Morgunblaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2009
Í SVÍÞJÓÐ mega börn yfir 11 ára
aldri horfa á Brüno en í Kanada
verða áhorfendur að vera orðnir 18
ára nema þeir séu í fylgd með full-
orðnum. Þeir mega þó
aldrei vera undir 14 ára
aldri. Á Íslandi er myndin
ekki við hæfi barna undir
14 ára aldri en í Bretlandi
er hún bönnuð innan 18.
Finnar og Norðmenn
miða við 15 ára aldur.
Ingi Úlfar Helgason,
dreifingarstjóri hjá Sam-
film, segir dreifingaraðila
kvikmynda fara eftir þriggja ára
gamalli lagasetningu við mat á ald-
urstakmörkum og miði við hollenskt
matskerfi, Kijkwijzer. „Með Brüno
er farið niður í 12 ára og eldri í Hol-
landi en við ákváðum að hækka það.
Þannig að í rauninni höfum við loka-
ákvörðun en miðum alltaf við þetta
kerfi,“ segir Ingi. „Ég held að öll
Evrópa hafi tekið mikið vægar á
þessari mynd. Könunum finnst þetta
alveg rosalegt.“
Ábyrgð foreldra er mikil
Breska kvikmyndaeftirlitinu
fannst þetta líka rosalegt því það
bannaði myndina fólki undir 18 ára
aldri. Það sem fór helst fyrir brjóstið
á Bretunum eru atriði þar sem
Brüno hefur mök við
dvergvaxinn unnusta sinn
og notar til þess ýmis
óvenjuleg tæki; atriði þar
sem hann þykist hafa
munnmök við afturgöngu
Milli úr Milli Vanilli og síð-
ast en ekki síst atriði þar
sem Brüno fer í maka-
skiptateiti. Svartir kassar eru
settir fyrir kynfæri í kvik-
myndinni nema þegar karlmaður
sveiflar manndómnum í nærmynd í
dágóðan tíma.
„Kaninn leyfir allt ofbeldi en svo
þegar að kynlífi kemur segir hann
stopp. Við erum frekar harðari á of-
beldinu,“ segir Ingi. Spurður að því
hvernig fylgst sé með því að bíógest-
ir hafi náð tilskyldum aldri segir
hann það í verkahring dyravarða. Þá
sé ábyrgð foreldra mikil, að fara
ekki með barn sitt á bannaða mynd
og fylgjast með því að barnið fari
ekki á slíka mynd án leyfis.
helgisnaer@mbl.is
11 í Svíþjóð, 18 í Kanada
Kynlífstákn úr hol-
lenska matskerfinu
Að sitja í fullum bíósal, þarsem meðalaldurinn er á aðgiska 18 ár og horfa á
mann sveifla á sér stoltinu í nær-
mynd í um 10 sekúndur, er góð
skemmtun, ótrúlegt en satt, en
jafnframt býsna sérstök upplifun.
Kvikmyndin Brüno er ein af þess-
um gamanmyndum sem maður
hlær að með samviskubit. Enda
gerir höfundur hennar, leikarinn
Sacha Baron Cohen, út á hvers
kyns mögulega fordóma, fáfræði
og smekkleysu. Í raun hrúgar
hann eins mikilli smekkleysu í
eina kvikmynd og mögulegt er,
að sársaukamörkum. Spreng-
hlægilegri smekkleysu, nota bene,
þar sem hrært er stanslaust í
heilabúinu á manni. Af hverju
hlær maður svo innilega að naut-
heimskum, austurrískum tísku-
sérfræðingi sem er einhver mesta
hommafordómaklisja sem sést
hefur í háa herrans tíð? Ætti
maður ekki að hneykslast? Nei,
þetta er ekkert nýtt.
Mörkskáld-
skapar og veru-
leika eru býsna
óljós í Brüno, miklu óljósari en í
síðustu mynd Cohens, Borat. Þar
var einnig gert út á heimsku og
fordóma Bandaríkjamanna (ekki
veit ég hvað Bandaríkjamenn
hafa gert umfram aðrar Vest-
urlandaþjóðir til að eiga þetta
skilið). Cohen gerir út á homma-
fordóma og ranghugmyndir fólks
um samkynhneigða, lætur t.d.
kynmökin vera eins ýkt og óeðli-
leg og hægt er (gervilimur festur
framan á stöng sem fest er í
þrekhjól, halló!). Grínmynd sem
látin er líta út fyrir að vera heim-
ildarmynd er kölluð „mockument-
ary“ á ensku en á þessa mynd
hefur orðinu „shockumentary“
verið klínt. Enda greinilegt að
ganga á fram af bíógestum. Slík-
ar áætlanir geta hins vegar haft
þveröfug áhrif og komið í bakið á
þeim sem vill hneyksla. Cohen
kemst býsna nærri því að
hneyksla þegar mörk raunveru-
leika og leiklistar verða óljós og
eitthvert magnaðasta atriði
myndarinnar er viðtal sem Brüno
tekur við móður sem vill gjarna
að koma kornungu barni sínu í
myndatöku hjá tískulöggunni.
Brüno spyr hvort barnið geti lést
um 5 kg, úr 15 kg í 10, viku
fyrir myndatökuna og
hvort móðurinni sé sama
þótt barnið fari í fitusog.
Allt í fína, segir mamman.
Að lokum sættast þau á að
barnið verði í nasistabúningi
með annað barn í hjólbörum í
hlutverki gyðings, að keyra það í
átt að ofni!
Hver er tilgangurinn? Benda áað, jú, það er til ótrúlega
siðlaust og vitlaust fólk í heim-
inum sem ætti ekki að eiga börn.
Þarf að benda á það? Nei, senni-
lega ekki en það er samt hrika-
legt að horfa upp á það. Er Cohen
að minna okkur á að við lifum á
tímum raunveruleikasjónvarps,
þegar menn gera nánast hvað
sem er fyrir peninga og frægð, á
tímum þegar einhverjir vinsæl-
ustu sjónvarpsþættir heims sýna
samkynhneigða karla kenna kon-
um að klæða sig og mála og vera
ánægðar með líkama sinn? Að við
lifum á tímum s.k. klámvæðingar,
kynfæri og rassar út um allt sem
dynja á okkur alla daga líkt og
gervilimirnir hans Brünos?
Þessi óljósu mörk, að vita ekki
hver er leikari og hver ekki,
hvort viðkomandi er virkilega svo
viðbjóðslegur og siðlaus sem
raun ber vitni, veldur manni
ónotum mitt í öllum hlátr-
inum. Er Baron Cohen að
segja okkur að við séum öll
fífl að hlæja að þessu? Eða
einfaldlega að benda á
öfgarnar alltumlykj-
andi? Að lífið sé ynd-
islega brenglað og
ekki annað að
gera en hlæja að
því.
Brüno og raunveruleikinn
» Brüno spyr hvortbarnið geti lést um 5
kg, úr 15 kg í 10, viku
fyrir myndatökuna og
hvort móðurinni sé
sama þótt barnið fari í
fitusog.
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
Brüno Nakinn með
dulu um sig miðjan, á
stæltum fola, nema
hvað.
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
VINSÆLASTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
53.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
MISSIÐ EKKI AF STÆRSTU
OG SKEMMTILEGUSTU
TEIKNIMYND ÁRSINS!
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
/ AKUREYRI
BRUNO kl. 6 - 8 - 10 14
THE HANGOVER kl. 8 12
TRANSFORMERS 2 kl. 5:15 - 10 10
/ KEFLAVÍK
BRUNO kl. 8 - 10 14
TRANSFORMERS 2 kl. 10 10
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 8 L
/ SELFOSSI
BRUNO kl. 8 - 10 - 11 14
TRANSFORMERS 2 kl. 8 10
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI,
KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Austurhrauni 3
210 Garðabær
S. 533 3805
Mikið úrval af
Seafolly sundfatnaði
í stærðum 8 - 18