Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 195. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «FLUGAN FLÖGRAÐI VÍÐA Á STRÖNDINNI OG Í FORNUM KAUPSTAÐ «LEIKUR MIKAEL BLOMKVIST Afþakkaði hlut- verkið í upphafi KR-ingar minnkuðu forskot FH- inga í úrvalsdeild karla í fótbolt- anum niður í tíu stig í gærkvöld með því að sigra Fjölnismenn, 2:1, í Grafarvoginum. ÍÞRÓTTIR Forysta FH komin niður í 10 stig Hinn 59 ára gamli Tom Watson missti naumlega af sigri á opna breska meistaramótinu í golfi en Stewart Cink lagði hann að velli í bráðabana. Watson brást á síðustu holu Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is „ÞAÐ má ekki samþykkja samninginn óbreytt- an,“ segir Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður um Icesave-samninginn. „Það verður að gera fyrir- vara um að þær reglur sem gengið er út frá um úthlutun úr búi Landsbankans upp í kröfur vegna Icesave verði endurskoðaðar.“ Hann segir að samningnum verði ekki breytt einhliða af hálfu Íslendinga. „En spurningin er hvort íslenska ríkið ætlar að lögfesta ábyrgð ríkissjóðs á greiðslu, sem er víðtækari en okkur nokkurn tíma bar greiða. Þess vegna finnst mér að við verðum að stöðva þetta. Menn sömdu af sér,“ segir Ragnar. Hann segir sinn skilning hafa beina stoð í til- skipun ESB um innstæðutryggingasjóði. Hann sé einnig í samræmi við íslensk lög. „Ég held að þess vegna hafi náðst sam- komulag um aðra uppgjörsaðferð, því með því er vikið frá því sem ætti að vera samkvæmt ís- lenskum lögum,“ segir Ragnar. Menn rugla tvennu saman Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, tekur undir með Ragnari og báðir vísa þeir á bug þeirri gagnrýni, að þeirra túlkun brjóti í bága við neyðarlögin. „Menn rugla tvennu saman,“ segir Eiríkur. „Neyðarlögin kveða aðeins á um að allar inn- stæðukröfurnar, án tillits til fjárhæðar, njóti for- gangs. Það þýðir að þær eru jafnsettar þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans, sama hvort þær eru háar eða lágar. Ef ein innstæða er 20 þúsund evrur, og við gefum okkur að 75% komi upp í kröfurnar, þá koma inn 15 þúsund af þeirri innstæðu. Þar sem íslenski innstæðutryggingasjóðurinn tekur á sig lágmarkstrygginguna, 20.887 evrur, þá fellur mismunurinn á hann. Fyrsta greiðslan ætti því auðvitað að ganga upp í okkar lágmarkstrygg- ingu. Ef við gefum okkur að innstæðan sé 100 þús- und evrur, þá koma inn 75 þúsund evrur, sem mætir að fullu okkar skuldbindingum. Það sem umfram er rennur til breska og hollenska trygg- ingasjóðsins og síðan koma kröfuhafarnir síð- astir.“ Eiríkur segir neyðarlögin engu breyta þar um. „Þau segja aðeins að 100 þúsund evra reikningurinn eigi rétt á að fá hlutfallslega greitt úr þrotabúinu, ekkert síður en 20 þúsund evra reikningurinn. Um það er enginn ágrein- ingur. En þau segja ekkert um það til hverra þessir fjármunir eiga svo að renna. Ef Íslend- ingar fá ekki fyrstu greiðslu úr búi Landsbank- ans upp í lágmarkstrygginguna, þá erum við í reynd að taka á okkur meiri ábyrgð en kveðið er á um í Evróputilskipuninni.“ „Menn sömdu af sér“ Icesave-samningurinn kveður á um víðtækari greiðslur en Íslendingum bar nokk- urn tíma að greiða, að mati Ragnars Hall hrl. og Eiríks Tómassonar lagaprófessors  Deilt um Icesave | 4, 11 Í HNOTSKURN »Icesave-samningurinn er nú til umfjöll-unar í nefndum Alþingis. Fjárlaganefnd kemur saman til fundar í dag en samning- urinn hefur einnig verið til skoðunar í utan- ríkisnefnd og efnahags- og skattanefnd. »Háværari krafa er um það á Alþingi aðsamningurinn verði ekki samþykktur í óbreyttri mynd og þingið taki sér lengri tíma til umfjöllunar. »Formaður fjárlaganefndar, GuðbjarturHannesson, segir í Morgunblaðinu í dag að málinu verði helst að ljúka í vikunni og áður en sumarþinginu lýkur. Eftir Sigurð Boga Sævarsson og Sigrúnu Birnu Birnisdóttur STÓRHÆTTA skapaðist í mikilli umferð á Vesturlandsvegi í gær- kvöldi þegar lögreglan veitti öku- níðingi á þrítugsaldri eftirför. Eftir- förin hófst um sjöleytið við Suðurfell í Breiðholti í Reykjavík, þegar ábending barst um athug- unarvert aksturslag bifreiðar. Þar reyndist á ferð bíll sem var stolið á bensínstöð Skeljungs í Árbænum síðdegis, á meðan ökumaður hennar fór inn á stöðina til að greiða fyrir eldsneyti. Voru lögreglumenn að svipast um eftir bílnum þegar ábendingin barst. Ökumanni beint inn Hvalfjörð Eltingarleikurinn barst vítt og breitt um Breiðholt, Elliðaárdal og inn á Stekkjarbakka þaðan sem ökumaðurinn ók inn Reykjanes- brautina, upp Ártúnsbrekkuna og áfram Vesturlandsveg. Reynt var að stöðva ökumanninn í hring- torgum, sem hann sinnti í engu. Þegar komið var á Kjalarnes ók maðurinn inn Hvalfjörð, en þá þeg- ar höfðu verið gerðar ráðstafanir til að hann kæmist ekki ofan í Hval- fjarðargöngin. Þar sem ökumaðurinn ók inn fjörðinn var hann á allt að 160 km hraða, eins og við einbreiðar brýr þar sem ekkert mátti út af bregða. Lögreglu tókst að stöðva manninn norðanvert í Hvalfirði, við afleggj- arann inn í Svínadal, þar sem bíllinn hafnaði úti í skurði. Þess má geta að hundur mannsins var með í för. Lögreglan á Akranesi var einnig kölluð til aðstoðar og tveimur stórum jeppum var lagt við gatna- mót vegarins úr Hvalfirði inn á Vesturlandsveg við Akrafjall. Lög- reglumenn á alls sex bílum tóku þátt í aðgerðinni auk mótorhjóla. Jafnframt fylgdi sjúkrabíll eins og jafnan er í tilvikum sem þessum. Þegar tekist hafði að stöðva öku- manninn, var hann fluttur á Sjúkra- húsið á Akranesi til skoðunar. Bíll- inn stolni er talsvert skemmdur. Stórhætta skapaðist í eftirför Morgunblaðið/Júlíus Í Hvalfirði Bíllinn endaði úti í skurði við Svínadalsafleggjara eftir eftirför fjölda lögreglubíla og mótorhjóla. Ökuníðingur eltur af lögreglunni upp í Hvalfjörð EINS og skýringarmyndirnar að ofan sýna lá leið ökuníðingsins fyrst um íbúðagötur og göngustíga í Breiðholtinu, síðar um fjölfarnar umferðaræðar og loks Vesturlands- veg og þaðan inn Hvalfjörð. Á þess- um tíma, um kvöldmatarleytið, var þungur umferðarstraumur inn í höfuðborgina og mildi að ekki urðu slys á öðrum ökumönnum. 1 2 Lögreglan sér bílinn við Select við Suðurfell kl. 19.00 Um göngustíga Um Vesturlandsveg áleiðis í Hvalfjörð Vegartálmar lögreglu Bíllinn stöðvaður við Svínadals- afleggjara kl. 19.50 ESJAN HVALFJÖRÐUR KJALARNES ELLIÐAÁR VESTURLANDSVEGUR RAUÐAVATN SUÐURLANDS- VEGUR Æsilegur eltingarleikur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.