Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 19.990 Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með sköttum (KEF-BCN). Sértilboð 24. júlí. Ath. aðeins örfá sæti á þessu sértilboði. Allra síðustu sætin ! Barcelona 24. júlí frá kr. 19.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á flugsætum aðra leiðina til Barcelona 24. júlí. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu þín í borginni sem býður frábært mannlíf og fjölbreytni í menningu, afþreyingu að ógleymdu fjörugu strandlífi og endalausu úrvali veitingastaða og verslana. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is HÖRÐUR Geirsson, safnvörður á ljósmyndadeild Minjasafnsins á Ak- ureyri, sýnir á Ísafirði í hádeginu í dag áður ókunn myndbrot frá heim- sókn Evu Braun, eiginkonu Adolfs Hitlers, til Ísafjarðar og Akureyrar fyrir um 70 árum. „Ég fann tvo kvikmyndabúta í þekktu efni Evu,“ segir Hörður og bætir við að kvikmyndir eftir Evu Braun hafi fundist eftir seinni heimsstyrjöldina í Arnarhreiðrinu, skammt frá Salzburg í Austurríki, og séu geymdar í þjóðskjalasafni Bandaríkjanna með öðru merkilegu efni eins og fyrstu ferðinni til tungls- ins. Hann hafi komist yfir efnið þeg- ar hann skoðaði þýskan sjónvarps- þátt. „Annars vegar fann ég búta frá Akureyri sem enginn hafði greint áður, fimm svart-hvít myndbrot, og síðan fann ég þrjá búta frá Ísafirði, sem voru innan um efni frá Hamm- erfest í þessum þýska sjónvarps- þætti,“ segir hann. Skýin vísuðu á Ísafjörð Hörður segist hafa tekið eftir því að myndefnið frá Hammerfest var tekið í sól en síðan hafi komið bútur þar sem loft hafi verið skýjað. Í kjöl- farið hafi aftur skinið sól á mynd- unum. „Þá uppgötvaði ég að þessi bútur er frá Ísafirði,“ segir Hörður og bætir við að þeir sem hafi klippt efnið saman hafi greinilega ekki átt- að sig á því að sumt var frá Ham- merfest og þessi stutti bútur frá Ísa- firði. Eva Braun kom til landsins með skemmtiferðaskipinu Milwaukee og eru kvikmyndir hennar með elstu litkvikmyndum teknum hérlendis. Í þeim eru meðal annars áður kunn myndbrot frá Vestmannaeyjum, Reykjavík, Gullfossi og Geysi. Bók um ferðina Árið 1996 hitti Hörður Edith Gartner, sem var með Evu Braun á skipinu til Íslands, og þá kviknaði áhugi hans á ferðinni. Með í för var líka Elisabeth Dick, sem tók ljós- myndir og gaf út í bók um ferðina. Í fyrirlestri sínum um konurnar þrjár les Hörður þýðingu á efninu sem fjallar um Ísafjörð og Akureyri. Hörður rifjar upp að Eva Braun hafi verið algerlega óþekkt þegar hún kom til Íslands, því hún hafði þá ekki birst opinberlega. Fyrirlestur Harðar um konurnar þrjár verður í Háskólasetri Vest- fjarða. Hann er öllum opinn og hefst klukkan 12.10 stundvíslega. Fann óþekkta búta  Áður ógreind myndbrot fundust frá heimsókn Evu Braun, eiginkonu Adolfs Hitlers, til Ísafjarðar og Akureyrar fyrir um 70 árum  Sýnd á Ísafirði í dag Eva Anna Paula Braun hitti Adolf Hitler fyrst 1929, þá 17 ára fyrir- sæta hjá einka- ljósmyndara hans. Þau tóku upp nánara sam- band um tveimur árum síðar og giftu sig daginn áður en þau fyrirfóru sér, 30. apríl 1945. Eva Braun var áhuga- ljósmyndari og tók meðal ann- ars margar litmyndir af Hitler sem hafa varðveist. Saman í 14 ár Foringinn Adolf Hitler MAÐURINN sem slasaðist þegar hann lenti á milli bíls og tengivagns í gær á Gæsavatnaleið er á gjör- gæsludeild. Líð- an hans er eftir atvikum ágæt að sögn vakthafandi læknis. Hann var bíl- stjóri hóp- ferðabíls með 10 frönskum ferða- mönnum og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspít- alann í Fossvogi um klukkan 17:23 í gær. Björgunarsveitin Hérað sem var í hálendisgæslu norðan Vatnajökuls var fyrst á vettvang slyssins sem varð á Gæsavatnaleið skammt vest- an við Kistufell. Björgunarsveitarmenn hlúðu að manninum á meðan beðið var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Varð á milli bíls og tengivagns á Gæsavatnaleið GÍSLI H. Friðgeirsson kajakræðari lagði upp frá Hverfisfjöru á Skeið- arársandi um kl. 4.30 í gærmorgun og eftir 58 km róður kom hann að ósum Kúðafljóts um sexleytið í gær. Vegna komandi norðanáttar ákvað hann að halda áfram að Vík, um 43 km í viðbót. Takmark Gísla er að verða fyrsti Íslendingurinn til að róa kajak um- hverfis landið og setja í leiðinni ald- ursmet á róðrarleiðinni, en Gísli verður 66 ára í haust. Hann hóf ferðina á Geldinganesi 1. júní og þegar hann kom að Kúðafljóti hafði hann róið 1.596 km – 357 km eftir. steinthor@mbl.is Gísli ræðari búinn að róa 1.596 km TVEIR bílar eru óökufærir eftir að þeir rákust saman í Ljósavatns- skarði um klukkan fimm í gær. Engin slys urðu á fólki en óhapp- ið varð er annar bíllinn var að taka fram úr hjólreiðamanni og náði ekki að sveigja bifreiðina frá hinni sem þá kom aðvífandi. Umferð í átt til höfuðborgar- innar var þung í gær bæði um Vest- urlandsveg og Suðurlandsveg en gekk að mestu áfallalaust. Tveir bílar óökufærir eftir árekstur HESTAKERRA með þremur klár- um innanborðs valt skammt frá Skíðaskálanum í Hveradölum í gærdag. Þrjú hross voru í kerrunni, en lögreglan á Selfossi gat ekki svarað neinu til um afdrif þeirra né um tildrög óhappsins. Þá valt bíll í Ásaskógi í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi í gær, en ekki urðu nein slys á fólki. Að öðru leyti gekk umferð austanfjalls áfallalaust þrátt fyrir að hún væri býsna þétt. Hestakerra valt í Hveradalabrekku Morgunblaðið/Eggert Ljósmynd/Eva Braun Listakona Þórdís Egilsdóttir, veflistakona á Ísafirði, fyrir um 70 árum. Ljósmynd/Eva Braun Blómagarðurinn Úr Jónsgarði við Seljalandsveg á Ísafirði 1939. Á siglingu Eva Braun kom til Íslands á skemmtiferðaskipinu Milwaukee. ÞYRLA frá danska varðskipinu Hvítabirninum fór í gær í sjúkraflug í eyj- una Knarrarnes á Faxaflóa. Þyrluflugmenn Gæslunnar voru á sama tíma í öðru verkefni og önnur áhöfn var ekki tiltæk. Því var leitað til Dananna, sem oft hafa sinnt verkefnum sem þessum. Þeir flugu í Knarrarnes, sóttu þar veikan sjúkling og komu til baka síðdegis. Danirnir aðstoðuðu Ljósmynd/Baldvin Örn Berndsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.