Morgunblaðið - 14.07.2009, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Húsgögn
Léttir og þægilegir dömuskór úr
leðri.
Stærðir: 36 - 40.
Litir. Rautt og svart.
Verð: 11.500.-
Flottir skór úr leðri, dömum á
öllum aldri til upplyftingar.
Stærðir: 36 - 40.
Litir: Hvítt og rautt.
Verð: 11.500.-
Mjög þægilegir dömuskór úr
leðri.
Stærðir: 36 - 40.
Litur: svart.
Verð: 10.200.-
Bara flottir skvísuskór úr leðri.
Stærðir: 36 - 40.
Litir: Rautt og hvítt.
Verð: 10.200.-
Sérlega þægilegir dömuskór úr
mjúku leðri með opinni tá.
Stærðir: 36 - 40.
Litur: svart.
Verð: 13.950.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Atvinnuauglýsingar
Arnøy Laks AS leitar að fagmanni í fiskeldi.
Frekari upplýsingar á heimasíðunni
www.arnoylaks.no
Hringið í Maritime leader Jostein Bentsen
+47 977 64 611
eða Manager Tor Nygaard +47 911 76 819
Selfossi
Staða deildarstjóra
við Vallaskóla á Selfossi
Auglýst er til umsóknar staða deildar-
stjóra efra stigs við Vallaskóla á Selfossi.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2009.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Ber ábyrgð á faglegu starfi á sínu
skólastigi.
Skipuleggur og stýrir samráðsfundum á
sínu skólastigi.
Skipuleggur forfallakennslu í samráði
við skólastjóra.
Starfar samkvæmt lögum og reglu-
gerðum grunnskóla, öðrum lögum er
við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og
stefnu sveitarfélagsins í málaflokknum.
Önnur þau verkefni sem skólastjóri
felur deildarstjóra og eru innan starfs-
sviðs hans.
Þekkingar- og hæfnismarkmið:
Hafa starfsheitið grunnskólakennari.
Hafa kennslureynslu á grunnskólastigi.
Stjórnunarreynsla á grunnskólastigi
æskileg.
Góð þekking á grunnskólalögum,
aðalnámskrá og öðrum þeim lögum og
reglugerðum er varða skólahald og vel-
ferð nemenda og starfsfólks.
Færni í mannlegum samskiptum og
viðtalstækni.
Þekking á kjarasamningum starfsfólks
grunnskóla.
Þekking og færni í meðferð eineltis- og
agamála.
Launakjör eru í samræmi við kjarasamn-
ing Launanefndar sveitarfélaga og Kenna-
rasambands Íslands vegna Skólastjóra-
félags Íslands.
Umsóknum með upplýsingum um mennt-
un, starfsreynslu og umsagnaraðila berist
skriflega til Guðbjarts Ólasonar, skóla-
stjóra Vallaskóla Sólvöllum 2, 800 Selfossi,
sem einnig veitir frekari upplýsingar um
starfið í síma 480 5800, netfang
gudbjartur@vallaskoli.is
Einnig vantar textílkennara í 50% stöðu-
hlutfall fyrir skólaárið 2009 – 2010, um
afleysingarstöðu er að ræða.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2009.
Fyrsti vélstjóri
óskast á skuttogarann Múlaberg SI 22, sem
stundar rækjuveiðar frá Siglufirði.
Stærð aðalvélar er 1691 kW.
Upplýsingar veittar í síma 862-0069.
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
Óska eftir
Afrakatæki óskast
Vélsmiðjan Normi leitar eftir afrakatækjum til
kaups eða leigu, með mikla afkastagetu.
Vinsamlegast hafið samband við Sævar í síma
897 9741 eða Ásbjörn í síma 821 2696.
Tilkynningar
Tvöföldun Suðurlandsvegar
frá Hólmsá ofan
Reykjavíkur að Hveragerði
Helstu niðurstöður
Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að óháð
því hvaða kostur verður valinn við að tvöfalda
og/eða aðskilja akstursstefnur á Suðurlands-
vegi á milli Hólmsár og Hveragerðis, þá hafi
þeir allir jákvæð áhrif á umferðaröryggi. Stofn-
unin telur sig hins vegar ekki hafa forsendur til
að leggja mat á hver kostanna sé bestur m.t.t.
umferðaröryggis. Neikvæðustu umhverfisáhrif
verða vegna lagningar 2+2 vegar með mis-
lægum vegamótum, sem hefur í för með sér
verulega neikvæð áhrif á nútímahraun og bú-
svæði fugla og talsvert neikvæð áhrif á gróður,
landslag, fornminjar og útivist. Umferðar-
mannvirki vegna 2+2 vegar í nágrenni byggðar
hafi verulega neikvæð sjónræn áhrif. Áhrif á
hljóðvist af 2+2 vegi með mislægum vega-
mótum og hljóðvörnum muni hins vegar ekki
verða verulega neikvæð. Áhrif framkvæmdar-
innar á vatnsból og vatnalíf geta orðið talsvert
neikvæð verði slys á framkvæmdatíma, en á
rekstrartíma verða áhrifin ekki verulega
neikvæð. Áhrif 2+2 vegar með vegamót í plani
muni verða talsvert neikvæð á nútímahraun en
minni áhrif á lífríki, landslag, útivist, hljóðvist
og fornminjar heldur en af 2+2 vegi með
mislægum vegamótum. Áhrif 2+1 vegar með
vegamót í plani verða nokkuð neikvæð á hraun
að mati Skipulagsstofnunar, en ekki verulega
neikvæð á lífríki, landslag, útivist, hljóðvist og
fornminjar.
Álitið í heild liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Álit Skipu-
lagsstofnunar og matsskýrslu Vegagerðarinnar
er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar:
www.skipulag.is.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Bessatunguland, Dalabyggð, landnúmer 137843, þingl. eig. Magnús
Valur Albertsson, gerðarbeiðandi Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf.,
föstudaginn 17. júlí kl. 13:00.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
10. júlí 2009.
Áslaug Þórarinsdóttir.
Veiði
Lax - Lax - Lax
Vegna forfalla eru 5 dagar lausir í Laxá á
Ásum 2. - 7. ágúst. Um er að ræða 2 stangir
(öll áin). Hægt er að kaupa staka daga.
Upplýsingar í síma 864-7349.
Smáauglýsingar
Ýmislegt
Hótel á Suðurlandi
Óskum strax eftir áhugasömum aðila um
eldamennsku.
Upplýsingar í síma 863 7244 (Eva).