Morgunblaðið - 20.07.2009, Page 6

Morgunblaðið - 20.07.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is GENGISHRUN íslensku krónunnar hefur orðið til þess að eftirspurn erlendra ferðamanna eftir bílaleigubílum hefur aukist til muna. Brjál- að er að gera á bílaleigunum og í raun skortur orðinn á bílum. Bókanir hafa verið mjög góðar það sem af er sumri og horfurnar fram eftir ágústmánuði betri en fyrirtækin þorðu að vona. Eru flestar leigur uppbókaðar fram í miðjan ágúst. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segjast geta tekið við fleiri pöntunum ef ekki væri líka víða orðið fullbókað í hótelgistingu og sömuleiðis flug frá ákveðnum áfangastöðum í Evrópu. Dæmi eru um bílaleigur sem eru hættar að taka við bókunum þar sem nægt gistirými er ekki til staðar í júlímánuði. Snarminnkandi sala á nýjum bílum og al- mennur samdráttur á innanlandsmarkaði hefur einnig orðið til þess að draga úr framboði á bíla- leigubílum. Þeir munu hafa verið vel á sjöunda þúsundið þegar best lét á síðasta ári en eru nú á bilinu 5.500 til 6.000. Þannig keyptu stærstu leigurnar hátt í 2.500 nýja bíla á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum blaðsins, en í ár er tal- ið að 200-300 nýir bílar hafi verið keyptir. Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri hjá Höldi á Akureyri, segir að júní hafi verið óvenjugóður, fullbókað sé í júlí og stefni í góðan ágúst. Hins vegar sé nauðsynlegt að ná að dreifa viðskiptunum yfir árið frekar en að vera með einn topp yfir sumarið. Höldur er með álíka marga bíla og í fyrra, rétt um 2.000. Steingrímur segir þá hafa ætlað að vera með færri bíla en vegna mikilla bókana í sumar náðist að halda í nær sama bílaflota. Hann segir hlutfall erlendra ferðamanna meðal viðskiptavina vera mun hærra en á sama tíma í fyrra, eða um 80% í stað 60-70% áður. Fyrirtæki og stofnanir hafi greinilega minnkað viðskipti sín með bílaleigubíla og Íslendingar versli almennt ekki við þá yfir sumarið, nema þá vegna tjóna á eigin bílum. Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Avis, og Björgvin Njáll Ingólfsson, framkvæmda- stjóri Hertz, taka undir með Steingrími og segja sumarið koma mjög vel út þó að færri bílar séu í umferð miðað við síðasta sumar. Síð- an í júní hafi bókanir verið mjög góðar og mörg- um hafi verið vísað frá. „Við höfum lent í kreppunni eins og önnur fyrirtæki. Erfiðara hefur verið að útvega fjár- magn og við höfum ekki getað keypt það magn af bílum sem við vildum,“ segir Björn en Avis er í sumar með um 25% færri bíla en í fyrra. Björgvin segir bílana hjá Hertz vera 15% færri en í fyrra. Allt sé komið á fulla ferð þó að bókanir hafi komið seinna inn en oft áður. Brjálað að gera hjá bílaleigunum  Flestar bílaleigur uppbókaðar fram í miðjan ágúst  Hægt væri að taka við fleiri bókunum ef ferða- menn fengju gistingu eða flug til landsins  Bílaumboðin orðin eigendur að æ fleiri bílaleigum Morgunblaðið/Ómar Bílaleigur Erlendir ferðamenn geta leigt bíla hér á landi í sumar á góðum kjörum. Í HNOTSKURN »Stærstu leigurnar eru Höldur á Ak-ureyri, Hertz, Avis, Budget (áður Alp), Sixt og einnig má nefna Átak, SS- bílaleigu og Dollar Thrifty (áður Saga Car Rental), sem er í eigu Brimborgar og hefur verið að auka hlut sinn. »Bílaumboðin hafa í auknum mælikomið að eignarhaldi á bílaleigum, ekki síst eftir að sala á nýjum bílum fór að dragast saman. »Þannig er Hertz í eigu Toyota, Sixt ávegum Bílabúðar Benna og Ingvar Helgason á 50% hlut í Avis. Þá hafa Hekla og Höldur verið í samstarfi með umboð fyrir Europcar á Íslandi, svo ein- hver dæmi séu tekin. Aukinn straumur erlendra ferðamanna til Íslands í sumar hefur skapað tímabundin, jákvæð vandamál. Bílaleigur er flestar full- bókaðar sem og gistirými víða um land. AKUREYRINGAR og nærsveitungar þykja ef til vill gamal- dags en um helgina keyrði sjálfsagt fram úr hófi þegar þeim gafst kostur á að bregða sér til miðalda – og kunnu því vel. Lífi var blásið í hinn forna Gásakaupstað við Eyjafjörð, helsta verslunarstað Norðurlands, frá 12. öld og þar til verslun hófst á Akureyri á 16. öld, að því talið er. Fjöldi fólks lagði leið sína að Gásum, en Miðaldadagar, eins og umrædd hátíð er kölluð, halda áfram í dag og á morgun. Verslunarmenn bjóða þar ýmsa fagra muni og ef marka má það sem fyrir augu bar gleymdi fólk til forna ekki að leika sér; grimmilega var barist í knattleik sem er nútímamanninum býsna framandi, skotið var af boga og gott ef vopnaglamur heyrðist ekki í fjarska. Það var líf og fjör í hinum forna Gásakaupstað Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mannlíf á miðöldum rifjað upp við Eyjafjörð HARMONIKKUHÁTÍÐ Reykjavíkur var haldin á Ár- bæjarsafni í gær og mætti fjöldi fólks enda veðrið með eindæmum gott. Hátt í þrjátíu harmonikkuleikarar þöndu nikkur sínar og þeirra á meðal var hinn 85 ára gamli Karl Jónatansson sem hefur spilað opinberlega á nikkuna í 74 ár. Að hans sögn er það eflaust ansi ná- lægt Íslandsmetinu. Karl segir stemninguna á hátíðinni hafa verið mjög góða. „Það voru allir mjög ánægðir en þetta er dálítið óvenjuleg skemmtun,“ viðurkennir hann. Karl hætti nýverið að kenna á harmonikku en kenn- araferillinn spannaði 60 ár. Hann segir nemendur sína skipta þúsundum en þeir búi víðsvegar um landið, í Danmörku og á Englandi. ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Ómar NIKKUR ÞANDAR Í BLÍÐVIÐRI Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „ÉG hef talað fyrir því að við ljúkum Icesave í vikunni og að sumarþingi verði ekki frestað fyrr en málið hefur verið leitt til lykta,“ segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefnd- ar Alþingis. Ólíkar skoðanir eru uppi á vettvangi nefndarinnar um hve langan tíma taki að ljúka umfjöllun um Icesave. Stjórnarandstaðan telur ýmis gögn málinu viðvíkjandi skorta. Meirihlutinn telur hins vegar að flest sem máli skipi sé komið fram og heildarmyndin sé að skýrast. Eftir fund í fjárlaganefnd í dag, mánudag, eigi því að verða ljóst hver fram- vindan verði. Guðbjartur segir að enn sé beðið álits efnahags- og skattanefndar og utanríkismála þingsins sem fjallar um afmarkaða þætti málsins. Þá vilji fjárlaganefnd skerpa á endurskoð- unarákvæði samkomulagsins um Ice- save og kanna fleiri þætti, með tilliti til greiðslugetu Íslendinga ef for- sendur í rekstri þjóðarbúsins breyt- ast. „Stjórnarflokkarnir geta tekið málið út úr nefndinni í vikunni en slíkt verður þá gert undir háværum mótmælum okkar sjálfstæðismanna,“ segir Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, sem situr í fjárlaganefnd. Hún segir að enn vanti gögn svo ljúka megi af- greiðslu málsins, auk heldur sem spurningum sé ósvarað en málsmet- andi fólk hafi teflt fram röksemdum um að verði fyrirliggjandi drög að samkomulaginu um Icesave sam- þykkt séu Íslendingar að undirgang- ast skuldbindingar sem séu hundr- uðum milljarða kr. hærri en ella þyrfti að vera. Óþarft sé því að rasa um ráð fram við afgreiðslu málsins. Vill að Icesave af- greiðist í vikunni Sjálfstæðismenn boða hávær mómæli Guðbjartur Hannesson Ólöf Nordal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.