Morgunblaðið - 14.07.2009, Side 29
Menning 29FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„JÁ þetta var ansi sérstakt,“ segir tónlistarmað-
urinn Helgi Björnsson sem ætlaði að halda tón-
leika í Valhöll á Þingvöllum á föstudagskvöldið.
Ekkert varð hins vegar af tónleikunum þar sem
húsið brann til kaldra kola fyrr um daginn. „Við
ætluðum að vera þarna á föstudagskvöldum í
sumar og höfðum haldið fyrstu tónleikana viku
áður. Það tókst rosalega vel, fullt hótel og svaka-
lega fín stemning,“ segir Helgi sem fagnaði ein-
mitt 51 árs afmæli sínu daginn sem hótelið
brann. „Ég ætlaði að halda upp á það í leiðinni
þannig að það var búið að stefna ansi mörgum á
staðinn og fullbókað á hótelið og í mat.“
Helgi ætlar þó ekki að gefast upp og stefnir að
því að halda tónleika við rústir hótelsins.
„Sú hugmynd kviknaði bara þarna í hita
augnabliksins. Það hefði líka verið gaman að
halda sínu striki og halda tónleika núna á föstu-
daginn eins og til stóð,“ segir Helgi en bætir því
þó við að það náist líklega ekki þar sem hann sé á
leið í mikla gönguferð um Hornstrandir.
Á tónleikunum syngur Helgi annars gamlar ís-
lenskar dægurperlur og hefur einvalalið sér til
fulltingis, þá Kjartan Valdimarsson, Sigurð
Flosason og Stefán A. Magnússon. „En hug-
myndin er sem sagt sú að vera með minning-
artónleika þannig að fólk geti sýnt hug sinn í
verki með því að mæta og styðja þau áform að
þarna verði ekki reist eitthvert minjasafn þar
sem enginn má koma, heldur eitthvað lifandi
sem þjóðin getur áfram notið.“
Helgi Björns ætlar að spila við rústir Valhallar
Morgunblaðið/Kristinn
Engin uppgjöf Helgi Björnsson gefst ekki upp.
Eins og greint var frá hér á síð-
um Morgunblaðsins fyrir rúmri
viku nýtur Emilíana Torrini mik-
illa vinsælda í Þýskalandi um þess-
ar mundir. Þannig komst lag
hennar, „Jungle Drum“, í efsta
sæti þýska vinsældalistans fyrir
næstsíðustu helgi. Nýr listi var
kynntur í lok síðustu viku, og viti
menn – Emilíana er ennþá á
toppnum. Þá var nýr listi einnig
kynntur í Austurríki, og er
„Jungle Drum“ líka á toppnum
þar, aðra vikuna í röð.
Ljóst er að um stórglæsilegan
árangur hjá Emilíönu er að ræða
og því spurning hvort ekki ætti að
fara að tala um „Björk, Sigur Rós
og Emilíönu Torrini“ þegar þekkt-
ustu tónlistarmenn þjóðarinnar
eru nefndir.
Emilíana enn á toppn-
um í Þýskalandi
Margt athyglisvert kemur í ljós
þegar rýnt er í nýjustu könnun
Capacent Gallup um áhorf á sjón-
varp og hlustun á útvarp dagana
29. júní til 5. júlí. Þar kemur til
dæmis í ljós að Veðurfréttir Rík-
issjónvarpsins eru vinsælasti sjón-
varpsþáttur landsins, en 28,3%
þjóðarinnar fylgdust með þeim á
umræddum tíma. Þær niðurstöður
koma eflaust ekki á óvart í ljósi þess
að stór hluti þjóðarinnar ferðast
innanlands um þessar mundir. Í
næstu sætum á eftir koma svo Kast-
ljós, Fréttir Ríkissjónvarpsins,
Popppunktur og Út og suður.
Í ljósi vinsælda Veðurfrétta Sjón-
varpsins vekur annars athygli að
Veðurfréttir Stöðvar 2 með Sigurð
Þ. Ragnarsson í broddi fylkingar
ná aðeins 10,9% áhorfi á sama tíma.
Af útvarpsstöðvum naut Rás 2
mestra vinsælda sem fyrr, en 37%
landsmanna stilltu á Rásina þá vik-
una. Næst á eftir kom Bylgjan með
33,2%, Rás 1 með 15,6% og FM 95,7
með 6,7%.
Veðurfréttir vinsælasti
sjónvarpsþátturinn
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Ný plötuútgáfa, Borgin,hefur verið stofnuð ogkoma fyrstu plöturhennar út nú fyrir versl-
unarmannahelgi. Er um að ræða
nýja plötur frá Baggalúti og svo
Agli Sæbjörnssyni. Stuttu síðar
kemur út tónleikaplata með Megasi
og Senuþjófunum og einnig er
fjórðu plötu Hjálma stefnt út í
ágúst.
Rúllað af stað
Þrír aðilar standa að útgáfunni,
þeir Steinþór Helgi Aðalsteinsson,
Baldvin Esra Einarsson og Guð-
mundur Kristinn Jónsson. Steinþór
er umboðsmaður Hjaltalín, Baldvin
er framkvæmdastjóri Kimi Records,
sem hefur verið áberandi í útgáfu á
óháðri tónlist undanfarið og Guð-
mundur Kristinn, Kiddi Hjálmur, er
meðlimur í Hjálmum, Baggalúti,
Senuþjófunum og Memfismafíunni
og hefur verið potturinn og pannan í
mörgum farsælum verkefnum und-
anfarin misseri í gegnum starf sitt
sem upptökustjóri í Hljóðrita, Hafn-
arfirði.
Steinþór Helgi er markaðs- og
rekstrarstjóri Borgarinnar.
„Þetta byrjaði með því að Kidda
langaði til að fara að gefa út þá tón-
list sem honum þætti skemmtileg,“
útskýrir hann.
„Ég og Baldvin komum svo inn í
þetta. Kiddi og hans menn rúlluðu
þessu af stað en svo komum við
Baldvin með okkar fólk inn í þetta,
eins og Hjaltalín og Sigríði Thorla-
cius, söngkonu þeirrar sveitar, sem
gefur út sólóplötu í haust. Við erum
svo í viðræðum við fleiri listamenn.“
Blóðtaka fyrir Senu?
Steinþór segir að útgáfan hafi
orðið til fyrst og síðast vegna
nefndra listamanna, þetta sé
kannski meira í ætt við nokkurs
konar samtök um útgáfu fremur en
„hefðbundið“ útgáfufyrirtæki.
„Við erum að fara að gera samn-
inga sem hafa hvorki tíðkast hér-
lendis né erlendis. Þetta á að þjóna
listamönnunum fyrst og síðast.
T.a.m. verða ekki gerðir eignarrétt-
arsamningar um tónlist flytjenda,
einungis leigusamningar (licensing
deal).“
Steinþór segir Borgina heilmikið
batterí og skrifstofur hafa verið
opnaðar í Vonarstræti. Steinþór
verður þar með aðstöðu en Baldvin
verður sem fyrr norður á Akureyri
og Kiddi mun einbeita sér að hljóð-
versvinnu eins og áður.
Nokkrar öflugar mjólkurkýr
Senu eru þannig komnar undir
Borgina. Ætlar hún í samkeppni við
þá útgáfu?
„Alls ekki,“ segir Steinþór. „Við
erum að „stela“ listamönnum frá
fleiri útgáfum, ef það er hægt að
orða það svo. Hugmyndin með út-
gáfunni er sú að reyna að snúa við
ákveðinni þróun í útgáfumálum en
sala á geisladiskum fer minnkandi.
Við og þessir listamenn erum að
snúa bökum saman og leita nýrra
leiða í markaðsfræðunum og bregð-
ast við erfiðum tímum sem eru
sannarlega framundan.“
Hjálmar á vínyl
Að lokum er vert að geta þess að
á meðal framtíðarverkefna Borg-
arinnar er að gefa út allt fyrirliggj-
andi efni Hjálma í sérstökum vínyl-
kassa fyrir jólin. Um fjögurra
platna kassa verður að ræða, þar
sem nýja platan bætist við þær
þrjár sem þegar hafa komið út.
Morgunblaðið/hag
Ljósmynd/Guðmundur VigfússonLjósmynd/Guðmundur Vigfú
sson
Ný og öflug útgáfa standsett
Ný útgáfa, Borgin, mun m.a. gefa út Hjálma, Baggalút og Megas sem voru
áður hjá Senu Snýst fyrst og síðast í kringum listamennina, segir talsmaður
Borgarlistamenn
Egill S, Megas (ásamt
Senuþjófunum),
Hjálmar og Baggalút-
ur eru nú á mála hjá
Borginni, og vænt-
anlegar plötur þess-
ara aðila verða undir
hennar hatti.
Orgeltónleikar í
Reykholtskirkju
14. júlí kl. 20:30
Sólveig Sigríður Einarsdóttir
organisti við Akureyrarkirkju
Leikin verða verk eftir: Jan Pieterszoon Sweelinck, Francois Couperin, Johann
Sebastian Bach, Felix Mendelssohnn Bartholdy, César Auguste Frank, Léon
Boëllmann og Sigfried Karg-Elert.
Tónleikarnir eru þeir þriðju í orgeltónleikaröð sumarsins
á vegum Reykholtskirkju og Félags íslenskra organleikara.
Aðgangseyrir rennur í Orgelsjóð Reykholtskirkju
Miðaverð: 1.500 kr.