Morgunblaðið - 14.07.2009, Síða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
✝ Hjalti EyjólfurHafsteinsson
fæddist í Reykjavík
12. júlí 1953. Hann
lést á hjartadeild
Landspítala við
Hringbraut 6. júlí
2009. Foreldrar hans
eru Nína G. Hjalta-
dóttir, f. 1934, d.
2006, og Hafsteinn
Eyjólfsson, f. 1934.
Systkini Hjalta eru
Eyjólfur, f. 1963,
Rakel, f. 1964, Haf-
steinn, f. 1966, Mar-
git, f. 1970 og Ragnar, f. 1975.
Eiginkona Hjalta er Þórdís
Eygló Sigurðardóttir, f. 1950.
Foreldrar hennar eru Sigurður
Jóhannesson, f. 1932, d. 1996, og
Hulda R. Egilsdóttir, f. 1927, d.
1981. Börn þeirra eru: 1) Rann-
veig Einarsdóttir, f. 1967, gift
Jóni S. Þorbergssyni, f. 1966,
börn þeirra Jón Þór, f. 1987, og
Sigrún Gróa, f. 1992. 2) Sigurður
Hrannar Hjaltason, f. 1982, sam-
býliskona Herdís Anna Ingimars-
öllu. Hann kom bandinu hratt og
örugglega á áfangastað, var
græjukall, viskubrunnur og al-
heimsreddari, og ef í harðbakk-
ann sló gat hann spilað á hin
ýmsu hljóðfæri, enda músíkant
mikill.
Hann var líka mikill áhugamað-
ur um akstursíþróttir á Íslandi og
keppti í rally frá upphafi þeirrar
greinar, var í stjórn BÍKR og tók
virkan þátt í uppbyggingu LÍA til
aldamóta eða svo. Hann var aðal-
regluhöfundur sambandsins, sat í
fjölda dómnefnda og keppnis-
stjórna. Hjalti lagði allt sitt í upp-
byggingu og kynningu íslenskra
akstursíþrótta erlendis og var
undanfarin ár tengiliður kepp-
enda í Rally Reykjavík. Hjalta
verður sárt saknað á þessum vett-
vangi því hann lagði þar meira af
mörkum en marga grunar.
Hann var mikill félagsmaður og
var meðal annars varaformaður
Sleipnis ásamt því að gegna öðr-
um trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Hjalti sat einnig í stjórn Frama
2003-2009.
Útför Hjalta verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag, 14. júlí, og
hefst athöfnin klukkan 13.
Meira: mbl.is/minningar
dóttir, f. 1984, dóttir
þeirra Freyja Örk, f.
2008. 3) Pálmi Gunn-
laugur Hjaltason, f.
1985, dóttir hans og
Önnu Rakelar Ólafs-
dóttur, f. 1985, er
Clara Hrönn, f.
2005.
Hjalti var skáti
alla ævi og sýndi
skátahreyfingunni
alltaf mikinn áhuga.
Hann var lærður
vélvirki en starfaði
mestan part ævinnar
sem bifreiðarstjóri. Bæði sem
rútubílstjóri, strætóbílstjóri og
núna síðustu ár sem leigubílstjóri.
Farþegar Hjalta höfðu það alltaf
gott með honum, enda málglaður
mjög og talaði við alla um allt og
ekkert og aldrei var grínið langt
undan enda húmoristi mikill. Áð-
ur fyrr sinnti Hjalti einnig starfi
rótara, og voru þær ófáar hljóm-
sveitirnar sem unnu með honum,
t.d. Þursaflokkurinn, enda öruggt
að þær fengju einn rótara með
Nú er fallinn frá tengdafaðir
minn og stórvinur til 26 ára, Hjalti
E. Hafsteinsson.
Ég kynntist Hjalta í desember
1983, þegar dóttir hans hafði dreg-
ið mig unglinginn, rétt 18 ára,
heim af Hallærisplaninu. Strax
tókst með okkur góður vinskapur
sem aldrei féll skuggi á, þó að
stundum væru menn ekki alltaf
sammála og tekist væri á. Á þess-
um árum höfum við brallað ým-
islegt og í seinni tíð áttum við góð-
ar stundir á heimili mínu að
Skíðsholtum með félögum og fór-
um í nokkrar fótboltaferðir til
Englands, en ávallt mun ferðin
okkar tveggja til vesturstrandar
Bandaríkjanna árið 2007 standa
upp úr, en þá keyrðum við góðan
hring frá San Francisco til Las Ve-
gas og þá til Los Angeles svo aftur
til San Francisco.
Með þessum fáu orðum vil ég
þakka fyrir þær stundir sem ég
átti með honum Hjalta mínum.
Jón Sævar Þorbergsson.
Það er erfitt að segja í orðum
hve mikið ég mun sakna þín. Ekki
átti ég von á að missa þig strax.
Allar minningarnar sem streyma
um höfuðið á mér þegar ég hugsa
um þig eru svo margar að ég veit
ekki hvar ég á að byrja. Þegar ég
var lítill var alltaf gott að vera hjá
afa ef ég var fúl, leið eða syfjuð lít-
il stelpa. Ég man svo vel að ég fór
í hárgreiðsluleik með þér og lét
spennur og teygjur í hárið á þér.
Það var gaman, líka bara skemmti-
legt að hugsa til baka allar þessar
minningar. Þú varst alltaf svo góð-
ur við mig. Gafst mér allt, sóttir
mig hvar sem ég var eða skutlaði
mér hvert sem ég vildi.
Eitt skiptið sagðir þú við mig að
þú værir alltaf til staðar fyrir mig
og ef mig vantaði eitthvað átti ég
að tala við þig. Það svo sannarlega
gerði ég. En hvað nú? Hvers á ég
nú að leita til ef mig vantar eitt-
hvað. Ég þurfti engan annan en
þig því þú vissir allt, þegar ég segi
allt þá meina ég allt. Mér fannst
það svolítið skrítið þegar þú
fræddir mig t.d. bara rétt fyrir
stuttu um brjóstahaldara ásamt
afa Begga. Ég mun fara eftir þeim
upplýsingum svo sannarlega, afi.
Ég hef auðvitað helling sem ég
væri til í að segja en gott væri að
ég segði það ekki allt, það er svo
mikið.
Þegar þú fékkst hjartastoppið í
fyrra áttir þú eftir að hjálpa mér í
gegnum bílprófspakkann. Ég er
mjög þakklát fyrir að þú vaknaðir
og náðir að klára þann pakka með
mér. Við náðum að spjalla svo mik-
ið þegar við fórum í bíltúr daginn
áður en ég fór í sjálft prófið, þar
sagðir þú svo margt sem ég get
ekki gleymt. Það sem ég man mest
eftir samt frá því kvöldi er þegar
við létum lögguna viljandi stoppa
okkur. Það var alveg ótrúleg lífs-
reynsla og ég upplifði það með þér
og ég mun aldrei gleyma því frem-
ur en öllu öðru.
Takk fyrir allt, afi minn, ég væri
ekki sama manneskja í dag ef þú
hefðir ekki verið til staðar fyrir
mig. Ég skal fara vel með hana
ömmu mína, eins og þú sagðir mér
oft að gera. Ég mun sakna þín al-
veg ótrúlega mikið, ég get ekki
hugsað mér þetta líf án þín, en ég
reyni og þú verður líka að vera hjá
mér og hjálpa mér.
Ég held samt áfram að vera litla
afastelpan.
Þrátt fyrir þetta áfall.
Takk enn og aftur, elsku besti
afi minn.
Hvíldu í friði, afi, og ekki fara
langt.
Sigrún Gróa Jónsdóttir.
Hjalti E. Hafsteinsson
Fleiri minningargreinar
um Hjalta E. Hafsteinsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
ÍSLENSKAR
LÍKKISTUR
Góð þjónusta - Gott verð
Starmýri 2, 108 Reykjavík
sími 553 3032
Gsm 866-2747 og 822-6373
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu,
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
STEFÁNS ÁSBERGS JÓNSSONAR
bónda,
Kagaðarhóli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Reykjalundar og
Heilbrigðisstofnunar Blönduóss fyrir umönnun í
veikindum hans.
Sigríður Höskuldsdóttir,
Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, Víkingur Þór Gunnarsson,
Sólveig Birna Stefánsdóttir,
Jón Stefánsson,
Berghildur Ásdís Stefánsdóttir, Þorkell Magnússon
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞÓRIR MAGNÚSSON
bifreiðarstjóri,
Meðalholti 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 16. júlí kl. 13.00.
María Jóhannsdóttir,
Halldór Þórisson,
Jóhanna M. Þórisdóttir,
Þórir Þórisson, Halldóra Kr. Valgarðsdóttir,
Ragna H. Þórisdóttir, Kristján Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
tengdasonur og bróðir,
ATLI THORODDSEN
flugmaður,
Þrastarási 24,
Hafnarfirði,
lést á krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum við
Hringbraut þriðjudaginn 7. júlí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Karitas, hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu.
Einnig viljum við benda á reikning til styrktar dætrunum:
0101-15-381886, kt: 201071-4619.
Ásta Hallgrímsdóttir,
Andrea Thoroddsen,
Júlíana Thoroddsen,
Þórunn Christiansen,
Björn Thoroddsen, Margrét Linda Gunnlaugsdóttir,
Hallgrímur Jónsson, Guðríður Þórhallsdóttir,
systkini og aðrir aðstandendur hins látna.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐMUNDU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Egilsbraut 9,
Þorlákshöfn.
Helga Guðmundsdóttir, Júlíus Roy Arinbjarnarson,
Guðni Pétursson, Nanet Orongan,
Víðir Lárusson, Áslaug Traustadóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Okkar ástkæra og yndislega eiginkona, móðir,
tengdamóðir, dóttir og amma,
ÁSTRÍÐUR HÓLM TRAUSTADÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 9. júlí.
Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 21. júlí
kl. 15.00.
Óskar Már Ásmundsson,
Margrét Jóhannsdóttir, Hafþór Theodórsson,
Bjarki Már Óskarsson,
Trausti Már Óskarsson,
Agnes Sigurðardóttir,
Viktor Blær Hafþórsson,
Ásta María Hafþórsdóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
Birkihvammi 12,
Kópavogi,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut að kvöldi föstudagsins 10. júlí, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju í Kópavogi föstu-
daginn 17. júlí kl. 13.00.
Þorkell Jónsson,
Kristín Þorkelsdóttir, Helgi Óskar Óskarsson,
Jón Gísli Þorkelsson, María Höskuldsdóttir,
Guðjón Þorkelsson, Kristín Sigurðardóttir,
Árni Þorkelsson, Jakobína Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN INDRIÐADÓTTIR,
Framnesvegi 7f,
Keflavík,
lést á dvalarheimilinu Hlévangi mánudaginn 15. júní.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins
Hlévangs fyrir hlýja og góða þjónustu.
Hrafnhildur Betty Young, William J. Young Jr.,
Indriði A. Adolfsson, Gísli Sigurðsson,
Sigríður A. Adolfsdóttir,
Vilhelm B. Adolfsson,
ömmubörn og langömmubörn.