Morgunblaðið - 14.07.2009, Qupperneq 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
3 7
1 2
3 4 5 6
7 8 9 5
5 4 8 2
7 9 5 8
1 9
2 3
8
5 4 9
1 5 6
5 7
6 2 4 8
9 3
6 4 2
9 1 8
9 5 2
9
5
1 3 7 4
5 4 7
6 2 7
8
9 2 8
1 9 3 5
3 8 1
7 2 8 3 1 5 9 6 4
5 6 9 7 8 4 3 1 2
1 4 3 6 2 9 8 7 5
8 3 6 4 5 1 7 2 9
9 5 1 2 3 7 6 4 8
4 7 2 9 6 8 1 5 3
3 8 4 1 7 2 5 9 6
6 9 7 5 4 3 2 8 1
2 1 5 8 9 6 4 3 7
1 9 4 2 6 7 5 3 8
5 3 2 1 4 8 9 7 6
8 6 7 3 9 5 2 1 4
3 8 9 7 2 1 4 6 5
7 4 5 9 3 6 1 8 2
2 1 6 5 8 4 7 9 3
9 5 8 4 1 3 6 2 7
6 7 1 8 5 2 3 4 9
4 2 3 6 7 9 8 5 1
3 6 7 1 8 9 5 2 4
8 2 9 4 5 7 3 6 1
5 1 4 2 6 3 7 8 9
4 9 8 7 2 1 6 3 5
2 5 3 8 4 6 1 9 7
6 7 1 9 3 5 8 4 2
1 3 6 5 9 4 2 7 8
9 8 5 6 7 2 4 1 3
7 4 2 3 1 8 9 5 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 14. júlí,
195. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til mannsins
vegna og eigi maðurinn vegna hvíld-
ardagsins. (Markús 2, 27.)
Víkverji er rétt að ná sér niður eft-ir langt og gott sumarfrí, nánast
orðinn sólþurrkaður eftir þvílíka
blíðu. Annað sumarið í röð reyndust
veðurguðirnir hliðhollir Víkverja og
hans fjölskyldu og það á mismunandi
tíma; í fyrra frá miðjum júlí fram í
ágúst og nú frá því um miðjan júní.
Nánast sól og blíða upp á hvern dag
og varla dropi úr lofti. Einstaka
þokubakkar kældu liðið niður og gáfu
gróðrinum kærkominn raka.
x x x
Líkt og flestir landsmenn þetta ár-ið ákvað Víkverji að ferðast inn-
anlands í sumarfrínu. Utanlands-
ferðir hafa verið settar á bið, þar til
krónan nær sér á strik og krepputal-
ið er yfirstaðið. Nokkur nátt-
úruundur voru skoðuð á ferðalaginu,
eins og Seljalandsfoss, Skógafoss,
Dyrhólaey, Reynisfjara, Fjaðr-
árgljúfur og Jökulsárlón á Suður-
landi, en það sem kom Víkverja lang-
mest á óvart í fríinu var Vatnsnesið í
Húnaþingi. Þann krók hafði Víkverji
aldrei tekið um ævina á ótal ferðum
sínum norður í land. Ekki skemmdi
veðrið fyrir, með útsýni til allra átta,
og hreint magnað að standa uppi á
Borgarvirki og horfa yfir Húnaþingið
vítt og breitt. Hvítserkur er einnig
með mikið aðdráttarafl en senuþjóf-
arnir reyndust selirnir, sem flatmög-
uðu í sólinni í hundraðatali við Ósana.
Búið var að loka fyrir umferð í Hind-
isvík en á Illugastöðum á vestur-
ströndinni hefur verið komið upp
góðri aðstöðu fyrir ferðamenn til
selaskoðunar og áningar. Þar voru
selirnir eitthvað færri en góðan tíma
getur tekið að koma auga á þá á
skerjunum.
x x x
Víkverji mælir eindregið með ferðum Vatnsnesið, þar sem byrjað
er á Borgarvirkinu austanmegin og
endað í Selasetrinu á Hvammstanga.
Þar er líka hægt að fara í sund til að
skola af sér ferðarykið og fá sér að
lokum pitsu í Shell-skálanum. Í góðu
veðri er ekkert mál að eyða heilum
degi í þetta ferðalag, en einnig hægt
að taka styttri útgáfu séu menn á
hraðferð um Húnaþingið.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 haldin sjúk-
dómi, 8 hamingja, 9
nauts, 10 veiðarfæri, 11
gljái, 13 framkvæmir, 15
umstang, 18 kempu, 21
guð, 22 kurf, 23 megnar,
24 fengsamur.
Lóðrétt | 2 semja, 3
klaufdýrsins, 4 lét, 5
morkin, 6 hjartaáfall, 7
óhreinindi, 12 tangi, 14
spil, 15 árás, 16 raka, 17
vínglas, 18 helgitákn, 19
saltlög, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sækja, 4 blússa, 7 rústa, 8 tepra, 9 Rán, 11
kunn, 13 grun, 14 ýtuna, 15 fætt, 17 fold, 20 aða, 22 ætt-
in, 23 guldu, 24 illur, 25 syfja.
Lóðrétt: 1 spræk, 2 kusan, 3 apar, 4 botn, 5 sópur, 6 as-
ann, 10 áburð, 12 nýt, 13 gaf, 15 fræði, 16 titil, 18 oflof,
19 dauða, 20 anar, 21 agns.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6
5. Db3 Rc6 6. Rbd2 Ra5 7. Dc3 c5 8.
dxc5 bxc5 9. e4 Bb7 10. e5 Re4 11.
Rxe4 Bxe4 12. Bg2 Rc6 13. O-O Hb8
14. He1 Bxf3 15. Bxf3 Rd4 16. Bd1
Be7 17. Be3 Dc7 18. Hb1 Dxe5 19.
Bxd4 cxd4 20. Dd2 Dc5 21. Be2 O-O
22. Hed1 e5 23. Dd3 f5 24. g4 g6 25.
gxf5 gxf5 26. b4 Dc6 27. b5 Db6 28.
Dg3+ Dg6 29. Bh5 Dxg3+ 30. hxg3
Bc5 31. Kg2 e4 32. Hh1 d3 33. Bd1 f4
34. Hh5 f3+ 35. Kf1 d6 36. Bb3 Hbe8
37. He1 d2 38. Hd1
Staðan kom upp á Kóngamótinu
svokallaða sem lauk fyrir skömmu í
Bazna í Rúmeníu. Boris Gelfand
(2733) frá Ísrael hafði svart gegn
Alexei Shirov (2745) frá Spáni. 38. …
Bxf2! 39. Hxd2 Bc5 40. Bc2 He7 og
hvítur gafst upp enda ræður hann
ekki við frípeð svarts.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ósagðir hlutir.
Norður
♠642
♥104
♦ÁK6532
♣95
Vestur Austur
♠KDG10 ♠85
♥G932 ♥D8765
♦4 ♦D8
♣D1042 ♣KG73
Suður
♠Á973
♥ÁK
♦G1097
♣Á86
Suður spilar 3G.
Það er ekki hlutverk blinds að skipta
sér af spilamennsku sagnhafa. En norð-
ur gat ekki stillt sig: „Hefur enginn sagt
þér að 2-1 legan er 78%?“ Hvað kallaði á
þessi hranalegu viðbrögð norðurs? Út-
spilið var ♠K.
Suður drap strax á ♠Á, spilaði ♦G og
lét hann rúlla yfir á drottningu austurs.
Vörnin tók þrjá slagi á spaða í viðbót, en
svo átti sagnhafi afganginn og vann sitt
spil. Þegar síðar sannaðist að suður var
með fjórlit í tígli vaknaði norður til lífs-
ins með áðurnefndri athugasemd. En
suður hafði spilað vel og gætilega. Til-
gangurinn með því að hleypa ♦G var að
fyrirbyggja stíflu í litum og tryggja alla
vega fimm slagi – hann fær aðeins fjóra
með því að taka á ♦ÁK.
Suður átti síðasta orðið: „Nei, en hef-
ur enginn sagt þér frá réttindum og
skyldum blinds?“
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nýir straumar eru að koma inn í líf
þitt og það er mikilvægt að þú mætir þeim
með opnum huga. Gefðu þér tíma til íhug-
unar og notaðu tómstundir á upp-
byggilegan hátt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að biðja enn og aftur um það
sem þú vilt, og þér finnst það allt í lagi.
Lærðu að leyfa öðrum að taka til hendinni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vertu þolinmóð(ur) við fjölskyld-
una í dag því allir eru frekar tauga-
strekktir. Notaðu tækifærið til að koma
hugmyndum þínum á framfæri.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Stundum er maður svo heppinn að
sjá það ómögulega gerast. Margt mun
koma þér til góða, þú ert líka hamingju-
samari en áður.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú hefur ekki varann á þér gæti
farið svo að gömul sár sem aldrei hafa gró-
ið að fullu opnist á ný. Farðu mjög varlega
með upplýsingar sem þú veitir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt aldrei að missa trúna á því að
það sem þú ert að gera getir þú borið fram
til sigurs. Láttu fundahöld ekki taka of
mikinn tíma frá þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vogin getur ekki að gert að draga að
sér aðdáendur. Alvaran er ágæt, en hún
getur einfaldlega orðið einum um of.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ræddu markmið þín og
drauma við aðra núna og á næstu vikum.
Leyfðu hugmyndunum að flæða og þá fer
allt á bezta veg. Sums staðar verður að
gefa undan.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Láttu ekki hanka þig á því að þú
hafir ekki unnið heimavinnuna þína. Vertu
bara þakklát(ur) og mundu að sönn vinátta
snýst um það að gefa og þiggja.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Dagurinn í dag er upplagður fyr-
ir andlega áreynslu af hvaða tagi sem er.
Reyndu að forðast rifrildi við fjölskyldu-
meðlimi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Notaðu daginn til þess að ræða
við maka um allt það sem honum er mik-
ilvægt. Finndu út úr því hverju eða hverj-
um er um að kenna. Allir hafa gott af því að
víkka út sjóndeildarhring sinn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þetta er ekki rétti dagurinn til þess
að biðja yfirmenn þína um leyfi eða sam-
þykki. Meginmálið er bara að finna þær að-
ferðir sem við eiga hverju sinni.
Stjörnuspá
14. júlí 1839
Skírnarfontur sem Bertel
Thorvaldsen gaf Dómkirkj-
unni í Reykjavík var vígður.
Við athöfnina var drengur
skírður í höfuðið á listamann-
inum, sem var íslenskur í föð-
urætt.
14. júlí 1841
Jónas Hallgrímsson orti kvæð-
ið Fjallið Skjaldbreiður. Það
hefst á orðunum „Fanna
skautar faldi háum / fjallið,
allra hæða val.“
14. júlí 1909
Danski rithöfundurinn Martin
Andersen Nexö kom til lands-
ins. Hann hafði þá nýlega lok-
ið við söguna um Pelle sig-
urvegara.
14. júlí 1962
Hótel Saga í Reykjavík var
tekin í notkun. Fyrstu gest-
irnir voru norsk hjón, sænsk
hjón, hópur frá Sviss, Banda-
ríkjamaður og bóndi austan úr
Hrunamannahreppi. Þorvald-
ur Guðmundsson var hótel-
stjóri.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Franklín Máni og Jenný Una eru
fjögurra ára vinir sem héldu tom-
bólu fyrir utan Bónus á Laugavegi
og söfnuðu 3.433 kr. sem þau færðu
Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
„ÉG var búinn að gleyma því að ég ætti afmæli! En
það leggst bara vel í mig, það er gaman að eldast
og vitkast,“ segir afmælisbarnið Stefán Þórarinn
Ólafsson, lögmaður á Blönduósi. Hann hyggur
ekki á mikil veisluhöld í tilefni dagsins en segist þó
búast við að fjölskyldan syngi honum afmæl-
issönginn og að kaka verði fram borin. „Það er
hins vegar óljóst með baksturinn. Ég er ekki mjög
sterkur á svellinu þegar kemur að bakstri. Garð-
urinn og ryksugan eru betri vinir mínir en bak-
araofninn. Stefán segist muna eftir mörgum góð-
um afmælisdögum, sérstaklega í barnæsku í
sveitinni en hann er frá Steiná í Svartárdal. „Það var gaman að eiga
afmæli í sveitinni, þar var svo mannmargt á sumrin og alltaf nóg af
kökum. Stundum var komið með veisluföngin niður á tún.“ Stefán
segir að í seinni tíð hafi hann haldið afmælisveislur en engin þeirra
komist í hálfkvisti við veislurnar í sveitinni. „En ætli ég haldi ekki
mikla veislu þegar ég verð fimmtugur. Kannski hljómsveitin Demó
troði upp,“ en Stefán Þórarinn er gítarleikari hljómsveitarinnar. „Við
troðum stundum upp en það er regla hjá okkur að æfa bara daginn
fyrir eða sama dag og tónleikar eru haldnir.“ svanbjorg@mbl.is
Stefán Þórarinn Ólafsson lögmaður er 45 ára
Veislur í túninu heima
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is