Hún lést
á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund
4. júlí síðastliðinn.
Hún var yngsta dótt-
ir hjónanna Guð-
bjargar Ingimund-
ardóttur húsmóður,
f. 16.7. 1877, d. 18.6.
1951, og Guðmundar
Guðmundssonar
bónda og farkenn-
ara, f. 12.5. 1879, d. 29.1. 1933.
Systur Helgu voru: 1) Anna, ljós-
móðir á Grenivík, f. 30.5. 1907, d.
18.2. 1983, var gift Þorbirni Ás-
kelssyni, útgerðarmanni, f. 6.7.
Akureyri og síðar ráðskona í
Núpasveit, f. 15.10. 1914, d. 15.01.
2003.
Helga vann lengi við versl-
unarstörf í Verzluninni Eyja-
fjörður á Akureyri og bjó þá við
Bjarmastíg ásamt Guðrúnu og
Birnu systrum sínum en tók síðan
að sér fimm barna heimili fyrir
Gunnar Kristjánsson kaupmann er
kona hans veiktist og bjó í mörg
ár í Hafnarstræti 86 á Akureyri.
Til Siglufjarðar fluttist Helga
síðan 1961 og bjó þar ásamt Jó-
hönnu systur sinni. Þar vann hún
hjá Kaupfélagi Siglfirðinga og þá
lengst af í mjólkurbúð. Árið 1970
fluttu þær Jóhanna til Reykjavík-
ur og þá hóf Helga störf hjá Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund þar
sem hún vann við umönnun í 16
ár.
Útför Helgu fer fram frá Foss-
voskapellu í dag, 14. júlí, og hefst
athöfnin kl. 11.
1904, d. 14.4. 1963.
Þau eignuðust sex
börn. 2) Jóhanna
Sigríður versl-
unarmaður á Siglu-
firði og síðar sauma-
kona í Reykjavík, f.
29.5. 1909, d. 2.1.
1997. 3) Hólmfríður
verslunarmaður á
Siglufirði, f. 11.4.
1911, d. 30.10. 1982,
var gift Þórhalli
Björnssyni versl-
unarstjóra, f. 19.11.
1912, d. 2.7. 1992.
Þau eignuðust eina dóttur. 4) Guð-
rún Aðalbjörg verslunarmaður á
Akureyri og síðar saumakona í
Reykjavík, f. 5.9. 1912, d. 24.2.
1984. 5) Birna, rak prjónastofu á
Hún Helga móðursystir mín hefur
nú kvatt þennan heim. Hún sofnaði
svo fallega að morgni laugardagsins
4. júlí sl. Það verður skrítin tilfinning
að eiga ekki lengur erindi vestur á
Grund.
Hún Helga var sú besta frænka
sem nokkur gat hugsað sér. Hún sat
svo hljóð með prjónana sína eða
heklunálina en hafði þó frá svo mörgu
að segja. Hún var amma fyrir barna-
börn systra sinna og langamma fyrir
langömmubörn þeirra. Góðar vinkon-
ur átti hún margar á Grund og var
gjarnan tekið í spil – reyndar var spil-
að á hverjum morgni í mörg ár. Hún
var búin að hjúkra systrum sínum og
hlúa að þeim í mörg ár en nú var
hennar tími kominn til að kveðja. Nú
geta þær systur allar sest með minn-
ingarnar sínar heima á stóru þúfu
eins og Helga var búin að hlakka til.
Hún átti sér líka þá ósk að þær færu
saman systurnar allar að Dettifossi, í
Forvöðin, Ásbyrgi og Hljóðakletta.
Ég kveð Helgu mína með ljóðlínum
eftir föður hennar:
Æskunnar morgunn mér brosti blítt á
mót
og barnslundin gladdist við sérhver
vinahót,
litfögur blóm ég leit í hverri rein
og ljúfust sól í heiði svo fögur skein.
Söngfuglakliður mér lyfti létt og blítt
lækjanna niður mér kvað í eyru hlýtt,
brosti til mín himins stjörnuher
og hlæja jafnvel frostrósir sýndist mér.
Ljúfasti vorblær mér lék um kinn og brá,
að lifa og vaka – það var mér kærast þá.
Hefur allt breyst og horfið er nú flest,
og hvíldina og svefninn ég þrái mest.
(Guðm. Guðmundsson frá Nýjabæ.)
Hvíl í friði, mín kæra frænka.
Anna Laufey.
Helga Guðmundsdóttir
Fleiri minningargreinar um Helgu
Guðmundsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN PÁLL PÉTURSSON
frá Ísafirði,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
lést á Landspítalanum við Hringbraut að kvöldi
mánudagsins 6. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
15. júlí kl. 13.00.
Sigríður Jónsdóttir, Bjarni A. Agnarsson,
Þórunn Ísfeld Jónsdóttir, Ragnar Kristjánsson,
Jón Viðar Arnórsson, Sigrún Briem,
Steinunn Karólína Arnórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær bróðir okkar,
HALLGRÍMUR HELGASON,
Haggi,
Tröllagili 14,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn 3. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku-
daginn 15. júlí kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurlaug Helgadóttir,
Björg Helgadóttir,
Páll Helgason.
✝
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HJÁLMAR INDRIÐI GUÐMUNDSSON
bóndi og bifreiðarstjóri,
Korná,
Skagafirði,
lést á heimili sínu að morgni sunnudagsins
12. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Birna Hjördís Jóhannesdóttir,
Sólborg Rósa Hjálmarsdóttir, Þórmundur Skúlason,
Jóhannes Hjálmarsson, Ólöf Þórhallsdóttir,
Guðmundur Hjálmarsson, María Bergþórsdóttir,
Monika Björk Hjálmarsdóttir, Högni Elfar Gylfason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MIKKALÍNA FINNBJÖRNSDÓTTIR
frá Efri-Miðvík í Aðalvík,
síðast til heimilis
Suðurgötu 17,
Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði
fimmtudaginn 9. júlí.
Útförin fer fram frá safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 17. júlí
kl. 13.30.
Ólafía Kristín Guðjónsdóttir, Jón Norðfjörð,
Finnbjörn Helgi Guðjónsson, Sigurlaug Markúsdóttir,
Einar Sigurður Guðjónsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Oddný Bergþóra Guðjónsdóttir, Richard Henry Eckard,
Helga Herborg Guðjónsdóttir, Bolli Thor Valdimarsson,
Helga Leona Friðjónsdóttir,
Benóný Guðjónsson, Ína Dóra Hjálmarsdóttir,
Kristján Jóhann Guðjónsson, Anna María Guðlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SVEINBORG LÁRUSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Sjafnargötu 10,
lést fimmtudaginn 9. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi
föstudaginn 17. júlí kl. 13.00.
Bjarni Sigfússon, Guðrún Á. Magnúsdóttir,
Kristján Sigfússon, Guðfinna Inga Guðmundsdóttir,
Ingvar A. Sigfússon, Ingibjörg Bjartmarz,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR,
Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi
föstudaginn 10. júlí.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugar-
daginn 18. júlí kl. 14.00.
Ellert Kristinsson, Jóhanna Bjarnadóttir,
Marinó Kristinsson, Margrét Halldórsdóttir,
Friðrik S. Kristinsson, Þórdís Helgadóttir,
Jón Steinar Kristinsson
og fjölskyldur.