Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 13
Daglegt líf 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Eftir Alfons Finnsson Ólafsvík | Það er ávallt nóg að gera í bíl- skúrnum hjá Daníel Jónssyni í Ólafsvík, en hann hefur í vetur verið að gera upp gamlan trébát, sem ber nafnið Lundi. Daníel eignaðist bátinn í Stykkishólmi, en þetta er einn af svokölluðum súðbyrðingum. Þessi bátur sem er 2,6 tonn að stærð er frá árinu 1979 og var smíðaður af Stjána slipp og segir Daníel að þeir hafi verið þekktir sem gæðabátar. Er þetta 18. báturinn sem Daníel gerir upp. Átta ára til sjós Daníel byrjaði á sjó á Vestfjörðum með föð- ur sínum átta ára gamall á handfærum. Fyrsta bátinn eignaðist hann 13 ára gamall, súðbyrðing sem faðir hans endurbyggði fyrir hann. Daníel segir að hann hafi byrjað sína sjómennsku fyrir alvöru 15 ára gamall á togaranum Gylfa BA 16. „Síðan fór ég á vertíðarbáta og var lengi á Jóni Þórðarsyni BA á netum. Á þeim tíma voru notaðar glerkúlur og grjót á netin og vorum við með allt að 18 trossur í sjó. Fyrstu vertíðina mína þarna um borð fengum við 1.800 tonn af þorski. Síðan stóð maður í þessu bátabrasi í mörg ár fyrir vestan,“ segir Danni. Sótti á Flákann Árið 1971 hélt Daníel af stað til Ólafsvíkur á þriggja tonna trillu með bensínvél. „Ég þurfti að stoppa til þess að skella bensíni á vélina. Ég vissi ekkert hvar ég var og um borð var enginn dýptarmælir, talstöð né nokkuð annað. Ég ákvað því bara að henda út færunum á meðan ég setti bensín á vélina og svo bara fylltist allt af fiski og ég fyllti bátinn af fiski á mettíma. Síðan tók ég kúrsinn og mældi tím- ann sem það tók mig að sigla til Ólafsvíkur, það voru tveir og hálfur tími. Seinna komst ég að því að svæðið sem ég fékk aflann á nefndist Flákinn og reri ég mikið þangað eftir þetta. Ég fékk alltaf góðan afla þar en var talinn hálfvitlaus að róa svo langt á svona litlum bát. Það kitlaði samt hina trillukarlana að róa þangað, en það var ekkert um að vera á vík- inni. Það var víst ekkert búið að reyna að skaka þarna á Flákanum svo ég viti til áður.“ Daníel var mest á trillum og hefur átt þær nokkrar á lífsleiðinni, líklega um 15 eða 16. Mest hefur hann gert út á línu og handfæri en einnig hefur hann róið á vertíðarbátum í Ólafsvík. Meðal þeirra báta sem Daníel hefur róið á er Sveinbjörn Jakobsson SH 10, trébát- ur að sjálfsögðu, og á hann margar minningar frá þeim tíma. „Einn morguninn hafði ég sofið yfir mig, sem gerðist nú eiginlega aldrei. Ég var vakinn við það að steinum var kastað í gluggann og ég fór allur í stress og læti þar sem ég var ekki vanur að sofa yfir mig. Ég dreif mig í leppana og hljóp niður á bryggju í einum hvelli. Nú, þar voru fyrir þeir Haukur útgerðarmaður og Þráinn skipstjóri ásamt fleirum og það fóru allir að hlæja að mér. Ég spurði fokillur af hverju í andskotanum þeir væru að hlæja að mér, það gætu nú allir sofið yfir sig. Þeir komu varla upp orði fyrir hlátri og bentu bara á mig. Mér var hins vegar ekki skemmt yfir að vera eitthvert aðhlátursefni þarna á bryggjunni, bara af því að ég svaf yfir mig. Þá kom Haukur loks upp orði og sagði við mig: „Danni minn, líttu niður.“ Og jú, ég leit niður og roðnaði af skömm, því ég hafði víst flýtt mér einum um of og gleymdi að fara í brækurnar. Ég stóð þarna eins og hálfviti, kappklæddur að ofan, og bara í stígvélum og á nærbrókinni. Það er víst engin furða að þessir heiðursmenn hafi hlegið að mér og enn þann dag í dag skjóta þeir á mig út af þessu,“ segir Daníel skellihlæjandi. Ætlar að láta jarða sig í bátnum Trébátar hafa átt allan hug Daníels frá því að hann man eftir sér. „Ég ólst upp við tré- báta. Pabbi var bátasmiður og ég ólst upp á verkstæðinu hjá honum og þá fékk lítill strák- urinn að vera úti í horni með hamar. Þarna fylgdist ég með pabba í mörg ár og lærði af honum. Fyrsti báturinn sem Daníel endurbyggði var Óli Sveins sem var lítill björgunarbátur og nú er sá 18. tilbúinn. „Í þessum bát er ég bú- inn að skipta um 300 bolta og sjö borð og svo er Vedus 75 hestafla vél í bátnum sem er stór fyrir bát af þessari stærð, enda er góður gangur í bátnum. Ég nota ekki annað en alas- kafuru, það þýðir ekkert að bjóða mér annað því hún er kvistlaus og gott að vinna hana. Þessi bátur sem ég er með núna er með rún- að stefni sem þótti voðalega fínt og flott á þeim tíma.“ Daníel segir að nú sé hann ákveðinn í að eiga þennan bát og láta jarða sig í honum. Ekkert plastdót „Ég ætlaði að hætta að gera upp báta, en svo ég fékk aðsvif úti á sjó og rétt komst í land. Ég gaf sjómannadagsráði bátinn Ver SH sem ég hafði gert upp, en hann er nú staddur í sjómannagarðinum. Ég var ákveð- inn í að hætta, en svo kom Pétur Jóhanns- son, formaður sjómannadagsráðs, að máli við mig og ég fékk áhugann aftur.“ Daníel segir að hann gæti aldrei verið á plastbáti. „Það er nú ljóti hryllingurinn. Þessi hraði og skellir voru að drepa mig þegar ég prófaði þetta plastdót. Ég vil fara rólega yfir en ekki eins og í flugvél og hrist- ast allur í sundur. Trébátar hafa sál. Maður getur talað við þá og finnur hvort bátnum líður vel eða illa. Nú sér maður þessa báta liggja og grotna niður hingað og þangað, en þegar þeir eru teknir í gegn og hugsað vel um þá fer þeim að líða vel. Það er góð til- finning að finna traustabrakið í trébát- unum,“ segir Daníel dreymandi á svip. Sökkti bátunum á vorin Daníel segir að það sé hryllingur að sjá gamla góða trébáta grotna niður og síðan brennda til að skemmta fólki um áramótin. „Það er alveg ömurlegt að sjá þá verða eldi að bráð. Þegar ég sé fallegan bát reyni ég alltaf að gera allt sem ég get til að bjarga honum, en því miður hefur það ekki tekist nógu oft. Sérðu þennan bát sem ég er að vinna að núna, það átti bara að henda þessu djásni!“ Sólin er versti óvinur trébátanna, segir Daníel. Þegar hann byrjaði að róa á vorin tók hann ætíð vélar og tæki úr bátnum og sökkti honum í viku tíma. Þegar hann var tekinn upp aftur var hann eins og nýr. Daní- el er ekki ánægður með Hafró og segir að fiskveiðiráðgjöfin sé orðin tóm vitleysa. „Það þarf að fá aðra aðila í þessi mál, það er nóg af fiski hér og svo er þessi kvótaþvæla sem er orðin algjör. En sem betur fer er ég hættur þessu og sestur í helgan stein og fer bara orðið á sjó til að ná mér í soðið,“ segir Danni að lokum. Trébátar eiga hug hans allan Morgunblaðið/Alfons Stoltur skipasmiður Daníel við bátinn Ver SH sem hann gerði upp og gaf sjómannadagsráði Ólafsvíkur. Hann ætlaði að hætta að gera upp báta en svo vaknaði áhuginn aftur. Ég stóð þarna eins og hálfviti, kappklæddur að ofan, og bara í stígvélum og á nærbrókinni.  Daníel Jónsson ólst upp við trébáta  Hefur átt 15-16 trillur  Gæti aldrei verið á plastbáti Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is É g er alsæl, sérstaklega eftir að Sigríður dóttir mín kom heim. Hún keypti gamla húsið okkar og er búin að gera heilmikið fyrir það,“ segir Kristín Helgadóttir, 82 ára íbúi á Sauðárkróki. Hún nýtur lífsins í gömlu húsi við Aðalgötu í elsta hluta bæjarins. Hún hefur upplifað margt á ævi sinni. Meðal annars bjó hún með fjölskyldu sinni í Ástralíu í nítján ár. Kristín flutti með Magnúsi Jóns- syni, eiginmanni sínum, og fjórum af fimm börnum þeirra til Ástralíu 1968, án mikils fyrirvara. „Magnús var að tala um þetta en ég taldi ekki að honum gæti verið alvara. Hann var haldinn slæmu ofnæmi sem læknarnir fundu engar skýringar á. Einn morguninn gat hann til dæmis ekki komið upp orði, tungan var svo bólgin. Læknirinn sló því fram að hann þyrfti kannski að skipta um loftslag. Hann tók þetta hátíðlega en ég hélt að þetta væri bara grín. Hann las eitthvað gott um Ástralíu og sá svo auglýsingu um að ástralsk- ur erindreki frá Svíþjóð yrði á ferð- inni í Reykjavík til að kynna landið, gylla það fyrir iðnaðarmönnum sem þeir vildu fá,“ segir Kristín þegar hún rifjaði upp aðdragandann að Ástralíuævintýrinu. Samtalið við eldhúsborðið var ein- hvern veginn þannig: Magnús: „Skrifaðu til þeirra.“ Kristín: „Er þér alvara, maður?“ Magnús: „Já, mér er alltaf al- vara.“ „Ég fékk hálfgert áfall, fannst þetta svo undarlegt. Hann var heimakærasti maður sem ég hef þekkt. Fæddur og uppalinn í sama húsinu og við bjuggum í næsta húsi þar við. Hann fór helst aldrei úr bænum,“ segir Kristín. „Ég ætla heim“ Þau fluttu til Perth í Ástralíu með fjögur börn á aldrinum 5 til 18 ára en elsti sonurinn varð eftir heima. Þetta var eins og að koma í aðra ver- öld. Það er fátt í Vestur-Ástralíu sem minnir á Sauðárkrók og hvað þá eyðidalinn sem nú er, Laxárdal í Vestur-Húnavatnssýslu þar sem Kristín fæddist og sleit barns- skónum. Þau skuldbundu sig til að vera í tvö ár og Kristín var í upphafi ákveð- in í að snúa heim að þeim tíma liðn- um. „Fyrsta árið var erfitt. Ég var einmana og tárfelldi af heimþrá þeg- ar ég opnaði bréf frá Íslandi. Svo var óyndi í stelpunum,“ segir Kristín. Þetta jafnaði sig, þau aðlöguðust lífi á nýjum stað og eignuðust vini. Þau voru ekki búin að vera nema fáeinar vikur í landinu þegar þau keyptu sér hús og vegnaði yfirleitt vel. Yngsta barnið, Sigríður sem var fimm ára þegar þau fluttu, var þó alltaf ákveð- in í því hvað hún ætlaði að gera. „Talið íslensku við mig. Ég ætla heim“, sagði hún. Það var svo sem ekki mikil hætta á að þau færu að tala ensku á heimilinu því Magnús kunni ekki málið en Kristín gat bjargað sér aðeins á grunni þess sem hún hafði lært einn vetur í Námsflokkum Reykjavíkur. Magnús hafði loforð um vinnu þegar þau fóru til Ástralíu og það var forsenda þess að þau fengu að flytja beint til Vestur-Ástralíu. Hann hafði unnið í trésmiðju á Sauð- árkróki og vann við trésmíðar og ýmis önnur störf í Ástralíu og skorti aldrei vinnu. Eins og að skreppa frá Kristín og Magnús fluttu heim aftur eftir nítján ár, 1987. „Mað- urinn minn var farinn að finna til las- leika og vildi vita hvernig heima- landið tæki við honum. Það var yndslegt að koma heim. Hér voru svo margir gamlir vinir okkar og öll systkini mín voru á lífi. Það var eins og við hefðum skroppið frá í stuttan tíma,“ segir Kristín. Þannig stóð á að hús tengdafor- eldra hennar var laust og þau festu kaup á því. Húsið er rúmlega 120 ára gamalt og nú er búið að gera mikið við það. „Húsið beið eftir okkur. Það var eins og að koma í heimsókn til tengdamömmu þegar við fluttum inn, allt dótið hennar var hér ennþá.“ Miklar tilfinningar eru bundnar við þetta hús enda fæddist Magnús þar og ólst upp og foreldrar hans bjuggu þar í sextíu ár. Magnús kvartaði raunar undan því hvað bíla- umferðin væri orðin mikil en Kristín spurði á móti við hverju hann hefði búist, hvort hann héldi að Sauð- árkrókur væri ennþá eins og þegar hann var að alast upp. Magnús lést 1993. Kristín heldur tryggð við æskuheimili hans. Börin voru öll fullorðin þegar þau fluttu heim og urðu eftir úti. Sigríð- ur yngsta dóttir þeirra stóð þó við loforðið sem hún gaf sjálfri sér og öðrum þegar hún flutti út fimm ára, hún flutti heim fyrir fjórum árum. Hún hefur keypt íbúðarhús rétt hjá móður sinni, en það er einmitt húsið sem Magnús og Kristín bjuggu í áð- ur en þau fluttu út. Kristín er af- skaplega ánægð með það og að sjá húsið sem var í niðurníðslu færast smám saman til betri vegar. Alsæl við Aðalgötu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Heima Kristín Helgadóttir nýtur lífsins í garðinum við hús sitt í gamla miðbænum á Sauðárkróki. Hún vill hvergi annars staðar vera.  Kristín Helgadóttir nýtur lífsins í 120 ára gömlu húsi á Sauðárkróki  Hún rifjar upp Ástralíuævintýrið Aðalgata Heimili Kristínar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.