Morgunblaðið - 14.07.2009, Side 22

Morgunblaðið - 14.07.2009, Side 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009 ✝ Guðborg HeraGuðjónsdóttir fæddist í Hafnarfirði 2. apríl 1926. Hún lést á St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði 26. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðjón Bene- diktsson, f. 26.11. 1890, d. 5.2. 1988, og Margrét Elínborg Jónsdóttir , f. 3.1. 1892, d. 22.2. 1968. Systkini Heru: Ás- grímur, f. 1913, d. 1977, Steinunn, f. 1915, d. 1997, Ingibjörg, f. 1918, d. 2005, Hulda, f. 1921, Guðrún, f. 1924, d. 1996, Elsa, f. 1928, Haukur, f. 1932, d. 2006, og Óskar, f. 1936. Hera giftist Helga Sævari Guð- mundssyni 2. apríl 1949. Þau eign- uðust tvö börn. 1) Guðsteinn Elfar, f. 8.2. 1948, maki 1 (skildu): Guð- björg Guðjónsdóttir. Barn þeirra er Berglind, f. 8.1. 1970, maki Geir Sigurðsson, synir þeirra eru Ágúst Guðni og Geir Aron. Maki þeirra eru Hrefna Sif og Jón Rún- ar. Sigdór, f. 17.2. 1963, maki Erla Kristín Birgisdóttir. Börn þeirra eru Indiana og Arnar Jóel. Sonur Indiönu er Kristófer Rúnar, Þór- unn, f. 18.12 1967, maki Kristinn Valgeirsson. Börn þeirra eru Sveinn Ágúst, Daníel Andri, Ind- íana Guðný og Sigdór Yngvi. Dóttir Sveins Ágústs er Unnur Björk. Hera bjó alla sína tíð í Hafnar- firði. Bernskuheimilið var Gunn- arsund 7. Eftir að hún og Helgi hófu sambúð fluttust þau fyrst á Vesturbraut 24, þaðan lá leiðin á Garðaveg 3 . Árið 1963 fluttust þau á Hringbraut 74 og þar bjuggu þau allt til ársins 2004, er þau fluttu á Hraunvang 3. Hera starfaði alla tíð við verslunarstörf í Hafnarfirði. Hún var mikil fé- lagsvera og tók virkan þátt í fé- lagsmálum. Var m.a. um tíma í stjórn Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar, SVDK Hraunprýði og stjórn eldri borgara í Hafn- arfirði. Hún var heiðursfélagi bæði hjá Verslunarmannafélaginu og SVDK Hraunprýði. Útför Heru fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 14. júlí, kl. 15. Meira: mbl.is/minningar 2: Rósa Þórðardóttir, f. 8.12. 1956, börn þeirra eru: a) Hera, f. 7.10. 1976, sam- býlismaður Frið- finnur Hreinsson, fóstursynir Heru, synir Friðfinns, eru Þorsteinn og Hreinn. b) Þórður, f. 3.6. 1979, sambýliskona Ásrún Benedikts- dóttir, c) Helgi, f. 18.8. 1986. 2) El- ínborg Helga, f. 12.6. 1952, maki Rúnar Helgi Sigdórsson, f. 11.7. 1942, d. 17.5. 2001. Dætur þeirra eru a) stúlka, f. 22.2. 1973, d. 22.2. 1973 b) Helena Björk, f. 3.11. 1977, sambýlismaður Jón Garðar Jóns- son sonur Helenu Bjarkar er Yngvi Freyr. c) Helga Rut, f. 7.12. 1978, maki Valgeir Helgason. Börn þeirra eru Svandís Dagmar og Sævar Orri. Fósturbörn Helgu, börn Rúnars frá fyrra hjónabandi, eru: Guðrún Dagmar, f. 26.9. 1961, maki Gísli Jónsson. Börn Í dag verður elskuleg móðir mín og tengdamóðir borin til grafar. Það eru blendnar tilfinningar sem fara um okkur þessa dagana. Gleði yfir að hafa átt svona yndislega móður og sorg yfir að þurfa að kveðja. Það sannast aldrei betur en á svona stundum að gleðin og sorgin eru systur. Mamma var alla tíð barngóð með eindæmum. Um það geta allir vottað sem kynntust henni. Það var alltaf alveg sjálfsagt að leyfa krökkunum í gamla vesturbænum að koma í heimsókn hvenær sem var. Skipti þá engu hvort mamma var þreytt eftir erilsaman dag í vinnunni. Það var alltaf pláss fyrir vini okkar systkinanna á heimili okkar á Garðaveginum. Ein mín fyrsta minning um mömmu er þegar hún tók mig með sér í Alþýðubrauðgerðina þar sem hún starfaði um árabil. Ilmurinn og bragðið af frönsku vöfflunum, sem hún gaukaði stundum að mér, er enn í fersku minni. Þetta var ævintýraveröld fyrir ungan strák. Þegar mamma hætti í Alþýðu- brauðgerðinni færði hún sig yfir í Einarsbúð. Þar starfaði hún uns hún fór á eftirlaun. Það var oft á tíðum kostulegt að fylgjast með samskiptum hennar við viðskipta- vini búðarinnar. Hún gat sagt öll- um eiginkonum í Hafnarfirði hvaða nærbuxnastærð eiginmenn þeirra notuðu og þær fóru alveg eftir því sem hún lagði til. Þær vissu sem var að mamma vissi sínu viti þegar kom að fatastærðum. Það var ekki að ástæðulausu að sjómenn hringdu beint í Heru í Einarsbúð þegar þeir voru á leið í land. Það var betra að tala bara beint við hana í sambandi við fata- kaup en blanda eiginkonunum í málið. Eftir að mamma hætti að vinna gat hún snúið sér af fullum krafti að áhugamáli sínu, spilamennsku. Að eiga kost á því að fara nokkr- um sinnum í viku í félagsstarf eldri borgara í Hafnarfirði var ómetanlegt. Mamma var svo mikil félagsvera og hún hlakkaði alltaf jafn mikið til þess að hitta vini sína á Flatahrauninu. Umhyggja var mömmu í blóð borin. Hún hafði stöðugt áhyggjur af öðrum en vildi gera sem minnst úr því ef eitthvað bjátaði á hjá henni. Ef veikindi eða áföll dundu á samferðamönnum hennar var hún fyrst til að bjóða fram aðstoð og huggun. Þegar pabbi lenti á spítala og var þar í hartnær eitt ár, sást vel hve sterk mamma var. Hún reyndi að komast til hans svo til á hverjum degi þrátt fyrir að vera bíllaus. Þetta var ekki alltaf auðvelt en komast skyldi hún með öllum ráðum. Ef hún þyrfti að vaða eld og brennistein til þess að vera hjá ástvini sínum gerði hún það. Mamma hugsaði um okkur, ást- vini sína, allt fram á hinsta dag. Eitt af því síðasta sem hún sagði við mig á sjúkrabeðnum var: Ertu ekki svangur, Elfar minn? Farðu og fáðu þér eitthvað að borða. Já, sumar manneskjur eru skap- aðar til að gefa af sér og hugsa um aðra. Þannig var mamma. Elsku pabbi, Helga og aðrir ást- vinir. Við syrgjum í dag góða konu sem gaf okkur svo mikið. Um síðir munum við sameinast á ný en þangað til verðum við að vera sterk og gleðjast yfir lífinu. Þann- ig hefði mamma viljað hafa það. Elfar og Rósa. Elsku mamma mín. Ekki átti ég von á því að þú yrð- ir tekin svona fljótt frá mér. Veik- indi þín bar svo brátt að. Mér finnst ég eiga eftir að segja þér svo margt sem er bara á milli okk- ar. Söknuðurinn minn er mikill, símtölin á hverju kvöldi, bíltúr- arnir um helgar og allar okkar samverustundir. Eins veistu að þú og pabbi voruð mín stoð og stytta eftir að Rúnar lést og ég varð ein. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku pabbi minn og Elfar bróð- ir, þetta eru þung spor og missir okkar allra er mikill en við eigum bjartar minningar um mömmu og þær munu lýsa okkur um ókomin ár. Elsku mamma mín, ég elska þig og sakna. Ég mun ávallt hugsa vel um pabba fyrir þig. Þín dóttir Helga. Elsku langbesta Hera amma mín. Ég man það að þegar þú varst frísk, áður en þú varðst veik, var eins og þú vissir alltaf hvenær við vorum að koma og þú varst eig- inlega alltaf með tilbúnar pönnu- kökur (þær bestu í heimi) og ef ekki þá annaðhvort bauðstu til að baka þær, eða bauðst mér kex og mjólk. Ég man líka þegar við fór- um hringinn; Þú, ég, Helga amma, mamma, og Helgi afi. Reyndar man ég ekki mikið en ég man þó að ég sofnaði í bílnum og lá í aft- ursætunum. Mér fannst þetta ekki mikilvæg minning þá en nú skil ég mikilvægi hennar. Og þegar þú veiktist í mars síðastliðnum leið mér eins og heimurinn hefði um- turnast. En samt varstu alltaf jafn góð við okkur barnabarnabörnin; Mig, Svandísi og Sævar Orra. En ég vildi að ég hefði komið oftar og heimsótt þig. Og áður en ég og Svandís byrjuðum í skóla og rétt eftir að við byrjuðum í honum vor- uð þið Helgi afi alltaf að láta pen- inga í baukana hjá okkur Svandísi og Sævari Orra. Baukarnir fylltust á þriggja daga fresti. Við vorum alltaf að fara til Helgu ömmu að sækja baukana til að tæma þá. Og þegar þú fórst leið mér geðveikt illa, ég grét í hálftíma. En nú veit ég að þú fórst aldrei, þú verður alltaf til staðar að hjálpa öllum. Hvíldu í friði, elsku amma. Þinn Yngvi Freyr. Hera Guðjónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Heru Guðjónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Kristín Sigurð-ardóttir fæddist á Þiðriksvöllum við Hólmavík 12. janúar 1912. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 1. júlí sl. Hún hét fullu nafni Salome Kristín Ingibjörg, en notaði aðeins Krist- ínar nafnið. For- eldrar hennar voru Sigurður Óli Sigurðs- son og Pálína Sam- úelsdóttir. Systkini hennar samfeðra voru Valdimar, Magnína Sigríður, Karitas, Jóhannes, Ingibjörg og Jenný. Eftirlifandi eru aðeins Ingi- björg og Jenný. Systkini sam- mæðra voru Kristján, Magnína Jóna og Úranus, þau eru öll látin. Nokkurra vikna gömul var hún tekin í fóstur til hjónanna Jóns Jónssonar kennara og bónda á Drangsnesi við Steingrímsfjörð og konu hans Önnu Árnadóttur. Var hún hjá þeim til átta ára aldurs eða þar til þau brugðu búi og fluttu til dóttur sinnar Maríu og manns hennar Friðriks Kristjáns- sonar á Akureyri. Í skjóli þeirra ólst hún svo upp til fullorðinsára. Í ársbyrjun 1930 hóf Kristín sambúð með verðandi eiginmanni dóttir, b) Ragnhildur Edda, maki Haraldur Hreggviðsson, og c) Jón Guðmundur, maki Sigríður Anna Harðardóttir. 6) Anna María, f. 1948. 7) Arnheiður, f. 1950, maki Guðjón Elíasson, f. 1944, d. 1996, eiga 3 börn, a) Elín, maki Helgi Guðnason, b) Gísli, maki Guðrún Guðjónsdóttir, og c) Þorvaldur Ingi. Eftir stuttan búskap á Drangs- nesi settust þau að á Hólmavík og bjuggu þar í 22 ár, þá fluttust þau suður í Borgarfjörð og bjuggu á Jafnaskarði í Stafholtstungum í átta ár, settust síðan að í Borg- arnesi, og störfuðu bæði eftir það hjá Kaupféla gi Borgfirðinga fram á efri ár. Í Borgarnesi stóð heimili þeirra síðan á Skúlagötu 17. Eftir að Andrés féll frá flutti Kristín í fjölbýlishús fyrir aldraða og sá um sig sjálf til síðasta dags. Kristín var listakona í höndunum og vann hún mikið við glerútskurð, perlu- saum og textílmálun eftir að hún hætti að vinna og er til eftir hana fjöldi fagurra muna. Þegar sjónin fór að daprast fann hún sér nýja tómstundaiðju og hafði mikla ánægju af að spila á spil og hlusta á hljóðbækur. Afkomendur þeirra hjóna eru 78 að tölu, þar af 15 í fimmta lið. Útför Kristínar verður gerð frá Borgarneskirkju í dag, 14. júlí, kl. 11. Jarðsett verður í Hólmavík- urkirkjugarði síðar í dag. sínum Andrési Kon- ráðssyni sjómanni, f. 15.9. 1906, d. 4.5. 1994. Hann var sonur Konráðs Konráðs- sonar og Jóhönnu Þórðardóttur sem búsett voru í Ólafs- vík. Börn Kristínar og Andrésar eru: 1) Sæunn, f. 1930, maki Sigurður Sigurðsson, f. 1926, d. 2003, eiga fimm börn, a) Krist- ín, maki Ólafur Jóns- son b) Sigurveig, maki Björn Þráinn Þórðarson, c) Ari, maki Anna Ólafsdóttir Björns- son, d) Freyr, maki Mercedes Ber- ger og e) Andrés, maki Hjördís Gísladóttir. 2) Guðrún, f. 1932, maki Magnús Hallfreðsson, f. 1928, d. 2002. 3) Konráð, f. 1932, maki Margrét Björnsdóttir, f. 1933, eiga fimm börn, a) Birna, maki Brynjar Sæmundsson, b) Ingibjörg, maki Gunnar Ásgeir Gunnarsson, c) Konráð, maki Arna Einarsdóttir, d Jóhanna, maki Guðjón Egilsson, og e) Andrés Kristinn, maki Ástríður Jóns- dóttir. 4) Ari Gísli, f. 1938, d. 1950. 5) Guðleif Bára, f. 1941, maki Ottó Jónsson, f. 1936, eiga 3 börn, a) Andrés Ari, maki Ólöf Viðars- Þó að aldur móður minnar væri orðinn hár og líkaminn orðinn lúinn var hugurinn og sjálfsbjargarvið- leitnin í góðu lagi. Það tekur örugg- lega langan tíma að átta sig á því að það er ekki hægt að hringja í hana og fá að vita hvenær þessi afkomandi var fæddur og eða hvernig þessir Strandamenn voru skyldir eða tengdir. Það vafðist ekki fyrir henni að rekja saman hinar ýmsu ættir og var þá oft erfitt að fylgja henni eftir. Nú förum við ekki oftar í þennan fróðleiksbrunn. Mamma var ekki stór kona en hún var ótrúlega afkastamikil og hrað- virk, það sást best er hún var að salta síld, var hún oft með flestar tunnurn- ar á planinu. Man ég eftir hvernig hún kenndi okkur krökkunum að vinna hvernig ætti að taka t.d. síldina og beita hnífnum, hvernig ætti að halda á hrífunni og raka og hvers vegna mætti ekki ganga ofan í heyið þegar blautt væri undir. Það kom alltaf skýring á því hvers vegna þetta og hitt væri unnið svona en ekki ein- hvern veginn öðruvísi, þetta gerði það að verkum að vinnan hafði til- gang og það sem gert var kom að gagni. Það var æði langur vinnudagur hjá fólki í sjávarþorpum á fyrrihluta síð- ustu aldar, fólkið varð að bjarga sér. Sjórinn var sóttur eins og hægt var og þá lenti hirðing búpenings á kon- unni því flestir voru með kindur og kýr og man ég eftir því að pabbi var á vertíð frá áramótum og síðan á síld um sumarið. Það var því hlutverk mömmu að gæta bús og barna. Oft var þá fenginn einhver ákveðinn til að láta heyið í meisana þannig að mamma þyrfti bara að gefa kúnum, mjólka og moka flórinn og síðan gefa kindunum, en hún var ung og heil- brigð og þekkti ekki annað en að vinna. Eitt var það sem var sérstakt við þau pabba og mömmu, það var hvað þau voru gestrisin, þar var alltaf opið hús fyrir gesti og oft voru tíma- bundið, t.d. í sláturtíð, margir sk. kostgangarar og síðan komu þessir sömu menn er þeir voru í kaupstað og settust eins og heimamenn við matborðið. Mamma var eins og galdrakona, það virtist alltaf vera nægur matur fyrir alla þó að gestir kæmu óvænt, það var góður eigin- leiki. Þau urðu fyrir mikilli sorg er sonur þeirra dó, Mamma lá þá á sæng að yngstu dóttur þeirra og man ég hvað mamma nýbúin að eiga barn tók nærri sér að kveðja drenginn sinn sem var tólf ára gamall. Eftir þetta losnaði um þau og fluttu þau þá suður í Borgarfjörð. Það var ekki mikill tími til hann- yrða eða listsköpunar á þessum árum en þó saumaði hún alltaf föt á börnin sín. Það var ekki fyrr en hún kom í Borgarnes og var búin að koma sér fyrir á Skúlagötunni að hún fór að hafa tíma til að búa til sannkölluð listaverk. Þá breyttist líka margt fleira, þau pabbi og mamma fóru að ferðast bæði utanlands og innan og gefa sér tíma til að lifa lífinu. Svo eftir að pabbi dó flutti mamma í blokkina sem er sérhönnuð fyrir eldri borgara. Og þá kom enn nýr kafli í líf mömmu. Hún var heilsugóð og nú kom hver listahluturinn eftir annan frá henni og henni leið vel. Það mynd- aðist náið samband milli hennar og Guðleifar dóttur hennar sem varð henni mikill styrkur síðustu árin. Með móður minni er gengin til náða í hinsta sinn kona sem hefur lif- að í tæpa öld og mundi tímann eins og hann var í upphafi síðustu aldar og fræddi okkur börnin sín um liðna tíma. Ég vil þakka móður minni uppeld- ið og samfylgdina í tæp sjötíu og sjö ár og bið góðan Guð um að blessa hana Konráð Andrésson. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason.) Þínar elskandi, Anna María og Guðleif. Kristín Sigurðardóttir  Fleiri minningargreinar um Krist- ínu Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.