Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Auglýsing um yfirfærslu vátryggingastofns Vakin er athygli á auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu 9. júlí sl. vegna fyrirhugaðr- ar yfirfærslu vátryggingastofns Sjóvár-Almennra trygginga hf. til SA trygginga hf., nýs fé- lags sem taka mun við vátryggingarekstri Sjóvár-Almennra trygginga. Texti auglýsingar- innar er svohljóðandi: Sjóvá Almennar tryggingar hf. (kt. 701288-1739) og SA tryggingar hf. (óskráð félag) hafa sent Fjármálaeftirlitinu umsókn um leyfi til yfirfærslu vátryggingastofns Sjóvár Almennra trygginga hf. Hluthafar SA tryggingar hf. eru eftirtaldir: 1. Glitnir banki hf. (kt. 550500-3530) 17,67% 2. Íslandsbanki hf. (kt. 490108-0160) 9,30% 3. SAT eignarhaldsfélag hf. (kt. 450500-3720) 73,03% Vátryggingafélagið Sjóvá Almennar tryggingar hf. hefur í hyggju að hætta vátrygginga- starfsemi og flytja vátryggingastofna sína yfir til nýs vátryggingafélags sem mun bera heit- ið SA tryggingar hf. Nafni vátryggingafélagsins (nú Sjóvá Almennar tryggingar hf.) verður við yfirfærsluna breytt í SJAL Fasteignir hf. Fjármálaeftirlitið vinnur við athugun á um- sókn hins nýja vátryggingafélags. Með vísan til 86. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994, með síðari breytingum, til- kynnist hér með fyrirhuguð yfirfærsla á vátryggingastofni Sjóvár Almennra trygginga hf. til hins nýstofnaða vátryggingafélags. Fyrirhugað er að yfirfærsla vátryggingastofna miðist við 1. júní 2009. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu fá nýtt nafn sem fyrr segir og hætta vátryggingastarf- semi að fengnu starfsleyfi hins nýja vátryggingafélags. Með vísan til 4. mgr. 86. gr. nefndra laga munu réttindi og skyldur vátryggingataka, vá- tryggðra og annarra samkvæmt vátryggingasamningum halda sjálfkrafa gildi sínu við flutninginn. Vátryggingatakar munu geta sagt upp vátryggingasamningum sínum við félag- ið frá þeim degi er flutningur stofnsins á sér stað tilkynni þeir uppsögn skriflega innan mánaðar frá flutningsdegi. Áður en Fjármálaeftirlitið tekur afstöðu til máls þessa og með vísan til 2. mgr. 86. gr. nefndra laga óskar Fjármálaeftirlitið eftir skriflegum athugasemdum vátryggingataka og vátryggðra við fyrirhuguðum ráðstöfunum innan eins mánaðar frá birtingu þessarar til- kynningar. Fjármálaeftirlitið veitir fyllri upplýsingar ef óskað er. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og SAT tryggingar hf. HÆSTARÉTTARDÓMARI í Ontario-fylki í Kanada úrskurðaði á föstudag að félag í eigu at- hafnamannsins Ottos Spork, Sextant Capital Management Inc., og önnur systurfélög þess skyldu tekin til gjaldþrotaskipta. Spork er m.a. gefið að sök margvísleg lögbrot og stórfelld fjár- svik. Þetta kom fram í kanadískum fjölmiðlum um helgina. Meðal eigna félagsins er Iceland Glacier Products – fyrirtæki sem gert hefur samning við Snæfellsbæ um kaup á vatni og er ætlunin að flytja út íslenskt vatn. Fyrirtækið reisir nú vatns- verksmiðju á Snæfellsnesi. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir ekki vitað hvort og þá hvaða áhrif fréttirnar frá Kanada hafa á samninginn sem gerður var við Iceland Glacier Products um vatnskaup árið 2007. „Það er meðvituð ákvörðun hjá sveitarfélaginu að skipta sér ekki af rekstri ákveðinna fyrirtækja eða félaga sem það gerir samninga við, hvort sem það eru sjávarútvegsfyrirtæki eða hvaðeina.“ Kristinn segir jafnframt að hann hafi ekki orðið var við að hægt hafi á framkvæmdum við verk- smiðjuna. „Við höfum engar áhyggjur á meðan þeir standa við samninginn. Framkvæmdir standa yfir núna og við höfum ekki orðið vör við að neitt hafi breyst enn sem komið er.“ Hann segir aldrei hafa verið meiri áhuga á ís- lenska vatninu. „Það hafa margir sýnt áhuga og við höfum því engar sérstakar áhyggjur af þess- um samningi.“ haa@mbl.is Óvissa um vatnsverksmiðjuna  Móðurfélag Iceland Glacier Products tekið til gjaldþrotaskipta í Kanada  Eigandinn, Otto Spork, sakaður um ýmis lögbrot og stórfelld fjársvik ÞRÍR piltar klifr- uðu upp í Hall- grímskirkju í fyrrinótt. Pilt- arnir komu niður er lögregla kom á staðinn og kall- aði til þeirra. Að sögn lög- reglu er þetta ekki í fyrsta skipti sem ölvað fólk fer inn á vinnusvæði við kirkj- una og klifrar þarna upp. Klifruðu upp í Hall- grímskirkjuturninn Hallgrímskirkja er jafnan eftirsótt. LÚKAS Blær fékk góðan stuðning við stýrið frá vinkonu sinni, Marý Elísa- betu, er þau spókuðu sig í góða veðrinu í Grasagarðinum í Laugardal á dögunum. Tilbúin í garðyrkjuna ef á þyrfti að halda, eins og sjá má. Morgunblaðið/Eggert STUTT VIÐ BAKIÐ Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is HARALDUR Briem sóttvarnalækn- ir býst fastlega við að svínaflensu- smitum fari fjölgandi. „Við förum yf- ir þetta allt saman í fyrramálið [í dag] og þá sjáum við hverjar afleið- ingar helginnar eru. Ég býst ekki við öðru en að fleiri hafi smitast.“ Níunda tilfelli svínaflensu var til- kynnt landlækni á föstudag. Sá sem greindist með veiruna er þrítugur karlmaður. Hann hefur ekki verið erlendis nýlega og tengist ekki öðrum sem hafa greinst með veiruna hér á landi. Haraldur segir nýjasta tilfellið benda til að veiran sé að skjóta hér rótum. „Þetta er ákveðin vísbending um að veiran sé að dreifast hér hægt og bítandi án þess að við vitum af því. Við bjugg- umst alveg við því enda hafa svo margir af þeim sem hafa greinst hér ekki verið með áberandi ein- kenni og jafnvel hálfgerð tilviljun að þeir leituðu til læknis. Það er því alveg gefið að við missum af mörgum.“ Haraldur segir að það sé ákveðin þumalputtaregla að margfalda þá sem greinast með 20 og þá fáist tala sem gæti verið nálægt þeim sem eru smitaðir í raun. Býst við að til- fellum fjölgi ört Haraldur Briem Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „VIÐ fórum rösklega yfir, þótt oft rifi vel í,“ segir Jóhanna Kristín Malmquist á Reyðarfirði. Hún fór fyrir vöskum hópi sem gekk á fimm fjöll í Fjarðabyggð um helgina. Göngugarparnir voru átta og lögðu af stað um kl. sjö á laugar- dagsmorgun. Þeir gengu fyrst á Reyðarfjarðarfjöllin Kistufell og Há- degisfjall. Þaðan á Hólmatind við Eskifjörð og á Svartafell í Odds- skarði. Á Goðaborg í Fannardal inn af Norðfirði náði hópurinn kl. 03:15 aðfaranótt sunnudags, en þá höfðu þrír helst úr lestinni. „Alls vorum við rúma 22 tíma á göngu og náðum í mark á betri tíma en þeir sem fóru þessa leið í fyrra. Árangurinn er því býsna góður,“ segir Jóhanna og bætir við að eftir þetta sé fólk komið í prýðilega þjálf- un og sé til í nánast hvað sem er. Einhverjir ætli sér að arka á fjöll eystra en mörg þeirra eru þekkt fyr- ir sterkan svip og gott útsýni. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Gengu á fimm tinda í Fjarðabyggð á sólarhring Garpar Róbert Beck, Sigtryggur Hilmarsson, Gylfi Frímannsson, Halldór Berg og Jóhanna Kr. Malmquist eru sannarlega vaskir göngugarpar. STJÓRN Eyþings, sambands sveit- arfélaga í Eyjafirði og Þingeyjar- sýslum, hafa sent samgöngu- ráðherra og þingmönnum bréf þar sem fagnað er áformum um að ráð- ast í gerð jarðganga undir Vaðla- heiði. Er ráðherra hvattur til að standa fast við þau áform. Harmar stjórn Eyþings „þá ómál- efnalegu umræðu sem átt hefur sér stað um Vaðlaheiðargöng og ákvörð- un samgönguráðherra að undan- förnu“. Það sé rangt sem haldið hafi verið fram, að ákvörðun um göngin muni tefja framgang annarra mik- ilvægra samgönguframkvæmda, einnig sé rangt að ákvörðun sam- gönguráðherra hafi ekki verið tekin á faglegum forsendum. „Rétt er einnig að halda því sér- staklega til haga að gert er ráð fyrir að veggjöld standi undir að lág- marki helmingi kostnaðar við gerð Vaðlaheiðarganga. Það gerir fram- kvæmdina enn fýsilegra en ella við þær efnahagsaðstæður sem við bú- um við í dag,“ segir m.a. í bréfi Ey- þings. Harma ómálefnalega um- ræðu um Vaðlaheiðargöng TVEIR ökumenn voru teknir á Blönduósi á laugardagskvöld, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við húsleit hjá öðrum þeirra fundust tæplega 30 grömm af marijúana. Hjá hinum fannst lít- ilræði af fíkniefnum. Í gærmorgun var 16 ára stúlka tekin ölvuð og próflaus við akstur. Mikið fjölmenni var í bænum vegna Húnavöku og fór sú hátíð að öðru leyti mjög vel fram. Fíkniefni fundust við húsleit FIMM ökumenn, grunaðir um ölv- unarakstur, voru stöðvaðir í um- dæmi lögreglunnar í Borgarnesi í fyrrinótt og gærmorgun. Fjórir ökumannanna voru teknir í fyrrinótt og einn í gærmorgun. „Þetta er í meira lagi,“ sagði lög- reglumaður við mbl.is en mikil um- ferð var í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi um helgina. Fimm stútar á ferð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.