Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 10

Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 46 31 1 05 /0 9 • Með virkjun jarðvarma til framleiðslu á rafmagni sparast jarðefnaeldsneyti til framleiðslu á rafmagni. www.or.is Þriðjudaginn 21. júlí verður farin fræðslu- og gönguferð á Hengils- væðinu. Hugað verður að orkunni og beislun hennar, orkujarð- fræði, gróðri og sögu. Mæting í Hellisheiðar- virkjun við Kolviðarhól kl.19:30. Leiðsögumenn eru Einar Gunn- laugsson jarðfræðingur og Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Ganga á Hengils- svæðið Breski blaðamaðurinn AndrewRawnsley skrifar grein í blaðið The Observer í gær þar sem hann veltir fyrir sér hvort nú séu að verða straumhvörf í breskum stjórnmálum. Hingað til hafi mátt treysta á vegasaltslögmálið. Er Verkamannaflokkurinn dalaði lyft- ist Íhaldsflokkurinn og öfugt.     Nú hlýturVerka- mannaflokk- urinn enga náð fyrir augum kjósenda og í síð- ustu 20 skoð- anakönnunum, sem birtar hafa verið, hefur hann fengið 25% fylgi eða minna í öllum nema þremur. Íhaldsflokkurinn nýtur vissulega góðs af þessu, en ekki að því marki, sem búast mætti við. Í síðustu 20 skoðanakönnunum, sem birtar hafa verið, fer flokkurinn aðeins yfir 40% í sex og aldrei yfir 41%. Þegar Verkamannaflokkurinn var á leið til valda á ný árið 1997 mældist hann hins vegar yfirleitt með tæp 50% og fór oft yfir þá tölu.     Rawnsley segir að Íhaldsflokk-urinn ætti í raun að standa mun betur og leiðir getum að því hvers vegna hann geri það ekki: „Sam- drátturinn hefur hvorki gert kjós- endur afdráttarlaust hægri sinn- aðri né vinstri sinnaðri. Hann hefur gert þá ákaflega tortryggna gagn- vart öllu tilkalli til trausts þeirra.“ Hann vitnar í forkólf úr Verka- mannaflokknum, sem hefur áhyggjur af að flokkurinn komist ekki upp úr hjólförum tuttugustu aldarinnar í málflutningi sínum.     Það skyldi þó aldrei vera að yfir-færa mætti þessa greiningu á íslenska kjósendur? Þeir gengu að kjörborðinu fullir tortryggni í síð- ustu kosningum og greiddu at- kvæði eins og þeir gerðu af því að þeir áttu ekki annars kost. Og hin pólitíska umræða var eins og end- urtekið efni frá liðinni öld. Brown Óvinsæll. Tortryggnir kjósendur Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 18 skýjað Lúxemborg 18 skýjað Algarve 30 heiðskírt Bolungarvík 12 léttskýjað Brussel 19 léttskýjað Madríd 34 heiðskírt Akureyri 14 skýjað Dublin 14 skúrir Barcelona 25 léttskýjað Egilsstaðir 11 skýjað Glasgow 15 skýjað Mallorca 26 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 14 skýjað London 20 skýjað Róm 27 heiðskírt Nuuk 9 léttskýjað París 21 skýjað Aþena 34 léttskýjað Þórshöfn 14 léttskýjað Amsterdam 19 léttskýjað Winnipeg 22 skýjað Ósló 15 skúrir Hamborg 16 skúrir Montreal 20 skýjað Kaupmannahöfn 20 skýjað Berlín 21 léttskýjað New York 23 heiðskírt Stokkhólmur 20 léttskýjað Vín 22 skýjað Chicago 21 skýjað Helsinki 22 heiðskírt Moskva 27 skýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 20. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.36 3,3 10.48 0,7 17.04 3,8 23.30 0,6 3:58 23:11 ÍSAFJÖRÐUR 0.51 0,6 6.47 1,9 12.59 0,5 19.09 2,3 3:31 23:49 SIGLUFJÖRÐUR 2.53 0,3 9.22 1,2 15.04 0,5 21.23 1,4 3:12 23:33 DJÚPIVOGUR 1.38 1,7 7.44 0,5 14.17 2,1 20.37 0,6 3:20 22:48 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag og miðvikudag Norðaustan 5-13 m/s og hvass- ast norðvestanlands og við suðausturströndina. Dálítil súld eða rigning með köflum um norðan- og austanvert landið en annars yfirleitt þurrt og bjart. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast suðvestanlands. Á fimmtudag og föstudag Áframhaldandi norðlæg átt. Kalt norðantil og víða rigning eða súld af og til, en mildara og bjart með köflum fyrir sunnan, þó hætt við skúrum. Á laugardag Líklega hæg suðlæg eða breyti- leg átt og víða skúrir, einkum sunnanlands. Fremur svalt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 3-10 m/s, hvassast NV- og SA-til. Skýjað en úr- komulítið austanlands, bjart á Vesturlandi, annars skýjað með köflum. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast suðvestantil. Reykjanesbær | Fjöldi fólks heiðr- aði Herdísi Egilsdóttur, rithöfund og kennara, á 75 ára afmæli hennar á laugardaginn. Herdís hélt upp á afmælið í helli skessu sinnar við smábátahöfnina í Gróf á Suðurnesjum. Komið hafði verið uppi langborði með grillum utan við hellinn og bakaðar lumm- ur að hætti skessunnar. Lummu- bakararnir höfðu vart undan enda streymdi að í þá tvo tíma sem af- mælisveislan stóð yfir. Herdís var að vonum ánægð með daginn, fékk óskaveðrið og alla þessa góðu gesti. Innandyra sat skessan í sínum ruggustól og lék tónlist úr leikriti Herdísar, Holt og hæðir, sem Her- dís fékk verðlaun fyrir árið 1974 og byggði samnefnda bók á. Herdís sagði í samtali við tíðinda- mann Morgunblaðsins að hún hefði viljað hafa allt heimagert og sem heimilislegast. Lummur bakaðar að hætti skessunnar Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Lummukaffi Hin 75 ára og hressa Herdís Egilsdóttir tók á móti gestum og gangandi við helli skessunnar við smábátahöfnina í Grófinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.